Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Síða 20
20
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1992.
Lífsstíll
Greidslukortaviðskipti:
Dýrt að nota greiðslukort-
in til að taka út reiðufé
Gjaldeyriskostnaður
ef miðað er við 100 þús. kr. -
Peningaúttekt (Visafj\ 4.018 kr.
Peningaúttekt (Euro,
3.013 kr.
Sedlar
Ferðatókkar
1.600 kr.
Vöruúttekt. 500 kr.
1-150kr- jf f jf
4Bia=
Þaö er að mörgu aö hyggja áður en
lagt er af staö út fyrir landsteinana.
Gjaldeyrir er eitt af því sem má alls
ekki gleymast, en þó að munað sé
eftir honum vill það brenna við að
ekki hafi verið keypt nógu mikið af
honum áður en haldið var í ferðina.
Getur þá verið gott að grípa til
greiðslukortanna til að verða sér úti
Það getur verið ósköp þægilegt að
verða sér úti um reiðufé í hraöbönk-
um erlendis en slíkt kostar þó sitt
og er ódýrara að kaupa vöruna beint
út á geiðslukortið ef hægt er.
DV-mynd BG
um reiðufé. Slíkt hækkar þó ferða-
kostnaðinn meira en margan grunar.
Þegar ferðatékkar eru keyptir
héma heima þarf að borga 1 prósent
gjaldeyrisþóknun og ákveðna upp-
hæð fyrir tékkana sjálfa. í íslands-
banka er þessi upphæð 175 krónur
en 150 krónur í Búnaðarbankanum.
Ef ferðamaður kaupir erlendan
gjaldeyri fyrir 100.000 krónur þarf
hann því að borga 101.175 krónur í
íslandsbanka en 101.150 krónur í
Búnaðarbankanum. *
Neytendur
Seðlarnir dýrari en tékkarnir
Þó að undarlegt megi virðast þá er
dýrara að kaupa gjaldeyrinn í seðl-
um. Við seðlakaup þarf að borga 1,5
prósent gjaldeyrisþóknun en seðl-
arnir sjálfir kosta 100 krónur. í áður-
nefndu dæmi þyrfti því að borga
101.600 fyrir seðlana.
Ef ferðagjaldeyririnn klárast fyrir
lok ferðarinnar og gripið er til Visa
eða Eurocard til að bjarga málunum
og ná sér í reiðufé er um talsvert
meiri kostnað að ræða. Hjá Eurocard
er 2,5 prósent úttektargjald og ofan
á það leggst síðan 0,5 prósent gjald-
eyrisþóknun. Hjá Visa er úttektar-
gjaldið 3,5 prósent og 0,5 prósent
gjaldeyrisþóknum.
Ef haldið er áfram með dæmið um
ferðamanninn sem þarf á 100.000
krónum að halda þá þarf að hann að
borga 103.013 krónur þegar heim
kemur ef hann notar Eurocard en
104.018 ef hann hefur notað Visa,
þ.e.a.s. 2,5 prósent eða 3,5 prósent
ofan á upphæðina og síöan 0,5 pró-
sent gjaldeyrisþóknun.
Atli Öm Jónsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Kreditkorta hf., sagði
að það ætti að kosta þaö sama aö
taka út úr hraðbanka og beint út úr
bankanum, alltaf 2,5 prósent. Það
væri svo ákvörðun hvers banka
hvort hann tæki ákveðið gjald fyrir
eða ekki.
„Þetta er annars vegar þjónustu-
gjald eða þóknun til bankans erlend-
is, hvort sem upphæðin er tekin út
úr hraðbanka eða fengin beint við
afgreiðsluborð bankans, og hins veg-
ar er það greiðsla til okkar því við-
komandi tekur út peninga en á ekki
fyrir þeim hérna heima. Við erum
því að lána viðkomandi en verðum
að fjármagna þetta um leið og úttekt-
in kemur hingað heim,“ sagði Leifur
Steinn Ehsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Visa-íslands.
Einungis gjaldeyrisþóknun
í þessu tilfelli væri ódýrast fyrir
ferðamann að taka vörur erlendis
beint út á Visa eða Eurocard því þá
þarf hann einungis aö borga' 0,5
gjaldeyrisþóknun. Á móti vegur að
með því er tekin ákveðin gjaldeyrisá-
hætta. Miklar gjaldeyrisbreytingar
geta valdið þvi að þegar reikningur-
inn kemur er í raun borgað mun
meira fyrir vöruna í íslenskum krón-
um en greitt hefði verið fyrir gjald-
eyrinn.
Ferðamaður sem ætlar að eyða
100.000 krónum á ferðalagi getur því
valið um að borga 1.150 krónur (eða
1.175 krónur) í kostnað fyrir ferða-
tékka, 1.600 krónur fyrir seðla, 3.013
krónur eða 4.018 krónur fyrir pen-
ingaúttekt erlendis eða 500 krónúr
fyrir vöruúttekt. Hafa ber í huga að
þó að næstum allar verslanir og þjón-
ustuaðilar hérlendis taki við
greiðslukortum þá er minna um það
erlendis og hæpið að menn geti kom-
ist hjá því að hafa eitthvert reiðufé á
sér.
-GHK
Hagkaup selur
Levi' s vörur
- gallabuxumar á innan við 4.000 krónur
Senn mun verða óþarfi að
fara í verslunarferðir til út-
landa til að kaupa Levi’s galla-
buxur á lægra verði en hingað
til hefur verið hægt hér á landi
því að í lok þessarar viku fara
verslanir Hagkaups að selja
Levi’s vörur.
