Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Page 2
2 MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1992. Fréttir Amar Kristjánsson, skipstjóri á Litlanesi ÍS 608 sem brann: Ekki var lengur verandi um borð - báturinn sökk um hálfum sólarhring eftir að kviknaði 1 „Við urðum fyrst varir við eld í vélarrúmi bátsins. Það var einn á vakt en tveir frammi í. Það kom strax mikill eldur og reykur þannig að þaö varð ekki við neitt ráðið. Maður komst ekki niður í vélarrúmið þann- ig að þetta var fljótt að magnast. í gömlu tréskipi gerir maður ekki ann- að en að forða sér. Við reyndum þó fyrst að nota slökkvitæki og allt það sem tiltækt var. Síðan komum við okkur frá boröi þegar ekki var ver- andi lengur í bátnum," sagöi Arnar Kristjánsson, skipstjóri á Litlanesi IS 608, 57 tonna rækjubáti frá ísafirði sem brann tæpar 50 sjómílur norður af Skaga út af Húnaflóa um kvöld- matarleytið á laugardag. Báturinn sökk snemma í gærmorg- un - um hálfum sólarhring eftir að kviknaði í. Þremur skipveijum var bjargað um borð í Ingimund gamla frá Blönduósi fljótlega eftir að þeir yfirgáfu Litlanesið í gúmmíbáti. „Eg reyndi að senda út neyðarkall strax á meðan það var einhver glóra til þess út af reyk, en einhverra hluta vegna komst það ekki til skila. Ég sendi neyðarkall á rás 16 á VHF- stöðinni og svo á stóru stöðinni. Máhð var að það var orðið mjög straumlítið þannig aö sendingin hef- ur ekki náðst. Ég gerði mér strax grein fyrir hvers kyns var þegar ég fékk engin viöbrögð,“ sagði Amar. „Við fórum í gúmmíbátinn beint frá borði og ég lét strákana fara í galla. Ingimundur gamh var um 30-40 mínútur að komast á staðinn. Þeir sáu reykinn." Arnar sagðist vilja koma fram þökkum til áhafnar Ingimundar gamla sem bjargaði þre- menningunum um borð. Þegar Litla- nesið sökk i gærmorgun flutu ohu- tankar, vatnstankur og annað upp úr bátnum. Sjófarendur voru beðnir um að varast það sem kynni að vera á floti á þessum slóðum. Skýrslutök- ur vegna brunans eru fyrirhugaöar hjá lögreglu á ísafirði í dag og sjó- próf fljótlega aö þeim loknum. -ÓTT Vaxtarrækt: Magnús sigraði Loftið var þrungið spennu á Hótel íslandi í gærkvöldi er öll helstu vöö- vatröll landsins reyndu þar með sér á íslandsmeistaramótinu í vaxtar- rækt. Þar hömuðust íslandsmeistar- ar í einstökum þyngdarflokkum við að hnykla vöðvana og kepptu inn- byrðis um það hver þeirra hlyti ís- landsmeistaratitihnn í opna flokkn- um. Baráttan um úrslitasætið í karla- flokknum var mjög hörð en þar börð- ust þeir Magnús Bess og Guðmundur Marteinsson um titihnn. Dómaram- ir áttu erfitt með að gera upp hug sinn og voru þeir keppinautamir kahaðir hvað eftir annað fram í sam- anburð. Úrslitin urðu að lokum þau að Magnús Bess hreppti titilinn ís- landsmeistari íslandsmeistaranna. í kvennaflokki lágu úrshtin ljósar fyrir en þar hafði Margrét Sigurðar- dóttir töluvert forskot á keppinauta sína og varð íslandsmeistari. Það var Þór Jósefsson sem sigraði í unghnga- flokknum eftir mikla baráttu við Kristin Jón Gíslason. JAK Féll milli skips ogbryggju Færeyskur sjómaður féll milli skips og bryggju á Holtabakka aðf- aranótt sunnudags. Sjómaðurinn náðist upp úr og var fluttur á slysadeild mjög kaldur en hafði ahur hjamaö við í gær. Sjómaðurinn er skipveiji á græn- lenskum togara sem lá við bryggju í Holtagörðum. -JJ Sigurvegarar opnu flokkanna á íslandsmeistaramótinu í vaxtarrækt, sem haldið var á Hótel islandi í gærkvöldi, voru Þór Jósefsson, sem sigraói í unglingaflokknum, Margrét Sigurðardóttir, sem vann kvennaflokkinn, og Magn- ús Bess en hann sigraöi í karlaflokkinum. DV-mynd Jak Átökeftirað unglingur létti á sér Th átaka kom við fjölbýlishús í Hraunbæ þegar sambýhsfólk var aö koma heim á þriðja tímanum aðfaranótt sunnudagsins eftir að hafa verið úti um kvöldið. Þegar fólkið kom að húsinu vom unglingar fyrír utan og einn phtur var að létta á sér upp viö húsiö. Húsráðandi fór að