Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1992, Side 16
/
16_____________________________________________________________________ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992.
Meiming_______________________________ dv
Bókmenntahátíð:
Þekktir erlendir höf undar
Forseti íslands, Vigdis Finnbogadóttir, setur Bókmenntahátið 1992 síðastlið-
inn sunnudag.
Nú stendur 'yfir Bókmenntahátíð
1992 með þátttöku margra þekktra
erlendra rithöfunda. Erindi og um-
ræður eru á hverjum degi, oft á dag,
í Norræna húsinu og Ráðhúsi
Reykjavíkur. Erlendu höfundarnir
sem eru hér staddir koma víða að,
flestir þó frá Norðurlöndunum. Þeg-
ar verið var að fá þekkta erlenda rit-
höfunda hingað var haft í huga að
ekki væri aðeins um að ræða þekkt
nöfn sem lifðu á fornri frægð heldur
rithöfunda sem væru skapandi í dag.
Hér á eftir fara upplýsingar um er-
lendu rithöfundana.
John Balaban, Bandaríkjunum. -
Ljóðskáld og kunnur fyrirlesari.
Ekki síst frægur fyrir uppgjör sitt
við Víetnam-fortíðina, þar sem hann
var í borgaralegum störfum. Meðal
verka hans má nefna nýlega ljóðabók
sem heitir „Words for My Daugther".
Gunilla Bergström, Svíþjóð. - Vel
kunn á íslandi fyrir bamabækur sín-
ar um Einar Áskel. Þær hafa um aid-
arfjórðungs skeið einnig notið órofa
vinsælda í heiiifalandi hennar.
Hans Magnus Enzenberger, Þýska-
landi. - Langkunnasti fulltrúi þeirr-
ar kynslóðar sem hóf störf í skugga
heimsstyrjaldarinnar og undir oki
þeirrar ábyrgðar sem hún lagði á
Þjóðveija. Enzenberger er heims-
kunnur fyrirlesari og rithöfundur.
Péter Esterházy, Ungverjalandi. -
Þykir einn merkasti höfundur Ung-
verja um þessar mundir. Skáld-
sagnahöfundur.
Erik Fosnes Hansen, Noregi. -
Vakti mjög mikla athygli með síðustu
skáldsögu sinni um Titanic-slysið.
Verið er að þýða hana á íslensku og
mun hún koma út á bókmenntahá-
tíðinni.
Gluggar Reykholtskirkju:
ValgerðurBergs-
dóttirvinnurí
samkeppni
Bergþór G. Úlfarsson, DV, Borgarfirði:
Dómnefnd í samkeppni um mynd-
verk í glugga Reykholtskirkju hefur
mælt með tillögum Valgerðar Bergs-
dóttur listamanns til frekari út-
færslu.
Árið 1991 ákvað byggingamefnd
Reykholtskirkju að efna til lokaðrar
samkeppni um gerð tillagna að
myndverkum í fjóra glugga Reyk-
holtskirkju og var gerður samningur
við þijá listamenn, þau Valgerði
Bergsdóttur, Jóhannes Jóhannesson
og Vigni Jóhannsson.
Tilkynnt var um niðurstöður sam-
keppninnar síðastliðinn miðvikudag
og ákvað dómnefndin að mæla með
tillögum Valgeröar sem dómnefnd
telur athyglisverðastar. Valgerður
segir að hún leiti í verki sínu til tákna
fomrar guðstrúar, til Sólarljóða og
Heimskringlu Snorra Sturlusonar.
Þannig er sérstaða Reykholts dregin
fram, sögulegar og trúarlegar hefðir
tengdar saman. Að mati dómnefndar
fara uppbygging myndverksins og
fáguð litbrigði vel viö klassískt form
Reykholtskirkju.
Valgerður Bergsdóttir vió tillögu
sina um myndverk i glugga Reyk-
holtskirkju. DV-mynd Bergþór
Jon Fosse, Noregi. - Skáld, rithöf-
undur og bókmenntafræðingur.
Einn af athyglisverðustu fulltrúum
yngri kynslóðarinnar í norskum
bókmenntum.
Katarina Frostenson, Svíþjóð. -
Ljóðskáld, fræðimaður og prósahöf-
undur sem á síðasta ári vakti mikla
áthygli með prósaverkinu „Berátt-
elser frán dom“ (Sögur af þeim). Var
valin í Sænsku akademíuna sem eft-
irmaður Arturs Lundkvists. Tekur
sæti hans í desember nk. og verður
þá yngsti fulltrúinn þar.
