Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992. Einkaritari Starf einkaritara forstjóra opinberrar stofnunar er laust til umsóknar. Stúdentsmenntun eða önnur sambærileg menntun og/eða starfsreynsla er æskileg, ásamt góðu valdi á ensku og Norðurlandamálum. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. desember 1992. Umsóknir um starfið, ásamt greinargóðum upplýs- ingum um menntun og fyrri störf, skulu berast til blaðsins fyrir 30. september nk., merkt „einkaritari forstjóra T-7102". Launakjör verða ákveðin samkvæmt gildandi kjara- samningum ríkisstarfsmanna. Aukablað um tísku Miðvikudaginn 23. september nk. mun auka- blað um nýjungar í tiskuheiminum fylgja DV. Pjallað verður um tísku í viðum skilningi. Föt, snyrtivörur og fylgihiutir eru í brennidepli.- Stiklað verður á stóru í fréttum úr tísku- heiminum. Auk þess verða birtar stuttar greinar um tískutengt efni og ýmsar hagnýtar leiðbeiningar. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að aug- lýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi sam- band við Sonju Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 63 27 22. Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 16. september. ATM.I Bréfasími okkar er 63 27 27. Sómalskur faðir reynir að hugga ungan og hræðilega vannærðan son sinn eftir langt ferðalag til bæjarins Baidoa. Þar er miðstöð hjálparstarfs við sveltandi ibúa miðhluta Sómalíu. Simamynd Reuter Hermenn SÞ komnir tll Sómalíu: Hungursneyðin á eftir að versna Uppboð Uppboð munu byrja á skr'ifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, 3. hæð, sem hér seg- ir, á eftirfarandi eignum: Amartangi 55, Mosfellsbæ, þingl. eig. Ósk Jóhanna Sigurjónsdóttir, gerðar- beiðandi Lífeyrissj. verslunarmanna, 17. september 1992 kl. 11.15. Amartangi 58, Mosfelkbæ, þingl. eig. Guðjón Ingi Jónsson, gerðarbeiðend- ur Lífeyrissj. verkstjóra og Eftirlauna- sj. S.S., 17. september 1992 kl. 11.55. Barðastönd 49, Seltjamamesi, þingl. eig. Gunnar Ingimarsson, gerðarbeið- andi Lífeyrissj. hjúkrunarkv., 17. sept- ember 1992 kl. 10.50. Esjugrund 44, Kjalamesi, þingl. eig. Þorvaldur Hauksson, gerðarbeiðend- ur Islandsbanki, innheimta ríkissjóðs, Blikk & Stál h£, Byggingarsj. ríkisins og Vátryggingafél. Islands hf., 17. september kl. 11.05. Esjugrund 45, Kjalamesi, þingl. eig. Ketill Ingimarsson, gerðarbeiðendur Innheimta ríkissjóðs og Lífeyrissj. verslunarmanna, 17. september kl. 13.25.________________________ Grundartangi 8, Mosfellsbæ, þingl. eig. Sigríður B. Kjartansdóttir, gerð- arbeiðendur Lífeyrissj. verslunar- manna og Kaupþing hf., 17. september kl. 10.25._________________________ Lindarbraut 11, Seltjamamesi, þingl. eig. Felix Þorsteinsson, greiðarbeið- andi íslandsbanki hf., 17. september kl. 10.15. Lóð úr landi Mela, Kjalameshr., þingl. eig. Ólafúr Kristinn Ójafsson, gerðarbeiðendur Landsbanki Islands, Innheimtust. ríkisjóðs og Byggingarsj. ríkisins, 17. september kl. 10.20. Melavellir, Kjalameshr., þingl. eig. Geir Hjartarson, gerðarbeiðendur Byggingarsj. ríkisins, innheimta ríkis- sjóðs og Búnaðarbanki íslands, 17. september kl. 10.40. Nesbali 92, Seltjamamesi, þingl. eig. Finnbogi B. Ólafssonv gerðarbeiðandi Innheimta ríkissjóðs, Islandsbanki hf., Lífeyrissj. verslunarmanna, Sparisj. vélstjóra, 17. september kl. 11.25. Neströð 7, Seltjamamesi, þingl. eig. Fjóla G. Friðriksdóttir og Haraldur Jóhannsson, gerðarbeiðendur Bygg- ingarsjóður ríkisins, 17. september kl. 11.30.____________________________ Seljabrekka, Mosfellshr., þingl. eig. Guðjón Bjamason, gerðarbeiðandi Innheimta ríkissjóðs, 17. september kl. 10.55.________________________ Stóriteigur 17, Mosfellsbæ, þingl. eig. Ingólfur Ámason, gerðarbeiðandi Innheimta ríkissjóðs, 17. september kl. 13.20.