Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1992, Page 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992.
Afmæli
80 ára
70 ára
Eymundur Torfason,
Hlií’2,ísaarði.
Valgerður Haraldsdóttir,
Langholtsvegi48, ReyKjavík.
Hólmfríður Guðvarðardóttir,
ÁsbrautS, Kópavogi.
90 ára
50 ára
Cecilia C. Hejgason, Þórdís Þorgrímsdóttir,
Lindarhvoli, Þverárhlíðarhreppi. Lindarholti 6, Ólafsvík.
Gisli Ingólfsson,
Ásgarði 77, Reykjavík.
Gunnar Þ. Helgason,
Haðalandi 24, Reykjavík.
GuðniJónsson,
Vallholti 13, Akranesi.
Sigríður Friðriksdóttir,
Torfufelli 31, Reykjavík.
Hrafn Sigurhansson,
Gígjulundi 5, Garðabæ.
40 ára
Ingibjðrg Sveinbjörnsdóttir,
Þverholti 32, Reykjavík.
Sunna Kimdu,
Skeggjagötu 16, Reykiavík.
Þórdís Þórhallsdóttir,
Laugarásvegi47, Reykjavík.
Rut Helgadóttir,
Litlubæjarvðr 5, Bessastaðahreppi.
Halldóra Jónsdóttir,
Ásbraut 11, Kópavogi.
Árni Logi Sigurbjörnsson,
Brúnagerði 1, Húsavík.
Jakobína Sveinbjörnsdóttir,
Miðhúsum 16, Reykjavík.
Karvel Hóim Jóhannesson,
Ásklifi 1, Stykkishólmi.
Henrik Rudolf Henriksson,
Norðurgötu20, Sandgerði.
Andlát
Stefanía Erlingsdóttir Eyjólfsson
Stefanía Erlingsdóttir Eyjólfsson,
húsmóðir í Ladner við Vancouver-
borg í Kanada, lést 2.10. sl. en jarðar-
fór hennar fór fram í Ladner.
Starfsferill
Stefanía fæddist að Gilsárvöllum
í Borgarfirði eystra og ólst þar upp
til tólf ára aldurs, fyrstu tvö árin
hjá foreldrum sínum en síðan hjá
afa sínum og ömmu. Tólf ára flutti
hún svo til foreldra sinna er þá
höíðu reist bú að Haukalandi við
Reykjavík.
Stefanía fór til Vestmannaeyja er
hún var átján ára og var þar hjá
hjónunum Viggó Bjömssyni banka-
sijóra og Rannveigu Vilhjálmsdótt-
ur. Þar kynntist Stefanía fyrri
manni sínum. Þau stofnuðu heimili
sitt í Reykjavík en fluttu síðan til
Flateyrar við Önundarfjörð þar sem
þau bjuggu til 1939. Stefanía og fyrri
maður hennar skildu 1940.
Stefania flutti til Winnipeg í
Kanada 1946 og starfaði þar við
sjúkrahús fyrst í stað. Er hún hafði
dvalið í Kanada í tvö ár flutti dóttir
hennartilhennar.
Stefanía kynntist seinni manni
sínum í Winnipeg. Er þau giftu sig
fluttu þau til Vancouver BC. Þar
bjuggu þau um skeið, síðan í Rich-
mond um tuttugu og fimm ára skeiö
ogloksíLadner.
Fjölskylda
Stefanía giftist fyrri manni sínum
1930, Gísla Friðrik Jóhannssyni, f.
22.1.1906, múrarameistara. Foreldr-
ar hans voru Jóhann Gíslason, sjó-
maður í Vestmannaeyjum, og Sig-
ríður Bergsdóttir húsmóðir.
Börn Stefaníu og Gísla Friðriks
era Haukur, f. 1932, hárskurðar-
meistari í Borgamesi, kvæntur
Hönnu Samúelsdóttur, og Sofíía
Moore, f. 1936, húsmóðir í Kanada
og ekkja eftir Cecil Moore.
