Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Síða 17
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1992.
17
Fréttir
Snjóflóðavamir á Flateyri:
Greinarmunur gerður
á náttúruhamförum
Reynir Traustasan, DV, Flateyri;
„Okkur flnnst skrítiö að greinar-
munur skuli vera gerður á náttúru-
hamforum. Ríkið greiðir 100% fyrir
sjóvarnir en þegar um er að ræða
snjóflóðavamir þá þurfa sveitarfé-
lögin að greiða 80% af kostnaðinum
sjálf. Við höfum fengið þau við-
brögð frá félagsmálaráðherra að
engin breyting verði á þessu rang-
læti. Okkar hugmyndir lúta að þvi
að gerð verði lagabreyting sem gef-
ur ráðherra það vald að meta
greiðslugetu sveitarfélaga þegar
um er að ræða þessar framkvæmd-
ir og hækka framlög ríkisins í sam-
ræmi við þá niðurstöðu. Þær hug-
myndir hafa ekki hlotið hljóm-
grunn,“ segir Kristján Jóhannes-
son, sveitarstjóri á Flateyri.
í næstu viku hefjast framkvæmd-
ir vegna snjóflóðavama fyrir ofan
Ólafstún á Flateyri en undanfarna
vetur hafa íbúðar við götima ítrek-
að orðiö að Tlýja hús sín um lengri
og skemmri tíma vegna snjóflóða-
- segir Kristján Jóhannesson sveitarstjóri
hættu. Samkvæmt hættumati em
24 hús á hættusvæði vegna snjó-.
flóðahættu. Að sögn Kristjáns
verða settir hlerar fyrir glugga
húsa sem em við ofanvert Olafst-
ún. Þá verða byggðir tveir leiði-
garðar fyrir ofan byggðina. Garð-
amir verða 160 metrar á lengd
hvor. Þá þarf að færa vatnsveituna.
Heildarkostnaður við verkið er 54
milljónir og þarf Flateyrarhreppur
að greiða rúmar 10 miHjónir af
þeirri upphæð en Ofanflóðasjóður
greiðir afganginn. Kristján sagði
það ljóst að sveitarfélagið yrði að
fjármagna sinn þátt með lántökum
þar sem enginn afgangur væri af
framkvæmdafé.
„Það er mjög erfitt fyrir sveitarfé-
lag af okkar stærðargráðu að
standa undir þessum framkvæmd-
um, sérstaklega þar sem við erum
skuldsettir fyrir. Stærri sveitarfé-
lög eiga auðveldara um vik við
slíka fjármögnun," sagði Kristján
Jóhaxmesson.
Alls eru 24 hús á Flateyri á hættusvæði vegna snjóflóða. Kristján Jóhannesson sveitarstjóri stendur fyrir
ofan byggðina þar sem svokallaðir leiðigarðar verða byggðir. Hólarnir í bakgrunni gegna hlutverki snjóflóða-
varna. DV-mynd Reynir
EskiQörður:
Rækjuvinnslan hef ur skapað
Mð sem geirtr heimillð m 1 sselareit
kærkomna atvinnu
Emil Thoiarensen, DV, F.skifirði:
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. hefur
rekið rækjuvinnslu frá árinu 1988.
Það þótti á sínum tíma umdeilanleg
ákvörðun hjá Aðalsteini Jónssyni er
hann ákvað að hefja vinnslu á rækju
og gekk það ekki þrautalaust að
koma hugmyndinni í framkvæmd.
Það hefur hins vegar komið á dag-
inn að þessi nýjasta deild fyrirtækis-
ins hefur skotiö styrkari stoðum
undir starfsemi Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar auk þess aö skapa ný og kær-
komin atvinnutækifæri á Eskifirði.
Búi Þór Birgisson verkstjóri sagði
í samtali við DV að rækjuvinnslan
hefði verið starfrækt í um 8 mánuði
á ári. í vor hefði starfsemin byrjað í
lok apríl og væri stefnt að heilsárs-
rekstri framvegis.
„Unniö er á þrískiptum vöktum,
alls 20 tíma á sólarhring, 6 daga vik-
unnar,“ sagði Búi, „en nauðsynlegt
er að stoppa einn dag á viku til þess
að sinna viðhaldi og viðgerðum á
tækjum og vélum.“
Um 40 manns hafa atvinnu í landi
við rækjuvinnsluna. Rækjuveiðam-
Búl Þór Birglsson verkstjóri.
DV-myndlr Emil
ar hafa gengið vel og 5 bátar voru í
viðskiptum við fyrirtækiö í sumar
og lönduðu ísaðri rækju til verk-
smiðjunnar.
Búi sagði verksmiðjuna hafa tekið
á móti um 1.500 tonnum af ísaðri
rækju frá því í vor, auk 275 tonna
af sjófrystri rækju, sem færi til end-
urvinnslu.
„Ég geri ráð fyrir að framleiðslu-
verðmæti frá því í vor sé rúmar 200
milljónir króna," sagði Búi, „hins
vegar hefur verið mikil sölutregða í
útflutningi á stærri rækjunni, sem
er um 50 til 60% af vinnslunni, og
eru því birgðir um þessar mundir 1
meira lagi.
Mest af framleiðslunni er flutt út í
gegnum Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna og eru helstu kaupendumir
Bretar, Frakkar, Þjóðveijar og Dan-
ir. Á hinn bóginn fer talsvert á innan-
landsmarkað og seljum við í því sam-
bandi rækju um allt land,“ sagði
Búi. Viðskiptavinir hafa haft orð á
því að rækjan sé sérstaklega góð.
„Bráðnar uppí manni“, eins og einn
ánægður viðskiptavinur orðaði það,“
sagði Búi Þór Birgisson að lokum.
Vlnna í rækjuvinnslunnl.
fjölskyldunnar er notalegt umhverfi með fallegum húsgögnum
þar sem öllum getur liðið vel og látið fara vel um sig. Við hér
í Húsgagnahöllinni leggjum mikið upp úr því að bjóða alþjóðlegt
og fallegt úrval vandaðra húsgagna. Við getum boðið þér hefð-
bundin húsgögn til þess nýjasta nýja og alla verðlagsbreiddina.
Hvemig væri nú að fá sér fallegan veggskáp í stofuna?
Teg: Sole II, svartur/grár eða alveg svartur eða perlugrár.
Géð grsiéslúkjör
Visa, Euro raðgreiðslur eða þá Munalángreiðslur. Dæmi um
Munalán: Útborgun 25.000,- afborgun 3.290,- á mánuði í 30 mánuði.
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199