Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1992, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1992, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 30. JOlI 1992. Fréttir KaupÚtherjahf. á hlutabréfum Fjölmiðlunar sf.: Eg á þarna hagsmuni - segir Gunnar Þór Ölafsson „Af hverju kaupa menn? Eru þeir ekíd bara að reyna að gera góð við- skipti? Svo á ég þarna hagsmuni,“ sagöi Gunnar Þór Ólafsson hjá Út- heija hf. sem keypti hlut Fjölmiðlun- ar sf. í íslenska sjónvarpsfélaginu fyrr í vikunni. - Hefur þú setiö flestalla fundi Fjöl- miðlunar sf.? „Nei, þaö heyrir til undantekninga að ég hafi gert það og það hefur þá verið í einhverjum sérstökum mál- um. Annars veit ég ekki hvað þeir hafa fúndað oft. Ég hef helst mætt út af einhveijum deilumálum við eignarhaldsfélagið og öðru sem kom- ið hefur upp í þeim dúr.“ - Hvenær kom fyrst til tals að þú keyptir hlut Fjölmiðlunar sf.? „Það má segja að kveikjan sé eign- arhaldsfélagið þegar við teljum það bijóta á okkur samninga og selja Áramótahópnum bréfin án þess að láta okkur vita. Við töldum okkur hafa forkaupsrétt. Við höfðum ekki hugmynd um hvað var að gerast og að selja ætti bréfin. Þetta eru eigin- lega laun vanþakklætisins." - En má þá ekki líta á það sem laun vanþakklætisins þegar hópur hlut- hafa í Fjölmiðlun sf. fær ekki að vita um það þegar þú kaupir hans hlut? „Jú, það má kannski segja það. Annars er þetta mikill minnihluti og einhveijir hafa nú viljað seija. Það er óþarfi að svona lítill minnihluti sé að kaffæra meirihlutann og fara á bak við hann.“ - Er Útherji stofnaður til þess að kaupa þessi bréf? „Já, hann er stofnaður til þess.“ - Utherji hf. hefur átt fjármuni til aö kaupa hlutabréf fyrir 240 milijónir króna? „Við værum ekki að því ef við hefð- um ekki efni á því.“ - Hveijir eru „við“? „Ég og þeir sem á bak við mig standa." - Hveijir eru það? „Ég er ekkert að gefa það upp. Það kemur fljótiega í ljós. Það stendur öllum opið að kaupa. Vonandi kaupa allir og þá verða það sömu menn og eru í Fjölmiðlun sf. En það sem skipt- ir máh er reksturinn og aö hann þró- ist vel. Þetta verð er dálítið hátt og hefur hækkað mikið, en það eru sæmileg kjör á þessu.“ - Hvaðakjöreruáþessumbréfum? „Það eru sömu kjör og hjá eignar- haldsfélaginu þegar það seldi Ára- mótahópnum. Ég tel að það hafi sprengt upp verðið í skjóli þess að menn eru að beijast þarna um að ná einhveijum atkvæðum. En það er ekki mitt að greina frá því hvemig þessi kjör eru.“ -JSS Jörgen geymir loftpressuna á ónefndum stað. Hann segist ekki afhenda hana eigandanum, verktaka, fyrr en sá aðili greiði sér þá skuld sem Jörgen telur sig eiga Inni hjá honum. DV-mynd JAK Sjavarútvegsnefiid gagnrýnir ríkisstjómina: Ég hef ekki sagt mitt síðasta orð - segirMatthíasBjamasonformaÓurnefhdarinnar „Eg er tilbúinn í hvað sem er til að rétta hlut þeirra fyrirtækja og byggðarlaga sem harðast verða úti og mun ekki hika við að styðja góðar hugmyndir sem fram kunna að koma. Ég hef ekki sagt mitt síðasta orð,“ sagði Matthías Bjamason er hlé var gert á fúndi sjávarútvegsnefndar Alþingis í gærdag. Á fundi nefndarinnar var sam- þykkt ályktun þar sem ríkisstjómin er gagnrýnd