Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992.
9
Utlönd
Á sama tima og spáð er hrakviðrum hér norður á klakanum þegar vetur
nálgast treysta tískuhönnuðir úti í heimi á eilíft sumar. Hönnuöurinn John
Richmond hefur búið til flík sem samanstendur af perlum einum saman og
er ekki eins skjólgóð og hún er eftirtektarverð. Perlublússan var sýnd í gær
á hátíð þar sem hönnuður ársins var valinn i Bretlandi. Sá reyndist vera
Rifat Ozbek. Simamynd Reuter
Sjóöir Evrópubandalagins:
Tvöföldum fjárlögum
íslands stolið árlega
Heimildir frá endurskoðun Evr-
ópubandalagsins í Lúxemborg
herma að árlega sé stolið um 280
milljörðum íslenskra króna úr sjóð-
um bandalagsins með svindli af
ýmsu tagi. Lætur nærri að þessi fjár-
hæð svari tíl tvöfaldra íjárlaga ís-
lands.
Yfirstjóm bandalagsins í Brussel
segir að hér hé um ýkjur og ósann-
indi að ræða. Nokkrir fjármunir tap-
ist þó árlega vegna svika en hvergi
nærri svona miklir.
Sérfræðingar um svindl í EB segja
þó að þar hvertí ótrúlegar fjárhæðir
ár hvert. Mest er svindlað í landbún-
aðarmálum en þar er umsetning
mikil og mörg matarholan. Miklu fé
er útdeilt í styrki og auðvelt að verða
sér úti um meiri aðstoð en mönnum
ber.
Búist er við að sérstök skýrsla
verði gefin út um máhð í desember
og þá á að fást á hreint hve mikið
tapast í hendur óvandaðra manna.
Starfsmenn endurskoðunarinnar
segja að rekstur bandalagsins sé orð-
inn svo umfangsmikill að engin leið
sé að hafa eftírht með honum.
Ritzau
íran-kontrahneykslið gæti haft áhrif á forsetakosningamar vestra:
Bush veit meira en
hann viðurkennir
íran-kontrahneykshð gætí reynst
George Bush Bandaríkjaforseta
skeinuhætt á lokavikum kosninga-
baráttunnar þar sem ýmislegt bendir
til þess að forsetinn hafi vitað meira
um það en hann vih vera láta.
Sagt er að í ísraelsku leyniskjah sé
því haldið fram að Bush hafi verið
sagt meira en hann hefur viður-
kennt. Máhð snerist um að láta írön-
um í té vopn í skiptum fyrir vestræna
gísla í Líbanon. Ágóði vopnasölunn-
ar rann síðan tíl kontraskæruhða í
Nikaragua.
Uppljóstnm þessi kemur fast á
hæla fuhyrðinga tveggja fyrrum
embættismanna Bandaríkjastjómar
sama efnis. Forsetínn hefur ahtaf
haldið því fram að hann hafi verið
„utangátta", að hann hafi ekki gert
sér grein fyrir um hvað máhð snerist
fyrr en eftir að það var gert opinbert
í nóvember 1986.
Ný vitneskja hefur komið í ljós um
starfsemi Amirams Nirs, aöstoðar-
manns Shimonar Peres, þáverandi
forsætisráðherra ísraels, og foringja
ísraelska hópsins sem starfaði með
Ohver North ofursta við að skipu-
leggja samningaviðræðumar við ír-
ani.
Nýjasta skjahð sem hefur komið í
leitimar er minnismiði frá Nir þar
sem segir að hann hafi frætt Bush,
sem þá var varaforseti Bandaríkj-
anna, um ahar hhðar málsins á fundi
á árinu 1986. Einnig em visbendingar
um að leyniskýrsla um yfirheyrslu
ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad
yfir Nir staðfesti frásögn hans af at-
burðunum.
í minnismiðanum sagði Nir að
hann hefði sagt Bush að íranimir,
sem vom viðriðnir vopnaviðskiptin,
hefðu „greinhega verið hinir öfga-
sinnuðustu".
í nýrri bók eftir Richard Secord,
fyrmm hershöfðingja og samstarfs-
mann Norths, er fjallað um þátt Bush
í íran-kontramáhnu. Segir þar að
Bush hafi verið „áhrifamikhl stuðn-
ingsmaður" vopnasendinga Banda-
ríkjamanna eftír fund sinn með Nir.
Bush þarf að hafa enn meiri
áhyggjur af frásögn Howards Teich-
ers, sem starfaði hjá þjóðaröryggis-
ráðinu í Hvíta húsinu á þessum tíma.
Teicher heldur því fram að hann
hafi sagt Bush að bandarísk sfjóm-
völd væru að skipta á vopnum og
gíslum. „Ég upplýstí hann nokkrum
sinnum um ákveðin atriði málsins,"
sagði Teicher.
Þrýstingurinn á Bush á enn eftir
að aukast þegar Caspar Weinberger,
fyrmm varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, kemur fyrir rétt. Hann hef-
ur verið ákærður fyrir þátt sinn í
hneykslinu.
Leyniskjal, sem nú hefur verið gert
opinbert, gefur th kynna að Bush
hafí setíö fund á skrifstofu Reagans
forseta í janúar 1986 þegar Weinberg-
er mótmælti því að vopn yrðu látín
í skiptum fyrir gíslana í Líbanon.
Bush neitar nú alfarið að tala um
hlutverk sitt í þessu máh og segist
hafa sagt bandarísku þjóðinni aht
semhannveit. ByggtáST
George Bush Bandaríkjaforseti segist hafa sagt þjóðinni allt sem hann vissi
um íran-kontrahneykslið. Ýmislegt bendir þó til að svo sé ekki.
Teikning Lurie
TÆMUM BÚÐINA
VEGNA BREYTINGA
Gerið góð kaup - 3 dagar eftir
Skóverslun Þórðar ^ <•
W W m- wæ Sími 14181