Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1992, Blaðsíða 19
18
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992.
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992.
39
Iþróttir
Iþróttír
Bnskl landsllðsmaöurinn Chris
Waddle er iíklega á förum til
ensku meistaranna Leeds í sum-
ar. Waddle hefur Ieikið með Mar-
seilles í Frakklandi en formaöur
frönsku meistanna, Jean Pierre
Bemes, er dlbúinn að seija leik-
manninn og vill fá Þjóðverjann
Rudi Völler í staðinn.
Leeds hefur ekki boðið form-
lega í Waddle en Howard Wilkin-
son hefur mjög mikinn áhuga á
að fá leikmanninn til liösins og
leika þá með Eric Cantona, Málin
skýrast þó ekki fyir en eftir Evr-
ópukeppninaíSvlþjóð. -RR
Reutertil
Dortmund
Þýski landsliðsmaöurinn Stef-
an Reuter er á förum frá Juvent-
us og er á leið til Borussia Dort-
mund. Reuter mun semja við
Dortmund tíl Qögurra ára en ekki
er vitað hve miklir peningar eru
í spilinu, Þó mó gera ráð fyrir að
Juventus fái dágóða peninga-
summu fyrir hinn 25 ára gamla
vamarmann. -RR
Juventus
samdi
David Platt, framherji enska
landsliðsins, hefur gengiö endan-
lega frá samningi sínum við ít-
alska stóriiðíð Juventus. Piatt lék
með Bari á síðasta tímabili en lið-
iö féil í 2. deild. Juventus hefur
lengi haft augastaö á Platt og þvi
komu kaupin alls ekki á óvart.
Ekki heflir endanlega veriö sam-
ið um kaupverðið. Forráðamenn
Juventus hafa gert miklar
mannabreytingar og verður fróö-
legt aö sjó liðið næsta vetur með
marga nýja leikmenn innan-
borðs. -RR
Tayiorer
smeykur
Englendingar standa frammi
fyrir miklum vandræðum vegna
meiðsla í herbúðum landsliðsins
sem ieikur í Evrópukeppninni
sem hefst í Svíþjóð í kvöld. Nýj-
asta óhyggjuefni Grahams Taylor
er vamarmaðurinn sterki frá Li-
verpool, Mark Wright, en hann
meiddist á dögunum og er ekki
búinn að ná sér fullkomlega. Áö-
ur höföu þeir Gary Stevens og
John Bames orðiö aö snúa heim
vegna meiðsla og í staðinn vom
kallaðir til leiks þeir Keith Curle
og Andy Sinton. Ef Wright getur
ekki leikið gegn Dönum annaö
kvöld verður Taylor án efa í
vandræðura meö vamarieikinn.
Taylor ætlaði upphaflega aö
breyta leikskipulagi enska
landsliðsins og leika aðeins með
3 vamarmenn í staö flögurra eins
og venjan hefur hefur verið í
Englandi. Nú er jafhvel líklegt að
Taylor geti ekki tekiö neina
áhaettu vegna meiðsla iykil-
manna i vöminni.
-RR
HK skoraði 9
Einn leUcur fór fram í 4. deild
karla á íslandsmótinu í knatt-
spymu í gær. HK úr Kópavogi
heimsótti þá Ármenninga og sigr-
aði með 9 mörkum gegn 3. Magn-
ús Jónsson, Jóhannes Eiíasson
og Jens Ormslev skomðu mörk
Ármanns en Zoran Ljubicic 3,
Ejub Purisevic 3, Helgi Kolviös-
son 2 og Frosti V. Gunnlaugsson
skoruðu fyrir Kópavogsliðið.
-GH
Körfuboltalandsliðið keppir 1 undankeppni ÓL:
Mótherjamir
mjög sterkir
íslenska landsliöið í körfuknatt-
leik, sem tekur þátt í undankeppni
iyrir ólympíuleikana, hefur verið
valið. Undankeppnin fer fram í borg-
inni Murcia á Spáni dagana 21.-26.
júní og leikur íslenska liðið í C-riðli
ásamt Grikkjum, Króatíu, Þjóðveij-
um, Rúmenum og Portúgölum.
Ljóst er á þessu aö mótheijar ís-
lendinga era ekki af verri endanum
en Grikkir og Króatar em í fremstu
röð í heiminum í körfuknattleik.
