Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992. 11 erkalf Ekkja í þorpinu Mawuggawe í ÍJganda fer að gröf bónda síns hvern morgun þegar sólskin er og grefur lík hans upp. Þetta seg- ist hún gera til að karl fái yl í kroppinn. : Maðurinn á að hafa vitrast kon- unni í draumi skömmu eftir dauða sinn og kvartaö undan kulda í gröfmni. Bað hann því um að vera grafinn upp svo hann gæti notið sólar. Ár er frá því maðurinn lést en konan heldur fast við venju sína. Hún nýtur aðstoðar barna sinna við moksturinn. Drottning á að borga skatta Mikill þrýstingur er nú á Elisa- betu Bretadrottningu, ríkustu konu heims, að greiða skatt af auðæfum sínum. Krafan um skattgreiðslu drottningar hefur fengið byr und- ir báða vængi eftir hneykslismál- in í íjölskyldu hennar í sumar. Bæði blöð og stiómmálamenn leggja hart að John Major forsæt- isráðherra að leiða skattlagning- una í lög. Konun gsíjölskyldan fær árlega um einn milljarð króna af almannafé sér til fram- færis auk tekna af eignum sínum. Aimenningi fmnst þetta mikið fé, sérstaklega þegar haft er i huga að kóngafólkið hefur á síð- ari tímum einkum oröið þjóð sinni til skammar. Hungraðirslátra kúmíhögunum „Fólkið er atvinnulaust og svangt. Það virðist ekki haía tök á að stunda erfiðari veiði- mennsku,“ segir í opinberri rannsókn á dauða fjölda kúa í bithögum nærri Cloville í Was- hingtonríki i Bandaríkjunum. Bændur á svæðinu hafa kvart- að sáran undan fækkun í hjörð- um sínum og héldu um tíma að ægilegur dýrbítur legöist á kým- ar. Nú þykir sannað að svangir heimUisleysingjar slátri baulun- um sér til matar. Sfjómmála- umræður hann- aðar hörnum Foreldrum í New York er ráð- lagt að senda börn sín snemma í háttinn á fimmtudaginn. Þá fara fram i sjónvarpinu kappræður frambjóðenda sem keppa um sætí ríkisins í öldungadeildinni af hálfu demókrata. Prófkjör veröur hjá demókrötum eftir helgina. Einn frambjóðenda segir að réttast væri að koma með fótu fulla af skít til kappræðanna svo framhjóöendur geti sparaö sér orðbragðið. Hart er sótt að Ger- aldinFerrarofyrirað Iiafabrugð- ist í baráttunni við skipulagða glæpastarsemi.; ö "ri LentuíKeflavík Þota frá SAS-flugfélaginu varö í gær að snúa .frá lendingu í Syðri-Straumfirði á Grænlandi og lenda í Keflavík vegna þess aö á Grænlandi er ekki lengur not- hæfur aöflugsradar. Bandaríkja- menn tóku búnaöínn niður þegar þeir fóru frá Syðri-Straumfiröi í fyrra en ekki hefur tekist að koma nýjura radar upp. Kéuter og Ritzau Fellibyljasvæðin alltaf að stækka - búist viö fleiri alvarlegum byljum á þessu hausti Veðurfræðingar reikna með að fleiri kröftugir fellibyljir eigi eftir að hrella fólk í löndum nærri miðbaug jarðar á þessu hausti en þegar er orðið. Nú hafa tveir fellibyljir valdið manntjóni og verulegum skemmdum á húsum við Karíbahaf og Kyrrahaf. Eftir því sem hiti á jörðinni eykst aukast líkurnar á að hættulegir felli- byljir verði til. Sjávarhiti þarf að ná 27 gráðum á Celsíus til að byljirnir myndist. Nú beina menn í auknum mæli sjónum sínum að svokölluðum gróðurhúsaáhrifum sem valda hækkandi hita. Veðurfræðingar álykta því að fellibyljir eigi eftir að verða alvarlegra vandamál á næstu árum en verið hefur. Fellihyljasvæðið er líka að stækka með hækkandi hita. Þannig hafa Hawaiieyjar verið utan svæðisins þar til Iniki reið yfir nyrstu eyjuna um helgina. Útlönd sianaieKinneTYtr Lögreglan í Lundi í handtók í gær rúmlega þrítugan maun sem hugðist ræna ungu bami og krefjast lausnargjalds fyrir það. Foreldrum barnsins tókst að flýja undan manninum og láta lögregluna vita. Lögreglan komst fljótlega á slóð mannsins