Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Kerfið verndar ofbeldi Dómarinn, sem sleppti Qórum nauðgurum við fang- elsisvist fyrir helgina, hafði áður dæmt mann í tveggja ára fangelsi fyrir 200 þúsund króna plastkortasvik, hvort tveggja sámkvæmt lögum. Dómari þessi hefur í ýktri mynd sýnt verðmætamatið í lögum og dómum á íslandi. Nauðgunin, sem dómarinn samþykkti, var óvenju ógeðsleg, því að fjórir menn réðust á eina stúlku og héldu henni, meðan einn þeirra nauðgaði henni. Vafa- laust mun ákæruvaldið kæra hinn fráleita úrskurð til Hæstaréttar eins og aðra úrskurði þessa dómara. Þótt dómari þessi sé þekktur fyrir sérkennilega dóma og seinagang í starfi, má ekki gleyma því, að hann geng- ur laus sem dómari. Hann hefur fengið áminningar, en heldur áfram að dæma. Hinir athyghsverðu úrskurðir hans njóta því töluverðrar verndar í kerfinu. Ekki má gleyma, að dómarinn úrskurðar innan þess ramma, sem dómara er leyfilegur, bæði þegar hann sleppir nauðgurum og neglir smáþjófa. Hann gengur ekki þvert á lög og dóma, heldur skrumskælir aðeins aldagamalt réttarfar, sem viðgengst á tuttugustu öld. Lög og dómvenja á íslandi er arfleifð frá þeim tíma, þegar tilgangur laganna var fyrst og fremst að vernda auð yfirstéttarinnar fyrir ásælni undirstéttanna, en ekki að koma í veg fyrir, að undirstéttarfólk beitti hvert ann- að ofbeldi. Peningar eru æðstir í þessu verðmætamati. Ekki þarf að fara í dómsal Hafnarfjarðar til að sjá dæmi um þessa brenglun í verðmætamati. í dómum Hæstaréttar kemur líka fram, að fjármálaglæpir þykja alvarlegri en ofbeldisglæpir. Þetta er í samræmi við lög, sem eru arfur frá tímum frumstæðara verðmætamats. Fjölmiðlar taka því miður þátt í þessari brenglun. Maður, sem stelur milljón, en skaðar hvorki sál né lík- ama neins, fær nafn og mynd 1 fjölmiðlum, en fjórir menn, sem nauðga stúlku, fá hvorki nafn né mynd. Fjölmiðlar telja milljónina verðmætari en stúlkuna. Lögreglan er á sömu nótum og fjölmiðlarnir, útvegar myndir af smáþjófum, en leggst á myndir af ofbeldis- mönnum. Til skamms tíma var Reykjavík fræg fyrir, að þar óðu þekktir ribbaldar um að næturlagi og börðu vegfarendur, næsta óáreittir af lögreglu. Verðmætamatið lýsir sér einnig í yfirgengilegum stuðningi þjóðarinnar við ölvun og ölæði. Haldnar eru bjórhátíðir, þar sem menn eru hópum saman afvelta og meðvitundarlausir. Alls konar ræfildómur og ofbeldi er afsakað með orðunum: „Hann var fullur, greyið.“ Drykkjurútamir vaða um allt þjóðfélagið. Sumir sitja í ráðherrastólum, en aðrir sofa í ónotuðum bátum. Sum- ir verða sér til skammar kjólklæddir í kóngaveizlum, en aðrir nauðga stúlkum og misþyrma. Hafa þeir svo allir nokkuð að iðja í skjóli laga og réttar. Eftir innreið eiturlyfja í þjóðfélagið hefur vandamáhð aukizt. Læknar fá að afgreiða eftirritunarskyldar lyfla- ávísanir á færibandi. Og nafgreindir menn aka um á fínum bílum fimm árum eftir að hafa játað innflutning á 65 kílóum af eitri, án þess að hafa sætt neinum dómi. Alþingi þarf að manna sig upp í hreinsun lagaákvæða um viðurlög við afbrotum: Auka þarf vægi lífs og hma í samanburði við vægi króna og pappíra. Slík hreinsun getur síðan orðið forsenda nútímalegra og siðlegra verð- mætamats 1 úrskurðum héraðsdóma og Hæstaréttar. Ekki er nóg að beina spjótum að einum dómara í Hafnarfirði, því að sérvizka hans rúmast innan ramma úreltra ákvæða í lögum. Kerfið sjálft hefur brugðizt. Jónas Kristjánsson Höfundur segir að meginástæða skuldasöfnunar borgarinnar hafi veriö þörf sjálfstæðismanna til aö reisa ráöhúsminnisvaröa upp á 3600 milljónir króna. H venær tekur maður lán? Er skynsamlegt aö láta borgar- sjóð Reykjavíkur taka lán, allt að 500 milljónum króna, svo hægt verði að framkvæma mun meira á vegum borgarinnar næstu mánuði en ráðgert er í fjárhagsáætlun yfir- standandi árs? Þessari spumingu velta borgaryfirvöld nú fyrir sér í kjölfar tíllögu Nýs vettvangs um að þetta verði gert en hún var flutt í borgarstjóm 17. september sl. Við á Nýjum vettvangi teljum atvinnu- ástandið í Reykjavík svo alvarlegt að borgaryfirvöld verði að grípa inn í með þessum hætti. Þetta vilj- um við þrátt fyrir að fjárhagsáætl- un ársins sé kolsprungin og u.