Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1992, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1992, Blaðsíða 26
34 FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1992. Afmæli Sigríður Ingimundardóttir Sigríður Ingimundardóttir húsmóð- ir, Bústaðavegi 89, Reykjavík, verð- ur 75 ára sunnudaginn 11. október. Starfsferill Sigríður fæddist á Ysta-Bæli, Austur-Eyjafjöllum, Rangárvalla- sýslu, og ólst þar upp. Hún er húsmóðir en hefur unnið ýmis störf utan heimilis, þar af lengst verið starfsmaður á rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg. Sigríður hefur verið virk í Rangæ- ingafélaginu frá því hún fluttist til Reykjavíkur og var einn af stofn- endum kvennadeildar félagsins. Hún var ennfremur formaður deild- arinnaríl2 ár. Sigríður hefur einnig starfað með Kvenfélagi Bústaðasóknar allt frá stofnun þess.og hefur allt frá unga aldri verið dyggur stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins og innt af hendi ýmis störf í hans þágu. Fjölskylda Sigríður giftist 29.10.1943 Jóni Stefánssyni, f. 28.10.1919, bílaviö- gerðarmanni, lengst af hjá Agli Vil- hjálmssyni. Hann er sonur Stefáns Bjarnasonar, b. í Stokkseyrarseli í Stokkseyrarhreppi í Árnessýslu, og Steinunnar Jónsdóttur, húsmóður þar. Börn þeirra eru: Stefán, f. 12.2. 1944, kvæntur Sigríði Sveinsdóttur, þau búa í Reykjavík og eiga fjögur börn; Ingiríður Karen, f. 18.10.1949, gift Þresti Eyjólfssyni, þau búa í Reykjavík og eiga þrjú börn; Bryn- dís.f. 30.5.1951, gift Agústi Inga Andréssyni, þau búa í Reykjavík og eiga þrjú börn; og Steinunn, f. 7.12. 1957, gift Halli Ólafssyni, þau búa í Reykjavík og eiga þrjú börn. Áður átti Sigríður Erlu Öskarsdóttur, f. 19.5.1938, gift Daníel Hafliðasyni, þau búa í Þykkvabæ í Rangárvalla- sýslu og eiga þrjú börn. Systkini Sigríðar eru: Elín, f. 16.9. 1914, d. 25.10.1987, fyrrv. húsmóðir, var gift Sæmundi Óskarssyni, b. á Eyri á Barðaströnd, og eignuðust þau fimm börn; Ólafur, f. 22.7.1919, kvæntur Magnúsínu Sveinsdóttur, búsett í Reykjavík og eiga fimm börn; Kristbjörg, f. 27.2.1925, gift Ólafi Long, búsett í Reykjavík og eiga þrjú börn; og Sveinbjörn, f. 1.9. 1926, kvæntur Eygló Markúsdóttur, búsett á Ysta-Bæli, Austur-Eyjafjöll- um, og eiga sjö börn. Foreldrar Sigríðar voru Ingi- mundur Brandsson, f. 9.8.1889, d. 16.7.1973, b. í Ysta-Bæli, Austur- Eyjafiöllum, Rang., og Ingiríður Eyjólfsdóttir, f. 19.6.1889, d. 25.8. 1968, húsmóðir. Foreldrar Ingimundar voru Brandur Ingimundarson frá Langa- gerði í Hvolshreppi og Guðrún Jóns- dóttir frá Kotvogi í Höfnum. Foreldrar Ingiríðar voru Eyjólfur Sveinsson frá Stóruborg og Sigríður Helgadóttir frá Skálholti. Sigríður tekur á móti gestum í Sigríður Ingimundardóttir. Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1 í Kópavogi, 3. hæð, laugardaginn 10. október á milli kl. 17 og 19. 85 ára Helga Jóhannesdóttir, Höfðavegi 39, Vestmannaeyjum. Jóhanna Þorvaidsdóttir, Nóatúni 26, Reykjavík. 80ára Guðhjörg Gísladóttir, HóIavangil6,Hellu. Steinar verður að heiman á afmæl- isdaginn, Halldóra Ólafsdóttir, Sjávargrund 15, Garöabæ. Birna S. Kristjónsdóttir, Stórhólsvegi 5, Dalvík. Guðrún Steingrímsdóttir, Bollastöðum, Bólstaðarhlíðar- hreppi. EirikurÞorkelsson, Skeljagranda2, Reykjavík. Eiríkur verður aö heiman á afmæl- isdaginn. 