Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Side 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992.
Af vindhönum og öörum hönum.
Að stunda
heilsusam-
legtlífemi
„Stríö eru aldrei góð fyrir heils-
una sagði í skýrslu rannsókn-
arhóps sem ferðaðist um írak.
Vindhanar og aðrir hanar
„í 20 ár höfum við haft í stjóm-
arráðinu minnislausa vindhana,
sem sögðu eitt í dag og annað á
morgun. Hér á ég auðvitað við
Ummæli dagsins
framsóknarmenn," sagði Gunn-
laugur Eiðsson í Morgunblaðinu.
Ekki spurður álits
„Það var ef til vill iUa gert gagn-
vart drengnum ungum að kaUa
hann þessu nafni en mér þótti og
þykir Hreimur Heiðar fallegt
nafn,“ sagði EmiUa Böðvarsdótt-
ir.
Sami grautur í sömu skál
„Landsstjómin hefur ekki stað-
ið sig vel en kosningar munu ekki
breyta neinu því við fáum aUtaf
sömu vonlausu stjórnirnar,"
sögðu Færeyingamir Hans Jakop
Hansen og Vilmund Olsen.
Á höfuðborgarsvæðinu verður vest-
an- og norðvestangola eða kaldi en á
stöku stað stinningskaldi í kvöld og
nótt, léttskýjað. Heldur kólnandi
veður.
Vedrið í dag
Á landinu verður hægt vaxandi
norðvestan og svo norðanátt. All-
hvasst eða hvasst og él á Norður- og
Norðausturlandi er líður á daginn
en mun hægari vindur og víðast bjart
veður í öðrum landshlutum. Kóln-
andi veður. Búist er við stormi á
norðausturmiðum, austurmiðum og
norðurdjúpi.
Kl. 6 í morgun var vestan- eða norð-
vestanátt á landinu, allhvasst eða
hvasst á norðausturhominu en víð-
ast gola eða kaldi annars staðar. É1
vom við norðausturströndina, ann-
ars léttskýjað. Á láglendi var hiti frá
2 stigum og niður í 3 stiga frost en á
Hveravöllum var 9 stiga frost.
Við Jan Mayen er 994 mb. lægð sem
þokast heldur austsuðaustur. Yfir
Grænlandi er vaxandi 1032 mb. hæð
og hæðarhryggur frá henni suður
um vestanvert Grænlandshaf.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjað -2
EgHsstaðir léttskýjað -1
Galtarviti hálfskýjað 2
Hjarðames léttskýjað -1
Kefla víkurflugvöllw hálfskýjað 1
Kirkjubæjarklaustur heiöskírt -1
Raufarhöfn skafrenn- ingur 1
Reykjavík skýjað -1
Vestmarmaeyjar léttskýjað 1
Bergen súld 7
Helsinki snjókoma -4
Kaupmannahöfn skýjað 2
Ósló rigning 3
Stokkhólmur hálfskýjað -5
Amsterdam léttskýjað -1
Barcelona alskýjað 13
Berlín lágþokubl. 0
Chicagó alskýjað 7
Feneyjar hálfskýjað 9
Frankfurt léttskýjað 1
Glasgow skýjað 9
Hamborg léttskýjað -2
London léttskýjað 4
LosAngeles þokumóða 18
Lúxemborg heiðskirt 1
Madrid þokumóða 9
Malaga heiðskírt 11
MaUorca hálfskýjað 10
Montreal rigning 9
New York skýjað 14
Nuuk rigning 6
Orlando heiðskírt 16
París heiðsklrt 4
Róm léttskýjað 13
Valencia rigning 13
„Það er ekkert annað en hrein
tilviljun að ég bjargaði þeim og það
er cngin spurning að æöri máttar-
völd voru með þeim. Guð kærði sig
ekkert um þá strax," sagði Pétur
Kristjánsson, skípstjóri á hafn-
sögubátnum Magna, er bjargaði
þremur mönnum í hafnarmynni
Reykjavíkur um helgina.
„Það sem gerði það að verkum
að ég sé þessa þúst er að Ijósin í
Laugarnesinu vom í bakgrunnin-
um og ég á svo oft leið þama um
að ég veií að þaö á ekkert að vera
þama.“
Pétur er lærður vélstjóri og hefur
fullgild atvinnuréttindi sem kafari.
Hann hefur verið skipstjóri á
Magna í sjö ár. Þegar hann stundar
köfun sem íþrótt fer hann helst
suður meö Vatnsleysuströndinni, á
Þingvallavatn og upp í Kollaíjörö.
Hann er kafari hjá Slysavamafé- Pétur Kristjánsson skipstjóri.
laginu og vélstjóri á björgunar-
bátnum Henry A. Hálfdanssyni.