skipta sér af athæfinu og upphófust snörp orðaskipti. Svör ungmenn- anna munu ekki hafa veriö sér- lega vinveitt heimihsfólkinu og var haft í hótunum með dónalegu orðbragði. Orðaskiptin enduöu með því aö íbúinn reiddist mjög og lenti í átökum við þann sem var að létta á sér. Að sögn lögreglu er óljóst hvernig upphaf átakanna var nákvæmlega. íbúinn sem lenti í átökunum hlaut ekki meiðsl en var þó með mar eftir átökin. Eftir aö unglingamir fóru af vettvangi náði iögreglan í þá. Máhð var af- greitt með viöeigandi hætti. -ÓTT Slökkviliðið komígrill- veisluna Fjölskylda í Bláhömrum í Graf- arvogi var aö griha í makindum á laugardag þegar slökkvihð kom skyndhega á vettvang. Enginn eldur hafði oröið laus en nágranna, sem kallaöi á slökkvihðið, fannst reykurinn ískyggilega mikill og þóttist sjá eld á glugganum. Þegar slökkvhið hafði séð að aht var með fehdu hélt fjölskyid- an áfram að borða. -JJ Bifreið í gangi stolið Bifreið, sem skihn var eftir 1 gangi fyrir utan hús á Grettis- götu, var stohð á fóstudagskvöld. Lögreglu bárust þijár tilkynn- ingar um akstur bifreiðarinnar áöur en hún fannst en þá var ökumaður á brott. Hann haföi þá ekið utan í ljósastaur og annan bfl. Ekki hafði ökumaður fúndist er síðast fréttist. > -JJ Ekið utan í tvomenn Ekiö var utan í tvo menn á Tryggvagötu rúmlega þrjú aðf- aranótt laugardagsins. Annar slasaöist á fæti og var fluttur með sjúkrabifreið á slysadehd en hinn skarst á enni og fór á slysadehd með einkabifreið. Bifreiðinni hafði veriö ekið austur Tryggvagötu og við ránn- sókn kom í Ijós að mennimir höfðu gengið utan í bifreiöina. -JJ Grunsamlegt ef fleiri hvalir reka „Fyrir um einni viku fundust tvö önnur dýr í Bakkafirði sem er ekki langt frá. Þar rak dýrin að landi mjög nálægt hvort öðru. Þau hafa getað verið aö deyja á sama tíma og þessi. Þetta vekur óneitanlega spumingar og full ástæða er til skoöa þessa hhð. Ef hvalreki verður aftur á svipuðum slóðum á næstu dögum eða vikum fyndist manni þetta orðið grunsam- legt. Þetta sjö hvala strand er ansi óvenjulegur atburður," sagði Jóhann Sigiujónsson, sjávarlíffræðingur frá Hafrannsóknarstofnun, um hval- reka við Eiði á Langanesi sem upp- götvaöist um helgina. Jóhann kom til Reykjavíkur í gær- kvöldi ásamt Gísla Víkingssyni líf- fræðingi eftir rannsóknarferð á Langanes. Þeir tóku sýni úr sjö 10-11 metra búrhvölum sem þar rak á land. Líffræðingamir munu meðal annars rannsaka hugsanlega veiru- sýkingu í hvölunum. „Þegar svo marga hvah rekur á land em það yfirleitt grindhvalir. Ég man ekki eftir aö fleiri en einn búr- hvalur hafi fundist á sama stað áður. Annaö sem okkur flnnst einkenni- legt er að þama em sjö litlir búrhval- ir, rétt liðlega kynþroska, ekki dæmi- gerður búrhvalahópur við ísland. Viö tókum sýni th að kanna aldur- inn og síðan tókum við vefjasýni sem viö notum th mengunarmæhnga og hugsanlegra veirurannsókna - ef ske kynni að óeðlileg veimsýking væri á ferðinni. Við erum opnir fyrir shkri hugmynd því að faraldrar hafa verið á undanfómum 5 árum í Evrópu. Sýnin em þó ekki nógu fersk. Það er mikhvægt að við fáum að vita eins fjótt og hægt er um hvalreka th að ná sýnum sem gagn er í. Hvalirnir hafa greinilega legið þama í tölu- verðan tíma og hefðu því mátt vera ferskari fyrir okkur. Þeir hafa gengið á land vegna einhvers sem við vitum ekki hvað er og hafa þá að öllum lík- indum verið lifandi. Við skiptum búrhvalahjörðunum í þijá flokka. í fyrsta lagi þar sem 1-2 kvennabúrstarfar em með 8-10 kerl- ingar og afkvæmi. Þær hjarðir halda til aht árið í hlýjum sjó. Síðan eru hjai'ðir með ókynþroska dýmm af báðum kynjum sem halda th á svip- uðum slóöum. Svo eru kynþroska tarfar sem ekki sitja yfir kvenna- búri. Þeir leita langt norður í höf í fæðuleit á sumrin. Það em þeir tarf- ar sem veiddust hér við land en miklu stærri en þau dýr sem nú fundust," sagði Jóhann. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.