75ára Hörður Kristófersson, Kópavogsbraut lb, Kópavogi. Friðgerður Friðriksdóttir, Bústaðavegi 77, Reykjavík. 70 ára Brynjólfur Magnússon, Bergþórugötu41, Reykjavík. Brynjólfurtek- urámótigest- umáheimili dóttursinnar, Svarthömrum 9,Grafarvogi, eftirkl. 17ídag. Jónasína Pétursdóttir, Uppsalavegi 18, Húsavík. Ása G. Norðdahl, Langholtsvegi 172, Reykjavík. Jón Már Richardsson, Heiöargerði 8, Reykjavík. Jón tekur á móti gestum í sal Stangaveiðifélagsins í Austurveri á milli kl. 19 og 21 á afmælisdaginn. Guðmundur Davíðsson, Lækjargötu8, Siglufirði. Ilda Martins de Almeida, Köldukinn 21, Hafnarfirði. Sigrún Margrét Einarsdóttir, Klettum, Gnúpverjahreppi. Rannveig Pálsdóttir, Fannarfelh 2, Reykjavik. 60ára Garðar Þorgrímsson, Selnesi 32, Breiðdalshreppi. Helgi Kristján Vigfússon, Höfðabrekku 10, Húsavík. Steinar S. Waage, Kríunesi 6, Garðabæ. Líney Traustadóttir, Svarfhóli, Stafholtstungnahreppi. Lárus Sigmundsson, Silungakvísl 17, Reykjavík. Bertha Kristín Jónsdóttir, . Fiskakvísl 14, Reykjavik. Sigþrúður Sigurðardóttir, Álakvlsl 55, Reykjavik. Bjöm Sveinsson Björn Sveinsson tamningamaður, Varmalæk II, Varmahlíð, verður fertugur á morgun, 10. október. Starfsferill Björn fæddist að Stóru-Ökrum í Blönduhhð en fluttist ungur að Varmalæk og ólst þar upp. Um tví- tugt tók hann við búskapnum og stundar þar nú aðallega hrossarækt. Hann starfar sem tamningamaður en hefur þó ennfremur réttindi sem reiðkennari. Frá árinu 1974 hefur Bjöm verið með ferðaþjónustu á Varmalæk á sumrin sem aðallega felst í hestaleigu og hestaferðum yfirhálendið. Fyrir nokkrum árum stofnaði Björn fyrirtækið Hestasport ásamt Magnúsi Sigmundssyni og felst starfsemin aðallega í þessum hesta- ferðum og sýningum á hrossum á Vindheimamelum. Björn hefur ennfremur sungið í mörg ár með karlakórnum Heimi í Skagafirði, þá bæði einsöng og með kórnum. Fjölskylda Björn er í sambúð með Sólveigu Sigríði Einarsdóttur, f. 4.5.1966, tón- listarmanni. Hún er dóttir Einars Höskuldssonar, f. 28.11.1939, og Bryndísar Júlíusdóttur, f. 28.4.1945, sem búa á Mosfelli í Húnavatns- sýslu. Bjöm og Sólveig eiga þrjá syni, þeir eru: Einar Bjarni, f. 24.6.1989; Höskuldur Sveinn, f. 14.5.1990, og Gunnar Sigfús, f. 8.12.1991. Systkini Björns era: Lovísa, f. 23.12.1950, húsmóðir á Varmalæk, og á hún fjögur börn; Jóhann Pétur, f. 18.9.1959, lögfræðingur í Reykja- vík, kvæntur Jóninnu Hörpu Ing- ólfsdóttur skrifstofumanni; Gísh, f. 27.12.1960,'smiður, með ferðaþjón- ustu að Leirubakka, kvæntur Ástu ÓMsdóttur húsmóður og eiga þau tvær dætur; Sigríður, f. 27.12.1960, nuddfræöingur, gift Smára Borgars- syni, sláturhússtjóra Slátursamlags Skagfirðinga á Sauðárkróki, og eiga þau þrjú börn, og Ólafur Stefán, f. 7.3.1966, innkaupastjóri í Pennan- Björn Sveinsson. um, ókvæntur og barnlaus. Faðir Björns var Sveinn Jóhanns- son, f. 6.6.1929, d. 17.9.1987, b. á Varmalæk, og móðir hans er Herdís Björnsdóttir, f. 23.12.1925, verslun- armaður á Varmalæk. Björn verður erlendis á afmælis- daginn. Bjami Guðjónsson Bjarni Guðjónsson eftirlitsmaður, Laugarásvegi 65, Reykjavík, verður sextugur á morgun, 10. október. Starfsferill Bjami fæddist