Roy Jacobsen, Noregi. - Skáld-
sagnahöfundur af yngri kynslóðinni
í Noregi. Tilnefndur til bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs 1992 fyr-
ir skáldsöguna „Seierherrene", ætt-
arsögu sem fjallar um tímabilið
1927-1990.
íslenski dansílokkurinn hefur haf-
ið nítjánda starfsárið og hefur starf-
seminni verið breytt, en nýjar reglur
um dansflokkinn voru samþykktar
af menntamálaráðherra um áramót-
in. íslenski dansflokkurinn er nú
sjálfstæð stofnun með eigin stjóm.
Flokkurinn starfaði innan Þjóöleik-
hússins þar til fyrir tveimur árum
að starfsemin var flutt að Engjateigi
1. Þá er fyrirhugað að flokkurinn
flytji ásamt öðrum listaskólum í nýtt
húsnæði í Laugamesi á næstu árum.
Frá því ný stjóm undir fomstu
Sveins Einarssonar tók til starfa í
vor hefur veriö unnið að endurskipu-
Finni og af þeirri kynslóð sem um
er sagt aö hún hafi fært finnskar
bókmenntir úr skóginum inn í borg-
ina og jafnvel kjamorkubyrgið.
Carl Jóhan Jensen, Færeyjum. -
Ungur rithöfundur sem vakið hefur
mikla athygh og þykir í tölu hinna
efnilegustu þar í landi.
Rosa Liksom, Finnlandi. - Rósa
hefur áður sótt Island heim við góðan
orðstír. Óheíðbundinn skáldskapur
hennar hefur vakið mikla athygli
utan Finnlands sem innan.
Torgny Lindgren, Svíþjóð. - Einn
þekktasti skáldsagnahöfundur Svía
um þessar mundir. Skáldsaga hans,
„Naðran á klöppinni", kom út á ís-
lensku fyrir síðustu jól.
Ljúdmíla Petrushevskaja, (Rúss-
landi). - Einn þeirra höfunda sem á
síðustu missemm, eftir upplausn
Sovétríkjanna, hefur vakið hvað
lagningu á starfsemi flokksins.
Breytingar hafa orðið í röðum dans-
ara og hafa sex nýir dansara hafið
störf hjá flokknum, það em þau Þóra
Guðjohnsen, sem starfað hefur í
Þýskalandi síðustu þijú ár, banda-
rísku dansararnir Melissa Anderson,
Rafael Delgado, Anthony Wood og
Rome Saladino og breski dansarinn
David Greennal. Þá hafa verið ráðnir
tveir dansarar á nemendasamning
þau Hlíf Þorgeirsdóttir og Viðar
Maggason. Alls verða sex karldans-
arar í flokknum í vetur og er það í
fyrsta skipti í sögu dansflokksins
sem svo margir karldansarar em á
mesta athygli, bæði í heimalandi
sínu og á Vesturlöndum.
Pascal Quignard, Frakklandi. -
Talinn einn mikilvægasti höfundur
Frakka nú á dögum. Skáldsaga hans,
„Allir heimsins morgnar" (1991),
vakti fádæma athygli og var mánuð-
um saman á vinsældalista. Hún kem-
ur á íslensku meðan á hátíðinni
stendur.
Christoph Ransmayr, Austurríki. -
Víðkunnur rithöfundur. Skáldsaga
hans, „Hinsti heimur", hefur komið
út í íslenskri þýðingu Kristjáns
Árnasonar og vakti mikla athygli.
Klaus Rifbjerg, Danmörku. - Lík-
lega sá danskra skálda sem íslend-
ingar þekkja best, enda mikið lesinn
í framhaldsskólum. Nýjasta bók
hans er ljóðabókin „Bjerget í him-
len“, en sama ár (1991) kom reyndar
líka skáldsagan „Rapsodi i blát“ og
ljóðabók með örljóðum.
Svend Otto S., Danmörku. - Víð-
kunnur fyrir myndskreytingar
barnabóka og barnabækur þar sem
hann skrifar sjálfur skýringartext-
ana við myndirnar. Svend Otto á að
baki sem næst 250 bækur!
Kirsten Thorup, Danmörku. - Ein
af kunnustu skáldum Dana og hefur
gefið út fjölda ljóðabóka, skáldsagna
og leikrita.
Antti Tuuri, Finnlandi. - Þekktast-
ur finnskra rithöfunda hérlendis
enda verið gefnar út þýðingar nokk-
urra skáldsagna hans. Sú nýjasta,
„Nýja Jerúsalem", er væntanleg á
íslensku á bókmenntahátíðinni.
