Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Page 14
14 MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1992. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÚLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111,105 RVlK, SlMI (91 )27022- FAX: Auglýsingar: (91 )626684 - aðrar deildir: (91)27079 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Ólafur Thors í gær voru hundrað ár liðin frá fæðingu Ólafs Thors. Sjálfstæðismenn minntust þessa atburðar og heiðruðu minningu Ólafs sem var f'ormaður Sjálfstæðisflokksins í þrjá áratugi og gerði hann öðrum mönnum fremur að því stórveldi sem við þekkjum. Máltækið segir að fjarlægðin geri fjöllin blá og menn- ina mikla og sjálfsagt þykir flestum meira tU stjórnmála- foringja koma eftir að þeir eru aUir. Að minnsta kosti er jafnan talað með lotningu og aðdáun um þá kynslóð íslenskra flokksforystumanna sem bar hita og þunga dagsins á miðri þessari öld. Einkum eftir að þeir létu af störfum. Eru þar margir kallaðir. Eflaust er sá mikU ævintýraljómi sem stafar af nafni Ólafs Thors að einhverju leyti sprottinn af þeirri ástæðu að Ólafur er horfmn úr dægurþrasinu fyrir margt löngu síðan, foringi sem verður mildU af fjarlægðinni. En þá er þess líka að geta að þeir eru fleiri sem hafa horfið yfir móðuna miklu og hafa gleymst og eru ekki annað en nöfn á spjöldum sögunnar. Komu og fóru. Stundum er sagt að tUkoma sjónvarpsins hafi breytt ímynd stjórnmálamanna og foringja og ekki sé sann- gjarnt að bera núverandi forystumenn saman við for- verana vegna þess að fáir standist þann dóm og þá reynslu að birtast alþjóð á skerminum kvöld eftir kvöld. Foringjar fyrri tíma nutu þess að fá frið fyrir því návígi sem sjónvarpið og fjölmiðlafárið felur í sér. Allt þetta verður að hafa í huga þegar Ólafur Thors er metinn sem stjórnmálaforingi. Það sem þó stendur eftir er sú staðreynd að Ólafur Thors var enginn venju- legur maður, hvorki í úthti né athöfn. Hann varð þjóð- sagnapersóna í lifandi lífi og varö meiri eftir því sem menn kynntust honum betur. Hann var höfðinglegur í sjón, framúrskarandi sérstæður persónuleiki, afburða ræðumaður og öllum ber saman um mannkosti hans, gáfur og glettni. Fer vart á milh mála að þessi maður hefði orðið þjóðmálaforingi á hverri tíð og jafnvel enn sterkari ef sjónvarpið hefði fylgt honum eftir frá degi tU dags. En það var ekki aðeins persóna og mannkostir Ólafs Thors sem gera hann eftirminnUegan. Stjórnmálabar- átta hans var sömuleiðis einstök. Hann átti stærsta þátt- inn í því að breyta Sjálfstæðisflokknum úr íhaldsflokki í frjálslyndan flokk. Hann bar gæfu tU að stýra flokki sínum á þann veg að sjálfstæðisstefnan höfðaði 111 stórs hluta þjóðarinnar, atvinnurekenda jafnt sem launþega, bænda og borgara. Þetta var aUs ekki sjálfgefið en hafði um leið úrsUtaáhrif á þá stefnu sem íslendingar tóku í innanríkismálum, stéttabaráttu, almannatryggingamál- um og því jafnræði sem hér hefur ríkt. Ólafur Thors lagði þann grunn. í utanríkismálum barðist Ólafur fyrir sjálfstæði, vest- rænu samstarfi, útfærslu landhelginnar og frelsishug- sjón í stað ánauðar kommúnismans. Sú barátta var ekki aUtaf dans á rósum en minningu Ólafs er ekki síst haldið á lofti vegna þeirrar samstöðu sem hann beitti sér fyrir meðal lýðræðisafla þegar einræðis- og öfgaöfl sóttu að honum og þjóðinni. Margir stjómmálaforingjar eru eftirminnUegir fyrir ræðusniUd og póUtíska hæfi- leika en sitja nú uppi með þau örlög að hafa lamið höfð- inu við steininn og barist fyrir rangan og faUinn mál- stað? Það var gæfa íslendinga að eiga mann á borð við Ólaf Thors þegar þjóðin öðlaðist sjálfstæði og sleit bams- skónrnn. Nafn hans mun lifa. EUert B. Schram „... mikilvægt að gera viðeigandi ráðstafanir til að bæta öryggi vegfarenda um Reykjanesbraut", segir Árni Ragnar m.a. í greininni. Einkavæðing samgöngu- mannvirkja Á nýafstaðinni ráðstefnu Verk- takasambands íslands um framtíð- arsýn atvinnulífs á íslandi var sagt frá hugmynd um einkaframtak við tvöfóldun Reykjanesbrautar. Samgönguráðherra hafnaði hug- myndinni án frekari athugunar. Viðbrögð hans eru vonbrigði öllum þeim sem vilja að bætt verði öryggi vegfarenda um Reykjanesbraut, og öllum þeim sem vilja hefja einka- væðingu opinberrar