Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Síða 11
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1992.
11
Utlönd
Tiskan hippaíímans virðist vera að koma aftur ef marka má fötin sem
Gianni Versace hannar. Hann sýndi framleiðslu sína í Mílanó um helgina.
Simamynd Reuter
Major aldrei
jafn óvinsæll
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, nýtur nú minni vinsælda
meðal kjósenda en nokkru sinni frá
því hann tók við forustu Ihalds-
flokksins fyrir rétt tæpum tveimur
árum. Samkvæmt skoðanakönnun,
sem birtist í sunnudagsútgáfu dag-
blaðsins Times, eru 60 prósent kjós-
enda óánægðir með ráðherrann en
aðeins 33 prósent ánægðir.
Óvinsældir forsætisráðherrans svo
og óvissan um stefnu stjómar hans
gagnvart Evrópubandaiaginu og í
efnahagsmálum gætu orðið til þess
að hart verði sótt að breska pundinu
á fjármagnsmörkuðum í dag.
Landsfundur íhaldsmanna hefst á
morgun og til stóð að þar yrði kosn-
ingasigrinum frá í vor fagnað. Þess
í stað mætir til fundar flokkur þar
sem djúpstæður ágreiningur er um
utanróds- og efnahagsstefnuna.
Bretland tapaði orrustu við spá-
kaupmenn á gjaldeyrismörkuðum
heimsins og dró sterlingspundið út
úr gengissamstarfi Evrópubanda-
lagsins þann 16. september og lét
gengið fljóta. Á föstudag var gengi
þess gagnvart þýsku marki lægra en
nokkm sinni fyrr.
Háværar kröfur hafa verið um af-
sögn Normans Lamonts fjármálaráð-
John Major, torsætisráðherra Bret-
lands, nýtur aðeins stuðnings 33
prósent kjósenda. Teikning Lurie
herra og í Ijós hefur komið alvarleg-
ur klofningur meðal íhaldsmanna
um framtíð Bretlands innan Evrópu-
samstarfsins. Reuter
Einvígi Fischers og Spasskíjs:
Jaf ntefli í 15. skákinni
Jafntefli varð í fimmtándu einvíg-
isskákinni hjá Bobby Fischer og Bor-
ís Spasskíj í Belgrad í gær. Kappam-
ir ákváðu að leggja niður vopnin eft-
ir 33 leiki.
Fischer hafði hvítt og tók þann
kostinn að reyna enska leikinn í upp-
hafi í stað kóngspeðsleiks eins og
jafnan áður í einviginu. Þessi byrjim
hefur aðeins tvisvar leitt til sigurs
hjá Fischer á ferli hans.
Allt fór eftir bókinni fram í 23. leik
þegar Spasskjj ákvað að fóma biskup
fyrir peð. Þetta þótti skákskýrendum
mikil áhætta ef ekki afleikur. Fischer
átti líka sín mistök og í 30. leik lék
hann af sér og Spaskíj náði riddara
fyrir biskupinn. Skömmu síðar sætt-
ust þeir á jafntefli.
Staðan í einviginu er nú þannig að
Fischer hefur 5 vinninga en Spasskíj
2. Jafntefli em ekki talin með og sá
sem fyrr vinnur tíu skákir sigrar í
einvíginu. Reuter
LIPUR OG ÖFLUGUR LÚXUSJEPPI
* Aflmikil vél með beinni innspýtingu.
* Vökvastýri - rafmagnsrúðuvindur - samlæsingar -
rafdrifnir útispeglar - lúxusinnrétting.
* Mjúk gormafjöðrun - aksturseiginleikar í sérflokki.
* Grindarbyggður - auðvelt að hækka bílinn upp.
* Eyðsla frá 8 1 á 100 km.
* Verð.frá kr. 1.395.000 stgr. skeifunni m ■ sími 685ioo
$ SUZUKI
--...........
SUZUKIBÍLAR HF.
k Frá verksmiöju til hafna
| erlendis.... og heim!
FUJTNINGSMIÐLUNIN »*
TRYGGVAGÖTU 26 - REYKJAVÍK - S: 29111 Fax 25590