Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1992, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1992, Qupperneq 24
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1992. Kannski þá... Engin glansmynd Það er engin glansmynd af lífinu og tilver- unni sem gefin er í leikritinu Stræti, eftir Jim Cartwright. Loppa atvinnuleysis hefur lam- að og niðurlægt þá sem þar búa og kreist úr þeim alla von. Jim Cartwright reynir ekki að finna söku- dólga og negla þá upp á vegg. Honum nægir að sýna svipmyndir úr veruleika sem margir vilja helst loka augunum fyrir. Við kynnumst að vísu aðeins þeim hluta mannlífsflórunnar sem fer á kreik á kvöldin Og skríður í skjói þegar birtir af degi því að Scullery, sem leiðir áhorfandann um svæðið og blandar sér ósjaldan í gang mála, hann er jú sjálfur einn af þessum næturfuglum. Leikritið er sett saman úr fjölmörgum laus- tengdum atriðum þar sem áhorfandinn er leiddur um strætið. Og rétt eins og gægst sé á glugga birtast persónurnar, sumar í ör- stuttri svipmynd, en öðrum er gefið meira rúm. Leikmynd Grétars Reynissonar er af- bragðsgóð og lumar á mörgum möguleikum. Þessi umgjörð tryggir stöðugt rennsli og gef- ur svigrúm fyrir stórgerö atriði með hreyf- ingu og látum. En öðru hveiju skera fingerð eins manns atriði sýninguna. Þau njóta sín ekki síður og það eru einmitt þau sem kippa áhorfandanum óþyrmilega til vitundar um það hyldýpi örvæntingar sem undir niöri býr. Textinn er hrár og groddalegur, jafnvel svolítið geggjaður í bland, og persónumar vægast sagt mislitur hópur. Arni Ibsen nær flugi í þýðingunxú sem á stundum er ekki á neinu sunnudagaskólamáli. Sigur leikaranna Þrátt fyrir það lof, sem boriö hefur verið á sjálft leikritið, fannst mér úrvinnslan og þá einkum frammistaða leikaranna taka því fram og bera sýninguna uppi. Þeir Guðjón P. Pedersen leikstjóri og Hafliði Amgríms- son, aðstoðarmaður hans, hafa imnið fram- úrskarandi vel og eiga heiðurinn af sam- felldri og sterkri heildarmynd, jafnvel um- fram það sem í sjálfum textanum felst. En þaö byggist ekki hvað síst á túlkun leik- aranna sem spannar allan skalann. Þór H. Tulinius, Edda Heiðrún Backman, Kristbjörg Kjeld, Halldóra Björnsdóttir, Róbert Amf- innsson og Baltasar Kormákur koma öll fram í mörgum hlutverkum hvert, þau leika nokkrar gjörólíkar týpur hvert og fara iðu- Leiklist ^ L15" Eyds! iega á kostum. Búningar (Helga Stefánsdóttir) era mjög vel útfærðir eftir kröfum verksins og skapa sannfærandi andrúmsloft og andhtsförðun var áberandi vel unnin. Til að ná fram breyt- ingum á leikurunum voru líka notaðir listi- lega gerðir tanngarðar (Finnbogi Helgason) sem breyttu andiitsfalli ótrúlega. Þar er í raun ekki unnt að taka neinn öðr- um framar. Kristbjörg var þrisvar sinnum stórkostleg (Brenda, Molly, Helen), og það má nefna Louise og Valerie Eddu Heiðrúnar, Haildóra sem Carol og Clare, Róbert (pró- fessorinn, príma!), Baltasar og Þór sem skiptu um týpur eins og skó. Ingvar E. Sigurðsson var „alveg ýktur“ í lykilhlutverkinu sem skálkurinn Scullery sleipur og ófyrirleitinn og Katrín