Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1992, Qupperneq 25
FÖSTUEAGUR 14. ÁGÚST 1992.
33
Tilkyimingar
Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Har.a nú í
Kópavogi veröur á morgun. Lagt verður
af staö frá Fannborg 4 kl. 10. Nýlagað
molakaffi.
Félag eldri borgara í Kópa-
vogi
Spilað og dansað í kvöld, fóstudagskvöld
14. ágúst, að Auðbrekku 25 kl. 20.30. Hús-
ið öllum opið.
Baldurshátíð
Laugardaginn 15. ágúst verður haldið hið
árlega útiball á Baldurstorgi. Hátíðin
hefst kl. 20 með léttum lögum, hlj ómsveit-
in Júpíters munu leika fyrir gesti og
gangandi og veitingahúsið Þrír Frakkar
hjá Úlfari mun sjá um veitingasölu á
staðnum. Hátíðinni lýkur kl. 24.
Hólahátíð
Hólahátíðin verður haldin sunnudaginn
16. ágúst og hefst með guðsþjónustu í
Hóladómkirkju kl. 14 þar sem Hjálmar
Jónsson, prófastur á Sauðárkróki, pred-
ikar. Kirkjukór Sauðárkrókskirkju syng-
ur undir stjóm Rögnvaldar Valbergsson-
ar. KL. 16 hefst hátíðardagskrá í Dóm-
kirKjunni, þá syngja Sigurdrif Jónatans-
dóttir og Jóhann Már Jóhannesson við
undirleik Rögnvalds Valbergssonar,
Njörður P. Njarðvik flytur erindi um
Sólarljóö og Haukur Þorsteinsson les úr
Sólarljóðum.
Útihátíð Eurocard
verður haldin í Hvammsvík í Hvalfirði
sunnudaginn 16. ágúst. Hátíðin er fyrir
gidlkorthafa og félaga 1 Eurocardklúbbn-
um og verður margt sér til gamans gert;
t.d. verður boðið upp á reiðtúra, veiðar,
gönguferðir, leiki, grillveislu o.fl. Hátíðin
hefst kl. 10 og stendur fram eftir degi.
Almenningsvagnar bs.
Laugardaginn 15. ágústs mun nýtt fyrir-
tæki, Almenningsvangar bs., í almenn-
ingssamgöngum taka til starfa. Til að
fagna þessum tímamótmn verður ekið
miUi bæjarfélaga og munu fulltrúar
hvers bæjarfélags þakka Landleiðum fyr-
ir þá þjónustu sem þær hafa veitt. Þeir
Sveinn Bjömsson og Öm Karlsson, for-
svarsmenn AV og SVR, skrifa undir sam-
starfssamning. Farið verður svo með alla
fulltrúa sveitarstjómanna og gesti þeirra
í Félagsheimili Kópavogs og þar verður
boðið upp á léttar veitingar.
Félag eldri borgara í Fteykja-
vík
Göngu-Hrólfar fara frá Risinu laugar-
dagsmorgun.
Námskeid
Námskeið í ofurminnistækni
17. ágúst hefjast námskeið í ofurminnis-
tækni. Námskeiðin verða haldin í menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi á vegum
Sköpunar. Kennari verður Emil þór
Emilsson sem er nýkominn úr ofur-
minnisnámi í Bandaríkjunum. Uppl. og
skráning í síma 674853.
100 áraminning
Eftirfarandi grein er til minningar um
þjónin Guðnýju Pálínu Pálsdóttur og
Agúst Þorgrím Guðmundsson frá Háam-
úla í Fljótshlíð. Guðný fæddist 2. nóvemb-
er 1891 en Ágúst Þorgrímur 16. ágúst 1892.
Þau eignuðust 14 börn og eru 5 þeirra á
lífi. Bamabömin em 26 og bamabama-
bömin þeirra 54. Þau fluttu frá Ormsfelli
í Hvolhrepp árið 1922 til Vestmannaeyja
og bjuggu þar til dauðadags. Guðný Pál-
ína lést árið 1959 en Ágúst Þorgrímur 6.
febrúar 1966. Hann var mestan hluta
starfsævi sinnar sjómaður.
Alheimsmót hvítasunnu-
manna
Aiheimsmót hvítasunnumanna verður
haldið í Osló, Noregi, 9.-12. september
nk. Þetta er í 16. skipti sem hvítasunnu-
hreyfmgin kemur saman til alheims-
móts. Hér á íslandi er hvítasunnusöfnuð-
urinn þriðja stærsta skráða trúfélagið,
næst á eftir hinni evangelísk-lútersku
þjóðkirkju og kaþólsku kirkjunni. Uppl.
í síma 91-21111.
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim
sem glöddu mig með kveðjum, blómum,
gjöfum og nærveru sinni á 70 ára afmæli
mínu þann 24. júlí sl.
Sérstaklega þakka ég börnum mínum
tíu og fjölskyldum þeirra fyrir
yndislegan dag.
JÓHANNA ELÍN ÁRNADÓTTIR
FURUGRUND 30, KÓPAVOGI
Veiðivon
Stefán Guðjohnsen er lunkinn með stöngina og hann veiddi í Leirvogsá fyrir skömmu. Hann fékk sjö laxa á maðkinn.
