Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1992, Page 4
4 MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1992. Fréttir Unglingspiltur slasaðist í umferðarslysi á Akureyri: Sendur hryggbrotinn heim af sjúkrahúsinu var daginn eftir 4-5 tíma á skurðarborði í Reykjavík „Hann fann mikiö til í bakinu og grátbaö um að fá að vera á sjúkra- húsinu um nóttina en læknamir töldu enga þörf á því og sögðu að hann hefði aðeins farið úr axlarlið og yrði að fara heim. Þá var hann látinn ganga einn út í bíl og dvaldi heima hjá sér um nóttina. Um morg- uninn var hann orðinn svo kvalinn að farið var meö hann á spítalann aftur og hann settur í myndatöku. Þá kom í ljós að hann var hryggbrot- inn,“ segir Ingunn Olafsdóttir, móðir drengs sem slasaðist í umferðarslysi á Akureyri síðastliðið fimmtudags- kvöld er bifreið, sem hann var far- þegi í, var ekið á hús. Pilturinn var fluttur á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri en sendur heim sama kvöld þegar búiö var að koma honum aftur í axlarlið. Dreng- urinn kvartaði undan eymslum í baki en vai samt ekki myndaður. Þegar komið var með hann morg- uninn eftir var hann loks settur í myndatöku og kom þá í ljós að hann var hryggbrotinn. Hann var þá send- ur með sjúkraflugi til Reykjavíkur og gekkst undir 4-5 tíma aðgerð á Borgarspítalanum. Hann hlaut ekki mænuskaða og dvelur nú á Borgar- spítafanum. Móðir piltsins sagði við DV að það væri ófyrirgefanlegt að pilturinn skyldi ekki vera myndaður strax um kvöldið, er hann kvartaði undan eymslum í baki, og kenndi um van- rækslu lækna á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Það væri hrein- asta mildi að ekki fór verr. Júlíus Gestsson, yfirlæknir á slysa- og bæklunardeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri, taldi í viðtali við DV að ekki hefði verið um van- rækslu að ræða. Hann sagði að það kæmi stundum fyrir að sá áverki sem mestum sársauka ylli drægi athyg- Mna frá öðrum meiðslum sem kannski væru alvarlegri. Það hefði ekki verið metið svo á staðnum að þörf væri á myndatöku. Varðandi það hvort drengnum hefði verið neitað um sjúkrarúm um nóttina sagðist Júlíus ekki þekkja það í smáatriðum en almennt séð búi sjúkrahúsið við plássleysi. -ari Fékksáreftirstung- urmeðbúrhnífi Karlmaöur var særður með nokkr- um hnífstungum í áflogum í húsi við Stíflusel aðfaranótt sunnudags. Tildrög málsins eru þau að kona bauð manni með sér heim. Skömmu síðar kom inn á heimilið maður sem konan hafði áður átt vingott við, sambýlismaöur. Upphófust þá deilur sem leiddu til átaka. Sambýlismað- urinn greip búrhníf og lagði til hins. Sá hlaut nokkrar stungur, í brjóst- kassa, í handleggi og bakið. Maðúr- inn var því meira eða minna hruflað- ur eftir atlöguna. Hinn særði var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. Hann er ekki talinn alvarlegaslasaður. -JJ/ÓTT Ölvadurökumaður ókábrunn Ölvaður ökumaður ók út fyrir veg á fostudagskvöld og upp á brunn sem er í afrennslinu milli Breiðholts- brautar og Miklubrautar. Þar sat bíllinn fastur þegar lögregla koma að en ökumaðurinn var handtekinn grunaður um ölvunarakstur. - JJ Hjólreiöadagur barna i Austurbæjarskólanum var haldinn nú um helgina. Þetta framtak var samstarfsverkefni skólans og Umferöarfræöslunnar og var leikurinn gerður til þess að efla vitund barna og foreldra um hættur í umferðinni og leiðir til að varast þær. í þessu skyni var foreldrum boðið að hjóla með. Farið var frá Austurbæjar- skólanum yfir i Öskjuhlið undir leiðsögn lögreglu og kennara. Ferðinni lauk svo með léttum veitingum í Perlunni. DV-mynd S Tveirteknirvið rúðubrot Tveir menn voru teknir við rúðu- brot í verslunarmiðstöð í Kleifarseli klukkan rúmlega tvö aðfaranótt laugardags. Þegar lögregla koma á staðinn var búið að brjóta tvær rúður og annar mannanna veifaði hnífi. Mennirnir voru handteknir og færðirniðurástöð._______-JJ Tveirmenn hand- teknirviðinnbrot Brotist var inn í Gunnlaugsbúð í Grafarvogi klukkan rúmlega tvö að- faranótt laugardags. Innbrotsmenn- irnir voru tveir og komust ekki langt því þeir voru handteknir á staðnum. Steinikastað inn umglugga íbúar í húsi við Njálsgötu hrukku upp þegar gluggi í svefnherbergi brotnaði rétt upp úr miðnætti aðfara- nótt