fyrir að hafa ekki haft nægjanlegt samráð við hana að und- anfomu um veigamikil mál. Auk sljómarandstæðinga í nefnd- inni greiddu þeir Matthías Bjamason og Óssur Skarphéðinsson atkvæði með ályktuninni. Vilhjálmur Egils- son greiddi einn mótatkvæði en Guð- mundur Hallvarðsson og Ragnar Ámason sátu hjá. Svo virðist sem meirihluti sjávar- útvegsnefndar sé á þeirri skoðun að breyta beri lögum um Hagræðingar- sjóð þannig að hægt verði að úthluta kvóta hans til einstakra byggðarlaga í samræmi við skerðingu heildaraf- lans. „Eg er mjög óánægður með ákvörð- un ríkisstjórnarinnar. Það era auð- vitað bullandi deilur um það hvað eigi að veiða en um heildarúthlutun- ina ætia ég ekki að deila. Óánægja min nær einkum til þess hversu illa þetta kemur niður á hinum ýmsu fyrirtækjum og byggðum í þessu landi. Niðurstaðan er mjög ósann- gjöm,“ segir Matthias. Matthías, sem jafnframt er formað- ur Byggðastofnunar, kveðst ekki sjá hvemig stofnunin geti komið að máhnu þó svo að ríkisstjómin hafi beðið hana að gera úttekt á vanda einstakra byggða í kjölfar skerðingar á þorskveiðiheimildum. Stofhunin hafi enga heimild til að lána sjávarút- vegsfyrirtækjum fyrir kaupum á kvóta úr Hagræðingarsjóði fenda eigi mörg þeirra ekki einu sinni til veð. „Ríkisstjórnin verður að gera meira heldur en að biðja Byggða- stofnun um athugun. Þó stofnunin eigi einhverjar ónotaðar lántöku- heimildir erlendis þá hefur hún enga heimild til að rétta þeim peninga sem allterbrunniðupphjá.“ -kaa Jörgen Erlingsson, maðurinn sem sendi skuldara skeyti um þjófnað: Eg sagði RLR sjálf- ur frá loftpressunni - „upplýst þjófnaðarmál“ sem leysist þegar ég fæ borgað „Ég sá mér ekki annaö fært en að fara þessa leiö og taka loftpressuna. Ég hafði sjálfur samband við Rann- sóknarlögreglu ríkisins og greindi henni frá því hvemig í pottinn væri búið. Þetta er því í rauninni upplýst þjófnaðarmál," sagöi Jörgen Erhngs- son, maður sem tók loftpressu í sína vörslu frá eigandanum, verktaka, sem Jörgen telur að skuldi sér 270 þúsund krónur. Eins og DV greindi frá á þriðjudag var þjófnaður kærður til RLR vegna loftpressunnar. Eigandinn, sem ekki vih láta nafns síns getið, sagði þá að veriö væri að kúga sig til að greiða skuld sem hann ætti ekki aö standa skil á nema að hluta. Hinn meinti þjófur, Jörgen, sendi verktakanum skeyti þess efnis aö greiddi hann honum ekki skuldina seldi hann loft- pressuna hans sem Jöregen var þá búinn að taka í sína vörslu. Jörgen geymir loftpressuna á ónefndum staö. Hann ætiar ekki að skila henni fyrr en verktakinn hefur greitt honum. Samkvæmt sölureikn- ingi er andvirði pressunnar 490 þús- und krónur, að sögn Jörgens, ekki hátt í eina milljón eins og verktakinn hélt fram í DV. „Þessi verktaki er búinn aö láta sjö félög rúlla. Hann stundar aö láta ýmsa aðila vinna fyrir sig og greiða þeim síðan ekki fyrir vinnu sína. Hann gerir þá meira að segja ábyrga fyrir verkum sem þeir vinna í nafni fyrirtækis hans,“ sagði Jörgen í sam- tali við DV í gær. „Ég vann aö gerð tilboða fyrir þennan mann og fyrir það skuldar hann mér peningana. Hann hefur verið viöriðinn ýmis hlutafélög sem öh hafa verið látin fara á hausinn. Þannig