Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1992, Page 26
38
MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1992.
Fréttir
Strandasýsla:
Á fjórða þúsund
líf lömb seld
Guðfinnur Pinnbogason, DV, Hólmavík;
Síðustu daga hafa bændur frá
svæðum þar sem sauðfé hefur verið
skorið niður vegná riðuveiki verið í
fjárkaupum í Strandasýslu. Flestir
hafa þeir komið frá Austurlandi,
nokkrir úr Húnavatns- og Skaga-
fjarðarsýslum, færri annars staðar
frá.
Samfelld sala líflamba hefur verið
úr sýslvmni frá 1986 til staða vítt og
breitt um landið og mest hin síðustu
haust. Seld hafa verið lítlömb úr öll-
um hreppum sýslunnar nema Kald-
rames- og Bæjarhreppum.
í haust voru seld um 1600 lömb úr
Broddaneshreppi sem er um helm-
ingur þess sem selt er úr sýslunni.
Að þessu sinni er allt flutt á bílum
og þrátt fyrir langar leiðir hafa flutn-
ingar gengið vel enda veðurfar afar
hagstætt um þessar mundir. Seljend-
ur lambanna segja þau heldur léttari
en undanfarin haust og kenna um
júníhreti og köldu síðsumri með
hrakviðrum.
Austfirðingar í fjárkaupum í Strandasýslu. Frá vinstri Friðrik Ingólfsson,
faöir hans Ingólfur Gunnarsson frá Valþjófsstað, og Sigurður Aðalsteinsson
á Vaðbrekku. DV-mynd Guðfinnur
&
ÚTILJÓS
- MEÐ VAKANDI AUGA -
Steinel útiljós skynja með innrauðum nema alla hreyfingu fólks
og kveikja Ijós, þetta er mjög ánægjulegt þegar komið er heim í
myrkri og til hagsbóta fyrir t.d. blaðburðarfólk. Einnig fælir útiljós-
iö burtu óboðna gesti.
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
HEILDSÖLUDREIFING OG SALA
Skeifunni 11 d - sími 686466
AÐRIR ÚTSÖLUSTAÐIR
HÚSASMIÐJAN
Súðarvogi 3-5 -Skútuvogi 16
Menning
Atriði úr byrjun myndarinnar þegar Jack Ryan (Harrison Ford) heffur lent óviljandi í átökum við hryðjuverka-
menn.
Háskólabíó - Háskaleikir: ★★★
Til bjargar krúnunni
Harrison Ford hefur tekið við af Alec Baldwin og
leikur söguhetju metsöluhöfundarins Tom Clancy,
Jack Ryan í Háskaleikjum (Patriot Games), en Baldw-
in lék hann í hinni ágætu spennumynd The Hunt For
Red October. Háskaleikir er ekki síðri mynd og passar
Ford mun betur inn í persónuna og verður Ryan trú-
veröugri í meðförum hans.
Eins og oftast í bókum Clancy eru það stjómmál sem
eru undirstaöa spennufrásagnarinnar. í þessu tilfelli
er það írski lýðveldisherinn sem spjótunum er beint
að. Þegar myndin hefst er Jack Ryan í fríi í London
ásamt konu og dóttur. Hann verður vitni þegar aðfór
er gerö að konungbomum írlandsmálaráðherra
bresku krúnunnar. Meðfæddur skilningur hans á at-
burðum sem þessum og reynsla hans á vettvangi þeg-
ar hann starfaði fyrir CIA gerir það að verkum að
hann bjargar lífi ráðherrans og drepur einn hryðju-
verkamanninn, en særist sjálfur í leiðinni.
Forsprakki hópsins næst en þaö var bróöir hans sem
Ryan drap. Sá leggur þegar mikið hatur á Ryan og
þegar vinum hans tekst að bjarga honum í blóðugri
aðgerð er það hans eina takmark að útrýma Ryan og
fjölskyldu hans. Litlu munar að þessi áform hans tak-
ist í fyrstu tilraun en Ryan og eiginkonan sleppa meö
lítil meiðsh en dóttir særist mikið. Ryan, sem hafði
hætt hjá CIA, býður sig til starfa og byrjar leit að
hryðjuverkamönnunum.
