Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1992, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1992, Síða 23
KARLINN I TUNGLINU laugardagur; 10: öktöéer mt 23 Hinn landskunni skemmtikraftur, Jörundur Guðmundsson, fer nú af stað aftur með þáttinn, "í Hjarta Borgarinnar!". Að þessu sinni færist þátturinn nær hjarta borgarbúa en áður þar sem hann verður í beinni útsendingu frá húsi okkar allra, Ráðhúsi Reykjavíkur. Alla sunnudaga í vetur blæs Jörundur til leiks kl. 14:00 og standa þættirnir yfir í tvær klst. í Hjarta Borgarinnar er skemmtiþáttur, byggður á léttleikandi viðtölum, lifandi tónlist, gamanefni og spurningakeppni á-milli tveggja stórfyrirtækja. Jörundi til halds og trausts verður sjálft Borgarbandið. Grínararnir góðkunnu, Magnús Ólafsson og Pálmi Gestsson fara á kostum og bregða sér í hin ýmsu gervi. "Eddi Fiskur" kemur á staðinn auk þess sem þeir félagar fara með stórskemmtilegar gamanvísur. Öll fjölskyldan er velkomin í Ráðhúsið til að fylgjast með beinni útsendingu frá fjörugum spurningaleikjum, viðtölum við þekkta íslendinga, lifandi tónlist, gestasöngvurum og óvæntum uppákomum. Ráðhúskaffi, kaffiterían í Ráðhúsinu er opin almenningi á sunnudögum sem og aðra daga. GRANDI HF & EIMSKIP ...etja kappi í þœttinum á morgun. Komið og hvetjið ykkar lið til sigurs! Kristinn Svavarsson - saxafónar Carl Mpller - píanó Ámi Scheving - bassi Birgir Baldursson - trommur Einar Bragi Brgason - saxafónar Landsbanki íslands Banki allra landsmanna býður okkur upp á þáttinn "í Hjarta Borgarinnar! " á morgun. Almenningur er velkomin í Ráðhúsið á meðan á útsendingu stendur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.