Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992.
5
aðkafaútúr
jeppanum
Jeppa var ekiö ut af veginum á
Fjaröarheiöi aðfaranótt laugar-
dagsins og Ienti hann í vatni og
stóð aðeins blátoppurinn upp úr.
Ökumanni jeppans tókst með
naumíndum að losa sig, kafa út
úr jeppanum og krafla sig upp á
veginn. Hélt hann síðan af stað
gangandi áleiðis til Seyöisfjaröar
í slærau veðri, éljum og kulda.
Þegar hann haföi gengið um 4
kílómetra mætti hann bil sem
flutti hann til Seyðisfjarðar, kald-
an og hrakinn.
Lögreglu á Egilsstöðum var
ekki kunnugt um atburðinn þeg-
ar tilkynning barst um bíl á kafi
í vatni við veginn austarlega á
Fjarðarheiði skömmu fyrm há-
degi á laugardag. Fór lögregla
strax á vettvang og kallaði til
björgunarsveit á Egilsstöðum þar
sem ekki var Ijóst hvort einhver
væri í jeppanum. Löreglan á
Seyöisfirði kom einnigá vettvang
með björgunarsveit þaðan. Var
jeppinn strax kannaður og siðan
togaður upp úr vatninu.
Skömmu eftir þetta gaf öku-
maður jeppans sig fram og gaf
skýrslu um atburðinn. Gruntxr
leikur á að hann hafi verið ölvað-
ur undir stýri þegar óhappið
varö. -hlh
Keflavík:
Tekinn á 164
kmhraða
Lögreglan í Keflavík tók ungan
ökumann fyrir að aka bíl sínum
á 164 kílómetra hraöa á Garðvegi
laust fyrir klukkan 18 á fóstudag-
inn. Hámarkshraði á veginum er
90 kílómetrar á klukkustund. Var
maöurinn sviptur ökuleyfi til
bráðabirgða og er gert að mæta
fyrir sýslumanni í dag.
Alls stöðvaði lögreglan í Kefla-
vík 11 ökumenn fyrir of hraðan
akstur um helgina og 5 ökumenn
sem grunaðir eru um ölvuna-
rakstur. Þó var tiltölulega rólegt
í Keflavík um helgina en lögreglu
haldið við efniö af fyrmefndum
ökumönnum og nokkmm rúðu-
brjótum. -hlh
Leigubilar
rákust
saman
Árekstur varð milli tveggja
leigubíla á mótum Kringlumýr-
arbrautar og Bústaðavegai' aðf-
aranótt laugardags. Leigubíl-
stjórarnir og einn farþegi úr öðr-
um bílnum voru fluttir á slysa-
deild Borgarspítalans. Farþeginn
fékk að fara heim að lokinni
læknisskoðmi. Bflstjóramir
hlutu áverka á höfði og öxl en um
minni háttar meiðsl var að ræða.
læigubílarnir eru mikið skemmd-
ir. -bjh
Neskaupstaður:
Tveir ökumenn voru teknir,
grunaðir um ölvun við akstur, í
Neskaupstað aðfaranött sunnu-
dags. Lögreglan tók þá við al-
mennt eftirlit og beitti nýju mæl-
unum sem htin hefur yfir að ráða
til að mæla hvort áfengi renni i
æðum manna. Þessir mælar eru
núna komnir í notkun viða um
land. -bjb
Fréttir
Fimm- og sexmannanefnd ákveða búvöruverð:
Óbreytt útsöluverð
er á kindakiötinu
- sömu sögu er að segja um mjólkina en nautakjöt lækkar
Samkomulag náðist á fundum
fimmmannanefndar og sexmanna-
nefndar fyrir helgi um verð nok-
kurra búvara næstu þrjá mánuðina.
Verð á algengasta nautakjöti lækkar
um 4 prósent til framleiðenda. Lak-
ari flokkar nautakjöts lækka um allt
að 30 prósent. Verð á kindakjöti til
neytenda verður óbreytt en yerð til
bænda lækkar um 1 prósent. Óbreytt
verð verður til bænda á mjólk, kjúkl-
ingum og eggjum.
Samkvæmt lögum er fimm- og sex-
mannanefndum gert að ákvarða verð
á kindakjöti og mjólk. Hlutverk
fimmmannanefndar er að ákveða
hefldsöluverð á kindakjöti og ýmsum
mjólkurafurðum og að auki smásölu-
verð á kindakjöti í heilum og hálfum
skrokkum. Hlutverk sexmanna-
nefndar er hins vegar að ákveða það
verð sem bændum ber að fá fyrir
framleiðslu á kindakjöti, slátri, ull,
nautgripakjöti og mjólk. Að ósk
framleiðenda ákvaröar nefndin enn-
fremur viðmiðunarverð til bænda
vegna framleiðslu á eggjum, kjúkl-
ingum, kartöflum og hrossakjöti.
Nýr búvörusamningur ríkis og
bænda gerir hins vegpr ráö fyrir að
hlutverk nefndanna verði tekið til
endurskoðunar eftir tvö ár. Þar er
kveðiö á um að á næstu fimm árum
lækki raunverð dilkakjöts um 20 pró-
sent. Lítil sem engin verðlækkun er
hins vegar í sjónmáli varðandi
mjólkina.
