Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1992. 15 GATT-samningur og hagsmunir neytenda „Nú standa íslenskir bændur frammi fyrir alveg nýjum viðhorfum," seg- ir m.a. í greininni. í umræðum um GATT-málið undanfama daga hefur umræða um hagsmuni neytenda hér á landi verið afar grunnfæmisleg. Að bændum frátöldum á þó eng- inn meiri hagsmuna að gæta í þessu sambandi en hinn almenni neytandi. Það kann aö þykja hlut- drægt af undirrituðum að ræða þetta mál á opinberum vettvangi þar sem ég hef atvinnu af því að gæta hagsmuna bænda. Ég tel mig hins vegar hafa fulla ástæðu sem neytandi að hafa skoðun á þeirri hlið málsins. Mér virðast hagsmunir neytenda í þessum efnum vera þríþættir. í fyrsta lagi það að hafa öraggan aðgang að nægu framboði mat- væla, í öðru lagi að geta treyst gæðum þeirrar matvöru sem við kaupum og í þriðja lagi að matvar- an sé á sem sanngjörnustu verði. Matvælaöryggið Þessum þætti málsins hefur ekki verið gefinn sérstakur gaumur hér á landi og hafa bændur verið því nær einir um að halda fram mikil- vægi hans. Það virðist þó nokkuð augljóst að eyþjóð eins og íslend- ingar, sem flyija þarf inn u.þ.b. 50% af neysluþörfinni (mælt í hitaein- ingum), þarf að vera á verði í þessu efni. Mál þetta heyrir undir Hagvam- arráð en ekki er kunnugt um að því hafi verið sinnt á þeim vett- vangi. Hins vegar er til áhtsgerð um málið, „Fæðuöflun á þreng- ingatímum", sem unnin var af þeim Ólafi Ólafssyni landlækni og Birni S. Stefánssyni hagfræðingi. Hollustuþátturinn Einn þáttur þeirrar velferðar, sem íslendingar og aðrar Norður- landaþjóöir búa við, er að geta KjáUarinn Hákon Sigurgrímsson framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda treyst því að sú matvara, sem við kaupum og matbúum fyrir fjöl- skyldur okkar, sé holl og ómenguð. Ymsar þjóðir búa ekki við slíkt öryggi lengur, svo sem nágrannar okkar Bretar, einnig Bandaríkja- menn þar sem matareitrun og aðr- ar afleiðingar lélegs fæðis er að verða ein aigengasta dánarorsökin. Mikilvægt er að gera sér ljóst að matvæh sem framleidd eru við svipaðar heilbrigðiskröfur og hér tíðkast eru hlutfallslega dýr. Þaö kostar meira að framleiða egg þar sem einungis er heimilt að hafa 4 hænur í búri, eins og stefnt er að á landi, en í löndum þar sem látiö er afskiptalaust þótt 5-6 hæn- ur séu hafðar í búri af sömu stærð. Sama gildir um ýmiss konar hjálp- arefni og lyf eins og t.d. það að blanda fúkkalyfjum í fóður alifugla til að halda niðri ýmiss konar sjúk- dómum og gefa sláturgripum hormóna til þess að auka vaxtar- hraðann. Mikið er framleitt af slík- um matvælum í heiminum í dag og hlutur þeirra á markaðnum fer stækkandi. Valkostur hinna fátæku Á undanförnum áratugum hefur myndast ný þjóðfélagsstétt í hinum iðnvædda hluta heimsins „Hinir nýfátæku (les nouveaux pauvres)“. Þetta eru fórnarlömb langvarandi atvinnuleysis og minnkandi hag- vaxtar sem einungis njóta lág- marks menntunar, hafa ekki efni á að kaupa félagslegar tryggingar og verða að sætta sig við að neyta annars flokks matvæla. Tahð er að 5-10% af íbúum Vestur-Evrópu og 10-15% af íbúum Bandaríkjanna muni í næstu framtíð búa við slík kjör. Hér á landi virðist sem betur fer vera breið samstaða um það að fórna ekki heilbrigðiskröfunum fyrir lágt verð. Þetta kom fram í ályktun Neytendasamtakanna um GATT-máhð í síðustu viku og í stefnumörkun Sjömannanefndar um aukna hagræðingu í landbún- aðinum er