Haukur á þrjú þöm frá fyrra
hjónabandi og sex barnaböm en
Soffía á sex böm, einnig frá fyrra
hjónabandi og tólf bamabörn.
Eftirlifandi eiginmanni sínum
giftist Stefanía 1947. Sá er Guð-
mundur Á.S. Eyjólfsson, f. 1912,
kennari og síðar skólastjóri í
Vancouver. Foreldrar Guömundar
voru Ágúst Samúel Eyjólfsson, f.
1881 að Laugarvatni, og Guðrún
Grímsdóttir, f. 1889 að Gjábakka í
Þingvallasveit.
Stefanía var þriðja í röð tólf systk-
ina, sex bræðra og sex systra. A
undan henni em látin Soffía, f. 1916,
dó fárra daga gömul, Jón, f. 1908,
fórst með es. Heklu, vélstjóri, og Óli
Filippus, f. 1917, d. 1955, verkamað-
ur. Nú lifa því eftir fjórir bræður
og fjórar systur, öll búsett í og við
Reykjavík.
Foreldrar Stefaníu vom Erlingur
Filippusson, búfræðingur og grasa-
læknir í Reykjavík, og kona hans,
Kristín Jónsdóttir húsmóðir.
Ætt
Erlingur var sonur Filippusar, b.
og silfursmiðs í Kálfafellskoti, Stef-
ánssonar. Móðir Erlings var Þór-
unn, grasalæknir og ljósmóðir,
Gísladóttir, b. á Ytri-Ásum í Skaft-
ártungu, Jónssonar, bróður Eiríks,
langafa sandgræðslustjóranna Páls
Sveinssonar og Runólfs, foður
Sveins landgræðslusfjóra. Systir
Gísla var Rannveig, langamma
Ragnars í Smára, foður Jóns Óttars,
fyrrv. sjónvarpsstjóra. Móðir Þór-
unnar var Þórunn ljósmóðir Sigurð-
ardóttir, b. í Steig í Mýrdal, Árna-
sonar. Móðir Þórunnar var Þórunn
ljósmóðir, langamma Steinunnar,
langömmu Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra. Bróðir Þór-
unnar var Þorsteinn, faðir Ólafar,
langömmu Erlends Einarssonar,
fyrrv. forstjóra SÍS. Þórunn var
dóttir Þorsteins, b. og smiðs á Vatns-
skarðshólum í Mýrdal, Eyjólfssonar
og konu hans, Karítasar ljósmóður,
stjúpdóttur Jóns Steingrímssonar
eldklerks, Jónsdóttur, klaustur-
haldara á Reynistað, Vigfússonar.
Kristín var dóttir Jóns, b. á Gilsár-
völlum í Borgarflrði eystra, Stefáns-
sonar, bróður Einars, afa Valgeirs
Bjömssonar hafnarstjóra. Móðir
Kristínar var Stefanía ljósmóðir Ól-
Stefania Erlingsdóttir Eyjólfsson.
afsdóttir, b. á Gilsárvöllum í Borgar-
firði eystra, Stefánssonar. Móðir
Ólafs var Steinunn, læknir og ljós-
móðir, Þórðardóttir, b. á Finnastöð-
um, Gíslasonar og konu hans, Ey-
gerðar Jónsdóttur pamfíls, systur
Jóns, langafa Einars H. Kvaran.
Móðir Stefaníu var Soffía Sigurðar-
dóttir.
Meiri háttar hártilboð
Permanent og klipping frá kr. 2.900.
Strípulitanir og klipping frá kr. 1.900.
Þorsteinn Auðunsson
Pantiö tíma í síma 68 22 80.
HÁRSNYRTISTOFA DÓRU 0G SIGGU DÓRU
Ármúla 5
Aukablað
Hús og húsbúnaður
Miðvikudaginn 21. október mun aukablað um
hús og húsbúnað fylgja DV.