Flókin yfirbygging
Nefndirnar eru hluti af mjög flók-
inni yfirbyggingu í íslenskum land-
búnaði og eru oft til umræðu í fjöl-
miðlum. Tilgangur og tilvist þeirra
byggðist á þeirri skoðun stjórnvalda
að verðsamkeppni ætti ekki ekki rétt
á sér í íslenskum landbúnaði. At-
hyglisvert er að í svokallaðri fimm-
mannanefnd eru í raun sjö hags-
munaaðilar, þar á meðal opinber
verðlagsstjóri.
Að mati margra bænda á opinbert
verðlagningarkerfi ekki lengur við í
landbúnaði fremur en öðrum at-
vinnugreinum. Því séu þessar nefnd-
ir úreltar. Á hinn bóginnn óttast
sumir kollsteypu í íslenskum land-
búnaði verði nefndirnar lagðar af
samhliða aukinni samkeppni milli
bænda. -kaa/Ari
Björn Guömundur Ingibjörg Haukur Arnór Þórólfur
Nefndarmenn: Björn Arnórsson, BSRB, Guðmundur Gylfi Guðmundsson, ASÍ, og Ingibjörg
Guðmundsdóttir, VR. Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda, Arnór Karlsson, formaður
Landssambands sauðfjárbænda, og Þórólfur Sveinsson, varaformaður Stéttarsambands bænda.
Hlutverk: Að ákveða grundvallarverð til bænda vegna framleiðslu á kindakjöti, slátri, nautgripakjöti og
mjótk. Að ósk framteiðenda ákvarðar nefndin einnig viðmiðunarverð til bænda vegna framleiðslu á
eggjum, kjúklingum, kartöflum og hrossakjöti.
Umdeildar nefndir landbúnaðarins
Fimmmannanefnd:
Sjömannanefnd:
Georg
Björn
Hjalti
Margeir
Þórarinn Vilhelm
Nefndarmenn: Georg Ólafsson verðlagsstjóri, oddamaður, Björn Arnórsson, BSRB, Ari Skúlason, ASÍ,
Hjalti Hjaltason og Margeir Daníelsson, Landssamtökum sláturléyfishafa, og Þórarinn Sveinsson og
Vilhelm Andersen, Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði.
Hlutverk: Að ákveða heildsöluverð á kindakjöti og ýmsum mjólkurafurðum, svo sem mjólk, undanrennu,
léttmjólk og súrmjólk og smásöluverð á hálfum og heilum kindakjötsskrokkum.
Sexmannanefnd:
Guðmundur
Haukur
Hákon
Ásmundur Þórarinn Ögmundur Hjörtur
Nefndarmenn: Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri í iandbúnaðarráðuneytinu, Haukur Halldórsson,
formaður Stéttarsambands bænda, Hákon Sigurgrímsson, framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda,
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, Ögmundur
Jónasson, formaður BSRB, og Hjörtur Eiríksson, VMS.
Hlutverk: Gerð tillagna um stjórn búvöruframleiðslunnar. Nefndin hefur þegar sent frá sér tillögur um
stjórn sauðfjár- og mjólkurframleiðslunnar.
FRYSTISKÁPAR Á FRÁBÆRU VERÐI!
Gaukshólar:
Eldur á
efstuhæð
fjölbýlis-
húss
Eldur kom upp í mannlausri íbúð
á efstu hæð fjölbýlishúss við Gauks-
hóla í Reykjavík um miðjan dag á
sunnudag. íbúar á hæðinni fyrir neð-
an urðu eldsins varir og létu
slökkviliðið vita. Slökkviliðsmönn-
um tókst að ráða niðurlögum eldsins
áður en hann náði um alla íbúðina.
Mestur varð eldurinn í hægindastóli,
borði og gluggatjöldum. Nokkrar
skemmdir urðu vegna reyks og hita.
Eldsupptök eru ekki kunn en grunur
beinist að rafmagni.
-bjb
fyrirþá sem hugsa aðeins lengra!
GRAMFS 100
DxB: 60,0 x 55,0 cm
Hæð:71,5cm
Rými: 101 Itr.
1 hillaefst + 1 skúffa
39.890.-
stgr.
GRAAA FS 175
DxB: 60,0 x 55,0 cm
Hæð: 106,5 cm
Rými:175 Itr.
1 hilla efst + 3 skúffur
48.990.-
stgr.
GRAMFS 146
DxB: 60,0 x 59,5 cm
Hæð:86,5cm
Rými: 146 Itr.
1 hilla efst + 2 skúffur
47.990.-
stgr.
GRAM FS 240
DxB: 60,0 x 59,5 cm
Hæð: 126,5 cm
Rými: 239 Itr.
1 hilla efst + 4 skúffur
56.960.-
stgr.
GRAM FS 330
DxB: 60,0 x 59,5 cm
Hæð: 175,0 cm
Rými: 331 Itr.
1 hilla efst + 6 skúffur
74.980.-
stgr.
I
Góöir greiðsluskilmálar: VISA og EURO raðgreiðslur
til allt að 18 mánaða, án útborgunar. MUNALÁN með
25% útborgun og eftirstöðvum kr. 3.000,- á mánuði.
/rú nix
HÁTÚNI6A SÍMI (91) 24420