Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Side 24
nonni og manni 24 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992. leikurinn á Aðalstöðinni stendur yfir Á hverjum virkum degi leggur Siggi Sveins tvær spurningar fyrir hlustendur Aðalstöðvarinnar. Spurningarnar eru bornar upp milli kl. 10:00 -12:00 og 13:00 -15:00 og er svörin að finna í DV. daginn áður. Allt sem þú þarft að gera er að hringja í síma 62 60 60, svara einni spurningu rétt og þá verður þú einn af þeim fimm hlustendum sem komast í pott hverju sinni. Ath. aðeins 10 komast í pottinn á dag, fimm fyrir hádegi og fimm eftir hádegi. Það verða því einungis 420 í pottinum þegar Siggi Sveins dregur hinn heppna á athafnasvæði Bílaumboðsins laugardaginn 28. nóvember. * •Vinningshaíi eða fulltrúi hans þarf að vera viðstaddur þegar dregið er elia fyrirgerir hann rétti sínum til vinnings. AÐALSTÖÐIN Bílaumboðið hf Krókhálsi 1, Reykjavík sími 686633 Merming Edda Arnljótsdóttir í hlutverki fröken Julie. Fröken Julie er alveg 6ð Leikrit Strindbergs um Fröken Júlíu, eða Fröken Julie, eins og hún nefnist í nýrri þýðingu Einars Braga, hefur oft orðið tilefni heitrar umræðu um valdabaráttu kynjanna. Hefur þá sitt sýnst hverjum og tíðarandi hverju sinni gjama sett mark sitt á viðhorf og niðurstöðu. Leikritið oili hneykslun Strindberg skrifaði verkið fyrir rétt rúmri öld og flallar þar vun ástarsamband greifadóttur og þjóns föð- ur hennar. Slíkt samband þótti í sjálfu sér alveg fá- heyrt og nægði til að hneyksla yfirborðssiðavanda samtíðarmenn stórlega. Sennilega hefði enginn deplað auga ef leikritið hefði fjallaö um svipað samband greifa og griðku hans, enda byggist sálræn togstreita og spenna verksins á því að í upphafi virðist Juhe (konan) hafa tögl og hagldir í léttum daðurleik við þjóninn Jean. Hún er jú í hinu hefðbundna hlutverki karlmanns- ins, aðalborin húsmóðir og drottnari hans. Hann er bara þjónsgrey. Þama snýr Strindberg viðteknum gildum við í þeim tilgangi að skerpa átökin. En örlög Juhe em ráðin þegar hún rýfur þá bann- helgi sem er á því að heldra fólk blandi um of geði við almúgann. Og hún bætir um betur með því að stíga í vænginn við Jean. Hann verst fimlega í byijun en eygir fljótlega þá möguleika sem felast í því að ná tök- um á Juhe. Eftir það er leikritið eins og skáktafl á mihi þeirra. Þau tefla, stundum útsmogin, stundum af hörku, jafn- vel grimmdarlega og sjást ekki fyrir. Sigrún Valbergsdóttir stýrir nútímalegri útfærslu á upphaflegu skáldverki Strindbergs en textinn mun nú að sögn loksins vera laus við innskot og breytingar annarra penna en hans. Ástarbrími í eldhúsi Gerla hannar verkinu ágæta og einfalda umgjörð í Tjarnarbæ. Sviðið sýnir opið og rúmgott eldhús þar sem dramatískir viðburðir næturinnar eiga sér stað og framan úr anddyrinu berast ómar frá Jónsmessu- gleði vinnufólksins. Sviðsmunir eru fáir en vandlega grundaðir og gegna vel sínu hlutverki. Búningamir eru líka verk Gerlu en þar fannst mér henni bregðast bogahstin í hönnun kjóla fyrir Juhe. Greifadóttirin átti nú skárra skihð en þetta. Aðrir búningar voru ágætlega útfærðir og vel viö hæfi. Edda Amljótsdóttir leikur hlutverk Juhe og nær ahgóðum tökum á því þegar hður á leikinn. Hún var hins vegar fuhþvinguð og óeðlileg, sérstaklega í hreyf- ingum og svipbrigðum framan af þegar Julie er að gera sig til