Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Side 24
36 MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1992. Höfundur segir aö þjóðin leggi, í mikilmennsku sinni, bestu landbúnaðar- héruðin undir sumarbústaöi og hrossastóðabúskap. Þjóð í vanda Út við ysta haf, þar sem er kallað á mörkum hins byggilega heims, býr ósköp lítil þjóð, hún er fjarska fámenn, en lítur þeim mun stærra á sig. Að höfðatölu er þjóðin ekki fjölmennari en miðlungsþorp í út- löndum á mælikvarða þarlendra, þar sem milljónaríjórðungur manna lifir góðu lífi á htlu, en vel nýttu landsvæði. Stórbrotin þjóð Það hentar ekki þeirri þjóð, sem hér er fjallað um, að búa þröngt, hún verður að hafa landrými sem svarar til þess sem að rými og land- gæðum nægir miljónaþjóðum ann- ars staðar á jörðinni til að lifa menningarhfi við vænleg lífskjör. En þessi þjóð krefst þess að und- irstöðuatvinnugreinum, sem hún byggir lífsafkomu sína á, sé dreift um ahar þorpagrundir. Ekki má lélegasti afdalur fara úr byggð og ekki má ömurlegasta krummaskuð leggjast af. En í mikilmennsku sinni leggur þjóðin bestu landbún- aðarhéruðin undir sumarbústaði og hrossastóðabúskap. Sumarbú- staðimir eru að öhu jöfnu iha nýtt- ir þar sem stór hluti þjóðarinnar fer th útlanda th að eyða sumar- fríunum og hrossastóðin rótnaga landið sem við síðan eyðum kröft- um okkar og ómældum fjármunum í að firra uppblæstri. Og í htihæti sínu krefst þjóðin þess að búa í það minnsta við jafn góðan hag og það sem best gefur annars staðar í heiminum. Kjallariim Benedikt Gunnarsson framkvæmdastjóri Arfur19. aldar Þessi dreifða byggð gat, svo langt sem það náði, átt rétt á sér allt fram á annan tug tuttugustu aldar, með- an fólk bjó sem mest að sínu. Sveitafólkið fór að jafnaði í kaup- stað tvisvar á ári, þegar farið var með afurðirnar th kaupmannsins vor og haust, og sjómennimir unnu sjálfir afla sinn í salt og skreið og afurðin sótt einstaka sinnum eftir því sem hún verkaðist og efni stóðu th að öðm leyti. Þá gat fólk ekki farið í búð þegar þvi sýndist og lét sér það lynda. Hvar er þessi þjóð stödd? Nú er þjóð þessi stödd í efnahags- legum vitahring sem ekki verður séð hvemig hún vhl losna út úr. Krafan gildir m.a. um það aö hægt sé að lifa af búskap á nær aö segja hveiju því örreytiskoti sem mönn- um dettur í hug að stunda búskap á, verðlag búvöru verður í sam- ræmi við það, og verður að greiða með þessum afurðum af almannafé á einhvern hátt svo fólk geti keypt. Er það óhemjufé sem í það fer, bæði leynt og ljóst. Það eru heldur ekki neinir smá fjármunir, einnig af almannafé, sem í það fara að græða upp land- ið, sem síðan er jafnóðum rótnagað af verðlausum búsmala. Og ekki er ástandið betra við sjávarsíðuna. Á undanfórnum áratugum hafa allmörg sjávarþorp staðið efna- hagslega á heljarþröm og verið haldið í byggð af opinberum sjóð- um og nú er svo komið að fyrir- tæki á þessum stöðum eru lýst gjaldþrota eða löngu orðin ófær um að standa undir rekstri. Enn er þessum stöðum haldið uppi þótt grundvöhur fyrir rekstri á þeim sé löngu fyrir bí. Og hvaðan kemur svo fé til þess að halda þessum vítahring lokuð- um? í fyrsta lagi hefur þjóöin að und- anfömu húið við ytri hagsæld. Er- lendis hefur verð á afurðum henn- ar stöðugt hækkað, en öhum hlýtur að vera ljóst að það gat ekki gengið endalaust. I öðru lagi af erlendu lánsfé, sem heldur ekki getur gengið endalaust. Og í þriðja lagi með því að blóð- mjólka framleiðslufyrirtækin, sem eiga að standa undir thveru þjóðar- innar, bæði með launakröfum og álögum af opinberri hálfu. Eftir margra ára hagsæld á öhum sviðum, bæði hérlendis og erlendis, þolir þjóðin ekki smááfóll nema aht hrynji. Enda virðist nú komið að þeim skuldadögum sem við eðlilegar að- stæður mátti búast við fyrir ára- tugum. Benedikt Gunnarsson „En þessi þjóð krefst þess að undir- stöðuatvinnugreinum, sem hún byggir lífsafkomu sína á, sé dreift um allar þorpagrundir.“ Víman gefur lífinu lit Fyrir skömmu rak á fjörur mínar bækhng sem nefnist Fíkniefni - frá fikti th dauða, sem tjáist vera upp- lýsingarit frá lögreglunni en ætlaö foreldrum. Við yfirlestur snephs- ins hnaut ég m.a. um eftirfarandi setningu: „Þaö er ahtaf einhver brestur í lifi þeirra einstakhnga sem leiðast út í óreglu og fikniefna- neyslu.