Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1992, Síða 29
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1992.
41
Eric Clapton
tekur úr sambandi
Paul McCartney varð fyrstur til að
taka úr sambandi. Síðan kom Mariah
Carey og loks Eric Clapton. Öll hafa
þau komið fram í þætti Unplugged
MTV músíksjónvarpsins og síðan
sent frá sér plötur sem heita Unpl-
ugged. Og aÚar hafa þessar plötur
slegið í gegn.
Unplugged plata Eric Claptons er
meðal fimm vinsælustu víða um
heim um þessar mundir; í Bretlandi,
Bandaríkjunum, Kanada, Þýska-
landi, á íslandi og víðar. Og lagið
Layla, sem er á plötunni, hefur slegið
í gegn að nýju. Hér á landi er þetta
rúmlega tveggja áratuga gamla lag
mjög vinsælt þessa dagana og er ný-
komið út á lítilli plötu í Bandaríkjim-
um. Þar er Laylu spáð góðu gengi.
Formúlan að baki Unplugged plöt-
unum er afslappað andrúmsloft og
lítiö af rafmögnuðum hljóðfærum.
Listamennimir fá góða vini sína til
að spila með sér ýmiss konar tónlist
allt að því af fingrum fram. Á plötun-
um er alls konar tóniist. Gömul
uppáhaldslög listamannanna og
nýrri lög í bland. Mariah Carey kom
til dæmis gamla Jackson Five-laginu
I’ll Be There í hæstu hæðir vinsælda-
lista fyrir nokkrum vikum.
Eric Clapton blandar saman gömlu
og nýju á sinni Unplugged plötu.
Nýju lögin eru til dæmis Signe og
Lonely Stranger. Vafamál er hvort
flokka á Tears In Heaven sem nýtt
lag eða gamalt. AUtént hefur það
komið áður út á plötu. En meðal
gömlu laganna má nefna Laylu, Be-
fore You Accuse Me, Running On
Faith og Nobody Knows You When
You’re Down And Out svo að nokkur
séu nefnd.
Clapton fékk nokkra gamla kunn-
ingja og samstarfsmenn til margra
ára til að spila með sér á Unplugged.
Andy Fairweather Low er mættur
með gítarinn, Nathan East leikur á
bassa og syngur bakraddir, Ray Co-
oper sér um áslátt og Steve Ferrone
er við trommusettið. Chuck Leavell
leikur á hljómborð, Katie Kissoon og
Tessa Niles syngja bakraddir. AUt er
þetta vel þekkt fólk sem ræður viö
allar gerðir tónhstar, hvort sem það
spilar með Rolling Stones á hljóm-
leikaferð eða bara með Eric Clapton
í rólegheitunum í sjónvarpsþætti.
Eric Clapton, rólegur og úr sambandi aö þessu sinni.
Eddie Kendricks, einn stofnenda Things You Do, Since I Lost My
söngsveitarinnar Temptations, lést Baby og My Girl sem sló í gegn aö
síöasta mánudag. Hann varö 52 nýju fyrir nokkru.
ára. Banamein hans var krabba- Eddie Kendricks hætti í Tempt-
mein. ations á áttunda áratugnum og
Kendricks setti mikinn svip á reyndi eftir það fyrir sér einn síns
Temptations.Hannvarsöngvarinn liös. Hann kom laginu Keep On
með báu röddina. Sá sem segja má Truckin’ í fyrstasæti vinsældalista
að hafigefið sveitimu aðaleihkenni í Bandaríkjunum og sömuleiðis
sitt. Meðal þekktra laga Temptati- varð Boogie Down vinsælt.
ons eru The Way You Do The
%
Helgarpopp
Islandica: Starfsvettvangurinn er fyrst og fremst á erlendri grund.
íslensk þjóðlagatónlist til Bretlands:
íslandica með
hljómleika í
Barbican Center
Þjóðlagahljómsveitin íslandica
hefur þekkst boð um að halda hfjóm-
leika í Barbican Center í London um
miöjan næsta mánuð. Starfsvett-
vangur hljómsveitarinnar er fyrst og
fremst á erlendri grund.
„Við vorum að spila á Scottice há-
tíðinni í Glasgow sem borgaryfirvöld
þar stóðu að í sumar ásamt Reykja-
víkurborg. Þangað kom maður frá
Barbican Center að áeggjan Jakobs
Magnússonar menningarfvdltrúa.
