Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1992, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1992.
5
Ásta Kristin Haraldsdóttir er ekki í hefðbundnu kvennastarfi. Hún afgreiðir
malbik í Malbikunarstöð Reykjavíkur og þykir mest gaman þegar mikið er
að gera. Það hefur það sannarlega verið í góðviðrinu að undanförnu og
vinnudagurinn því langur. DV-mynd GVA
Á kaf i í malbiki á
- ÁstaKristínHaraldsdóttirfórótroönarslóðir
sumrin-meðjárn-
köllum á veturna
Þeir sem leggja leið sína í Malbik-
unarstöð Reykjavíkur reka margir
upp stór augu þegar þeir sjá annan
þeirra sem afgreiðir malbiiúð á bíl-
ana. Sá er nefnilega tvítug stúlka og
enginn viðvaningur í faginu. Ásta
Kristín Haraldsdóttir var bara sautj-
án ára þegar hún byijaði í „malbik-
inu“ og fyrsta stelpan í malbiksaf-
greiðslunni.
„Ég var atvinnulaus. Mamma
vinnur héma og benti mér á þetta,“
segir Ásta um valið á starfmu. Hún
segir það skemmtilegt á sumrin þeg-
ar vel viðri og mikið sé að gera og
tekjumöguleikarnir þess vegna
meiri.
„Undanfarna viku höfum við unnið
frá hálfátta á morgnana til fjögur á
nætumar við að dæla úr sílóum á
bílana."
Hversu marga bíla Ásta afgreiðir á
dag í góðu veðri segist hún ekki hafa
tölu á en tonnafjöldann er hún með
á hreinu.
„Ef mikið er að gera hjá borginni
getum við farið upp í 700 til 800 tonn
af malbiki á dag. í þessum mánuði
var slegið met einn daginn. Þá af-
greiddum við 1600 tonn til borgarinn-
ar.“
Á veturna segist Ásta vera hand-
langari hjá, járnköllunum" í Malbik-
unarstöðinni, auk þess sem hún leysi
af hér og þar eins og til dæmis í eld-
húsinuogáviktinni. -IBS
Landbúnaðarráðuneytið boðar
f und um fækkun mjólkurbúa
Landbúnaðarráðuneytið hefur
boðað fulltrúa Samtaka afurðar-
stöðva í mjólkuriðnaði til fundar
næstkomandi fimmtudag til að ræða
hagræðingu í greininni. Til umræðu
verður meðal annars að fækka
mjólkurbúum í landinu með úreld-
ingarstyrkjum úr Verðmiðlunarsjóði
en tiUaga þess efnis kom nýverið
fram hjá sjö manna nefnd. Alls eru
starfandi 16 mjólkurbú á landinu og
sýna arðsemisútreikningar að hag-
kvæmt sé að fækka þeim til muna.
-kaa
SUZUKISWIFT
3 DYRA, ÁRGERÐ 1992
*
*
*
*
*
Aflmikil, 58 hestafla vél með beinni innspýtingu.
Ódýr í rekstri - eyðsla frá 4.0 1. á hundraðið.
Framdrif.
5 gíra.
Verð kr. 726,000,- á götuna, stgr.
^SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF.
SKEIFUNNI 17 • SiMI 685100
UPUR OQ SKEMMTILEGUR 5 MANNA BÍLL.
Fréttir
Framkvæmdastj óri ullarverksmiðjunnar ístex 1 Mosfellsbæ:
Litarmengunin í
Varmá á að hverf a
- framkvæmdum lokið við að tenga affail í stóran útþynningartank
Forsvarsmenn ullarverksmiðjunn-
ar ístex í Mosfellsbæ, gömlu Álafoss-
verksmiðjunni, hafa notað síðustu
vikur til að koma í veg fyrir að htar-
mengun frá lopaframleiðslunni ber-
ist í Varmá. Eins og fram kom á ljós-
mynd í DV barst mjög mikil litar-
mengun út í ána fyrr í júlí. Þetta
stendur nú til bóta.
„Það er búið að tengja saman frá-
rennslið frá öllum litunarpottum og
tengja við það dælu sem sér um að
frárennslið frá pottunum fari í 240
þúsund lítra tank fyrir utan húsið. í
þetta fer bæði affallið frá lituninni,
skolvatn og kælivatn þannig að
þama verður mjög mikil útþynning
þegar vatnið fer um yfirfall og út í
ána,“ sagði Guðjón Kristinsson,
framkvæmdastjóri ístex í samtali við
DV í gær. Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdirnar muni kosta 600-700 þús-
und krónur.
„Niðurstaða úr' tilraun sem við
gerðum, þar sem litarupplausnum
var blandað saman, sýnir að htimir
vinna hver á móti öðrum. Vatnið
verður því í flestum tilfehum alveg
glært. Litarmengunin á því að vera
alveg úr sögunni. Við höfum þegar
tengt frárennshð frá litunarvélun-
um. Strax í næstu viku verður síðan
skolvatn eða frárennsh frá þvottavél
tengt inn á tankinn. Þessi mengunar-
mál, eða sjónmengun, á þá að vera
úr sögunni. Menn hafa haft áhyggjur
af efnainnihaldinu. Það verður fylgst
mjög náið með innihaldi tanksins -
hvaða efni verða í þessu. En sam-
kvæmt upplýsingum, sem við höfum
frá Iðntæknistofnun sem hefur skoð-
að þessi mál hjá okkur, mun efna-
innihaldið verða langt fyrir neðan
hættumörk. Það er síðan ekkert ann-
að að gera en að prófa þetta, sjá hver
útkoman verður og ákveða í fram-
haldi af því hvort ástæða sé th frek-
ari aðgerða," sagði Guðjón.
Halldór Runólfsson, hehbrigðis-
fuhtrúi í Mosfehsbæ, sagði við DV
fyrr í mánúðinum að með þessum
framkvæmdum ístex væri ákveðin
lausn fundin vegna umræddra
mengunarmála: „Þegar svona htur
"kemur fylgir mjög vitlaust sýrustig
sem er slæmt fyrir lífríkið. Tankur-
inn mun jafna þetta út,“ sagði Hall-
dór.
Halldór sagði jafnframt að í litun-
um væru þungmálmar sem yllu eitr-
un í lífríkinu þegar þeir söfnuðust
upp í árfarvegi eða í sjónum - svif,
krabbadýr og fiskar væru þar með í
hættu við fæðuöflun.
„Þessar framkvæmdir, sem standa
nú fyrir dyrum hjá ístexi, eru fyrsti
hðurinn í að jafna þessa mengun út
- sjónmengunin mun hverfa og topp-
ar, sem eru í sýrustiginu, þynnast
út. Síðan verður haldið áfram á
næstu mánuðum að koma fyrir frek-
ari mengunarvömum við tækjabún-
aðinn,“ sagði Hahdór.
-ÓTT
í einu og sama leiktækinu, vasadiskó og tölvuleikur. Þú getur valið
um Knattspyrnu - Tennis eða Kappakstur.
Tækinu fylgja sterió heyrnartæki
og það er með sjálfvirkum stoppara á spólu - frábær hljómgæði.
Afþreying í útilegunni
^sadiskó
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI691520