hefur hann ekki þurft að greiða skuldir sínar. Þegar ég sá aö hann ætlaöi að nota þá aðferð við mig eins og aðra, að segja mér upp á heppilegum tíma, varð ég fyrri til og hætti sjálfur í vinnu hjá honum ásamt fleiri. Síðan sendi ég honum reikning en sá mig svo knúinn til að taka loftpressuna þegar mér þótti sýnt að hann ætlaði ekki að greiða mér frekar en öðrum,“ sagði Jörgen. Samkvæmt upplýsingum frá Neyt- endasamtökunum hefur umrætt verktakafyrirtæki, sem á loftpress- una, verið þar í skoöun að undan- fómu með hliðsjón af upplýsingum um að þaö hafi gert starfsmenn sína að undirverktökum og lagt þannig á þá ábyrgö fyrir þeim verkum sem unnin era í nafni fyrirtækisins. Mál Jörgens er þó ekki þess eðlis. Jörgen vann að tilboðsgerö fyrir fyrirtækið. -ÓTT Afsögn og þingrof Á þingflokksfúndi Sjálfstæðis- gerðin var sett að kröfú Davíös flokksins í gær gagnrýndu nokkrir Oddssonar á sínum tima. þingmenn, þar á meðal Matthias Davíð segir engar ákvarðanir Bjarnason, aö ríkisstjómin skyldi hafa verið teknar um með hvaða ekki breyta lögum um Hagræðing- hætti hugsanlega verði hægt að arsjóð i tengslum við aflaskerðingu aðstoða einstök byggöarlög við næsta árs. Vifja þeir aö þau byggð- kvótakaup úr Hagræðíngarsjóði. Á arlög, sem verða fyrir mestu afla- hinn bógin hafi ríkisstjómin óskaö skerðingunni, fái hlutfallslega eftir þvi við stofhunina að hún geri meiri kvóta en önnur byggöarlög. tillögur um það til hvaöa ráðstaf- Davíö segir ljóst að þing verði ana hugsanlegt sé að grípa. rofið og efht til kosninga verði lög- „Það er hins vegar ljóst aö þaö um um Hagræöingarsjóð breytt í eru ónýttar erlendar lántökuheim- andstöðu við ríkisstjómina og vis- ildir hjá Byggðastofhun upp á tæp- ar þar með gagnrýni Matthíasar á lega 300 miUjónir. Hvort þær eigi bug. að koma til eða eitthvað annað „Þessi afgreiösla stendur. Þaö er verða menn bara aö skoða. Meg- eining um hana i ríkisstjóm og ég inniöurstaða ríkisstjómarinnar er iít svo á aö það sé eining í þing- einungis sú að þessu máli sé ekki flokkunum þó svo aö það hafi kom- lokið með þessari ákvörðun hennar ið fram athugasemdir einstakra umafla." þingmanna." - í upphafi kjörtimabilsins lýstir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- þú þvi yflr að ríkisstjómin myndi ráðherra hefur látið að þvi liggja ekki gripa til handaflsaögerða til að Byggðastofhun hafi handbærar að lengja í snörunni hjá illa rekn- allt að 300 miUjónir til að aðstoða um og óhagkvæmum fyrirtækjum. ifla sett sjávarútvegsfyrirtæki við Hefur þessi afstaða ríkissfiómar- að kaupa kvóta úr Hagræöingar- innar breyst? sjóði. I Byggðastoftnm kannast „Nei, aUs ekkL Ályktun ríkis- menn hins vegar ekki viö aö slíkir stjómarinnaríþessumáUeroröuð fiármunir iiggi á lausu. Þar þver- á þann veg aö hún ber meö sór aö taka menn fyrir að um styrki geti þær ráðstafanir sem kann að veröa oröið að ræða tíl einstakra byggð- gripið til séu ekki tengdar einstök- arlaga enda sé stofhuninni uppá- um fyrirtækjum heidur við eitt- iagt aö varðveita eigið fé sitt sam- hvaö sem almennt getur talist." kvæmt nýlegri reglugerö. Reglu- -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.