Eftir að hann hafði heyrt í okkur
fengum við boð um að spila þama
og þáðum það náttúrlega," segir Gísli
Helgason.
íslandica verður eina hljómsveitin
Umsjón ,
Ásgeir Tómasson
á dagskránni og heldur þar af leið-
andi hljómleika í fullri lengd, mn
hálfa aðra klukkustund. í hljóm-
sveitinni eru auk Gísla Herdís Hall-
varðsdóttir, Ingi Gunnar Jóhanns-
son og Guðmundur Benediktsson.
Þegar þörf er á slagverksleikara
slæst Ásgeir Óskarsson í hópinn.
íslandica hefur starfað í um það
bil sex ár. Hún hefur farið víða um
lönd og haldiö hljómleika. íslensk
þjóðlög eru fyrst og síðast á dag-
skránni. Gísli Helgason segir að
hljómsveitin haldi sig við gömlu út-
setningamar, „en jafnframt spilum
við tónlistina eins og við viljum hafa
hana. Útkoman er því íslenskt þjóö-
lagarokk.”
Tvö ár em liðin síðan plata ís-
landicu, Rammíslensk, kom út. Plat-
an hefur selst í um átta þúsund ein-,
tökum hér á landi. Hún hefur aö
auki verið gefin út í Bretlandi og
Þýskalandi og þessa dagana er verið
að markaðssefja hana í Bandaríkjun-
um.
Aðalsteinn Ásberg og Anna Pálína senda frá sér plötu:
Vísnatónlist með
djass- ogblúsívafi
„Það em sennilega liðin tíu ár
síðan ég fór að huga að minni eigin
plötu,“ segir Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson, skáld og tónlistarmað-
ur. „Ég var þá að spfia með Hálft
í hvom og var kominn með nokkuð
af aukaefhi sem ekki stóð til að
nota á plötum hljómsveitarinnar.
Síðan er ég margoft búinn að end-
umýja þær birgðir og á endanum
komst ekki nema eitt lag meö sem
ég hafði upphaflega í huga.“
Aðalsteinn Ásberg og kona hans,
Anna Pálína Ámadóttir, em þessa
dagana að senda frá sér plötuna Á
einu máli. Á henni em fjórtán lög,
þar af fimm eftir Aðalstein. Textar
em allir eftir hann, ýmist frums-
amdir eða þýddir, nema textinn við
Maístjömu Laxness. Maístjaman
er ekki sungin að þessu sinni við
það lag sem flestir þekkja heldur
alþýðulag það sem skáldið hafði í
huga er það orti Ijóðið. Lög plöt-
unnar em að mestu leyti vísnatónl-
ist en með djass- og blúsívafi.
Aðalsteinn Ásberg og Anna Pá-
lína hafa sungið saman síðan árið
1984, sama ár og leiðir hans og fé-
laga hans í Hálft í hvom skildi.
Hann segir aö þau komi sjaldan
fram. Illa gangi að finna góða staði
til að syngja á. Prógrammið er
fremur viðkvæmt, hálfgildings
kammermúsík, og hentar ekki öl-
stofum og slíkum stöðum.
„Þar að auki höfum við ekki gefiö
okkur góðan tíma til að skapa okk-
ur starfsgrundvöll," segir hann.
„Slíkt kostar mikla vinnu. Það
þekki ég frá því í gamla daga. Viö
vftjum frekar syngja sjaldnar opin-
berlega en þá þannig að lögin sem
viö flytjum njóti sín.“
Lögin á nýju plötunni em einmitt
uppistaðan í prógrammi þeirra
Aöalsteins og Önnu Pálínu síöustu
tvö ár. Þau fóra alvarlega að hugsa
sér til hreyfings með plötuupptöku
á síðasta ári og snemmsumars í ár
var hún tekin upp í Hljóðrita undir
stjóm Þóris Baldurssonar. Auk
hans spila á plötunni þeir Tómas
R. Einarsson, Pétur Grétarsson,
Eyjólfur Kristjánsson, Gísli Helga-
son, Reynir Jónasson, Szymon
Kuran, Sigurður Halldórsson og
Eiríkur Öm Pálsson.
Aðalsteinn Ásberg og Anna Pálfna. Þau (óru alvarlega aö huga að plötu-
gerðinni I fyrra.