Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1992, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1992, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992. Utlönd Skálmöldin í Bosniu-Hersegóvinu: Fá 500 dollara fyrir að skjóta fréttamenn Starfsmenn bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC setja á sig skotheld vesti áður en þeir fara út úr höfuðstöðv- um Sameinuðu þjóðanna í Sarajevo. Fjórði liðsmaðurinn, David Kaplan, var skotinn í bakið af leyniskyttum i gær. Fremstur í flokki sjónvarpsmannanna er Sam Donaldson. Simamynd Reuter Stríðið í fyrrum lýðveldum Júgó- slavíu er nú farið að taka sinn toll meöal blaða- og fréttamanna. Leyni- skyttur fela sig í niðumíddum bygg- ingum, skógum og bak við runna til að komast að bráð sinni sem á sér einskis ills von. Fleiri blaðamenn hafa látið lífið í þessu stríði en nokkru öðru stríði á síðari tímum, eða 30 alls. Blaðamenn, hvort sem þeir eru frá Júgóslavíu eða öðrum löndum, eru ekki vinsælir meðal hersveita sam- bandshersins. Bíll, sem er merktur dagblaði eða sjónvarpsstöö, er jafn- líklegur til aö draga að sér skothríð eins og friðhelgi. Síðasta fómarlamb leyniskyttanna var bandaríski sjón- varpsmaðurinn David Kaplan sem skotinn var í bakið í gær en hann hafði afþakkað boð um að klæðast skotheldu vesti. Kaplan var í fylgd- arhði Milan Panic, forsætisráðherra Júgóslavíu, þegar hann kom til Sarajevo. Panic, sem var auðsjáanlega miður sín vegna bana Kaplans, sagði: „Vitið þiö að leyniskyttumar fá 500 dollara fyrir að drepa einn fréttamann?" Kaplan starfaði fyrir bandarísku sjónvarpsstööina ABC og var að gera þátt um Panic. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ákvað í gær að leyfa „allar nauðsyn- legar aðgerðir", þar á meðal valdbeit- ingu, til að tryggja að hægt væri að koma hjálpargögnum til íbúa Bos- niu-Hersegóvínu. Atkvæði fóm þannig að 12 greiddu tillögunni at- kvæði sitt, enginn var á móti en full- trúar Kína, Indlands og Zimbabwe sátu hjá. Talið er að eftir samþykkt öryggis- Japanskirher- menn vopnaðir smokkum Japönsk stjómvöld hafa enn ekki ákveðið hvemig flutningi japanskra herraanna til Kambód- íu verður háttað en eitt er ör- uggt, þeir veröa vopnaðir smokk- um. Hefur sjúkdómurinn eyðni verið settur í sama flokk og Rauðu khmeramir og jarö- sprengjur. Skógareldará Korsíku Kona lést og tveir slökkviliðs- menn slösuðust í miklum skógar- eidum á frönsku eyjunni Korsiku í gær. Eldamir eyðilögðu fjölda húsa og neyddu nokkur hundmö ferðamenn til að flytja sig um set. Flýttu þeir sér svo mikiö aö þeir skildu nánast allt eftir. Reuter ráðsins muni hitna mjög í kolunum í Serbíu. Leiðtogi Serba, Radovan Karadzic, sem óttast að hemaðarað- gerðimar muni beinast gegn Serb- um, varaði við þvi að lýðveldið gæti breyst í helvíti ef vopnavaldi yrði beitt. „Einhver úr röðum íslama mun skjóta á flutningalestir Sameinuöu þjóðanna og eins og venjulega verður Serbum kennt um allt saman,“ sagði Karadzic. Stjómvöld í Bandaríkjunum, Bret- landi, Frakklandi og Rússlandi em treg tíl að beita vopnavaldi í Bosníu- Hersegóvínu. Sendiherra Bretlands, David Hannay, sagði m.a.: „Þetta er ekki samþykkt sem fyrirskipar vald- beitingu. Þetta er samþykkt sem gef- ur leyfi fyrir henni ef í harðbakkann slær.