Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Side 18
18 MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1992. Menning Heimsókn Bolshoi og Kirov ballettsins: Svanavatnið með dönsurum sem eru með þeim bestu í heiminum Eins og kunnugt er kemur úrvals- flokkur rússneskra ballettdansara úr Bolshoi ballettinum og Kirov ball- ettinum til landsins í þessari viku ásamt þjóðarballett St. Pétursborgar og sýnir Svanavatnið í Þjóðleikhús- inu. Ekki er um að ræða eina sýn- ingu heldur verða þær níu talsins og er þegar uppselt á nokkrar. Þetta er einn mesti Ustviðburðurinn á þessu ári. Sex aðaldansarar koma og er þar um að ræða dansara sem eru í fremstu röð í heiminum. Hér fer á eftir smákynning á þeim: Mikhail Tsivin var ekki fyrr búinn að ljúka námi en hann var ráðinn til Bolshoi. Hann er talinn hafa mjög góða stökktækni og þegar hann dans- aði Mercutio í Rómeó og Júlíu í Moskvu áttu gagnrýnendur varla orð til að lýsa hæfni hans. Tsivin er ekki bara stórkostlegur dansari, hann er rpjög vinsæll hjá áhorfendum og er talinn meðal sex bestu dansara í heiminum í dag. Yevgeni Neff lauk námi í St. Pét- ursborg 1974 og var þá strax ráðinn til Kirov ballettsins. Kom hann þar fyrst fram í Les Sylphides og hlaut frægð fyrir. í Svanavatninu dansar hann hlutverk Siegfried, en hann hefur fengiö mikið hrós fyrir túlkun sína á þessu hlutverki. Nadeja Pavlova er talin meðal hæfileikaríkustu ballerína allra tíma. Hún er búin að starfa lengi með Bolshoi ballettinum og hefur dansað öll mestu danshlutverk í klassískum ballett. Ludmilla Kunakowa er hjá Kirov ballettinum og var ráðin þangað þeg- ar hún hafði unnið fyrstu verðlaun í keppni ballettdansara í Vama. Með Kirov ballettinum hefur hún dansað mörg stór hlutverk. Kunakova hefur ferðast mikið og dansað og ávallt fengið mjög góða gagnrýni. Alexander Bogatiriev hefur fengið viöumefnið „Danseur Noble“ Bols- hoi ballettsins. Það em ekki ófáir af þeim sem skrifa um ballett er segja að hann sé í dag besti karldansari í heiminum. Með Bolshoi hefur Boga- tiriev dansað öll erfiðustu og þekkt- ustu danshlutverkin. Tatjana Golikowa er prima ball- erina Bolshoi ballettsins í dag. Vegna mikflla túlkunaræfileika hefur hún pft verið kölluð dansandi leikkonan. í Svanavatninu dansar hún aöalhlut- verkið Odette/Odfle, en hún hefur fengið sérstaklega góða dóma fyrir túlkun sína á þessu hlutverki. Hún hefur eins og allir þeir sex dansarar sem hér hafa verið nefndir unnið tfl flölda alþjóðlegra verðlauna. Af þessari upptalningi má sjá að með þessari uppfærslu á Svanavatn- inu er verið að bjóða upp á ballett- sýningu eins og þær gerast bestar í heiminum í dag. -HK JóhannEyfells: Bræðir málma oghellirímót ijörðinni í Listasafni íslands var opnuð á laugardaginn sýning á úrvali verka síðasta áratugar eftir Jóhann Eyfells, og er þetta stærsta sýning sem haldin hefur verið á höggmyndum hans. Jóhann var við nam í byggingarlist, skúlptúr, málaralist og keramík í Bandaríkjunum á ámnum 1945-1953. Fram tfl ársins 1969 starfaði hann sem teiknari, hönnuður, arkitekt, listamaður og kennari, ýmist í Bandaríkjunum eða á íslandi, en frá 1969 hefur hann haft fasta búsetu í Flórída og verið prófessor í myndlist við University of Central Florida, auk þess að starfa sem listamaður. Aðferðir Jóhanns við að gera verk sín em einstæðar og hafa átt sinn þátt í að vekja athygli á verkum hans um allan heim. Hann bræðir málma og hellir í mót sem hann hefur gert í jörðinni. Samspfl jarðvegsins, málmsins, hitastigs hans og annarra þátta ræður útkomunni. í inngangsorðum að sýningunni segir Bera Nordal, forstöðumaður Listasafns íslands, meðal annars: „Sýning Jóhanns Eyfells hefur verið lengi á döfinni og mér er það sérstök ánægja að fá tækifæri tfl að kynna heimalandi hans ný og óþekkt verk hans en á sýningunni er aðaláhersl- an lögð á málmskúlptúrana. Þar gef- ur að líta feiknstóra skúlptúra en þróun þeirra hefur verið í átt til auk- innar stærðar innan stórra mynd- raða þar sem formin em endurtekin í sifellu með mismunandi stefj- um... “ DV-mynd GVA Jóhann Eyfelts vió eltt af stórum skúlptúrverkum sínum. Hafnarflörður: Myndlistarskóli og sýningarsalur í húsnæði þar sem áður var vélsntiðja Um það bil eitt hundraö manns sóttu um á haustönn nýs myndlistar- skóla í Hafnarfirði en kennsla