Króatar tefla líklega fram einu besta
byijunarliðinu í Evrópu um þessar
mundir og nægir þar að nefna leik-
menn á borð við Kukoc, Pertovic,
Radja og Vamkovic. Grikkir voru
Evrópumeistarar í körfukrtattleik
1988 og hafa oft leikið til úrslita í
keppninni. Mikill uppgangur er í
körfuknattleik í Þýskalandi og úr
þeirra röðum leikur leikmaður í
NBA-deildinni en það er er Detlef
Schrempf hjá Indiana Pacers.
Með rúmenska liðinu leikur hæsti
körfuknattleiksleikmaður heims en
hann er 2,30 m á hæð. Liðið er mjög
hávaxið og binda Rúmenar miklar
vonir við þetta lið.
Torfi Magnússon landsliðsþjálfari
valdi í gær landslið íslands sem er
skipað tólf leikmönnum. Eftirtaldir
leikmenn vora valdir tii ferðarinnar:
Axel Nikulásson KR
PáUKolbeinsson KR
Jón Kr. Gíslason ÍBK
Valur Ingimundarson Guðmundur Bragason Nökkvi Már Jónsson UMFT UMFG ÍBK
Guðni Guðnason KR
Maenús Matthíasson Val
Herbert Amarss. ..Kentucky Univers Tómas Holton Val
Falur Harðarson.Charleston Univers
Teitur Örlvesson IJMFN
Herbert Amarsson er nýhði í hópn-
um en hann hefur dvalið um nokurra
ára skeið við nám í Bandaríkjunum
og jafnhliða því leikið körfubolta við
góðan orðstír.
-JKS
Það verður á brattann aö sækja hjá Magnúsi Matthíassyni og félögum hans
f fslenska landsllðinu I körfuknattlelk sem képpir i undankeppni fyrir ólympíu-
ieikana siðar i þessum mánuði.
Bikarkeppni kvenna 1 knattspymu:
Valur úr leik
- tapaöi fyrir Stjömunni, 1-3
Nýliöar Stjörnunnar sendu bik- Helena skoraði 5
armeistara Vals út úr bikarkeppni
kvenna í gærkvöldi. Stjömustúlk-
ur vom betri aöilinn í leiknum og
uppskám sigur, 3-1. Rósa Dögg
Jónsdóttir skoraöi tvö mörk fyrir
Stjömuna og Guöný Guðnadóttir
eitt. Helga Ósk Hannesdóttir skor-
aöi mark Vals.
„Sókn er besta vörnin“
Guðný Guðnadóttir, besti maður
vallarins, var ekki á því aö sigur
Stjömunnar kæmi á óvart. „Við
sáum þaö í deildarleiknum gegn
Val aö ef við pressuðum á vömina
gætum við unnið. í seinni hálfleik
ákváðum við að halda áfram aö
sækja þrátt fyrir að vera marki
yfir því sókn er jú besta vörnin,"
sagði Guðný.
Breiöablik sigraði KA á Akur-
eyri, 6-0. Sigrún Óttarsdóttir skor-
aði þrjú mörk, Ásthildur Helga-
dóttir, Olga Færseth og Margrét
Sigurðardóttir eitt mark hver. KA-
stúlkur léku einum leikmanni
færri nær allan leildnn en Tinnu
Óttarsdóttur var visaö af leikvelli
á 25. mínútu eftir að hafa handleik-
ið knöttinn tvisvar.
Skagastúlkur tóku 2. deildar lið
Reynis í Sandgerði í kennslustund,
sigmöu 14-0. Helena Ólafsdóttir
skoraði fimm mörk, Ragnheiður
Jónasdóttir fjögur, Halldóra Gylfa-
dóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Jónína
Víglundsdóttir, Karitas Jónsdóttir
og íris Steinsdóttir eitt mark hver.
KS sigraði Dalvík 2-1. Leikurinn
var jafn framan af en um miðjan
fyrri hálfleik náði Ólöf Ásta Salm-
arsdóttir að skora fyrir KS. Aðal-
heiður Reynisdóttir jafnaði
snemma í síðari hálfleik en
skömmu fyrir leikslok tryggði Ólöf
Ásta KS sigurinn með góðu marki.
Stórsigur Þróttar
Það gekk á með þrumum og elding-
um á Homafirði er Sindri tók á
móti Þrótti N. Það dugði Sindra-
stúlkunum hins vegar skammt því
Þróttur vann stórsigur, 9-0. Anna
Jónsdóttir skoraði þrjú mörk, Inga
Bima Hákonardóttir tvö, Sladjana
Milojkovic, Stojanka Nikolic, Sess-
elía Jónsdóttir og Jónína Guðjóns-
dóttir eitt mark hver.