Ann-Cath. Vestly, Noregi. - Fáir
munu þeir íslendingar sem ekki hafa
á liðnum áratugum átt yndisstundir
með Óla Alexander fíli-bomm-bomm,
en hún er höfundur þessa vinsæla
bðkaflokks.
föstum samningum. Þetta kemur til
með aö breyta miklu fyrir starfsem-
ina og auka möguleika á verkefna-
vali.
Dansmeistari í vetur verður Alan
. Howard sem er bandarískur og hefur
langa reynslu og mikla þekkingu sem
ballettkennari og dansmeistari. List-
dansstjóri er María Gísladóttir.
Æfingar eru hafnar á fyrstu frum-
sýningu vetrarins, en hún verður í
Þjóðleikhúsinu. Þar verða sýnd verk
eftir þrjá bandaríska danshöfunda,
Stephen Mills, William Soleau og
Charles Czamy.
Dansararfrá
Bolshoiog
Kirovsýnaí
Þjóðleikhúsinu
Einn frægasti og vinsælasti
ballett allra tíma, Svanavatnið,
verður sýndur í Þjóðleikhúsinu
13. til 18. október. Flytjendur eru
ekki af verri endanum. Það er
sameiginlegur hópur heims-
þekktra dansara frá Bolshoi-ball-
ettinum og Kirov-ballettinum
sem fiytur verkið ásamt ballett-
flokki St. Pétursborgar. Dansar-
arnir, sem eru í sólóhlutverkum
í þessum hópi, eru Yevgeni Neff,
Ludmilla Kunakova, Tatjana
Golikova, Mikhail Tsivin, Alex-
ander Bogatiriev og Nadeja
Pavlova, allt dansarar sem eru
meðal þeirra ffemstu í heimin-
um. Það þarf ekki að taka þaö
fram aö koma þessa hóps er ein-
hver mesti listaviðburður ársins
og öllum ballettunnendum mikiö
fagnaðarefhi.
Lina langsokkur
fyrsta verkef ni
Leikfélags
Akureyrar
Leikfélag Akureyrar byrjar
leikárið á hinu vinsæla barna-
leikriti, Línu langsokk eftir
Astrid Lindgren. Það er Bryndis
Petra Bragadóttir sem leikur
Línu, leikstjóri ert Þráinn Karls-
son. Aðrir leikarar eru meðal
annars Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir og Ingvar Már Gíslason
sem leika Önnu og Tomma, Aðal-
steinn Bergdal, Sigurþór Albert
Heimisson, Sunna Borg og Sigur-
veig Jónsdóttir. Frumsýning á
Linu langsokk verður 9. október.
Þrír leikarar bættust við í hóp
fastráðinna leikara Leíkfélags''
Akureyrar í haust, Bryndís Petra
Bragadóttir, Aðalsteinn Bergdal
og Sigurþór Albert Heimisson.
Blóm á himnum
ásænskum
geisladiski
Á nýjum geisladiski sænska
djassistans Jonas Knutson er að
finna lag sem nefnist Flower in
the Sky. Er það sungið af Lenu
Wiilmark, einni fremstu djass-
söngkonu Svía. Ljóðið er eftir
Matthias Johannessen ognefnist
á frummálinu Blóm á himnum.
Það var fyrrum sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi, Mars-
hall Brement, sem þýddi ljóðiö
yfir á ensku og birtist þýðingin í
bókinni Three Modern Icelandic
Poets. Jonas Knutson er einn
efnilegasti djasstónlistarmaöur
Svía. Hann leikur á saxófón, sem-
ur og útsetur. Hann er 27 ára og
hlaut á þessu ári sænsku djass-
tónlistarverðlaunin.
Yfir 30.000
hafaséð
Veggfóður
í upphafi gerðu aðstandendur
kvlkmyndarinnar Veggfóðurs sér
vonir um aö 30.000 manns myndu
sjá myndina. Nú geta sömu menn
andaö léttar því að markinu er
náð og vel þaö. Og þaö tók ekki
nema rúman mánuð að ná því.
Greinilegt er að Veggfóður hefur
farið sérlega vel í unga fólkið því
aö stærsti hluti sýningargesta er
ungt fólk. Um síðustu helgihöfðu
á níunda þúsund séð Svo á jörðu
sem á himni en hún hefur nú
veríð sýnd í tvær vikur. Þriöja
islenska kvikmyndin á þessu
hausti verður frumsýnd í Regn-
boganum í byijun október. Er það
Sódóma Reykjavik.
OIli Jalonen, Finnlandi. - Ungur
Dansarar i íslenska dansflokknum eru farnir að æfa fyrir fyrstu frumsýninguna. DV-mynd BG
íslenski dansfiokkurinn:
Sex nýir dansarar
- æfmgar hafnar fyrir fyrstu frumsýningu vetrarins