DV-myndir G.Bender
Fnjóská í FnjóskadáL:
Gylfi Pálsson veiddi
6laxa á
heimatilbúinn spón
„Fnjóská hefur gefið 308 laxa fram
til þessa og stærsti laxinn er 19,5
pund, þetta gengur mjög vel í Fnjósk-
ánni þessa dagana," sagði Eiríkur
Sveinsson á Akureyri í gærkveldi er
viö spurðum frétta af árbökkunum.
„Gylfi Pálsson, fyrrverandi skóla-
stjóri, var fyrir skömmu í Fnjóská
og veiddi 6 laxa á heimatilbúinn spón
sem hann hefur hannað. Mér skilst
að þessi spónn sé gerður úr teskeið
og hann hefur svo sannarlega reynst
vel. Gunnar Karlsson veiddi þann
stærsta í ánni ennþá, 19,5 punda fisk
á Devon. Hann var tvo klukktíma að
landa laxinum í Efri-Skarðsbreiðu.
Veiðimenn á bökkum Fnjóskár þurfa
ekki að kvarta þessar vikumar, veið-
in er feiknagóð.
166 laxar hafa veiðst í Húseyjar-
kvísl í Skagafirði og Júlíus Björnsson
veiddi þann stærsta, 19 punda. Sig-
urður Ringsted og Gunnar Arason
voru að koma úr Húseyjarkvísl með
5 laxa. Mokveiði er hka í Hcfsá í
Vopnafirði og nú hafa veiðst þar 1200
laxar. Þetta er mokveiði á Hofsár-
bökkum," sagði Eiríkur ennfremur.
Laugardalsáin hefurgefið
þrjá 16 punda, þá stærstu
„Laugardalsáin hefur gefið 170 laxa
Það er munur þegar „öll“ fjölskyld-
an getur rennt saman fyrir fisk og
haft af því nokkurt gaman.
DV-mynd B
og eru þrír þeir stærstu 16 pund. 10
laxar hafa veiðst í vatninu," sagði
Siguijón Samúelsson á Hrafnabjörg-
um í gærkveldi er við spurðum um
Laugardalsá í ísafjarðardjúpi.
„Flugan er sterk þessa dagana en
vatnið fer minnkandi í ánni. Það má
rigna eftir helgi því þá verð ég búinn
að ná öllu heyinu í hús. Það era
komnir 904 laxar fyrir ofan teljar-
ann,“ sagði Siguijón ennfremur.
Mikið af laxi í Haukadalsá
„Það era komnir 512 laxar og hann
er 17 pund sá stærsti á maðkinn,"
sagði Torfi Ásgeirsson er við spurð-
um um Haukadalsá í Dölum í gær-
kveldi.
„Vatnið fer minnkandi en mikið er
af fiski í ánni. En hann heldur sig í
djúpu hyljunum og tekur Ula eins og
er. Það þarf rigningu," sagði Torfi í
lokin.
Rífandi veiði í Mýrarkvísl
„Við vorum á Nessvæðinu í Laxá
í Aðaldal og veiddum 12 laxa, frá 10
til 17 pund,“ sagði Friðrik Friðriks-
son á Dalvík í gærkveldi.
„Helmingur af löxunum veiddist á
flugu, svo á maðk og spón. Þetta var
„doktor krókur“. í Mýrarkvísl hefur
verið rífandi veiði og 26 laxar hafa
legið eftir fjóra daga,“ sagði Friðrik
ennfremur.
Laxá í Aðaldal hefur gefið 1800
laxa.
-G.Bender
Veiðifréttir víða af landinu
Sumir veiðimenn era ekki mjög
hressir meö nýja laxastigann í Aust-
urá í Miðfirði. Ástæðan er þessi: Lax-
inn virðist stansa minna á neðra
svæðinu og hverfa strax á þaö efra.
Veiðimönnum finnst neðra svæðið
mjög gott og þeir vilja að laxinn sé
þar. Þetta á nú kannski eftir að breyt-
ast því að efra svæðið er líka gott og
þar eru margir góðir staöir.
Alþingismennimir eru margir
hveijir góðir með veiðistangirnar og
Jóhann Geir Sigurgeirsson á Önguls-
stöðum veiddi stærsta laxinn í Skjálf-
andafljóti fyrir skömmu. Laxinn var
20 pund en áin hefur gefið kringum
500 laxa.
Dagur greinir frá því í vikunni að
mús hafi verið inni í urriða sem
veiddist í Eyjafjarðará,- Einar Ingi
Einarsson veiddi fiskinn. Þegar gert
var að fiskinum kom í ljós að urrið-
inn hafði gleypt heila mús sem var
ómelt. Já, urriðinn étur ýmislegt en
er þetta ekki hámarkið.
Víkurá í Hrútafirði er kannski ekki
þekkasta laxveiðiá landsins en þessa
dagana hefur hún að geyma nokkra
mjög væna fiska.
„Ég hef séð nokkra stóra laxa um
ævina en þessir vora kringum 30
pund en það var alls ekki hægt að fá
þá til að taka,“ sagði Össur Skarp-
héðinsson alþingsmaður sem veiddi
þama sinn fyrsta lax en engan 30
punda. En hann setti í 12-13 punda
lax en hann fór af eftir stutta baráttu.
-G.Bender