Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Blaðsíða 30
42 MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1992. Afmæli Sigurður E. Guðmundsson Sigurður E. Guðmundsson, forstjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, Rauf- arseli 11, Reykjavík, er sextugur í dag. Starfsferill Sigurður Elimundur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1952. Sigurður var blaðamaður á Al- þýðublaðinu 1952-59, var fram- kvæmdastjóri Alþýðuflokksins 1959-65, var skrifstofustjóri Hús- næðismálastofnunar ríkisins 1965- 1970 og er framkvæmdastjóri henn- arfráársbyijun 1971. Sigurður var varaþingmaður Reykvíkinga 1970 og 1971 og borgar- fulltrúi í Reykjavík 1982-86. Fjölskylda Kona Sigurðar er Aldís Pála Bene- diktsdóttir, f. 8.7.1940, húsfreyja og bankastarfsmaður við Landsbanka íslands. Foreldrar hennar eru Bene- dikt Sigurðsson, b. í Grímstungu á Hólsfiöllum, og kona hans, Emilía Kjartansdóttir húsfreyja. Böm Sigurðar og Aldlsar eru Guð- rún Helga, f. 16.9.1963, cand. mag. í fiölmiðlafræði frá háskólanum í Helsinki og húsmóðir í Hafnarfirði, maður hennar er Friðrik Friðriks- son arkitekt og eiga þau tvö börn, Aldísi Evu og Dag Pál; Benedikt, f. 19.4.1965, BA í sagnfræði og bók- menntum, búsettur í Reykjavík; Kjartan Emil, f. 23.2.1971, nemi í stjórnmálafræöi við HÍ. Systkini Sigurðar eru Kristinn, f. 14.11.1935, yfirlæknir við Borgar- spítalann, var kvæntur Valgerði Bergþórsdóttur sem er látin; Krist- ín, f. 1.2.1941, skrifstofumaður hjá Verkamannafélaginu Hlíf í Hafnar- firði, gift Guðjóni Albertssyni, rit- höfundi og lögfræðingi hjá Trygg- ingastofnun ríkisins; Þorgrímur, f. 1.2.1941, lögregluvarðstjórií Reykjavík, formaður Lögreglufé- lags Reykjavíkur. Fóstursystir Sig- urðar er Margrét Pétursdóttir, f. 23.12.1950, d. 21.8.1984, gÍftEÍnari Rafnssyni, starfsmanni Sjónvarps- íns. Foreldrar Sigurðar eru Guðmund- ur Kristinsson, f. 22.1.1906, d. 1.4. 1976, verkamaður í Reykjavík, og kona hans, Guðrún Ástríður Eli- mundardóttir, f. 10.7.1905, hús- freyja. Ætt Faðir Guðmundar var Kristinn, trésmiður í Reykjavík, Gíslason, b. á Högnastöðum i Hreppum, Jóns- sonar, b. í Efra-Langholti, Magnús- sonar, b. í Efra-Langholti, Eiríks- sonar, b. í Bolholti, Jónssonar, for- föður Bolholtsættarinnar. Móðir Gísla var Kristín Gísladóttir, b. í Litlu-Tungu, Jónssonar. Móðir Kristínar var Ástríður, systir Ein- ars, langafa Önnu, móður Ingólfs Jónssonar ráðherra. Ástríður var dóttir Gunnars, b. í Hvammi á Landi, Einarssonar og konu hans, Kristínar Jónsdóttur, b. á Vindási, Bjarnasonar, b. á Víkingslæk, Hall- dórssonar, forföður Víkingslækjar- ættarinnar. Móðir Kristins var Guð- rún, systir Halldórs, afa Halldórs V. Sigurðssonar ríkisendurskoð- anda. Guðrún var dóttir Álfs, b. í Einkofa á Eyrarbakka, Jónssonar, b. í Tungu í Flóa, Ólafssonar. Móðir Jóns var Sesselja Aradóttir, b. á Eystri-Loftsstöðum, Bergssonar, b. í Brattholti, Sturlaugssonar, forföð- ur Bergsættarinnar. Móðir Álfs var Gróa Álfsdóttir, systir Þórunnar, langömmu Ástríðar, ömmu Víg- lundar Þorsteinssonar, formanns Félags íslenskra iðnrekenda. Móðir Guðmundar var Kristín Guðmunds- dóttir, b. á Leifsstöðum í Öxarfirði, Þorgrímssonar, b. á Hámundarstöö- um í Vopnafirði, Péturssonar, bróð- ur Þorbjargar, langömmu Jóns Ól- afssonarritstjóra. Meðal móðursystkina Sigurðar eru Ólafur sagnfræðingur, Sæ- mundur, faðir Matthíasar Viðars bókmenntafræðings, og Anna, móð- ir Erlends Haraldssonar sálfræð- ings. Guðrún var