Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1992, Qupperneq 18
18
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 1992.
Menning
Úthlutun úr Kvikmyndasjóði Islands:
Hraf n og Guðný fengu
hvort um sig 21 milljjón
- þrettán aðilar sóttu um styrk til framleiðslu leikinna kvikmynda
Hrafn Gunnlaugsson og Guðný Halldórsdóttir fengu hæstu styrkina í ár.
DV-mynd: BG
Tvær kvikmyndir, Hin helgu vé,
sem framleidd er af F.I.L.M. og leik-
stýrð er af Hrafni Gunnlaugssyni, og
Karlakórinn Hekla, framleidd af
Kvikmyndafélaginu UMBI og leik-
stýrð er af Guðnýju Halldórsdóttur,
fengu hæstu styrki sem Kvikmynda-
sjóður íslands úthlutaði í ár eða 21
milljón hvor. Kvikmynd Hrafns er
sjálfsævisöguleg og flallar um hluta
af bamæsku hans.
í flokknum Kvikmyndir til fram-
leiðslu fékk ein önnur kvikmynd
styrk, Veggfóður sem gerð er af Kvik-
myndafélagi íslands og leikstýrð er
af Júlíusi Kemp. Fékk hún 2 milljón-
ir. í þessum flokki voru það þrettán
aðilar sem sóttu um styrk.
í stuttu spjalli sagði Guöný Hall-
dórsdóttir að Karlakórinn Hekla
væri gamanmynd sem fjallaði um
söngferð Karlakórs úr Hveragerði til
Færeyja og Þýskalands Aðalpersónu
myndarinnar leikur Ragnhildur
Gísladóttir, stúlku sem vinnur vinn-
ing í bingói hjá karlakómum og er
vinningurinn ferð með kómum.
Guðný, sem einnig skrifar handrit-
ið, kvaðst hafa unnið að undirbún-
ingi síðasthðin tvö ár og hefði hún
fengið þýska aðila til að taka þátt í
kostnaðinum en hún tók það fram
að myndin væri alíslensk. Aætlað er
að byrja að kvikmynda í júní og von-
aðist Guðný til að myndin yrði tilbú-
in til sýningar um næstu jól.
Alls fengu tóif aðilar styrk. Hæstu
styrkimir fyrir utan þá fyrrnefndu
voru þeir sem úthlutaðir vom til
heimildarmynda. Magnús Pálsson
fékk 3,5 milijónir til að gera Undir
regnboganum, Þorfinnur Guðnason
fékk 2,5 milljónir til að gera Úti við
flóann og Valdimar Leifsson fékk 2
milljónir til að gera myndina Lista-
konan sem ísland hafnaði.
Til undirbúnings og handritsgerð-
ar fengu þrír aðilar styrk: Kvik-
myndadeild Skífunnar eina milljón.
Kallast verkefni þeirra Móri. Ari
Kristins hálfa milljón. kallast verk
hans Enginn veit og Sveinbjöm I.
Baldvinsson hálfa milljón . kallast
verk hans Skálholt. Einn aðih fékk
styrk til undirbúnings heimilda-
myndar, var það Anna Th. Rögnn-
valdsdóttir til undibúnings myndar
um Sigurð málara. Tveir aðolar
fengu styrk til undirbúnings stutt-
mynda. Þór Ehs Pálsson fékk eina
milljón til undirbnings Nifl og Jón
Ásgeir Hreinsson fékk styrk til und-
irbúning á Tilbera.
Þá geta þess að Kvikmyndaklúbbur
íslands fékk 1 mihjón í styrk. Sam-
tals vora veittar 57 mihjónir. Úthlut-
unarnefndin geymdi 14 mihjónir sem
munu renna th samnorræns verk-
efnis. Úthlutunamefnd Kvikmynd-
sjóðs er skipuð Laufeyju Guðjóns-
dóttur, Róberti Amfinnssyni og Sig-
urði Valgeirssyni.
-HK
Guðrún S. Gísladóttir og Bryndís Petra Bragadóttir leika Isbjörgu.
Þjóðleikhúsiö:
Ég heiti ísbjörg, ég er Ijón
fyrsta leikritið á nýju sviði
Leikgerð Hávars Siguijónssonar
eftir skáldsögu Vigdísar Grímsdótt-
ur, Ég heiti ísbjörg, ég er ljón, verður
fyrsta leiritið sem sýnt verður á nýju
leiksviði í Þjóðleikhúsinu. Hávar
leikstýrir einnig sýningunni.
Þetta er sagan af ísbjörgu sem situr
í fangelsi fyrir morð. Hún rekur
áhrifamikla sögu sína fyrir lögfræð-
ingi og dregur ékkert undan, ahtfrá
uppeldi við sérstakar heimihsað-
stæður þar th glæpurinn er framinn.
Tvær leikkonur fara með hlutverk
ísbjargar, Guðrún S. Gísladóttir og
Bryndís Petra Bragadóttir. Aðrir
leikarar em Ragnheiður Steindórs-
dóttir, Jóhann Sigurðarson, Þórar-
inn Eyfjörð, Pálmi Gestsson og fleiri.
-HK
Veggfóður:
Reykjavíkursaga
um ungt fólk
- segir leikstjórinn, Júlíus Kemp
Þrjár kvikmyndir fengu úthlutun
úr Kvikmyndasjóöi íslands til fram-
leiðslu. Mikih munur er á peninga-
upphæðinni sem Hin helgu vé og
Karlakórinn Hekla fengu og þeirri
upphæð sem Veggfóöur fékk, en að-
eins tvær mhljónir komu í hlut þeirr-
ar síðast töldu. Það sem er athyghs-
vert við Veggfóður, og greinir hana
frá öhum öðrum kvikmyndum sem
styrk fengu, er að búið er að kvik-
mynda hana án þess að nokkur
styrkur hafi áður komið í hennar
hlut og verður kvikmyndin líklegast
frumsýnd í júh.