Þór, Akureyri, sigraði ÍBK 7-0.
-ih
Atli Eðvaldsson sækir að Úlfari Ottarssyni f leik liðanna á KR-velli í gærkvöldi. KR-ingar höföu betur i slökum leik en Breiðablik hefur enn ekki hlotið stig í deildinni.
DV-mynd GS
Fátt um f ína drætti
- KR-ingar þó öllu betri og sigruðu stigalausa Blika, 1-0
„Við lékum ekki vel í þessum leik,
héldum boltanum þó ágæúega en Blik-
amir vom aldrei líklegir til aö jafna
metin. Það var fyrir öllu aö sigra og ég
er auðvitað ánægður með það. Þetta er
aðeins byrjunin á mótinu en úr þessu
fara liðin að sýna hvað virkilega býr í
þeim,“ sagði Rúnar Kristinsson, fyrir-
liöi KR-liðsins, í samtali við DV eftir
leik KR og Breiðabliks á íslandsmótinu
á KR-velli í gærkvöldi.
KR-ingar fóm með sigur af hólmi í
slökum leik, 1-0. Eina mark leiksins
skoraði Ragnar Margeirsson á 7. mín-
útu eftir vamarmistök í vörn Breiöa-
bliks. Valur Valsson virtist hafa tök á
knettinum en missti og þaðan fór hann
til Ragnars sem var á auöum sjó og átti
ekki í erfiöleikum með að skora af
stuttu færi.
KR-ingar áttu síðan alla möguleika
að bæta við öðm marki þegar þeir fengu
vítaspymu eftii aö Valur haföi hand-
leikið knöttinn innan vítateigs en
Cardaklija, markvörður Blika, varði
vítiö vel út við stöng. Ef spyman heföi
verið fastari haföi boltinn að öllum lík-
indum hafnað í netinu.
Síðari hálfleikur
tíðindalítill
Eftir markið var fátt um fina drætti og
liðin sköpuðu sér engin marktækifæri.
Undir lok fyrri hálfleiks varð Steinar
Ingimundarson skyndilega óvaldaður á
markteig en Cardaklija var á réttum
stað í markinu.
Síðari hálfleikur var tíðindalítill, bar-
áttan fór að mestu fram á miöjunni en
flestar sóknartilraunir runnu út í
sandinn.
KR-ingar unnu þama sinn fyrsta sig-
ur í 1. deild í ár og áttu hann skilinn.
Rúnar Kristinsson var eins og oftast
potturinn og pannan í leik liðsins og
einnig átti Atli Eðvaldsson ágætan leik.
Breiöabliksmenn era enn án stiga og
verða leikmenn liðsins að fara taka sig
saman í andlitinu ef ekki á illa að fara.
Á sama tíma í fyrra var liðið sterkara
en liðið hefur enn nógan tíma til að
sýna hvað í því býr. Að loknum þremur
umferðum í fyrra var liðið komið með
sjö stig og þá í hópi efstu liöa en nú
neðst.
„Þýðirekkert að
hengja haus“
„Það þýðir ekkert að hengja haus. Þetta
er allt saman í áttina hjá okkur en það
er alveg ljóst að viö þurfum að laga
ýmislegt. Það er nóg eftir af mótinu og
við munum mæta sterkir til næsta
leiks," sagði Hilmar Sighvatsson, leik-
maður Breiðabliks, eftir leikinn.
-JKS
Körfuknattleikur:
Svafi imm
MáMa Val
Stjóm körfuknattleiksdeildar
Vals gekk í gærkvöldi frá ráðn-
ingu Svala Björgvinssonar sem
þjálfara liðsins í úrvalsdeild
næsta vetur. Svali, sem á undanf-
ömum árum hefur leikiö með lið-
inu, mun samhliða þjálfuninni
leika með því. Svali tekur við að
þjálfa af Tómasi Holton sem mun
halda til Noregs.
„Við erum mjög ánægðir með
ráðningu Svala og treystum hon-
um fyllilega fyrir þessu starfi. Við
höfum einnig ákveðið aö taka þátt
í Evrópukeppni félagsliða á hausti
komanda en dregið verður til 1.
umferðar 8. jiilí nk.,“ sagði Rögn-
valdur Hreiðarsson, í stjóm
körfuknattleiksdeildar Vals, í
samtali við DV í gærkvöldi.
Rögnvaldur sagði að Valsmenn
myndu gera allt sem í þeirra valdi
stáeði til að halda Franc Booker
en þau mál skýrðust þó ekki alveg
strax. -JKS
Svali Björgvinsson þjálfar Valsmenn næsta vetur í körfuknattleiknum.
