Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1992, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1992, Side 13
I FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1992. Fréttir Drífa Sigfusdóttir, starfandi bæjarstjóri í Keflavík: Hélt ég myndi eignast barn á fyrsta bæjar- stjórnarfundinum Ægir Mar Kárason, DV, Suðumesjuiru „Ég hélt ég myndi eignast mitt þriðja barn á fyrsta bæjarstjórnar- fundi mínum árið 1982 en sem betur fer átti ég það stuttu eftir fundinn. Fundurinn var á þriðju hæð og allir bæjarfulltrúarnir karlmenn nema ég. Það hefði verið gaman að vita hvað þeir hugsuðu þegar ég kom á fundinn kasólétt og aðeins spurning hvenær ég mundi eiga. En þetta var virkilega skemmtilegur tími,“ sagði Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæjar- stjómar Keflavíkur og nú starfandi bæjarstjóri, en bæjarstjórinn, Ellert Eiríksson, er í fríi. Auður Auðuns var sem kunnugt er borgarstjóri í Reykjavík og Hulda Jakobsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi svo að Drífa mun þvi vera önnur konan sem gegnir starfi bæjarstjóra hér á landi og eina konan nú í þeirri stöðu. Drífa er einnig formaður bæj- arráðs Keflavíkur. Hún hefur komið víða við í ýmsum nefndum þrátt fyr- ir ungan aldur - nýorðin 38 ára. „Það var nú hrein tilviljun að ég fór út í pólitíkina. Ég kláraði stúdent- inn 1979 og síðan átti ég mitt annað barn árið eftir. Ég ætlaði að vera heimavinnandi húsmóðir með tvö börn. Það fyrra átti ég 1972. En það átti eftir að breytast. Ég byijaði á því að taka að mér formennsku hjá for- eldrafélaginu í Myllubakkaskóla í Keflavík. Það gekk mjög vel hjá okk- ur þar. Síðan var hringt í mig frá framsóknarmönnum og spurt hvort ég vildi gefa kost á mér á listann hjá þeim. Ég hugsaði þá að það væri aÚt í lagi og var svolítið spennt að taka að mér að vera í einhverri nefnd fyr- ir flokkinn. Þá hringdu þeir aftur og vildu fá mig í 3.-4. sæti. Ég hugleiddi málið vandlega og gaf síðan jákvætt svar. Sem betur fer var ég sett í fjórða sætið og varð því varamaður í bæjar- stjóm 1982 en vegna forfalla hjá aðal- mönnum þurfti ég að sitja Í3 fundi sem aðalmaður. Skemmtilegur tími MARKAÐSVISIR KOMPASS 1992/1993 - er kominn út. Nákvæmar vöru- og þjónustuupplýsingar helstu fyrirtækja og stofnana á íslandi, Fær- eyjum og Grænlandi. Bókin er í dreifingu til þátttakenda. Pöntunarsími: 91-673390. Myndsendir: 91-673354. Kompass - Island Umboðsskr. Bildshöfða 12, 112 Reykjavík Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Keflavík og settur bæjarstjóri. DV-mynd Ægir Már og það var ekki aftur snúið úr pólitík- inni. Ég varð svo bæjarfulltrúi 1986. Þetta er mjög yfirgripsmikið starf, skemmtilegt og flölbreytt. Maður verður að hafa þekkingu á því sem er að gerast í bænum og ég er með fasta viðtalstíma vikulega. Ég hef ekki fundið fyrir neinum fordómum sem bæjarstjóri. Fólk kemur vel fram en áður fyrr fann ég stundum fyrir því að vera kona í bæjarstjóm. Þetta hefur breyst með árunum og það kemur stundum fyrir að konur koma til mín og ræða vandamál sem þær mundu ekki koma með til karl- manna og það er ágætt," sagði Drífa. Fyrrum sóknarprestur í Karmöy 1 Noregi: Fékk brennandi löngun til að líta söguslóðirnar Pétur Kristjánsson, DV, Seyðisfiröi; Ýmislegt rekur menn utan úr hin- um stóra heimi hingað til íslands. Eftir að Finnleiv Haga hafði lokið löngu starfi sem sóknarprestur í Karmöy í Noregi - allstóm eyju 30 km norðaustur af Stafangri, handan Boknaíjarðar - ákvað hann aö láta gamlan draum rætast og gista ísland. Alveg síðan á unglingsárum hafði hann stundað lestur íslendingasagna og haft brennandi löngun til þess að sjá landið þar sem sögumar urðu tii. Hann flaug til landsins og ferðaðist landleiðina um söguslóðir til Seyðis- fjarðar þar sem yngri söguslóöir taka við. Hingað komu nefnilega margir Norðmenn í byijun aldarinnar og settust að. Margir þeirra komu ein- mitt frá Karmöy og svæðinu þar í kring, enda hafði Finnleiv heyrt ýmsar frásagnir þar að lútandi, eins konar íslendingasögur nútímans. Eins og svo margir Norðmenn fyrr á tímum gekk Finnleiv hér á skips- fjöl, sigldi út fjörðinn og hefur trú- lega verið með Dalatanga í sjónmáli er stefnan var tekin til austurs. Finnleiv Haga á Seyðisfirði - lét drauminn rætast - að lita söguslóð- ir íslendingasagna. DV-mynd Pétur A f immta hundrað aðilar á ferðakaupstef nu á Akureyri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; Á annað hundrað aðilar í ferða- þjónustu munu verða með kynningu á starfsemi sinni á Vest Norden ferðakaupstefmmni sem fram fer á Akureyri í næsta mánuði en alls er reiknað með að á fimmta hundrað manns muni taka þátt í ráðstefnunni sem kaupendur og seljendur. íslensku aðilamir, sem taka þátt í sýningunni, eru um 80 talsins, á þriðja tug grænlenskra aðila verða þar með kynningu á starfsemi sinni og 10 færeyskir. Reiknað er með að um 150 kaup- endur muni koma erlendis frá, bæði frá Evrópu en einnig frá Bandaríki- Tvær leiðir eru hentugar til þess að verja ungbarn í bíl Látiö barnið annaöhvort liggja í bílstól fyrir ungbörn eöa barnavagni sem festur er meö beltum. UMFERÐAR RÁÐ unum og Japan. Alls er' talið að um 400 manns komi til bæjarins í tengsl- um við kaupstefnuna og er gistirými í bænum að verða fullbókað þá daga sem hún stendur yfir. Það eru íþróttafélögin KA og Þór sem annast uppsetningu sýningar- innar sem verður,haldin í íþrótta- höllinni dagana 23.-26. september. PFNfEUSHáTlÐ „ í DflQ: WKBTTtSKdN ^ ICELANDIC MODELS sýna glæsilegan haust- fatnað kl. 15 og 17 frá tískuverslunum Kringlunnar. Á Einnig verður kynning á því nýjasta A* í snyrtingu og hárgreiðslu. O Breskir tjöllistamenn - listsýning 5 ára bama - tónlist - leiktæki og margt fleira til skemmtunar. ftú ©f ooqo® 15. ágást wrða DSrBoD^jDoijQÐDcaff opnar tll kl. 16 ú taDgardðgwn KRINGWN Hard Rock Café er opið alla daga til kl. 23:30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.