„Það er eitt áhugamál sem ég tók
upp þar sem mér var oft hugsað
um hvað ég þyrfti aö gera til að ná
mönnum upp úr sjónum og það er
líkamsrækt," sagði Pétur. „Þaö var
ekki spurning um hvort heldur
hvenær.“
Pétur fer fimm til sex sinnum í
Ræktina og segir að það taki nokk-
ur ár að ná réttum tökum á þessu
því það sé ekki bara að lyfta lóðum
heldur þurfi maður oft að breyta
hugarfarinu, næringu og hvíld.
Pétur er tvíkvæntur og tvífráskil-
inn. „Ég læknaðist af þessu farðu-
út-með-rusliö syndrome í seinna
skiptiö,“ sagði Pétur.
Greiðir reikninga eftir föngum
Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn.
U21 íMoskvu
íslenska landshðið, skipað leik-
mönnun yngri en 21 árs, mun í
dag leika við rússneska félaga
sína i Moskvu. Þeir sem áhuga
hafa á leiknum ættu að stfila á
rás 2 því Bjami Felixson er kom-
imi til höfuðborgar Rússlands og
ætlar að fylgjast með leiknum kl.
16-18.
Tveir leikir eru í úrvalsdeild
Íþróttiríkvöld
körfuboltans í kvöld. UMFG
keppir viö Snæfell í íþróttahúsi
Gríndavíkur kl. 20 ogUMFT leik-
ur við UBK í íþróttahúsi Sauðár-
króks og hefst sá leikur einnig
kl. 20.
í handbolta eru tveir leíkir í
kvennadeUdinni. ÍBV og FH
keppa í Vestmannaeyjum kl. 20
og Stjaman keppir við Ármann i
Garðabæ ki. 20.
Sjónvarpið er með íþróttaauka
i kvöld eftir ellefufréttir þar sem
sýndar verða m.a. myndir frá
Kumho-rallinu.
Skák
Jóhann Hjartarson komst í 2. umferö
stórmótsins í Tilburg með þvi að vmna
stórmeistarann Novikov tvöfalt í bráða-
bana með 30 minútna umhugsunartíma.
Jóhann fór á kostmn í báðum skákun-
um og vann þær glæsilega. í þeirri fyrri
kom þessi staða upp. Jóhann hafði svart
og átti leik:
29. - Rxf2! 30. Kxf2 Bxe3+ 31. Kg2? Eina
vonin var 31. Kfl en 31. - Bb6 geto svört-
um sterka sókn. 31. - De2+ 32. Kh3 Hc6!
33. Rg2 Ef 33. Hd6 Hxd6 34. Hxd6 Dfl +
35. Kg4 h5+ og mátar. 33. - Hh6+ 34.
Rh4 g5! 35. De4! Hótun svarts var 36. -
Hxh4 + ! 37. gxh4 Df3 mát. Nú gengur
auðvitað ekki 36. - Hxe4? 37. Hd8+ og
mátar. 35. - Hhe6! 36. He5 h5! 37. Rg2
Hxe5 38. Bxe5 g4+ 39. Kh4 Bg5+ Og
hvito gaf - drottningin er fallin.
Bridge
Sveit Suðurlandsvideós varð um helgina
bikarmeistari í bridge. Undanúrslit og
úrslit keppninnar fóru fram á Hótel ís-
landi um helgina og sveit Suðurlandsvid-
eós vann öruggan sigur á sveit Gísla
Hafliðasonar í 4 sveita úrslitum og úr-
slitaleikurinn gegn sveit Eiríks Hjalta-
sonar var næsta ójafn, lokatölur 208-80.
í þessu spili úr úrslitaleiknum náði sveit
Eiriks þó að græða 5 impa. f lokuðum sal
spiluðu AV i sveit Eiríks Hjaltasonar 3
hjörtu og stóðu þau slétt. Svo virðist sem •
gjafaslagimir séu alltaf 5,2 á tígul og einn
á hvem hinna litanna. En ef vömin tekur
strax 3 slagi í láglitunum virðist norður
lenda í þvingun í svörtu litunum. Sagnir
og úrspil gengu þannig í opnum sal:
* Á105
V D65
♦ DG10
+ K1064
♦ G64
V 93
♦ 8642
♦ DG98
♦ K9873
V ÁG1087
♦ 95
♦ 2
* D2
V K42
♦ ÁK73
+ Á753
Norður Austur Suður Vesto
pass 2* 2 G 3é
pass 3f p/h
Oddur Hjaltason í sveit Eiríks spilaði
vömina eins og hann sæi á allar hend-
umar. Hann tók fyrst tvo efstu í tígli,
síðan laufás og spilaði síðan spaðadrottn-
ingu. Tvö grönd suðurs lofa 16-19 punkt-
um og frá sjónarhóli sagnhafa í austo
var allt eins liklegt að suður ætti einnig
spaðagosaim. Hann drap því á kóng
heima 1 þeim tilgangi að svína fyrir
spaðagosa síðar. Spilið fór síðan einn nið-
ur úr því að spaðagosinn var hjá norðri
og sagnhafi lét ekki reyna á þvingunar-
möguleikann. ísak örn Sigurðsson