“ Hér er mælt af mikhh ábúð en eigi htihi grunnfæmi þeg- ar á það er htið að frá örófi alda hafa hin ýmsu vímu- og nautnaefni verið forunautar mannsins og gefið honum einbeitni í dagsins önn, styrk í mótlæti, gleði á góðum stundum og síðast en ekki síst; andlega upphafningu til hvers kon- ar listsköpunar. Trúaratriði Ég hygg þó að það sé th lítils að reyna að koma hehaþvegnum SÁÁ- og AA-sjúklingum í skhning um þessi sannindi, enda virðist það vera trúaratriði í þeim herbúöum að thgangurinn helgi meðahð og sárahtlu máh skipti hvað sé satt og hvað logið. Trúlega eiga framan- greind sannindi heldur ekki upp á pahborðið hjá hinum ýmsu sér- menntuðu vandamálafræðingum sem margir hverjir virðast húa til flókið og viðamikið vandamál úr hverju og einu úrlausnarefni sem þeir koma nærri - að ekki sé talaö um ómenntaða eða httinenntaða einstaklinga 1 vandamálaþjón- ustunni. Ber hér þó að gæta þess að þar sem þessir menn hafa lifi- brauð sitt af því að leysa vandamál (önnur en sín eigin) er þeim nokkur vorkunn þótt þeir reyni heldur að fiölga atvinnutækifærum sínum. í bók dr. Þorkels Jóhannessonar, Lyfjafræði miðtaugakerfisins, sem hann hóf að rita „í Herdísarvík 10.8. 1982 í þeim dýrðarheimi sem þar er,“ segir orðrétt: „Áhrif vímugjafa á skáld, rithöfunda og ýmsa hst- menn og verk þeirra eru í senn ákaflega áhugaverð og óþijótandi KjaUarinn Guðmundur Sigurður Jóhannsson æviskrárritari rannsóknarefni.“ Ahir þeir sem kunnugir eru poppsögu vita að bróðurparturinn af fremstu popp- og rokkhstamönn- um sögunnar var og er dreifður við neyslu margs konar vímugjafa. Nægir þar að nefna meðhmi hljóm- sveitarinnar Rohing Stones með Mick Jagger í broddi fylkingar, Jim Morrison, Eric Clapton, Jimi Hendrix, Janis Joplin og Bob Mar- ley. Margt af þessu fólki lést á góð- um aldri og var ofneyslu vímuefna kennt um en einhvem tíma hefði það dáið hvort eð var og þegar upp er staðið hygg ég að nýtingin á hf- inu vegi þyngra en lífslengdin. Með fullri virðingu fyrir langlífi hallast ég að því að lífsreynsla, velhðan um lífsstimdardaga og afrakstur lífshlaupsins, metinn í gæðum en ekki endilega magni, sé ekki síður mikhs verður en langlífið - en allt þetta munu þeir sælu hljómhstar- menn hafa uppskorið í ríkum mæh. Jónas Hahgrímsson, listaskáldiö góða, túlkar þetta sjónarmið á mjög áhrifaríkan hátt í eftirmælum um séra Stefán Pálsson, aðstoðarprest á Hofi í Vopnafirði, en þar segir m.a.: „Margoft tvítugur meir hefir lifað, svefnugum segg er sjötugur hjaröi." Staðreynd Það er eftirtektarverð staðreynd að þau ljóðskáld, sem við íslending- ar höfum eignast best, voru að miklum hluta th vínhneigð og drykkfehd í meira lagi. Skal þar nefna Bjarna Thorarensen, Sigurð Breiðfjörð, Jónas Hahgrímsson, hstaskáldið góða, Pál Ólafsson, Kristján Jónsson Fjahaskáld, Hannes Hafstein, Einar Benedikts- son', Jóhann Siguijónsson, Davíð Stefánsson og Stein Steinarr. Við þessa upptalningu má svo bæta okkar fremsta ljóðaþýðanda, Magnúsi Ásgeirssyni. Þetta háa hlutfah áfengisneyt- enda í íslenskri skáldastétt er ekki svo torskilið þegar þess er gætt að áfengisáhrifin auka hugarflugið. (Sbr. Alfræðisafn AB, Lyfin, Rvík, 1968, bls. 36). Slíkt hið sama gera fleiri vímugjafar, svo sem hass og amfetamín. Það virðist sem sagt vera ómótmælanleg staðreynd, hvað svo sem bhndir menn segja, að vímugjafar leysa oft og tíðum úr læðingi þau öfl í neytandanum sem auðvelda honum hstsköpun. Menn skyldu því sjá sóma sinn í þvi að láta vímuefnin og neytendur þeirra njóta sannmæhs í stað þess að flýja raunveruleikann með þvi aö afneita ghdi vímunnar fyrir mannsandann. Vel við skál Nú í sumar dvaldist ég um skeið í Reykjavík. Eitt fóstudagskvöld gekk ég niður í miðbæ um lágnætt- ið og virti fyrir mér mannlífið. Þama var fjöldi fólks á ferh, mest- megnis unghngar en einnig nokkuð af fuhorðnu fólki. Flestir voru vel við skál og einstaka maður virtist hafa eitthvað fleira gott í poka- horninu. Ahir voru glaðir og kátir og virtust skemmta sér hið besta. Mér varð gengið út í Hljómskála- garð þar sem ég settist við styttuna af Jónasi Hahgrímssyni. Ég leit upp á styttuna og hugsaði með mér: „Mikið held ég nú að íslensk tunga væri fátækari af skáldperlum ef þú hefðir aldrei auðgað anda þinn við nautn áfengra drykkja." Mér fannst eins og styttan kinkaði kohi í kvöldkyrrðinni en í fjarska heyrð- ust nokkrir unglingar raula vel þekkt stef eftir Jim Morrison. Guðmundur Sigurður Jóhannsson „Þetta háa hlutfall áfengisneytenda í íslenskri skáldastétt er ekki svo torskil- ið þegar þess er gætt að áfengisáhrifin auka hugarflugið.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.