Meðal annars verður Qallað um heimilistæki,
tæki og innréttingar í eldhús og bað, gólfefni,
húsgögn og ýmislegt annað innanstokks.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að aug-
lýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi sam-
band við Sonju Magnúsdóttur, auglýsingadeild
DV, hið fyrsta í síma 63 27 22.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagurinn 15. október.
ATH.! Bréfasími okkar er 63 27 27.
Þorsteinn Auðunsson, fyrrum út-
gerðarmaður, Tunguvegi 6, Hafnar-
firði, lést á St. Jósefsspítala mánu-
daginn 5. október síðastliðinn. Útfor
hans verður gerð frá Víðistaða-
kirkju kl. 13.30 í dag, þriðjudag.
Starfsferill
Þorsteinn fæddist að Kirkjuvegi 2
í Hafnarfirði og ólst upp á Austur-
götunni í sama bæ. Tvítugur að aldri
hóf hann rekstur sinnar eigin vöru-
bifreiðar og vann við það í rúm tutt-
uguár.
Árið 1953 stofnaði Þorsteinn,
ásamt systkinum sínum, útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtækið Ása hf.
Fyrirtækið gerði út tvö skip sem
nefnd vora eftir foreldrum systkin-
anna, Guðrún GK og Auðunn GK.
Þorsteinn starfaði við fyrirtækið
allt þar til í lok 9. áratugarins er
seinna skipið var selt. Eftir það sett-
ist hann í helgan stein.
Fjölskylda
Þorsteinn kvæntist 11.6.1932 Lili
Hjördísi Frietner Auðunsson
(dönsk), f. 8.7.1908, d. 22.5.1992,
húsmóður. Hún var dóttir Hjálmars
Frietner, sporvagnsstjóra í Kaup-
mannahöfn, og Júlíu Frietner hús-
móður.
Þorsteinn og Lili áttu eina fóstur-
dóttur: Lám Bergmann Þorsteins-
dóttur, f. 7.12.1938, d. 18.4.1992. Hún
eignaðist tvo syni með Pétri Sig-
urðssyni, f. 2.7.1928, fyrrum al-
þingsmanni.
Synir þeirra Lára og Péturs em:
Þorsteinn Auðunn, f. 11.4.1961,
framkvæmdastjóri hjá útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtæki á Dalvík,
kvæntur Ingunni Einarsdóttur við-
skiptafræðingi og eigaj)au þrjá syni,
Róbert Einar, Mikael Ama og Þor-
stein Ara; og Hjálmar, f. 27.9.1968,
hagfræðingur, í sambúð með Lovísu
Þórðardóttur markaðsfræðingi. Þau
em við framhaldsnám í Bandaríkj-
unum.
Þorsteinn var þriðji í röðinni af tíu
systkinum, þremur systrum og sjö
bræðrum. Þar af em átta nú látin.
Systkinin em: Hinrik, látinn;
Sveinbjörg, látin; Margrét, látin;
Sigurlaug, látin; Halldór, látinn;
Karl, útgerðarmaður í Hafnarfirði,
Þorsteinn Auðunsson.
kvæntur Vigdísi Jónsdóttur hús-
móður og eiga þau íjóra syni; Frið-
rik, lést ungur; Óskar, látinn; og
Pétur, vélsmiðjueigandi í Hafnar-
firði, kvæntur Petru Jónsdóttur og
eiga þau þrjúböm.
Foreldrar Þorsteins vom Auðunn
Níelsson, f. 25.7.1884, d. 23.6.1943,
og Guðrún Hinriksdóttir, f. 21.7.
1885, d. 14.6.1961. Þau bjuggu í Hafn-
arfirðiallasínatíð.
ERT ÞÚ ORUGGLEGA ÁSKRIFANDI? EINN BÍLL Á MÁNUÐI f ÁSKRIFTARGETRAUN #jp m wWarwwA Á FULLRI FERÐ! I
. . . OG SIMINN ER 63 27 00