þ.b. 1000 milljón króna skuldaaukning umfram það sem til stóö sé þegar fyrirsjáanleg. Falin og dýr lán Felupólitík meirihlutans hefur m.a. fcdist í því að áætla samkvæmt póhtískri óskhyggju en demba síð- an umframmilljónum á yfirdrátt- arreikning borgarsjóðs hjá Lands- bankanum eftir því sem böndin rifna utan af fjárhagsáætlunum. Það hefði auðvitað hljómað illa við afgreiðslu fjárhagsáætlunar þessa árs að boða nær 300 mihjón króna lántöku til þess að hægt væri að standa við áður auglýstan opnun- artíma ráðhússins hans Davíös. Þessi umframkostnaður vegna frá- gangs ráðhússins skýrir tæpan þriöjung af væntanlegri skulda- aukningu á yfirdráttarreikningi borgarsjóðs í ár. Hér er um að ræða dýrasta lánsformið sem völ er á. Góðir fjármálastjómendur leituðu vitanlega eftir hagstæðum lánum, innlendum eða erlendum, og spör- uðu skattgreiðendum þannig millj- óna vaxtagreiðslur. Skuldasöfnun í góðæri Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa verið drj úgir við skuldasöfnun síðasta áratug. í upphafi síðasta stjómarárs Davíðs Oddssonar höfðu hehdarskuldir borgarsjóðs tvöfaldast að raungildi frá því að hann settíst 1 stól borgarstjóra. Ekki var um aö kenna erfiðu efna- hagsárferði eða atvinnuleysi. Sjáif- stæðismenn treystu sér í stórfehda skuldasöfnun á meðan allt var með fehdu í atvinnulífi borgarinnar. Höfuðástæðan var þörf þeirra th þess aö reisa ráðhúsminnisvarða fyrir 3600 mihjón krónur. Hversu margfold er þá ekki ástæöan nú að grípa th lánsfjár í þeim thgangi að bregðast við ástandi í atvinnulífi borgarbúa sem er alvarlegra en viö höfum áöur upplifað? KjaUajinn Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfulltrúi Nýs vettvangs Avinnulausum fjölgar 30. september sl. vora 1459 Reyk- víkingar skráðir atvinnulausir og hafði fjölgað um 131 frá upphafi mánaðarins. í lok september í fyrra vora atvinnulausir 368. Venjan er sú að á þessum árstíma fækki á atvinnuleysisskrám þar sem sum- arfólk hverfur tíl náms og þá losn- ar talsvert af störfum. Nú er þessu öfugt farið. Hjól atvinnulífsins hafa hægt það mikið á sér að hefðbund- inna haustverkefna nýtur ekki við í sama mæli og áður. Tíminn framundan getur orðið afar erfiður. Áhrifa þeirra auka- fjárveitínga, sem borgaryfirvöld ákváðu fyrr á árinu, er hætt að gæta, enda ætlaðar th sérstakra sumarverkefna. Ef farið verður að venju með framkvæmdir borgar- innar dregur verulega úr þeim þar th fer aö nálgast vorið. Beðið er með lokaundirbúning, útboð og þess háttar þar th fjárhagsáætlun næsta árs hggur fyrir, væntanlega í febrúar. Brýnar framkvæmdir í thlögu okkar er bent á fjögur svið sem okkur þykir æskhegast að hraðað verði framkvæmdum á. Fyrst skulu nefnd hjúkrunarheim- hi fyrir gamalt fólk en fyrir þau er þörfin brýn og sár og 200-300 manns sem bíða úrræðis. U.þ.b. 2000 börn eru á biðlistum borgarinnar eftir leikskóla og því sjálfsagt að hraða uppbyggingu þeirra. Skynsamlegt er að athuga einnig möguleika á því að kaupa fasteignir sem mætti breyta, bæði í líth hverfahjúkranarheimih og í leikskóla. Þá vhjum við flýta uppbyggingu grunnskólahúsnæðis í nýjustu hverfum borgarinnar svo börn þurfi ekki að vera árum saman í hálfkláruðu bráðabirgöahúsnæði eða í yfirfullum skólum. Sú stað- reynd að stækkandi fæðingarár- gangar fara að þyrpast inn í grunn- skólana ásamt því að Reykjavík er annað tveggja fræösluumdæma sem lengst eiga í land með aö eiga nægilegt skólahúsnæði fyrir ein- setinn skóla gerir hraðari uppbygg- ingu en verið hefur nauðsynlega. Fjórða framkvæmdasviðiö í th- lögu okkar lýtur að umferðarör- yggi. Við viljum hraða því að tekið verði á tveimur „svörtum blettum" sem kreljast mikhla fjármuna: Gat- namótín Kringlumýrarbraut og Miklabraut og gönguleið við Rauðagerðið yfir Miklubraut þar sem orðið hafa hörmuleg slys á gangandi vegfarendum. Tillaga Nýs vettvangs leggur áherslu á það að um leið og borgar- sjóður bregst við óviðunandi at- vinnuástandi með aukafjárveiting- um verði þess gætt að nýta féð th framkvæmda sem Reykvíkinga bráövantar og eru auk þess arð- samar. Ég vil trúa því að borgar- fuhtrúar meiri- sem minnihluta komist hið fyrsta að þeirri niður- stöðu að spumingunni í upphafi þessarar greinar beri að svara ját- andi. Fólk, sem gat réttlætt skulda- söfnun í góðu árferði vegna bygg- ingar ráðhúss, ætti ekki að velkjast í vafa um að réttmæti lántöku th bráðnauðsynlegra verkefna á at- vinnuleysistímum eins og við bú- um nú við. Við verðum að trúa því að það eigi eftir að rætast úr hjá þjóðinni og þá komi dagar til þess að takast á við greiðslur skuld- anna. Kristín Á. Ólafsdóttir „Hversu margföld er þá ekki ástæðan nú að grípa til lánsfjár í þeim tilgangi að bregðast við ástandi 1 atvinnulífi borgarbúa sem er alvarlegra en við höfum áður upplifað?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.