tekið fram að hagræð- ingin megi ekki verða á kostnað gæðanna. Lægra vöruverð Nú standa íslenskir bændur frammi fyrir alveg nýjum viðhorf- um. Frá 1. september nk. fellur verðábyrgð ríkisins á mjólk og kindakjöti niður og greiðslu út- flutningsbóta verður hætt. Bændur bera eftir það aha ábyrgð á mark- aðssetningu framleiðslunnar. Jafn- framt virðist ljóst að aukin erlend samkeppni kemur til sögunnar í einhverjum mæh á næstu misser- um. Th þess að bregðast við þessu er með nýjum búvörusamningi stefnt að því að verð sauðfjárafurða til framleiðenda lækki um 20% á næstu 6 árum. Gera má ráð fyrir svipaðri þróun í mjólkurfram- leiðslunni og alifugla- og svína- bændur stefna að verulegri lækkun á verði sinnar framleiðslu. Ef hhð- stæð hagræðing verður í úr- vinnslugreinunum á verð inn- lendra matvæla að lækka umtals- vert á næstu 4-6 árum. Það er þessi þróun sem bændur telja nauðsynlegt að nái fram að ganga áður en þeir geti tekist á við þá samkeppni sem leiða mun af framkvæmd GATT-samkomulags- ins. Lækkar GATT-samkomulag- ið matarreikninginn? Því hefur verið haldið mjög á lofti hve mikinn hag neytendur muni hafa af væntanlegu GATT-sam- komulagi. Ef nánar er að gáð virð- ist hins vegar augljóst að niður- skurður á niðurgreiðslum og út- flutningsbótum mun leiða til hækkandi vöruverðs. Þess er þegar farið að gæta í komverði. Það sem fyrir Bandaríkjamönn- um vakir með því að knýja fram samkomulag innan GATT er ekki það að auka hlutdeild sína á heims- markaði með búvörur heldur von- in um þaö aö GATT-samkomulag leiði th hækkandi heimsmarkaðs- verðs svo að dregið geti úr þeim gífurlegu styrkjum sem landbún- aðurinn nýtur þar í landi og þar með þeim mikla halla sem er á fjár- lögum ríkisins. Sama er aö segja um Ástrah og Nýsjálendinga. Þeir em ekki fyrst og fremst að hugsa um aukna markaðshlutdeild held- ur vonast þeir th þess að hækkandi verð geti bjargað landbúnaði þeirra frá hmni en hann er kominn í þrot eftir langvarandi verðfall á heims- markaði. Ef hækkanir á erlendum matvæl- um vega að verulegu leyti upp þá lækkun sem vonast er til að verði á innlendum matvælum gæti svo farið að hagnaður okkar neytenda á íslandi yrði minni en ýmsir hafa vonast th. Hákon Sigurgrímsson „Frá 1. september nk. fellur verðábyrgð ríkisins á mjólk og kindakjöti niður og greiðslu til útflutningsbóta verður hætt. Bændur bera eftir það alla ábyrgð á markaðssetningu framleiðslunnar.“ Kerfisheimskan Það hvílir mikhl ljómi yfir sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar á 19. öldinni og á fyrri hluta 20. aldar. Dugmiklir menn hófu merkið og þjóðin fylgdi eftir. Fólk skildi vel að þar þurfti á hverjum þegn að halda og hann þurfti að ganga hehl, hehbrigður og óskiptur th starfa. Það var því risið upp gegn hverri óáran sem fylgt hafði frelsisskerð- ingunni og fátæktinni og þaö var bindindissinnuð bjartsýn og kraft- mikh þjóð sem náði sambandslaga- samningum 1918 og hóf rismikla framfarasókn th bættra lífskjara. Sjálfstæðið I hættu Eftir að ísland varð fuhvalda ríki og lýðveldið var stofnað er eins og við teljum frelsi þjóðarinnar sjálf- sagðan hlut og það verði ævarandi og allar þjóðir, bæði nær og fjær, líti þau mál sömu augum. Þess vegna sé öhu óhætt. Þetta er mikhl misskilningur. Ef við eigum að halda sjálfstæðinu þurfum við að vera á varðbergi. Við glötuðum þvi á sínum tíma og þannig getur enn farið. Við verðum að treysta á okkur