Júlíus Kemp leikstýrir Veggfóðri
og sagði hann að hann hefði sótt um
nákvæmlega það sem hann vantaði
th að geta klárað myndina eða sjö
og hálfa mihjón króna. „Ég hefði að
sjálfsögðu átt að sækja um miklu
meira, þá hefði kannski verið von
um að fá meira úthlutaö. Þetta þýðir
einfaldlega það að lánin veröa
hærri,“ sagði Júlíus þegar hann var
inntur eftir viðbrögðum sínum við
úthlutuninni.
Júlíus kvað framkvæmdina hafa
gengið ágætlega. Skuldimar væra að
vísu orðnar nokkuð miklar, en ekki
þýddi annað en halda ótrauður
áfram. „Við tókum myndina í
Reykjavík í fyrrasumar, en hún er
ReykjavíkurSaga um ungt fólk, tísk-
ima, tíðarandann og allt sem fylgir
lífi ungra íbúa Reykjavíkur."
Július Kemp, leikstjóri Veggfóðurs,
en myndin verður frumsýnd í júli.
Aðalhlutverkið í Veggfóðri leikur
Baltasar Kormákur. Aðrir leikarar í
stórum hlutverkum em Steinn Ár-
mann og Ingibjörg Stefánsdóttir.
...............................HK
veita 100.000 kr.
myndlistarstyrk
Argentína, steikhús hefur
ákveðið að einn veggur á veit-
ingastaðnum verði notaöur sem
listaveggur. Valinn verður einn
myndhstarmaður sem fær að
sýna verk sín einn mánuð í senn.
í desember sýndi Tolh verk sín 1
veitingahúsinu og nú hangir þar
verk eftir Huldu Hákon. í febrúar
tekur svo Helgi Þorghs Friðjóns-
son við. Eigendur Argentínu hafa
ekki látið þar viö sitja heldur
hafa þeir skipað í fimm manna
nefnd sem mun síðar velja einn
listamann sem hefur sýnt í Arg-
entínu og veita honum 100.000 kr.
í myndlistarstyrk. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem Argentína
styrkir listamenn. Síðastliðið
sumar styrkti veitingahúsíð sýn-
ingu Sveins Þorgeirssonar og
Daníels Magnússonar í Nýlista-
safninu.
Umfjöllunum
Meðannóttin
iíðuríPolitiken
Skáldsaga Fríðu Á. Siguröar-
dóttir er annað af tveimur ís-
lenskum skáldverkum sem til-
nefnt er til bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs í ár. í Politiken
síðasthðinn miðvikudag birtist
ritdómur um verkið. Það er Lisa
Schmalensee Burgess sem fyrir
nokkrum árum starfaði sem lekt-
or hér á landi sem skrifar um
bókina. í itarlegri umijöllun fer
hún lofsamlegum orðum um bók-
ina og skáldkonuna, segir hún
meðal annars að sagan sé djúp
sálfræðistúdía. Þess má geta að
Fríöa Á. Sigurðardóttir fékk
raenningarverðlaun DV fyrir
bókmenntir í fyrra.
„Norrænarsögur“
ílokavinnslu
Við úthlutun hjá kvikmynda-
sjóði í flokknum Framlög til
framleiöslu árið 1990 fengu þijár
kvikmyndir úthlutun. Þessar
myndir munu ahar skha sér til
áhorfenda á þessu ári. Ingaló í
leikstjóm Ásdísar Thoroddsen
verður frumsýnd í febrúar og
Sódóma, Reykjavík verður frum-
sýnd í haust. Þriðja myndin sem
minna hefur farið fyrir hefur
vinnuheitið Norrænar sögur og
er kvikmyndafélagið Þumall einn
framkvæmdaraðhi. Er hér um að
ræða samnorrænt verkefni og
skiptist myndin í þrjá hluta og
var styrkur kvikmyndasjóðs th
íslenska hlutans. Leikstjórar eru
þrír, en Kristin Pálsdóttir leik-
stýrir íslensku myndinni. Hinar
tvær myndimar eru frá Græn-
landi og Færeyjum. Kvikmynda-
tökumaður að öllum myndunum
er Sigurður Grimsson og Þumall
sá um allar aðrar tæknhegar
framkvæmdir. Sigurður kvaö all-
ar áætlanir hafa staðist og allt
væri í fuhum gangi við loka-
vinnsluna og yrði frumsýning að
öhum likindum síðast í mars.
Góðaðsókní
Góö aðsókn hefur verið á sýn-
ingar LR í Borgarleikhúsinu.
Helgina 10.-12. janúar komu 2300
leikhúsgestir á sýningar og voru
þar á meðal rúmlega sex hundraö
böm sem sóttu sýningar á baraa-
leikritinu Ævintýriö. Frumsýnd-
ur var sunnudagskvöldið 12. jan
úar farsinn Rughö og fékk hann
óbhðar viötökur hjá gagnrýnend-
um, en aö sögn hafa áhorfendur
skemmt sér konunglega. Aðrar
sýningar, sem voru á sviðum
Borgarleikhússins : þessa helgi,
vora Þétting eftir Sveinbjöm I.
Baldvinsson og Ljón í síðbuxum
eftir Bjöm Th. Björnsson.