og stöðvaði hann eftir að hafa skotið fjórum skotum að híl hans. Hann sagðist eftir hand- tökuna hafa ætlaö aö fá hjónin til að greiða milljónir í lausnargjald. Mannætutígris- dýrsentaftur ídýragarðinn Yfirvöld í Bangalore hafa ákveðiö að senda tígrishögnann Bill, sem í sumar át unga stúlku, aí'tur í dýragarð fremur en að lóga honum. Bill var sérstaklega fenginn frá dýragarðinum í Lundúnum til aö kynbæta stofn- inn á verndarsvæði tígrisdýra nærri Bangalore. Bill áttí erfitt með að semja sig að lifnaðarháttum í náttúrunni og sýndi ferðamönnum meiri áhuga en tígrislæðunum. TT og Reuter Japanir styðja nýju hvalveiði- Japanir styðja nýja Norður-At- lantshafssjávarspendýraráðið, eða NAMMCO, sem hvalveiöiþjóðir við Norður-Atlantshaf stofnuðu í Þórs- höfn í Færeyjum í síðustu viku sem mótvægi við verndarstefnu Alþjóða hvalveiðiráðsins. „Við styðjum stofnun slíkra sam- taka,“ sagði embættismaður í hval- veiðideild japanska sjávarútvegs- ráðuneytisins í gær. „Alþjóða hval- veiðiráðið kemur nú í veg fyrir alla hvalveiði í ábataskyni þrátt fyrir að vísindamenn telji að sumar hvalateg- undir, eins og hrefnan, séu ekki í útrýmingarhættu," bætti hann við. Hann sagði að Japanir hefðu áhuga á að stofna sambærileg samtök á Kyrrahafssvæðinu en óttaðist að erf- itt kynni að fá samvinnu landa á borð við Suður- og Norður-Kóreu, Kína, Rússland og Tævan. Japanir hafa gengið í lið með ís- lendingum og Norðmönnum og rekið áróður gegn hvalveiðibanni hval- veiðiráðsins, einkum banni við hrefnuveiðum. Reuter Vaxtalækkun til stuðnings Maastricht Vaxtalækkunin í Þýskalandi í gær hefur orðið til þess að auka bjartsýni stuðningsmanna Maastricht-sam- komulagsins í Frakklandi, aðeins fimm dögum fyrir mjög tvísýna þjóð- aratkvæðagreiðslu um máhð. Vandaræði frönsku ríkisstjórnarinn- ar á heimavelli gætu þó gert þennan ávinning að engu. Pierre Bérégovoy, forsætisráð- herra Frakklandi, lýsti yfir ánægju sinni með aðgerðir Þjóðverja sem miðuðu að því að draga úr spennu á fjármagnsmörkuðum fyrir atkvæða- greiðsluna um nánari samruna Evr- ópubandalagsríkjanna þann 20. sept- ember. Hann sagði að þetta boðaði gott um samvinnuna í framtíðinni. Þýski seðlabankinn lækkaði vexti á millibankalánum um 0,25 prósent, þrátt fyrir ótta manna að það mundi kyndaundirverðbólgu. Reuter ÖTATUNG’ TÆKNIBUNAÐUR Otatung* KYNNIR TCS-8960S 386SX/25MHz Tatung hágæðatölvur með ótrúlegum kynningarafslætti: TCS-9300S 486SX/25MHz L3! 14" SVGA, lág- geislaskjár. 80MBharður diskur, 2MB 14" SVGA, lág- geislaskjár. 80MBharður diskur, 4MB minni, 3'/2"drif, minni,3'/i"drif. r“. 1 dosð.O Windows3.1 og mús. * P*®"" dosð.O Windows3.log mús. L TCS-9300T 486DX/33MHz 14" SVGA, lág- geislaskjár. - 80MB harður diskur, 4MB minni, 3VJ"drif, dos 5.0 - stgr. TILBOÐSVERÐ: aðeins kr. 119.900,- (Listaverð kr. 204.476.-) TILBOÐIÐ GILDIR AÐEINS TIL 1. OKT. Teknarverða 4 safnpantanlr, fyrir 10., 17. og 24. sept. og 1. okt. 75% grelðastvið pöntun og 25% við afhendingu ca 10 dögum síðar. TILBOÐSVERÐ: aðeins kr. 89.000,- stgr. (Listaverð kr. 160.417,-) TILBOÐSVERÐ: aðeins kr. 149.800,- stgr. (Listaverð kr. 280.748,-) TÆKNIBUNAÐUR, ARMULA 23, SIMI813033 FAX 813035 SUZUKIVITARA 5 DYRA LÚXUSJEPPI Suzuki Vitara er rúmgóður 5 manna lúxusjeppi, búinn öllum helstu þæg- indum fólksbíls og kostum torfærubíls. Hann er grindarbyggður og má auðveldlega hækka og setja undir hann stærri dekk. Suzuki Vitara er með 4ra strokka, 16 ventla vél með beinni innspýtingu. suzuki Verð frá kr. 1.576.000.- ______________ SUZUKI BÍLAR HF 17 SÍMI 68 51 00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.