“ Reuter Likiðláiibúð- inniítvománuði íbúi í flölbýlishúsi í Málmey i Sviþjóð hringdi í lögregluna og bað hana að grennslast fyrir um hvaö væri að gerast í íbúðinni fyrir ofan hann. Hann sagöi að maðkar væru farnir að skríða í gegnum loftíö. Lögreglan kom á staðinn og fann lík 72 ára gamals manns sem bjó í íbúöinni. Ekkert hafði heyrst frá manninum frá því um vorið. Lögreglan segir að haxm hafi látist fyrir tveimur mánuð- um í þaö minnsta. Stúlknavarp löglegtenniður- lægjandi Sænska jafnréttísráöíð hefur komist aö þeirri niöurstööu aö ekkert sé ólöglegt við að varpa fáklæddum stúlkum í vatn þótt þaö sé óneitanlega niöurlægjandi fyrir stúlkumar. f sumar hefur stúlknavarp not- iö vinsælda í Svíþjóð. íþróttin felst í því aö karlar varpa fá- klæddum stúlkum, gjarnan af filippseyskum uppruna, i sund- laug og sigrar sá sem getur gert mestar gusur. Málið var kært til jafnréttísráðs en það taldi sig ekkert geta að- hafst tíl að banna íþróttina. Ævafornhella- málverk reynd- ustveraný Rannsókn fornleifafræðinga á ævafomum hellamálverkum í Baskahéruðum Spánar hefur leitt í Ijós að þau eru ekki 13 þús- und ára gömul heldur falsanir frá síðari tímum. Hellirinn með máiverkunum fannst í apríl árið 1990 og þótti merkur fundur og sambærilegur vi.ð hellamálverk sem áður höfðu fundist í Suöur-Frakklandi. Nú er komiö á daginn að flest mál- verkanna em ný en þó er ekki hægt að skera úr um aldur allra þeirra því hugsanlega hafa gömul verk verið máluð upp á nýtt til að skerpa þau. Fölsun málverkanna hefur ver- iö lýst með „menningarglæp" en þau voru þegar farin að laða að ijölda ferðamanna sem dáðust að list fmmbyggja Evrópu. Leyniskyttur ráðnartilaðút- rýma villiköttum Leyniskyttur úr ástralska hemum hafa undanfarið verið á æfmgum fyrir opinbera herferð sem gerö verður á hendur villi- köttum í landinu. Fyrstu þrjá daga heræfinganna féllu 420 kett- ir í valinn nærri Brisbane. Sá árangur þykir lofa góðu um fram- haldið. Vilhkettir ógna víða náttúrlegu lífi í Ástralíu. Kettimir þrifast vel í landinu og verða ótrúlega stór- ir. Algengt er að þeir séu átta kíló að þyngd og ljóngrimmir. TT og Reuter Samtök um að halda uppi verði á eldislaxi: íslenskir útf lytjendur voru með í ólöglegu samráði - Norðmenn stóðu fyrir samningum um laxaverðið í síma í grein í norska blaðinu Dagens Náringsliv er því haldið fram að íslenskir útflytjendur á eldislaxi hafi verið með í ólöglegu samráði helstu laxeldisþjóða við Norður- Atiantshaf um að halda verði á laxi upp í löndum Evrópubandalagsins. Eftir því sem blaðiö segir höfðu Norðmenn frumkvæöið aö samráð- inu og fengu aðra í lið með sér. Máhð hefur undanfarið verið í rannsókn hjá nefnd á vegum Erópubandalagsins. Hún hefur komist að þeirri niðurstöðu að lög bandalagsins um samkeppni hafi verið brotin. Upphaf málsins er rakið til þess að stjómedur sölusamtaka fisk- eldis í Noregi fóru þess á leit við seljendur eldislax frá íslandi, Fær- eyjum, Skotlandi, Hjaltlandi og ír- landi hættu að keppa um verð á mörkuðum Evrópubandalagsins og kæmu sér þess í staö saman um veröið. Efnt var til símafundar um sam- ráðiö þann 20. desember árið 1989. Samkomulag náðist þá um verð og gilti það langt fram efti rárinu 1991 eftir því sem segir í Dagens Nár- ingshv. Norskir laxeldismenn lýsa yfir miklum áhyggjum vegna þessara upplýsinga og segja að Norðmenn hafi fengið alvarlega viðvörun um að reyna ekki oftar aö stjórna verði á laxi í Evrópu. Fyrrum lögmaður sölusamtaka fiskeldis í Noregi segir að niður- staða rannsóknarnefndar gefi aðra mynd af sölu á norskum laxi en samtökin hafi reynt að halda á lofti. Þar hafi alltaif verið talað um undirboð á mörkuðunum en í raun hafi samtökin haldið uppi verðinu með ólöglegu samráði. NTB VATNSFÆLA SÍÐAN 1960 Fæst hjá BB-byggingavörum BYK0 og Húsasmiðjunni. KÍSILL HF. Lækjargötu 6 - s. 15960 Sérverð til verktaka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.