dóttir Elimundar, formanns á Helhsandi, Ögmunds- sonar, skálds og handlæknis á Hell- Sigurður E. Guðmundsson. issandi, Jóhannessonar. Móðir Guð- rúnar var Sigurlaug Cýrusdóttir, b. á Öndverðamesi, Andréssonar, bróður Ögmundar, föður Karvels útgerðarmanns. Móðir Cýrusar var Guðrún Bjömsdóttir, b. á Hrafna- björgum í Hörðudal, Gestssonar og konu hans, Halldóru, systur Guð- rúnar, ömmu Guðmundar Bjöms- sonar landlæknis og langömmu Bjarna, afa Ingimundar Sigfússon- ar, forstjóra Heklu. Sigurður er að heiman í dag. Til hamingju meö afmælið 18. maí 80 ára 50 ára Guðný Guðjónsdóttir, Granaskjóli21,Reykjavík. Jón Ágústsson, Sigluvík 2, Vestur-Landeyjahreppi. Messiana Marsellíusdóttir, 75 ára Urðarvegi60, ísafirði. Hrafnhildur Georgsdóttir, Hjalti Bjarnason, Sólvangi, Árskógshreppi. Ragnheiður Þ. Jónsdóttir, Hvassaleiti 6, Reykjavík. Grýtubakka 14, Reykjavík. Guðrún Gríma Árnadóttir, Þrastarlundi 17, Garðabæ. Jóhann Jóhannsson, Oddeyrargötu 4, Akureyri. 70 ára Elísabet Proppé, Hjallaseli 14, Reykjavík. Ingólfur Arnarson, Suðurgötu 58, Siglufirði. 40 ára Guðrún Klara Jóakimsdóttir, Skúlagötu 74, Reykjavík. Sigrún Hjartardóttir, Ásvallagötu 31, Reykjavík. 60ára Ingibjörg Hjartardóttir, Tryggvagötu 4, Reykiavík. Brynjólfur Jónsson, Stóragerði25, Hvolsvelli. Kristín Bjarnadóttir, Húnabraut 18, Blönduósi. Jóhanna Sigurðardóttir, Ásvegi 19, Breiðdalsvík. Gísli Hólm Óskarsson, Viðigrand26, Sauðárkróki. ~ Jón Frímann Ágústsson, Löngumýri20, Garðabæ. Stefán Sigurðsson, Brekkustíg2, Sandgerði. Pálína Dagbjört Björnsdóttir, Möðruvallastræti2, Akureyri. Ingvi Rafn Sigurðsson, ' Smáratúni 12, Selfossi. Kristján Jóhannsson Kristján Jóhannsson, ritstjóri Nes- frétta sem auk þess rekur prent- smiðjuna Nes, Hrólfskálavör 14, Sel- tjarnarnesi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Kristján fæddist á ísafirði og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann lauk gagnfræöaprófi á ísafirði en á ungl- ingsáranum var hann til sjós á tog- urum frá ísafirði og starfaði hjá fóð- ur sínum í rækjuverksmiðju Guð- mundar og Jóhanns á ísafiröi. Kristján kom til Reykjavíkur 1963 og hóf þar prentnám í prentsmiðj- unni Eddu en hann lauk sveinsprófi 1967. Hann starfaði síðan áfram í Eddu til 1970, starfaöi við prent- smiðju Alþýðublaðsins 1971 og í Blaöaprent frá ársbyrjun 1972-87. Kristján stofnaði prentsmiðjuna Nes 1986 og hefur starfrækt hana síðan. Þá hefur hann gefið út bæjar- blað Seltjarnarness, Nesfréttir, frá 1988 og er ritstjóri þess og ábyrgðar- maður. Kristján hefur svarfaö meö Kiwan- isklúbbnum Nesi og var forseti hans 1989-90. Þá situr hann í stjórn knatt- spyrnudeildar Gróttu. Fjölskylda Kristján kvæntist 12.10.1963 Elísa- betu Stefánsdóttur, f. 20.11.1943, hjúkrunarkonu. Hún er dóttir Stef- áns Guðmundssonar, fyrrv. skip- stjóra hjá Eimskip, og konu hans, Guðrúnar Kristjánsdóttur húsmóð- ur. Kristján og Elísabet eiga fiögur böm. Þau eru Guðrún, f. 1.8.1963, stjórnmálafræðingur og á hún eina dóttur, Elísabetu Elmu Líndal, f. 16.6.1989; Jóhanna, f. 28.10.1967, stúdent, en hún á einn son, Kristján HögnaKristjánsson, f. 10.3.1992; Valur, f. 28.3.1973, nemi við Fjöl- brautaskólann í Ármúla; Guðmund- ur Gauti, f. 8.3.1981, nemi. Kristján á þrjár systur og einn bróður. Systkini hans eru Anna Steingerður, f. 20.9.1943, gift John Hedegárd og reka þau eigið fyrir- tæki í Borás í Svíþjóð; Droplaug, f. 20.8.1945, skrifstofumaður við HÍ, búsett í Reykjavík; Elín, f. 8.12.1950, sjúkraliði í Álaborg í Danmörku, gift Guðjóni Guðmundssyni, raf- virkja og verkstjóra, og eiga þau þijú börn; Sigurður Jóhann, f. 8.6. 