sjálf og fara með gát. Við getum ekki búist við því að það verði gæluverkefni annarra þjóða að vemda sjálfstæði okkar. Þess vegna þurfum við á dug- miklu fólki að halda, fólki, sem ber virðingu fyrir sjálfu sér, fólki, sem vakir yfir menningu sinni og tungu, fólki, sem ekki drekkur frá sér ráð og rænu heldur byggir upp andlegt og líkamlegt hehbrigði th að takast á viö erfiðleika hvers tíma. Þar má enginn bregðast. Efnahagsleg áföll Ég held að flestum sé Ijóst að erf- KjaUarinn Páll V. Daníelsson viðskiptafræðingur leyti sem núverandi ríkisstjóm tók við völdum. Hlutskipti hennar var því að taka á málum og breyta um stefnu. Það er mikhl vandi að fmna þær leiöir sem minnstum sársauka valda. Við þurfum þó ekki að falla í svartsýni en ekki er stórmannlegt að líta fram hjá vandanum. Margir mótmæla Það er ótrúlegt hvemig ýmsir í þjóðfélaginu taka á þessum málum. Fólk mótmælir, stéttir mótmæla, stofnanir mótmæla, sveitarfélög mótmæla og svo mætti lengi telja. Enginn vhl takast á við að leysa vandann. Það er verk náungans, ekki mitt. Sjálfstæðishugsjónin hjaðnar eins og sápukúla ef bera þarf við- „Eg held að flestum sé ljóst að erfiðleik- ar eru framundan. Byggist það á því tvennu að þjóðartekjur muni dragast saman og erlend skuldasöfnun getur ekki haldið áfram.“ iðleikar em framundan. Byggist það á því tvennu aö þjóðartekjur muni dragast saman og erlend skuldasöfnun getur ekki haldið áfram. Þess í stað verðum við að fara að greiða lánin. Það th viðbót- ar efnahagslega áfahinu veldur óumflýjanlega mikhh kjararýmun og miklum sársauka á öhum svið- um þjóðlífsins. Þótt blikur hafi verið á lofti þá reið ekki höggið fyrr en um það bótarpinkh th bjargar fuhveldinu. Og sumir hóta hörðu, og ekki síður þeir sem meira mega sín, og búi þeir við þær aðstæður að geta verið með hnífinn nálægt höfuðæðum þjóðfélagsins þá skal kutanum beitt og látið blæða. Pinklamir skihu með hörkunni settir á einhverja aðra. Sumir tala eins og þeir geri sér enga grein fyr- ir uppbyggingu efnahagslífs þjóð- arinnar, það er nánast eins og „Fólk mótmælir, stéttir mótmæla, stofnanir mótmæla ... Enginn vill tak- ast á við að leysa vandann.“ þekking þeirra nái ekki lengra en það að mjólkin komi úr femum. Það sem þar er á bak við virðist ekki th í þeirra virðulega hugskoti. En það er gömul og ný saga að þeir sem aðstöðu hafa reyna að koma byrðunum yfir á aðra. Reynslan af kerfum Nú veit ég að þótt óöld ríki í þess- um efnum þá er það ekki af mann- vonsku. Fólk er yfirleitt gott. Hins vegar er það fjötrað í óskhvirk, stöðnuð og afturhaldssöm þjóðfé- lagskerfi. Jafnvel forystumenn þessara kerfa á flestum sviðum þjóðlífsins em fastir í þeim eins og strengjabrúður. Og þegar fólk situr lengi í ýmsum valdastöðum er miklu meiri hætta á að kerfisheimskan taki völdin. Þegar svo kemur stjórnvald sem loksins vhl ganga inn á nýja braut reynir kerfið aö halda völdum, völdum sem geta valdið óbætanleg- um skaða. Flest kerfi, þótt góð séu í upp- hafi, ganga sér th húðar, þau verða afturhaldssöm, óskhvirk, sphlt og sjúk. Það sýnir reynslan. Við getum risið upp og komist út úr ógöngunum en ekki með því að neita aö taka á heldur með því að alhr leggist á eitt th að bjarga málum. Þá getur verið bjart fram- undan. Höggvum ekki í eigin véum. Ver- um ábyrg. Verum vakandi yfir vel- ferð og sjálfstæði þjóðar okkar. Páh V. Daníelsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.