hófst þar síöastliðið fóstudagskvöld. Skólastjóri er Öm Óskarsson og sagði hann að viðbrögð hefðu verið mjög góð, sérstaklega miðað viö að lítill tími vannst til kynningar á starfseminni. Öm sagði að mikill hugur væri í aöstandendum skólans og margt í bígerð en kennarar væm fimm. Skólinn, sem heitir Myndlistar- skólinn í Hafnarfiröi, er tfl húsa aö Strandgötu 50 þar sem áður var starf- rækt Vélsmiöja Hafnarfjarðar. Á þessari haustönn er boðið upp á námskeiö í fjöltækni fyrir böm og unglinga. Auk þess veröa í boði nám- skeið í grunnteikningu, módelteikn- ingu, málun og vatnslitamálun. Að- Fyrsta kennslustundin i Myndlistarskóta Hafnarfjarðar. Það er teikning sem verið er aö kenna. DV-mynd JAK spurður kvaö Öm nemendur alls ekki alla vera Hafiifirðinga heldur kæmu nemendur frá Reykjavík, Keflavík og fleiri stöðum í nágranna- byggðum Hafnarfiarðar. í tengslum við skólastarfið verður í húsinu rekinn sýningarsalur þar sem listamenn munu sýna verk sín. Þar mun nemendum skólans gefast kostur á aö kynna sér verk viðkom- andi listamanna undir leiðsögn list- fræðings. Áformað er aö opna sýn- ingarsalinn í lok október. Öm Óskarsson sagði að fyrirhugað væri að snyrta tfl í kringum húsið, malbika, helluleggja og gróðursetja og væri fyrirhugað að allt yröi tfl- búið fyrir Listahátíð Hafnarfjarðar næsta sumar og þama yrðu útisýn- ingar, tónleikar, útimarkaður og ýmislegtfleira. -HK metsölubók Guðbergur Bergsson skáid með meira verður sextugur 16. októb* er. Meðal þess sem verður gert honum tfl heiðurs er sýning í Gerðubergi sem nefhist Orölist Guðbergs Bergssonar. Sýning- unni er ætlað að gefa mynd af Guðbergi sem listamanni og per- sónu. í tengslum viö hana verður dagskrá sem byggist á verkum hans. Þá mun Forlagiö gefa út bókina Guöbergur Bergsson, metsölubók. Er hér um viötals- bók að ræða sem skráð er af Þóra Kristínu Ásgeirsdóttur. Er ekki að efa að þar kemur margt for- vitnilegt frá listamanninum sem hefur í gegnum árin verið virkur pistlahöfundur og ekki legið á skoðunum sinum. Kæra Jeiena á stórasviðið Þrátt fyrir aö hið vinsæla leik- rit Kæra Jelena hafi verið flutt af litla sviðinu í Þjóðleikhúsinu á stóra sviöið er engin breyting á. Það selst upp á allar sýningar sem auglýstar era. Kemur það talsvert á óvart þegar haft er í huga að leikritið var sýnt fyrir fullu húsi allt síðasta leikár og að stóra sviðið hefur margfalt fleiri sæti. Ástæða þess að leikrit- ið var flutt tfl var fyrst og fremst sú aö það þurfti að rýma litla sviðið fyrir leikritinu Rita gengur menntaveginn sem var frestað í fyrra vegna aðsóknar á Jelenu. i stað þess að hætta aö sýna leikrit- ið var brugðiö á það ráð að fara með það á stóra sviðið. Strax seld- ist upp á þær sex sýningar sem auglýstar voru í október. Bréf Jóhanns Jónssonaribók Þaö kom mörgum á óvart þegar það spurðist á vormánuðum að fundist hefðu uppi á háalofti á Húsavík á þriöja tug bréfa Jó- hanns Jónssonar skálds tfl sr. Friðriks A. Friðrikssonar. Jó- hann orti ekki mikið en er kunn- astur fyrir Ijóð sín. í þessumbréf- um kveður Jóhann upp palla- dóma yfir mönnum og málefnum, og fá skáldbræður hans það óþvegið. Segir hann til dæmis að Jónas sé ekki annað en gáfuð Heine eftirherma, Matthias Joch- íunsson íslenskur Grundtvig og Steingrímur Thorsteinsson út- þynnt þýsk rómantík. Nú hefur Ingi Bogi Bogason bókmennta- fræöingur búið bréfin til prent- unar, tengir þau saroan og segir frá æví Jóhanns. Vaka-Helgafell gefur bókina út en hún nefhist Undarlegt er lif mitt heiður Demetz Hinn kunni söngfrömuöur Sig- urður Demetz verður áttræður 11. október. Til heiðurs honum mim vinir og veluxmarar halda sönghátíð í Þjóðleikhúsinu annað kvöld. Á þessum tónleikum koma fram mai-gir af okkar þekktustu söngvuram, má þar nefna Sigriöi Ellu Magnúsdóttur, Gunnar Guð- bjömsson, Jóhönnu Iinnet og Signýju Sæmundsdóttur, Auk þess koma fram félagar úr ís- lensku óperunni og Óperusmiðj- unni og ýmsir nemendur Sigurö- ar Demetz. Pyrri hluta ævi sinnar söng Sigurður við þekkt óperu- hus, meðal annars á Scala f Mílanó. Síðan hann fluttist til is- lands hefur hann átt drjúgan þátt í að lyfta sönglistinni í þær hæðir ; sem hún er í um þessar mundir og hafa margir af bestu söngvur- um landsins veriö nemendur hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.