1953, arkitekt í Reykjavík, kvæntur Kristínu Guönadóttur, listfræðingi á Kjarvalsstööum, og eiga þau eina dóttur. Foreldrar Kristjáns: Jóhann Jó- hannsson, f. 10.11.1910, d. 1973, for- Kristján Jóhannsson. stjóri á ísafirði, og kona hans, Jó- hanna Kristjánsdóttir, f. 26.6.1919, húsmóðir. Ætt Jóhann var sonur Jóhanns, kaup- manns á ísafirði, Þorsteinssonar frá Kjarlaksstöðum á Fellsströnd, og Sigríðar Guðmundsdóttur húsmóð- ur. Jóhanna er dóttir Kristjáns Jó- hannessonar, sjómanns á ísafiröi, og Elínar Sigurðardóttur frá Hara- stöðum á Fellsströnd. Kristján verður að heiman á af- mælisdaginn. Rannsóknastyrkir EMBO í sameindalíffræði Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European Mole- cular Biology Organization, EMBO), styrkja vísinda- menn sem starfa í Evrópu og ísrael til skemmri eða lengri dvalar við erlendar rannsóknastofnanir á sviði sameindalíffræði. Nánari upplýsingar fást um styrkina í menntamálaráóuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. - Umsóknareyðublöð fást hjá Dr. J. To- oze, Executive Secretary, European Molecular Bio- logy Organization, 69 Heidelberg 1, Postfach 1022 40, Þýskalandi. Límmiði með nafni og póstfangi sendanda skal fylgja fyrirspurnum. Umsóknarfrestur um langdvalarstyrki er til 16. febrúar og til 15. ágúst en um skammtímastyrki má senda umsókn hvenær sem er. Menntamálaráðuneytið, 12. maí 1992. Ingi Guðmonsson Ingi Guðmonsson skipasmiður, Hlíðargerði 2, Reykjavík, er níræöur ídag. Starfsferill Ingi er fæddur aö Kaldrananesi í Strandasýslu en ólst upp í Kolbeins- vík í Árneshreppi á Ströndum þar sem hann bjó til 22 ára aldurs. Hann fór til Reykjavíkur 1922 að læra smíði hjá Einari Kristjánssyni og Stefáni Einarssyni og var í höfuð- borginnitill926. Ingi vann ýmsa vinnu en þó mest við sjósókn og var ennfremur þijú sumur í Djúpuvík við byggingu sölt- unarstöðva. Eftir dvölina í Reykja- vík settist hann að á Drangsnesi við Steingrímsfiörð og bjó þar til 1941. Þar stundaði Ingi einkum bátasmíði en sótti einnig sjóinn á eigin bát. Hann flutti til Akraness árið 1942 og þá hófst bátasmíðin fyrir alvöru. Ingi smíðaði á annað hundrað báta, frá þremur til fiórtán tonna, ásamt mörgum smábátum. Heilsa hans fór að bila 1963 vegna hjartaáfalls og hann flutti til Reykjavíkur þremur árum seinna. í höfuðborginni vann Ingi sem leiðbeinandi við siglinga- bátasmíði hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur og Kópavogs um ára- bil. Aðaláhugamál Inga er söngur og á Akranesi söng hann með Svönun- um og kirkjukór staöarins. í Reykja- vík hefur hann tekið virkan þátt í kirkjukórastarfi Bústaða- og Grensáskirkna. Fjölskylda Ingi kvæntist 28.12.1928 Guðrúnu Guðlaugsdóttur, f. 23.3.1904, d. 17.2. 1971. Foreldrar hennar voru Guð- laugur B. Guðmundsson og Sigur- lína Guðmundsdóttir en þau bjuggu síðast á Bakka í Geiradal. Ingi og Guðrún eignuðust fimm böm en misstu eitt þeirra á fyrsta aldursári. Börn þeirra em búsett í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Bretlandi. Ingi Guðmonsson. Ingi eignaðist fimm systkini en fiögur era látin. Á lífi er Anna, 93 ára, búsett á Höföa á Akranesi. Foreldrar Ihga voru Guðmon Guðnason, f. 17.10.1866, d. 4.6.1946, og Guðrún Kristjánsdóttir, f. 8.3. 1867, d. 5.9.1946, en þau bjuggu lengst af í Kolbeinsvík á Ströndum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.