Með honum á myndinni er Franc Booker sem Valsmenn vona að leiki
áfram með liðinu næsta vetur.
Sigurður nálgast
ólympíulágmarkið
- Siguröur Einarsson vann spjótkastmót í Frakklandi
Sigurður Einarsson sigraði í spjótkasti
á móti í Frakklandi í gær. Sigurður kast-
aði spjótinu 78,56 metra og nálgast óðfluga
ólympíulágmarkið sem er 80 metrar. Sig-
urður hefur bætt sig mikið upp á síðkastið
en á móti fyrir skömmu kastaði hann
rúma 74 metra.
Guðbjörg sjötta
á háskólamótinu
Guðbjörg Gylfadóttir, íslandsmethafi 1
kúluvarpi, varð í sjötta sæti í kúluvarpi á
bandaríska háskólameistaramótinu um
helgina, kastaði 15,41 metra.
Á sama móti lenti Fríða Rún Þórðardótt-
ir í 11. sæti í 3000 metra hlaupi á 9:34,00
mínútum.
-JKS Sigurður Einarsson.
KR
UBK
(1) 1
(0) 0
1-0 Ragnar (7)
Uö KR (3-5-2): Ólafur (1), Óskar
(1), Atli (2), Þormóöur (1), Siguröur
(1) (Einar Þór (81.), Rúnar (2),
Gunnar (1), Gunnar G. (1), Ragnar
(1), Heimir (1), Steinar (1).
Uö UBK (3-5-2): Cardaklija (2),
Jón Þórir (1), Reynir (1), Úlfar (1),
Willum (1) (Sigurjón (71.), Amar
(1), Þorsteinn (1), Hákon (1)
(Steindór (60.), Grétar (1), Valur
(1), Hilmar (1).
Gul spjöld: Amar, UBK.
Rauö spjöld: Engin
Dómari:
Eyjólfur Ól-
afsson dæmdi
auðveldan
leik vel.
Aðstæöur:
Góður og fall-
egur völlur en
nokkuö þung-
ur eftir rigninguna aö undanfómu.
Áhorfendur: 1228.
Þór ....3 2 1 0 4-2 9
Víkingur.... ....3 2 0 1 4-4 6
KA ....3 1 2 0 7-5 5
Akranes ....3 1 2 0 5-3 5
FH ....3 1 1 1 6-6 4
Valur ....3 1 1 1 4-4 4
KR ....3 1 1 1 4-5 4
ÍBV ....3 1 0 2 4-5 3
Fram7. ....3 1 0 2 3-4 3
UBK ....3 0 0 3 1-4 0
„ Við vinnum ekki leitó á framtaki
eins eða tveggja manna, þaö veröa
allir að vera virkir til þess að við
vinnum Chicago," sagði Clyde
Drexler 1 samtali viö DV um úr-
slitaleiki NBA milli Portland Trail-
blazers og Chicago Bulls. Chicago
hefúr nú 2-1 yfir í viðureigninni,
en fiórði leikur liðanna er í nótL
„Við hugsum um einn leik í einu
og reynum að einbeitaokkur að þvi
vinna hann. Við munum reyna aö
halda okkur viö það sama og viö
höftun veriö gera 1 vetur, það hefúr
reynst veL"
Aðspurður hvort Portland og
Chicago myndu verða fremstu lið
deildarinnar næstu ár, eins og Bos-
ton Celtics og LA Lakers vom á
níunda áratugnum, sagði Drexler:
„Okkar lið og lið Chicago em bæöi
mjög góð, en það er mitóð af góöum
liðutn að koma upp í vesturdeild-
inni og breytingar em töluverðar
milli ára,“ sagði Drexler.
Danny Ainge varð tvívegis meist-
ari meö Boston og veit hvað þaö
er að leika til úrsUta. Hann hefur
reynst Portlandiiöinu mitólvægur
í úrsUtunum til þessa þegar hann
heftir komið inn á.
„Við erum með rajög gott firom
raanna lið, en þegar ég kem inn á
reyni ég að miðla af reynslu minni.
Þaö er gaman að leika með Port-
land, Uðið er skemmtilegt og það
em gerðar miklar kröfur til okkar
af stuðningsmönnunum," sagöi
Ainge, sem ættaöur er frá Oregon-
fyUti og leikur þvi á heimaslóðum.
Ainge sagði að til of mitóls væri
ætlast að Portland ynni aUa leUtina
á heimaveUi, en það yrði svo sann-
arlega reynt.