Að sögn Jóns Ásbjömssonar
mun Hagkaup flytja Levi’s vör-
umar beint inn frá Bandaríkj-
unum, bæði bama- og fullorð-
insstærðir, og verður verðið á
Levi’s gallabuxunum eitthvað
innan við 4.000 krónur.
Levi’s vörur hafa notið mik-
illa vinsælda hér á landi síðustu
misseri. í alþjóðlegri verðkönn-
un, sem gerð var í níu löndum,
kom í ljós að Levi’s 501 galla-
buxur vom dýrastar hér á
landi, kostuðu 6.890 krónur en
4.327 krónur í Helsinki þar sem
þær vom ódýrastar.
í Bandaríkjunum, þar sem
Levi’s merkiö þykir standa fyr-
ir gallabuxur, er hægt að fá
Levi’s 501 á útsölum fyrir 20-25
dollara en nýjasta gerðin af
Levi’s 501 kostar núna 46 doll-
ara eða 2.484 krónur ef miðað
er við aö gengi dollarans sé 54
krónur eins og hann var á
fóstudaginn. Það er því ljóst aö
það er hægt að fá þrennar bux-
ur af nýjustu gerðinni af Levi’s
501, eða fimm buxur á útsölu,
fyrir sama verð og einar hafa
kostaö hér á Fróni.
-GHK
Levi’s gallabuxur hafa notiö mikilla vinsælda hérlendis síðustu misseri.
í lok vikunnar mun Hagkaup fara að selja Levi’s vörur i verslunum sfnum.
Kreditkort:
Erlendu upphæðinni
skipt yfir í íslenskar
krónur á útskriftardegi
- áður breytt í dollara
Síðustu mánuði hefur gengi dollar-
ans verið mjög óstöðugt, sem og
ástandið á öðmm gjaldeyrismörkuð-
um erlendis. Dollarinn t.d. var skráð-
ur á sölugenginu 54,16 krónur þann
18. ágúst síðastliðinn en var rúmlega
tveimur krónum hærri nákvæmlega
mánuði síðar. Þessi óstöðugleiki hef-
ur komið mörgum ferðamanninum
illa og brá ýmsum í brún þegar þeir
sáu upphæöir erlendra úttekta á
kreditkortareikningunum.
Neytendasíðan kannaði þvi ferli
erlendra úttekta og hvenær erlendu
upphæðinni væri breytt yfir í ís-
lenskar krónur. Af því tilefni var
haft samband við Visa-ísland, um-
boðsaðila Visa, og Kreditkort hf. sem
er meö Eurocard.
Að sögn Atla Amar Jónssonar,
aðstoðarframkvæmdastjóra Kredit-
korta hf., gengur það yfirleitt þannig
fyrir sig að viðkomandi verslun í
ferðalandinu sendir kvittunina í við-
skiptabanka sinn, og er það ýmis
samdægurs ef um beinlínutengingu
að ræða eða tveimur til þremur dög-
um seinna ef notuð hefur verið gamla
sleðaaðferðin. Þegar upphæðin er
komin í bankann er henni skipt yfir
í dollara.
Hjá Kreditkortum hf. er doUara-
upphæðum síðan skipt yfir í íslensk-
ar krónur aUtaf 17. hvers mánaðar.
Þann 17. september var ■ sölugengi
doUarans 56,76 krónur. Er miðað við
opinbert gengi Seðlabanka íslands
sem fyrirtækið fær að morgni dags.
„Síðasta mánuð var gengismunur-
inn óhagstæður en tvo mánuðina þar
á undan virtist munurinn vera okkur
hagstæður. Okkur er fremur Ula viö
þessar sveiflur. Þetta skapar mis-
ræmi og þegar doUarinn er að vaða
svona upp og niður þá raskar það
öUu jafnvægi, en við getum að vísu
ekkert gert við því,“ sagði AtU Öm.
Leifur Steinn EUsson, aöstoðar-
framkvæmdastjóri Visa-íslands,
sagði að Visagreiðslur færu frá versl-
uninni til viöskiptabanka hennar og
þaðan áfram til Visa í viðkomandi
landi. Þaðan síðan tíl Visa Inter-
national í London og þegar þangað
væri komið væri upphæðinni breytt
yfir í doUara og send til íslands.
Við útskrift á reikningum er síðan
miðað við sölugengi doUarans á út-
skriftardegi. Það er nokkuð breyti-
legt hvenær Visa vinnur sínar út-
skriftir en það er alltaf í kringum 20.
hvers mánaðar og getur fólk séð á
reikningum hvenær útskrift fór
fram. Þar af leiðandi er fljótséð hvaða
dag erlendu upphæðinni var skipt
úr doUurum yfir í íslenskar krónur
þar sem um sama dag er að ræða.
Skráð sölugengi doUarans hjá Seðla-
banka íslands þann 18. september
var 56,29 krónur.
Er því ljóst að tveir aðUar sem hafa
keypt sömu vöru fyrir sömu upphæð
erlendis munu ekki borga það sama
fyrir hana er heim kemur ef annar
tók hana út á Visa en hinn út á
Eurocard. Svo tekið sé auðvelt dæmi
þá mun handhafi Eurocards borga
5.676 krónur fyrir 100 doUara vöru á
sama tíma og notandi VISA-kortsins
borgar 5.629 krónur. Á þetta leggst
síðan 0,5 prósent gjaldeyrisþóknun.
Ef um háar upphæðir er að ræða
getur því veriö talsvert misræmi
miUi Visa og Eurocard reikninga.
-GHK