fyrir Jean. Tök hennar þéttust og túlkunin varð betri í seinni hlutanum en þá gerir hlutverkið líka meiri kröfur um blæbrigðaríkari túlkun og skap- gerðarleik. Jean er alinn upp í sárri fátækt og þykist hafa kom- ist ágætlega áfram. Hann er drjúgur með sig, séður og ófyrirleitinn, en alveg eins og Juhe er hann að vissu leyti fórnarlamb aðstæðna. Leiklist Auður Eydal Valgeir Skagfjörð er vaxandi leikari og hefur hlut- verkið ágætlega á valdi sínu með vel útfærðum smá- atriðum, ef frá er skilinn smávegis ofleikur rétt undir lokin þegar húsbóndinn kemur aftur heim. Gagnvart honum verður Jean ahtaf undirlægja, þó að hann geri sig gildandi viö þá sem hann þykist hafa í fuhu tré við, en viðbrögðin þama vom samt óþarflega ýkt og úr stíl. Valgeir leikur sér að því að láta áhorfendur togast á milh samúðar og andúðar, rétt eins og handritið gefur tilefni til, en fyrst og fremst kemur hann til skha lif- andi mannlýsingu. Það sama má segja um Jóranni Sigurðardóttur, sem fataðist hvergi í gegnheilh lýsingu á Kristínu. Hún segir ekki margt en Jórann þurfti ekki orð til að hafa sterka návist á sviðinu og aht fas, svipbrigði og hreyf- ingar var vel unnið og skapaði mótvægi við ástarbrím- ann og átökin á milli þeirra Juhe og Jeans. Ný þýðing Einars Braga hljómaði vel, enda ekki hætta á öðra, málfarið hvarvetna við hæfi, þjált og eðblegt. Wilma Young skapaði réttu Jónsmessustemn- inguna með þýðum fiðluleik og kom fram með hópi kátra leikara í hlutverkum vinnufólks. Alþýðuleikhúslð sýnlr í Tjarnarbæ: Fröken Julie Höfundur: August Strindberg Þýðing. Einar Bragi Lýsing: Árni Baldvinsson Tónlistarumsjón: Wilma Young Leikmynd og búningar: Gerla Leikstjórn: Sigrún Valbergsdóttir Popp Magnús og Jóhann - Afmælisupptökur: Yf irbragðið kyrrt og rólegt Tuttugu ár era um þessar mundir hðin síðan Magn- ús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason sendu frá sér sína fyrstu plötu. Þeir halda upp á afmæhð með útgáfu tíu laga plötu sem þeir kalla Afmæhsupptökur. Þar era tíu lög, blanda gamaha laga og nýrra. Meöal annars er þama fyrsti smellur Magnúsar og Jóhanns, Mary Jane, sem einmitt á 20 ára afmæh á þessu ári. Eins og á fyrri plötum Magnúsar og Jóhanns er yfir- bragðið kyrrt og rólegt. Utsetningar era látlausar þannig að söngrn- þeirra nýtur sín th fullnustu. Fáir söngvarar ná betur saman en Magnús og Jóhann þann- ig að engin ástæða er th að fela raddir þeirra með skrautmiklum hljóðfæraleik. Ekki veit ég hvers vegna Magnús Þór og Jóhann Helgason völdu þá leið th að halda upp á starfsaf- mæh sitt að taka gömul lög og ný og rúlla þeim inn á band. í fljótu bragði sýnist manni einfaldasta leiðin hafa verið sú að safna saman þekktustu lögum þeirra tvo síðustu áratugina og gefa út safn bestu laga ásamt tveimur th þremur nýjum. Þannig hefðu sjálfsagt flest- ir haldiö upp á afmæhð. Það er að segja ef þeir hefðu úr átt jafn miklu efni að moða og Magnús og Jóhann. En hér era Afmæhsupptökur sem sagt komnar. Af- Hljómplötur Ásgeir Tómasson skaplega kurteislegur gripur. Svo kurteislegur að manni finnst hálfpartinn að Magnús og Jóhann séu aö biðjast afsökimar á því að hafa verið að syngja sam- an og semja í tuttugu ár. Rétt eins og húsmóðirin sem fyhir kafiiboröið af tertum og brauði og biöst svo afsök- unar á að eiga ekki meira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.