Þórarins- dóttir lék litla telpu vel. Þó að í Stræti sé dregin upp dapurleg mynd er fjarri því að ekki bregði fyrir kímilegum atriðum og fyndnum tilsvörum sem krydda textann og gera þetta allt saman þolanlegt fyrir íbúa og gesti í strætinu. Þjóðleikhúsið sýnir á Smíðaverkstæðinu: STRÆTI Höfundur: Jim Cartwright Þýðing: Árni Ibsen Aðstoðarmaður leikstjóra: Hafliði Arngrímsson Lýsing: Björn B. Guðmundsson Búningar: Helga Stefánsdóttir Leikmynd: Grétar Reynisson Leikstjóri: Guðjón P. Pedersen Sungið í Strætinu. Ingvar E. Sigurðsson, Kristbjörg Kjeld og Baltasar Kormákur í hlutverk- um sinum. DV-mynd GVA Grjót sem skraut - Ragna Róbertsdóttir 1 Nýlistasa&iinu Ragna Róbertsdóttir hefur fariö eigin leiðir í túlkun á íslensku landslagi á liðnum áram. Fyrir fimm árum var hún borgarlistamaður og sýndi ári síðar á Kjar- valsstöðum verk úr grágrýti og torfi sem virkuðu að sumu leyti eins og minnisvarðar um íslenska bygging- arhst. Byggingarfræðfiegar aðferðir s.s. hleðsla hafa verið áberandi þáttur í verkum Rögnu, en efnið er hins vegar ekki sérhannað fyrir byggingar. Á sýningu listakonunnar, sem nú stendur yfir í Nýlistasafninu, era verk úr hraungrýti og gúmmíi auk grágrýtis. Ragna sýndi fyrir ekki alls löngu á samsýningu í Þýskalandi sem Listasafnið í Bem stóð fyrir og flutti með sér fjórtán tonn af íslensku grjóti. Safnstjórinn, Markus Lindert, ritaði af því tilefni grein um „tvö leið- arminni" í verkum Rögnu og hggur þýðing hennar frammi á sýningunni í Nýlistasafninu. Fagurfræði og rökfræði Markus Lindert kemst að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að spameytni lágmarksstefnunnar (minimal- isma) gæti í verkum Rögnu, séu markmið hennar og nálgun við efnið talsvert önnur, ólíkt hreintrúuðum naumhyggjumönnum noti hún ekki tilbúinn og verk- smiðjuframleiddan efiiivið, heldur láti saga grjótið sérstaklega til fyrir sig. Ennfremur beiti Ragna tilfinn- ingu, innsæi og fagurfræðUegu mati við samsetningu verka sinna í stað stærðfræðilegrar rökhugsunar sem einkennir minimaUsta. Svo skýr greinarmunur á fag- urfræðUegri innsetningu og rökfræðUegri er athygUs- verður, því hér er um að ræða verk sem kunna að vera áþekk á yfirborðinu þó í raun sé grandvaUarmun- ur á afstöðu Ustamannanna. Hin fagurfræðUega af- staða fylgir módemismanum sem hefur ráðið ferðinni alla öldina, en rökfræðUega afstaðan helst hins vegar í hendur við póstmódemismann sem andmælir framf- arahyggju módemismans og telur hana jafnvel hlægi- lega. Stuðlaberg og skreytilist Hvað sem þyí Uður má finna vel útfærða fléttu þess- ara meginþátta nútimamyndUstar í verkum Rögnu Róbertsdóttur. Verkum hennar svipar í senn til verka minimalista og stuðlabergssúlna Guðjóns Samúelsson- ar. Og Markus Lindert bendir á að 1 raðmynstram höggmyndanna megi finna samsvörun við omament og aðra skreytilist fýrri alda. Með því að stöplamir Eitt verka Rögnu Róbertsdóttur á sýningu hennar í Nýlistasafninu. era alUr í sömu stærð myndast endurtekning innan verksins sem er einatt miðleit eða samhverf og minnir þannig óneitanlega á forsendur skreytiUstar, sem