starfsemi hér- lendis. Glöggt er gest augað Fyrir nokkrum mánuðum stóð Landsbréf, verðbréfafyrirtæki í eigu Landsbanka íslands, fyrir ráð- stefnu. Meöal erindisflytjenda var breskur maður sem m.a. hefur unnið við athugun Enskilda á fjár- magnsmarkaði okkar. Hann kom til landsins með flugi til Keflavíkurflugvallar. Þar tóku gestgjafar hans á móti honum og við tók ökuferð um Reykjanesbraut í kolsvörtu dimmviöri með rigning- aréljum og roki. Gesturinn þrá- spuröi hvemig í ósköpunum við gætum boðið gestum okkar, er- lendum ferðamönnum og sjálf búið við þvílíkt og annað eins. Honum var ekki skiljanlegt hvers vegna ekki er bætt úr slíku öryggisleysi. Hann var skelfmgu lostinn. Á ráöstefnunni daginn eftir nefndi hann tvöföldun Reykjanes- brautar sem dæmi um möguleika í einkavæðingu. Fjárfesting fjár- mögnuð á frjálsum fjármagns- markaði innanlands og erlendis. Tekjur yrðu af vegtolli, sem endur- greiddu fjármagn og annan kostn- að á löngum tíma. Á fyrstnefndri ráðstefnu Verk- takasambands íslands nú fyrir skömmu kom fram að Atvinnuþró- unarfélag Suðumesja hf., Verk- takasamband íslands og Landsbréf hafa í félagi gert útfærslu og út- reikninga til að athuga hvort hug- myndin muni raunhæf og telja svo vera. Bætt öryggi vegfarenda Á fjórum síðustu þingum hafa verið flutt þingmál varðandi öryggi vegfarenda á ReyKjanesbraut og flutningsgetu brautarinnar. ReyKjanesbraut, allt frá ReyKja- vík tíl Flugstöðvar Leifs Eiríksson- ar á Miönesheiði, er sérstæð meðal þjóðvega landsins. Hún tengir höf- KjaUarinn Árni Ragnar Árnason þingmaður fyrir Sjálfstæðis- flokkinn í Reykjaneskjördæmi uðborgina við eina alþjóðaflugvöll- inn í áætlunarflugi milli landa og hggur gegnum þrjá af íjölmenn- ustu kaupstöðum landsins. Hún er notuð af því sem næst öllum landsmönnum er þeir feröast til annarra landa, langflestum er- lendum ferðamönnum sem til landsins koma og af nærfellt öllum sem hingaö koma í opinberum er- indum. Hún gefur erlendum gest- um okkar fyrstu og síðustu kynni af landinu og er því sterkur áhrifa- valdur um endurkomu þeirra eða ekki. Einmitt þessi áhrif urðu þess valdandi aö hugmyndinni var fyrst varpað fram. Sérstaöa umferðar um Reykjanesbraut Engin önnur þjóðbraut er jafn- mikið ekin áð nóttu - allan ársins hring. Það skapast af viðskiptavin- rnn og starfsmönnum flugsins og starfsmönnum viö umsvif vamar- liðsins búsettum á Reykjavíkur- svæðinu. Þetta kemur ekki fram í meðaltölum mn umferðarþunga en hefur mikil áhrif á fjölda óhappa og slysa á brautínni. Umferðin hefur vaxið jafnt og þétt á undanfórnum árum og vöru- flutningar sýnu mest. Óhöpp og slys hafa aukist að sama skapi. Áhyggjur af öryggi vegfarenda, sem leið eiga um Reykjanesbraut, hafa komið fram í vaxandi mæli í lesendadálkum og hlustendaþátt- um fjölmiðla. írekuðum ályktunum sveitar- stjórna um brýna þörf til að bæta úr, og í áður nefndum þingmálum. Óhöpp og slys á Reykjanesbraut nálgast tvö hundruð á ári. Fjöldi slasaðra, varanlega örkumla og lát- inna vegna slysa á Reykjanesbraut hefur ekki verið tekinn saman, né heldur þjóöhagslegt tap og kostn- aður. Ég efa að formúlur Vegagerðar ríkisins taki til þessa við mat á arð- semi framkvæmda. Brýn þörf úrbóta Með stóriðjuveri á Keilisnesi - hvenær sem af veröur, með stóru flugskýli á Keflavíkurflugvelli til eftírlits og viðhalds á flugflota Flugleiða hf., og hugsanlega ann- arra aðila í alþjóðlegum flug- rekstri, með tilkomu fríiðnaðar- svæðis viö Keflavíkurflugvöll, með auknum straumi ferðamanna til og frá landinu ásamt vaxandi starf- semi landsmanna í alls konar ferðaþjónustu, t.d. tengdri heil- brigðisþjónustu með dvöl, útívist og líkamsrækt í einstæðu umhverfi óvenjulegrar og hreinnar náttúru um allt land, og með eðlilegum vexti byggðarlaga og atvinnulífs á Suðumesjum munu umferð og flutningar um Reykjanesbraut stóraukast í nálægri framtíð. Það er því gífurlega mikilvægt að gera viðeigandi ráðstafanir til að bæta öryggi vegfarenda um Reykjanesbraut. Ámi Ragnar Árnason „Áhyggjur af öryggi vegfarenda, sem leið eiga um Reykjanesbraut, hafa komið fram í vaxandi mæli í lesenda- dálkum og hlustendaþáttum fjölmiðla og í ítrekuðum ályktunum sveitar- stjórna... “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.