Terry Porter, faakvöröur Port-
land, heftir leUdð vel í úrslita-
keppninni og skorað mitóð af 3ja
stiga körftim.
„Chicago er meö mjög gott lið og
það er mjög erfitt að leika gegn
þeim á heimaveUi þeirra. Það verð-
ur gott að leika gegn þeim í Port-
land, en við vinnum ektó aUa þrjá
leitóna þar, það er nokkuð ljóst,“
sagöi Porter í spjáUi viö DV.
Porter haföi á réttu að standa eins
og komiö hefur í Ijós er Portland
tapaði fyrsta heimaleUi sínum.
„Við unnum þá í fyrra, en það
hefur ekki gengið eins vel 1 ár. Það
era allir leikir í úrslitunum erfiðir,
sérstaklega þegar á líöur," sagði
TerryPorter. -BL
Margir hafa lýst einvígl Chicago og Porttand aero uppgjöri
iefkmanna.
Evrópukeppni landsliða í knatt-
spymu hefst í Svíþjóð í dag. Þar
keppa 8 af bestu landsUðum Evr-
ópu og spUa í tveimur riðlum. í
öðrum riölinum leika Frakkland,
Svíþjóð, England, Danmörk og í
hinum Þýskaland, Holland, Sam-
veldin og Skotland. Efstu Uðin úr
hvomm riðU leika tíl úrsUta um
titilinn. Opnunarleikurinn er
viöureign Frakka og Svía og fer
hann fram klukkan 18.
Advöran frá
Platini
Michel Platini, einvaldur
franska landsUðsins, hefur varað
leikmenn sína við að spUa of gróft
í opnunarleik Evrópukeppninnar
gegn gestgjöfunum Svíum í
kvöld. Platini er smeykur við
brottrekstra en það hefur oft hent
franska Uðið, m.a. í opnunar-
leiknum gegn Dönum 1984 þegar
Manuel Amoros var retónn af
velli. Platini gaf Amoros sérstaka
aðvömn í þessu sambandi. Plat-
ini tók fram á fundi með leik-
mönnum sínum að brjóta sem
allra minnst og við öU óþarfa brot
gætu menn átt á hættu að missa
sæti sitt í Uðinu.
Ekkimargir
Aðeins rúmlega 2 þúsund ensk-
ir áhorfendur hafa keypt miða á
leitóna í Svíþjóð til að fylgjast
með sínum mönnum í Evrópu-
keppninni. Búist er við um þús-
und áhorfendum í viðbót en það
era samt sem áður mun færri
áhorfendur en búist haföi verið
viö í upphafi. Talið er að mitól
dýrtíð í Svíþjóð hafi gert það að
verkum að enskir knattspymuá-
hugamenn hafi ektó getað farið á
keppnina. Sænska lögreglan var
mjög fegin þegar hún heyrði þess-
ar fréttir enda ensku áhorfend-
umir taldir með þeim verstu.
Danirhungraðir
Danir em hungraöir í að sýna
og sanna að þeir eigi fuUt erindi
í úrsUtakeppnnina í Svíþjóð.
Þjálfarinn Richard MöUer-Niel-
sen telur að styrkur danska Uös-
ins liggi í því að leikmenn hans
séu ektó eins spenntir og leUt-
menn hinna Uðanna og vopn
Dana sé að þeir hafi engu að tapa
þar sem þeir komu með stuttum
fyrirvara inn í keppnina.
„Við erum með ungt en hungr-
að Uð en menn hafa trú á sjálfum
sér. Við förum þó varlega í að
gera okkur núklar vonir en við
höftim aUs engu að tapa,“ sagði
Nielsen á blaðamannaftindi í
gærdag. Danir em með allan hóp
sinn heilan ef frá er talinn miðju-
leikmaðurinn Kim Cristofte, en
hann meiddist í deUdarleik í Dan-
mörku fyrir skömmu.
Brolin vopn
Svía
Svíar era bjartsýnir fyrir opn-
unarleUtinn gegn Frökkum í
kvöld. Sænstó framheijinn
Thomas Brohn sér ektó ástaeðu
til annars en bjartsýni á góðan
árangur í keppninni en Svíar
binda miklar vonir við þennan
22 ára gamla framheija.
„Við eigum jafna möguleika í
öllum leikjum," sagði Brolin í
gær. Brolin er aðalvopn Svía og
gæti reynst Frökkum hættulegur
í kvöld en hann hefur skorað 9
mörk í aðeins 16 landsleikjum.
-RR