era vel aö merkja ekki skraut skrautsins vegna heldur að birta kjarna hlutanna. Vafalaust er þetta eitt af Myndlist Ólafur Engilbertsson markmiðum Ustakonunnar, þó uppsetning verkanna minni yfirleitt fremur á rökrænan myndheim bygging- arUstarinnar en trúarlegar mandölur. Þjóðlegar torf- þökumar hafa nú vUdð fyrir alþjóðlegu gúmmfi og tússi. Sýningin hefur þar af leiðandi grafískara og hreinna yfirbragð en sumar fyrri sýningar Ustakon- unnar. Gúmmfið sétur nauðsynlega mýkt í þessa hörðu og stöðluðu gijótveröld og gefur jafnframt til kynna tilfinningu og innsæi - módemíska myndsýn. Spuming er hins vegar hvort fléiri steintegundir eða önnur efni Jrljóti ekki að knýja dyra hjá Ustakonunni áður en grágrýtisnámumar verða gengnar til þurrðar. Sýningu Rögnu Róbertsdóttur lýkur nk. sunnudag, 11. október. Bridge_________________________________________________________ Undanúrslit Visa- bikarkeppninnar Fjórðu umferð í Visa-bikarkeppninni lauk sunnudaginn 4. október. Sveit Eiríks Hjaltasonar spilaði við sveit Gunnlaugs Kristjánssonar og vann Eiríkur með 122 impum gegn 60. Sveit Gísla HafUðasonar spUaði við sveit Sigfúsar Þórðarsonar og vann sveit Gísla með 89 impum gegn 63. Dregið var í fimmtu umferð, undanúrslitin að loknum síöasta leikn- um í fjórðu umferðinni og þær sveitir sem spUa saman næsta laugar- dag, 10. október, í undanúrsUtum Visa-bikarkeppni BSÍ era: Símon Símonarson-Eiríkur Hjaltason GísU Hafliöason-Suöurlandsvideo UndanúrsUtin og úrsUtin verða spUuð á Hótel íslandi og hefjast undan- úrsUtin klukkan 11 laugardaginn 10 október og úrsUtin klukkan 10 sunnudaginn 11. október. Leikimir verða sýndir á sýningartöflu. All- ir bridgeáhugamenn era velkomnir. Vetrar-mitchell BSÍ Föstudaginn 2. október vora 26 pör í Vetrar-MitcheU BSÍ. Efstir í NS urðu: 1. Jón Stefánsson-Sveinn Sigurgeirsson 370 2. Jón Þór Daníelsson-Þórður Sigfusson 362 3. Þórður Bjömsson-Bemódus Kristinsson 337 4. Ingunn Bemburg-HaUa Ólafsdóttir 334 - og efstir í AV urðu: 1. Guöný Guðjónsdóttir-Jón Hjaltason 371 2. Vilhjálmur Sigurðsson-Þráinn Sigurðsson 366 3. Andrés Ásgeirsson-Ásgeir Sigurðsson 357 4. EUn Jónsdóttir-Lilja Guðnadóttir 336 Vetrar-mitcheU er spUaður á vherju föstudagskvöldi í Sigtúni 9. AUtaf eins kvölds keppni og bronsstig veitt eftir hvert kvöld. Byrjað er að spUa klukkan 19 og allir era velkomnir. Bridgefélag Reykjavíkur Síðasta miðvikudag, 7. október, lauk Hipp-hopp tvímenningi Bridge- félags Reykjavíkur með öraggum sigri þeirra Sverris Ármannssonar og Karls Sigurhjartarsonar. Þeir félagamir voru í forystu aUt mótið og voru í lokin með 83 stiga forystu á næsta par. Lokastaða efstu para varð þessi: 1. Sverrir Ármannsson-Karl Sigurhjartarson 883 2. Aðalsteinn Jörgensen-Bjöm Eysteinsson 800 2. Sveinn Þorvaldsson-GísU Steingrimsson 800 4. Matthias Þorvaldsson-Ásmundur Pálsson 796 5. Sigurður Sverrisson-Valur Sigurðsson 779 6. Símon Símonarson-Sverrir Kristinsson 767 7. Hjálmar S. Pálsson-Jörundur Þórðarson 754 8. Bragi Erlendsson-Ámína GuðiaugsdQttir 750 -ís

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.