________________________ Tjamarból 2, Seltjamamesi, þingl. eig. Hildur Bjömsdóttir, gerðarbeið- endur Lífeyrissj. sjómanna og Bygg- ingasjóður ríkisins, 17. september kl. 11.50,____________________________ Urðarholt 4, þingl. eig. Ingólfur Áma- son, gerðarbeiðandi Landsbanki ís- lands, 17. september kl. 10.35. SÝSLUMAÐUMN í REYKJAVÍK Fjöldi látinna vegna hungursneyð- arinnar í Sómaliu á eftir að fara vax- andi á komandi ári nema þegar í stað verði hafist handa viö samræmt al- þjóðlegt hjálparstarf, að því er segir í skýrslu Mavæla- og landbúnaðar- stofnunar Sameinuöu þjóðanna. Aö minnsta kosti tvær milljónir manna eiga yfir höfði sér að verða hungurmorða í landinu sem hefur orðið illa úti af völdum þurrka og innbyrðisátaka ættbálka. í skýrslunni segir að til þessa hafi Sómalir aðeins tryggt sér helming þeirrar matvælaaðstoðar sem þeir þurfa á að halda fyrir 1993. Á þessu ári fá Sómalir samtals tíu milljónir tonna af hveiti, korni og hrísgrjón- um. Vopnaðir óaldarflokkar hafa staðið öllu hjálparstarfi fyrir þrifum en í gær komu fjörutíu pakistanskir her- menn á vegum SÞ til höfuðborgar- innar Mogadishu til að tryggja að matvælaaðstoöin kæmist til skila. Pakistönsku hermennirnir eru fyrst- ir af fimm hundruð manna sveit sem verður send til Sómalíu á næstunni. Öryggisráð SÞ vill senda alls 3500 hermenn til að gæta öryggis starfs- manna viö hjálparstöfin. „Það er alveg ljóst aö það er ekki matarskortur sem er vandamálið í Sómalíu heldur dreifing matvælanna og til þess þurfum viö öryggis- gæslu,“ sagði Manuel Marin, aðstoð- arframkvæmdastjóri Evrópubanda- lagsins, í gær. Stuðningsmenn annars stríðsherr- ans í Mogadishu, Mohameds Farah Aideeds, efndu til mótmælaaðgerða vegna komu hermannanna. Helsti keppinautur Aideeds um yfirráð í borginni, sjálfskipaður forseti lands- ins, Ali Mahdi Mohamed, fagnaði hins vegar komu hermannanna og vill að SÞ sendi tíu þúsund menn. Pakistönsku hermennirnir munu taka sér stöðu við lykilstaði í Moga- dishu, eins og við höfnina og flugvöll- inn, og þeir munu fylgja bílalestum með matvælasendingar innan borg- arinnar og um nærsveitir. Þeir verða allir komnir til starfa um næstu mánaðamót. Reuter Nixon segir Bush að gefa Kaliforníu upp á bátinn - allar skoðanakannanir sýna vaxandi forskot Clintons á Bush Richard Nixon, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ráðleggur flokks- bróður sínum, George Bush, að hætta kosningabaráttunni í Kalifor- níu og snúa sér að öðrum ríkjum þar sem einhver von er um sigur. Kali- fornía er með fjölmennustu ríkjum Bandaríkjanna og því mikilvægt fyr- ir forsetaframbjóðendurna að fá góöa kosningu þar. Ráðleggingar Nixons eru haiðar eftir honum í Los Angeles Times í gær. Liðsmenn Bush segja að þótt Nixon sé skarpur maður þá skjátlist honum í þessu efni, enda standi ekki til að gefa Kalifomíu upp á bátinn. Skoðanakannanir sýna aö Bill Clinton eykur stöðugt forskot sitt á Bush. í könnun Los Angeles Times frá í gær munar 21% á fylgi þeirra í Kaliforníu. Könnunin sýndi að Clin- ton fengi 57% atkvæða en Bush 36%. í könnun ABC sjónvarpsstöðvar- innar og Washington Post munar 15% á fylgi frambjóðendanna sé mið- að við landið allt. Þar fengi Clinton 53% atkvæða en Bush 41%. Það er nokkru meiri munur en þegar sam- bærileg könnun var gerð í síðu: viku. Bush og Chnton tala báðir í dai fundi með þjóðvarðliðum í Ut Bush verður þar fyrr um daginn er talið víst að hann geri undansl Clintons frá herþjónustu að u ræöuefni. Clinton verður því væ anlega aö gefa skýr svör þegr ha kemur til fundar síðdegis. Hann h ur til þessa veigrað sér við að ra herþjónustmálið opinberlega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.