Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1992, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1992, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1992. Utlönd Hundradþúsund manns í hættu vegnaósongats Talið er að um hundrað þúsund manns á suðurhveli jarðar séu í beinni hættu vegna gatsins í ósonlaginu yfir Suðurskauts- landinu. Gatiö hefur að sögn aldr- ei verið stærra og nær nú út yfir byggð ból í Suöur-Ameríku. Þeir sem eru í mestri hættu eru íbúar Eldiands og Falklandseyja. Gatsins varð fyrst vart skömmu eftir 1980 og hefur síðan farið stækkandi ár frá ári. Það mynd- ast á vorin þar suðurfrá og lokast aftur þegar kemur fram á sumar. Tíuskoskunt sjémönnum bjavgaðíþyriu Norska strandgæslan bjargaði í gær tíu skoskum sjómönnum ef'tir árekstur tveggja fiskibáta um hundrað mílur vestur af Staf-. angri. Mennirnir ientu i sjónum en var bjargað um borð í þyrlu. Bátamir voru á veiðum í breskri lögsögu nærri olíu- vinnslusvæðinu Piper Bravo. Ekki er vitaö hvaö olli slysinu sem varð um hábjartan dag í góðu veöri. Skiluðulíkiföð- urinsheimá dyrahelluna Ungur maður í Richmond í Tex- as gat ekki greitt útfararkostnað vegna fóður síns áð fúllu. Útfar- arþjónustan sá þá ekki ástæðu til að halda viðskiptum við manninn áfram og skilaði líki fóðurins, sveipuðu í lindúk, heim á dyra- helluna hjá syninum. „Menn geta eiginlega hvorki lif- að né dáið hér,“ sagðifriödómar- inn Gary Geick að nafni eftir að hann frétti af atvikinu. Hann íhugar að höföa mál á hendur útfararþjónustuna fyrir siöleysi. Sonurinn hugöist fá lík fóður síns brennt. Ritzau og Reuter Fj öldamor ðinginn frá Rostov játar á sig fimmtíu morö: Myrti ungt fólk og átkynfæriþess - búist viö aö dómarinn láti aftökusveit skjóta manninn Fastlega er búist við að dómari í bænum Rostov við Don í Rússlandi dæmi Andrei Chikatilo, alræmdasta fjöldamorðingja í sögu landsins, til dauða og að hann verði láti mæta örlögum sínum frammi fyrir aftöku- sveit. Maðurinn hefur fengið viöumefnið Rostov Ripper. Hann hefur játað á sig 50 morð á ungu fólki, körlum og konum, allt frá því hann varð óður árið 1978 og hóf að myrða fólk. Hann var kennari að atvinnu og félagi í kommúnistaflokknum. Hann var virtur borgari og grunaði engan neitt þar til lögreglunni tókst að hafa hendur í hári hans á síðast ári. Þá hafði hann valdið mikilii skelfinu í Rostov og nágrenni með framferði sínu. Andrei hefur játað á sig morðin og segist rekin áfram að óviðráðanlegri lögnum til að myrða ungt fólk og éta kynfæri þess. Hann hefur lýst sjálf- um sér sem „brjálaðri skepnu" fyrir réttinum og segist ekki verðskulda annað en að vera skotinn fyrir gerðir sínar. Ferili hans þykir minna um margt á Hannibal Lecter í skáldsögunni og kvikmyndinni Lömbin þagna. Andr- ei lék lík fómarlamba sinna Ula. Hann lagðist eingöngu á unga drengi og stúlkur. Aöferð hans var að lokka þau út í skóg þar sem hann nauðgaði ungmennunum, myrti þau og skar líkin í sundur. Hann stakk gjaman úr þeim augun og skar alltaf kynfæri af. Andrei segir að æði sitt stafi af því að hann hafi á unga aldri orðið vitni að því þegar hungrað fólk lagði bróð- ur hans sér til munns á mestu hörm- ungartímunum á valdatíma Staiíns. Þeirri reynslu geti hann aldrei gleymt. Andrei var kvæntur og í 27 ára hjónabandi gmnaðí konu hans aldrei hvern mann hann hefði að geyma. Reuter Andrei Chikatilo hefur játað fyrir rétti i Rostov i Rússlandi að hafa myrt 50 ungmenni á hinn hroðalegasta hátt og etið kynfæri þeirra. Hann má búast við að verða skotinn fyrir glæpi sína. Réttarhöldum í máli hans lýkur nú í vikunni. Simamynd Reuter Hressirmeð ósamkomuiag umGATT Innan landbúnaöarstofnunar Evrópubandalágsins, COPA, eru menn fremur ánægðir með að slitnað haíi upp úr GATT;viðræð- unum eina ferðina enn. í yfirlýs- ingu frá COPA1: gær sagði að hun vísáðiá bug GATT-samkomulagi þar sem öll byrðin væri lögð á heröar evrópsks landbunaðar. COPA styður mótmælaaögerðir sem franskir bændur ætla að efna til um allt Frakkland í dag. Það var nefnilega vegna háværra mótmæla frá frönsku stjóminni að ekki tókst að ná samkomulagi í viðræðunum miili fulltrúa Bandaríkjanna og EB í Brussel síðustu daga. Veiðimennhót- uðu Bardot Irfláti Franska kvikmyndaleikkonan og réttindabaráttukona dýranna, Brigitte Bardot, komst í hann krappan á dögunura þegar hún reyndi að stöðva veiðimenn sem voru á höttunum eftir villigöltum næn-i heimiii hennar á suður- strönd Frakklands. Veiöimenn- irnir hótuðu henni og vini hennar lifláti fyrir afskiptasemina. ÚHendingar hafaáhugaá EaxeldiíChile Erlendir Qárfestar hafa sýnt vaxandi áhuga á laxeldisfyrir- tækjum x Chile enda hafa eldis- fyrirtæki þar aðgang að miklum fjölda vatna og áa. Og að sögn Franciseo Ruiz, formanns féiags laxeldismanna, gætu eldismenn í löndum á borð viö Kanada og Noreg flutt hluta framleiðslu sinnar til Chile vegna lægri til- kostnaðar og hagstæöra skilyrða. Chilebúar hófu laxeldi árið 1981 og á þeim tíma hafa útflutnings- tekjumar vaxið upp í fimmtán tii átján milljaröa króna. Fjörutíu prósent framleiöslunnar fara til Bandaríkjanna og önnur fjörutíu tilJapans. Reutcr Nýjasta ÚRVALSBÓKIN ir Michael Tolkin IBinr—- ;ur BEGHBOOIHN ■svikmyn** sem g þessari bék. aðeinskr. / og ennþá tninna í áskrift í SÍMA (91) 63-27-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.