laugardags. í fyrstu var ekki vitað hvort brotið væri eftir byssukúlu eða stein en síð- ar kom í ljós að þetta var stór steinn sem lenti rétt hjá sex mánaða gömlu barni sem lá í rúmi. Barniö sakaöi ekki. -JJ I dag mælir Dagfari________ Nató mun hafa verra af Starfsmenn varnarhðsins á Kefla- víkurflugvelli hafa stofnað með sér félag. Það heitir félag starfsmanna varnarhðsins. Tilgangur félagsins er að sporna gegn þeirri þróun sem hefur valdið því aö störfum hefur fækkað á Vellinum. Þeir hafa áhyggjur af því, starfsmennimir, og mótmæla því og krefjast þess að utanríkisráðherra grípi í tau- mana. Dagfara þykja þetta karlmannleg viðbrögð hjá starfsmönnunum á Vellinum og sannarlega tímabær. Þau ósköp hafa dunið á heims- byggðinni að SovétríW hafa verið lögð niöur og óvinurinn hefur horf- ið sporlaust. Grýla kommúnismans er dauð. Varsjárbandalagið hefur verið leyst upp og Atlantshafs- bandalagið hefur skyndilega staðið uppi án nokkurs sjáanlegs tilgangs. Og allt hefur þetta gerst án þess að spyrja íslendinga álits! í raun og veru má halda því fram að endalok kommúnismans og Sov- étríkjanna hafi runnið upp án þess að nokkur maður hafi gert minnstu tilraun til að hefta atburðarásina. Nokkrir heiðarlegir kommúnista- foringjar gerðu að vísu tilraun til byltingar í Moskvu en voru staðnir að verki. Þessir menn eru ýmist á bak viö lás og slá eða þá hafa sjálf- ir svipt sig lífi og ekki hægt að stóla á liðveislu þeirra lengur. Einn og einn harölínukommi situr hér og þar í Evrópu og trúir enn á Stalín og fyrirmyndarríkið en í fljótu bragði er hvergi að sjá neinn lið- safnað sem hefur burði til að snúa þessari þróun við. Þess vegna er það fagnaðarefni þegar starfsmenn á Keflavíkur- flugvelli stofna starfsmannafélag sem á að hafa þaö að aðalmarkmiði að mótmæla heimsatburðarásinni pg heimta áframahaldandi varnir á íslandi til að tryggja okkar mönn- um atvinnu. Það sjá alhr að atvinna manna á Suðurnesjum hefur allan forgang og hefur úrshtaþýðingu þegar menn taka upp á þeim tjanda að leggja niður vopn og týna óvin- um sínum. Það gengur ekki að Atl- antshafsbandalagið hætti við mannvirkjagerð á Vellinum og dragi úr varnarviðbúnaði þegar atvinnuástand er ótryggt suður með sjó og efnahagslífið að ööru leyti í lægð. Það hefur ahtaf legið fyrir að kalda stríöið var ekki endilega háð til að heimsveldin næðu heimsyfir- ráðum, eða til að sanna hvort væri betra kommúnismi eöa kapítal- ismi. Það sem skipti máh í kalda i stríðinu var hergagnaframleiðslan, mannvirkjagerðin, atvinnustarf- semin og hermangið sem þróaðist og blómstraði í skjóh varnarbanda- laga, báðum megin járntjaldsins. Fólk gat treyst þessu stríði og gat byggt afkomu sína á þessum vam- arviðbúnaði. Það var aldrei tekið fram að hinir stríðandi aðilar mættu hætta þessum leik. Starfs- menn á Velhnum hafa aldrei verið varaðir við þeim möguleika aö þeir gætu misst atvinnuna. Þess vegna er það krafa starfs- mannafélagsins að utanríkisráð- herra láti máhö til sín taka. Utan- ríkisráöherra fylgist með utanrík- ismálum og segist hafa mikil áhrif á þeim vettvangi og honum er skylt að stööva þá óheillaþróun sem átt hefur sér stað í heiminum að und- anfornu. Til þess eru utanríkisráðherrar. Dagfari man eftir Molotov og Gro- myko og Dulles og öðrum hörðum nöglum í embættum utanríkisráð- herra hjá Sovét og Kananum, sem stóðu dyggan vörð um kalda stríðið og létu enga aumingja komast upp með það að draga úr kalda stríð- inu. Þeir stóðu vörð um starfs- mennina á Keflavíkurflugvelh og höfðu skilning á því að atvinna þessa fólks hefði forgang. Jón Bald- vin utanríkisráðherra mun hafa verra af ef hann ætlar að svíkja starfsmenn á Vellinum og láta þjóð- ir heims komast upp með það að draga úr vörnum og leggja varnar- bandalög niður. Alþýðuflokkurinn mun ekki ríða feitum hesti frá þess- ari ríkisstjórn ef þetta ástand í heimsmálum verður varanlegt og Kaninn heldur áfram að tygja sig heim. Það er forgangskrafa og grund- vaharskilyrði starfsmannafélags- ins á Vellinum að Nató og Kaninn haldi áfram mcmnvirkjagerö og umsvifum á Keflavíkurflugvelh, hvað svo sem heimsmálunum og varnarliðinu hður. Annars mun Nató hafa verra af. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.