Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1992, Page 7
FÖSTUDAGUR 6. MARS 1992.
7
Fréttir
Wiesenthal-stofhunin:
Forstjórinn telur að
til séu fleiri skjöl
- sem sanni ótvírætt sekt Eðvalds Hinrikssonar
„Rannsókninni er enn ekki lokið.
Það eiga fleiri skjöl og upplýsingar
eftir að koma fram í dagsljósið sem
sanna að Edvald Mikson er ekki sá
sem hann segist vera. Ég hef hugboð
um aö það séu til fleiri skjöl, sem
sanna það,“ sagði Efraim Zuroff, for-
stjóri Wiesenthal-stofnunarinnar í
Jerúsalem.
Framkomnar upplýsingar í máh
Eðvalds Hinrikssonar hafa vissulega
vakið upp ótal spurningar. Skjöl, sem
geymd eru í Ríkisskjalasafninu í
Tallin í Eistlandi, sýna, svo ekki
veröur um villst, að Eðvald hefur
undirritað handtökuskipanir á hend-
ur aUmörgum gyðingum, þar á meðal
hinni 14 ára stúlku, Ruth Rubin.
SkjöUn benda einnig til að hann hafi
verið háttsettur innan fasistasveit-
anna, Omakaitse. Loks benda skjöl,
sem dregin hafa verið fram í Eist-
landi, til þess að Þjóðverjar hafi fang-
elsað Eðvald vegna þess að hann
hafi rænt skartgripum og öðrum
verðmætum af fórnarlömbunum.
Allt þetta stangast á við þær fullyrð-
ingar sem hann hefur sett fram í
fjölmiðlum.
Zuroff kvaðst ekki geta tjáð sig um
hvar þessi skjöl væru geymd. Enn
stæði yfir frekari leit að gögnum í
Tallin og annars staðar þar sem ein-
hver þeirra gætu hugsanlega leynst.
Þær heimildir, sem Wiesenthal-
stofnunin heíði byggt upplýsingar
sínar til Davíðs Oddsonar forsætis-
ráðherra á, hefðu staðist í smáatrið-
Siglfirðingar
fegnuðu
nýjuogglæsi-
legu skipi
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Siglfirðingar íjölmenntu í gær til
að taka á móti nýju og glæsilegu skipi
sem Þormóður rammi hefur keypt
frá Eskifirði. Þar er um að ræða fjöl-
veiðiskipið Vöku sem Eskfirðingur
hf. keypti nýtt til landsins á síðasta
ári en hefur átt í erfiðleikum með að
gera út.
Róbert Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Þormóðs ramma,
sagði að kaupverð skipsins væri 690
milljónir króna. Þormóður rammi og
Hraðfrystihús Þórshafnar samein-
uðust í upphafi um kaup á skipinu
en á síðustu stigum samningsgerðar-
innar var ákveðið að haga málum
þannig að Þormóður rammi keypti
skipiö. Hraðfrystihús Þórshafnar
keypti síðan 0,5% af úthlutuðum
loðnukvóta en skipinu fylgjr 2,87%
af úthlutuöum loðnukvóta, bolfisk-
kvóti að ígildi 234 tonna þorsks og
um 300 tonna rækjukvóti. Þessi kvóti
verður nýttur af Þormóði ramma,
utan loðnukvótans en hann verður
„bútaður niður“ og seldur ýmsum
aðilum.
Þormóður rammi hefur oftsinnis á
undanfömum árum barist í bökkum
fjárhagslega en Róbert sagði að staöa
fyrirtækisins væri sterk núna. „Við
buðum út nýtt hlutafé á síðasta ári
og notuðum síðasta ár til endur-
skipulagningar og það tókst vel. Það
komu tugir milljóna króna inn í fyr-
irtækið á síðasta ári og íslands-
banki, sem er okkar viðskiptabanki,
hefur stuðlað að því að okkur er
kleift að kaupa skipið og hefur stutt
mjög vel við bakið á okkur í allri
endurskipulagningu fyrirtækisins,"
sagði Róbert.
um í öðrum málum sem upp heföu
komið.
„Við erum ekki að búa þetta til,“
sagði Zuroff. „Um leið og rannsókn-
inni er lokið munum við leggja öll
þau gögn sem við höfum aflað á borð-
ið. Menn geta siöan dregið ályktanir
sínar af þeim. Ég get ekki sagt fyrir
um hversu langan tíma tekur aö
ljúka henni en við leggjum áherslu á
aö það verði sem fyrst.“
-JSS
NYR 0G STÆRRI FJOLSKYLDUBILL
iSERSTAKT KYNNIH
599.744.- kr. stgr.
H LADA SYHINGIDAB
Við kynnum nýja útgáfu af Lada Samara (Lada Samara
stallbak). Þessi bíll er 20 cm lengri en hin hefðbundna
Samara og rúmbetri. Bíllinn hentarþví vel fjölskyldufólki.
Lada Samara stallbakur er fimm manna og með lokaðri
farangursgeymslu (skotti).
Komið og skoðið nýja Samara bílinn ásamt fjölbreyttu
úrvali af öðrum Lada bílum.
I/ið bjóðum upp á kaffi og með því og krakkar fá ís og gos.
SOL
mess
BIFREHJAR & LANDBUNAÐARVELAR HF.
Ármúla 13108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36