í Reykjavík og ólst upp í austurbænum. Hann varð vél- virkjameistari árið 1960 og lauk síð- an iðnkennaranámi 1965. Frá 1965-74 starfaði Bjarni sem eftirlitsmaður hjá Hitaveitu Reykja- víkur en fór þá yfir til Iðntækni- stofnunar íslands þar sem hann vann bæði við eftirlits- og kennslu- störf til ársins 1980. Frá árinu 1980 hefur hann verið eftirlitsmaður hjá Landsvirkjun. Fjölskylda Bjarni kvæntist 31.10.1953 Ást- hildi Guömundsdóttur, f. 1.3.1934, húsmóður. Hún er dóttir Guðmund- ar Þorkelssonar og Gyðu Briem. Bjarni og Ásthildur eiga tvö börn, þau eru: Guðmundur, f. 11.4.1953, fiskverkandii Reykjavík, kvæntur Maríu Clöru Alfreðsdóttur og eiga þau tvær dætur, og Gyða, f. 29.3. 1960, læknir í Svíþjóð, gift Skúla Þ. Ingimundarsyni og eiga þau tvo syni. Systkini Bjarna eru: Halldór, f. 27.4.1939, stærðfræðingur og dós- ent, kvæntur Mary T. Guðjónsson húsmóður og eiga þau tvö börn; Guðrún, f. 12.2.1943, d. 1983, kenn- ari og átti hún tvö börn; Þorbjörn, f. 12.2.1943, hagfræðingur, kvæntur Margréti Svavarsdóttur og eiga þau tvo syni, og Jóna, f. 27.7.1949, hús- móðir, gift Sigurði Haraldssyni og eigaþautvöböm. Bjami er sonur Guðjóns Guð- mundssonar, f. 11.7.1910, bifreiða- Bjarni Guðjónsson. smiðs og Ólafar Bjamadóttur, f. 8.10. 1907, d. 15.4.1983, húsmóður. Bjarni og Ásthildur verða erlendis á afmælisdaginn. Anna Guðrún Halldórsdóttir Anna Guðrún Halldórsdóttir hús- móðir, Aðalbraut 4, Drangsnesi, verður sjötugþann 11. október næstkomandi. Fjölskylda Anna Guðrún fæddist í Bæ I í Kaldrananeshreppi og ólst upp á sama stað. Hún lauk barnaskóla á Drangsnesi. Árin 1939-40 var hún við nám í húsmæðraskólanum á Staðarfelli. Hún gifitist 25.10.1942 Höskuldi Bjamasyni, f. 11.5.1911, sjómanni og verkamanni. Hann er sonur Bjama Guðmundssonar og Jó- hönnu Guðmundsdóttur, ábúenda á Klúku í Bjamarfirði. Anna Guðrún og Höskuldur eiga sjö börn, þau em: Gunnhildur, f. 24.6.1941, gift Erling B. Ottóssyni frá Borðeyri og eiga þau tvo syni; Jó- hanna, f. 21.2.1943, gift John Larsen frá Danmörku og eiga þau tvö börn; Bjamveig, f. 5.8.1946, giftRagnari Sigurbjömssyni frá Borgarfirði eystra og eiga þau þrjár dætur; Frið- geir, f. 31.7.1947, kvæntur Sigur- björgu Halldórsdóttur frá Hrófbergi og eiga þau tvö börnf Anna Guðrún, f. 4.10.1949, gift Guðmundi Ingvars- syni frá Ásum og eiga þau tvo syni; Auður, f. 14.9.1952, gift Jóni A. Magnússyni frá Innra-Ósi og eiga þau fjögur börn, og Halldór, f. 30. Í0. 1958, kvæntur Sunnu Einarsdóttur frá Hólmavík og eiga þau tvö böm. Systkini Önnu Guðrúnar era: Tómas Kristofer, kvæntur Jónu Tryggvadóttur; Guðmundur, kvæntur Rögnu Guðmundsdóttur; Unnur, d. 1965; Jóhann Gunnar; Ármann, kvæntur Evu Jónsdóttur, og Guðlaug Ólafsdóttir (fóstursyst- ir), gift Jóni Cleon Sigurðssyni. Foreldrar Önnu Guðrúnar vom Halldór Guðmundsson, f. 1.10.1897, d. 13.2.1975, b. í Bæ I, Selströnd, Kaldrananeshreppi, og Guðrún Petrína Árnadóttir, f. 27.1.1894, d. 29.6.1974, húsmóðir. í tilefni af 70 ára afmælinu og 50 ára brúðkaupsafmæli þann 25. okt- óber verður tekið á móti gestum í Samkomuhúsinu Baidri, Drangs- nesi, laugardaginn 10. október frá kl. 15til 19. Anna Guðrún Halldórsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.