Háskaleikir er ekki aðeins geysispennandi kvikmynd
heldur er hún sérlega vel gerð og það sem gerir hana
kannski meira viröi en margar aðrar álíka myndir er
að þrátt fyrir skáldskapinn er raunsæi í atburða-
rásinni.
Auðvitað eru einstaka atriði ýkt, til að mynda báta-
senan í lokin, en írski lýöveldisherinn er til og hann
nýtur aðstoðar araba við þjálfun og fleira mætti til
taka sem gerir myndina sannfærandi. Aftur á móti er
vafasamt hvort persónulegt hatur eins skæruhða geti
orðið til þess að málstaðnum er fómað.
Háskaleikir er fyrst og fremst góð skemmtun. Leikur
er allur til fyrirmyndar. Það er ekki aðeins Harrison
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Ford sem stendur sig með prýði. Patrick Bergin og
Sean Bean eru báðir sannfærandi í hlutverkum for-
sprakka hryðjuverkamannanna.
Þá hefur myndin mannlegt yfirbragð þegar högum
Ryan íjölskyldunnar er lýst, en þaö er óvanalegt í
spennumyndum þar sem mikið er lagt í hasarinn.
Þessi mannlega kennd hlýtur að skrifast á hinn ágæta
ástralska leikstjóra Phiíip Noyce sem hefur hæði
reynslu í gerð spennumynda (Dead Calm) og drama-
tískra mynda (Newsfront og Heatwave).
HÁSKALEIKIR (PATRIOT GAMES)
Leikstjóri: Philip Noyce.
Handrit: W. Peter lliff og Donald Stewart eftir skáldsögu Tom
Clancy.
Kvikmyndun: Donald M. McAlpine.
Tónlist: James Horner.
Aðalhlutverk: Harrison Ford, Anne Archer, Patrick Bergin,
James Fox, James Earl Jones og Riqhard Harris.
Popp
Sophie B. Hawkins - Tongues and Tails
Frambærilegt
en ósamstætt
Sophie B. Hawkins er bandarísk söngkona sem vak-
ið hefur á sér athygh að undanfómu með lögunum
Damn I Wish I Was Your Lover og Caiifornia Here I
Come; bæði mjög svo frambærileg, grípandi rokklög,
hæfilega óhefluö en um leið vönduð og vel flutt. Þessi
lög er bæði að finna á plötunni Tongues and Tails
ásamt níu öðrum en þau gefa hins vegar ekki fyllilega
rétta mynd af plötunni því önnur lög hennar eru flest
mun þyngri tónsmíðar sem þurfa meiri aðlögun en
þessi tvö lög.
Að sumu leyti virðist Sophie B. Hawkins sækja fyrir-
mynd sina til Madonnu og hennar líka en einnig virð-
ist hún 6ækja áhrif til psychadelískrar tónlistar, eins
og heyra má í nokkrum lögum, þar á meðal í magn-
aðri útsetningu á gamla Bob Dylan laginu I Want
You. Annars eru lögin á plötunni úr ýmsum áttum
hvað varðar stfl og stefnu og ljóst að Sophie á eftir að
finna sína hillu; hún virkar mjög leitandi á þessari
plötu.
Áöumefnt Dylan-lag er eina lag plötunnar sem ekki
er eftir Sophie sjálfa og Sophie B. Hawkins skipar sér
þar með í þann flokk bandarískra tónlistarkvenna sem
semja sína tónlist sjálfar og texta líka og með þessari
plötu hlýtur hún að komast í úrvalsflokk því auk þess
að sanna sig sem frambærilegan laga- og textasmiö
Hljómplötur
Sigurður Þór Salvarsson
er hún líka flmagóð söngkona með fjölbreytilega túlk-
un og kraftmikla rödd.
Af framansögðu má ráða að Tongues and Tails er
nokkuð athyghsverð plata en hún liður þó fyrir mis-
jafnar lagasmíðar og skort á heildarsvip.