Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Síða 11
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1992.
11
Utlönd
Borís Jeltsín Rússlandsforseti kom fram á blakmóti um helgina. Þar brá
hann út af vana sínum og hafði vinstri höndina, sem á vantar tvo fingur, á
lofti. Símamynd Reuter
Fötlun Jeltsíns
sést í fyrsta sinn
Rússar fengu í fyrsta sinn í gær
að sjá svo ekki færi milli mála skað-
ann sem Borís Jeltsín, forseti þeirra,
hlaut í sprenginu þegar hann var
tólf ára gamall. Þá missti hann tvo
fingur vinstri handar og hefur til
þessa jafnan leynt hendinni.
Jeltsín kom fram við afhendingu
verðlauna á blakmóti en hann var
kunnur blakmaður og þjálfari á
yngri ánun þrátt fyrir fótlun sína.
Sögur voru á kreiki um að Jeltsín
væri við slæma heilsu og notaði hann
þetta tækifæri til að sýna að ekkert
amaði að honum.
Um leið brá hann út af vana sínum
að hafa vinstri höndina í vasanum
þegar myndavélar eru nærri. í valda-
ráninu í Moskvu síðsumars gerði
Jeltsín bæði að hvetja landa sína og
fagna sigri með hægri höndina á lofti
en sú vinstri sást ekki.
Síðustu vikur hefur vinstri hönd
Jeltsíns sést bregða fyrir í sjónhend-
ingu en nú lét hann sem ekkert væri
og hélt á blakbolta báðum höndum.
Jeltsín hefur átt undir högg að sækja
síðustu daga vegna efnahagsstefnu
sinar og er getum að þvi leitt að hann
vilji beina athyglinni frá landsstjórn-
inni að persónulegum málum.
Reuter
o
o
Bændafundir með
Jóni Baldvin
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisróðherra, boðar til funda með bændum um
GATT-samninginn og önnur mól, sem hér segir:
Þriðjudaginn 21. janúar, kl. 21.00
í félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli.
Miðvikudaginn 22. janúar, kl. 21.00
í matsal Bændaskólans ú Hvanneyri.
Fimmtudaginn 23. janúar, kl. 21.00
í Miðgarði, Skagafirði.
Föstudaginn 24. janúar, kl. 21.00
í ídölum, Aðaldal, S-Þingeyjarsýslu.
Bændur, komið og kynnið
ykkurmólin - milliliðalaust.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
Heimsráðstefna vísindamanna nm hollnstu hvítlauks var haldin í Washington D.C., Bandaríkjunum.
Á ráðstefnunni var, að undanskildum hráhvítlauk, aðeins ein unnin hvítlauksafurð til umfjöllunar, nefni-
lega KYOLIC hvítlaukurinn. Mikil athygli beindist að KYOLIC,
enda var vísindalega staðfest að KYOLIC
hefði meiri virkni en hráhvítlaukur.
2ja ára kælitæknivinnsla KYOLIC fjarlægir alla lykt en eykur
og viðheldur öllum hinum frábæru eiginleikum. Ræktun og fram-
leiðsla sem á engan sinn líka í veröldinni.
'ti.li.
Hylki, hylki með lesitíni eða töflur
Fljótandi, bæði með og án hylkja
Sáning og uppskera er handunnin til að varð
veita öll næringarefni.
HMimiBIBiBsaigggas
Kælitæknivinnsla KYOLIC fer að hluta fram KYOLIC er látinn gangast undir ströngustu
í vísindalega hönnuðum, ryðfríum stálkerjum. framleiðslukröfur sem þekkjast.
Héiídsölubirgðir: LOGALAND heildverslun, sími 12804.
Framleiðendur KYOLIC hafa yfir að ráða
hátækni rannsókna- ogtilraunastofum.