Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1992, Side 22
-" MltiVTktTDA GÚR 14. ÖKTÓÐÉR 1992.
Iþróttir unglinga
íslandsmót
framhaldsskóla
Fjölbraut í Breiðholti og Tækniskólinn meistarar
Nýlega byijaði hið árlega knatt-
spyrnumót framhaldsskóla á öllu
landinu. Mikill áhugi er ávallt fyrir
þessu móti og þá ekki síst vegna
þess hve Uð skólanna eru vel skip-
uð. Það er algengt að skólalið hafi
á að skipa 1. deildar mönnum - og
oft fleiri en einum. Gæði knatt-
spymunnar eru því oft mikil og
báru úrshtaleikirnir í fyrra þess
glöggt vitni. Vegna þessa er tUvalið
að byrta myndir af núverandi
meisturum, kvennaUði Ejölbrauta-
skólans í Breiðholti og karlaUði
Tækniskóla íslands. ÞátttökuUð
koma vítt og breitt af landinu og
taka 28 karlalið og 17 kvennaUð
þátt í mótinu sem er mesti Uðafjöldi
tU þessa. Skólakeppni framhalds-
skóla er á vegum KSÍ.
Úrslit leikja (kvennalið):
C-riöUl:
Fjölbr. Breiðholti - Fjölbr. Akran ...4-0
Úrslit leikja (karlalið):
A-riðUl:
Verkmennt Ak. - Háskóli Ak.......3-3
B-riðill:
Flensborg - í'jölbr.Árm..........0-2
Menntask. v. Sund - Fjölbr. Árm ....3-2
Fjölbr. Árm. - Fjölbr. Akran.....3-4
C-riðill:
Fjölbr. Garðab. - Fjölbr. Breiðh.1-8
D-riðiU:
Fjölbr. S-L - Fjölbr. Vestm......0-1
Iðnsk. Rvk - Kvennask. Rvk......10-1
F-riðill:
íþrkennarask. ísl. - VélskóU ísl ..11-1
G-riðill:
Kennarahásk. ísl. - Menntask. í R 4-2
Hson
Kvennalið Fjölbrautaskólans I Breiðholti sigraði lið Háskóla íslands, 9-7,
í úrslitaleik skólamóts framhaldsskóla í knattspyrnu i fyrra en spilað var á
gervigrasvellinum í Kópavogi. Liðið var þannig skipað: Sigríður Fanney
Pálsdóttir, Selma Sigurðardóttir, Ása Dagný Gunnarsdóttir, Anna Sigríður
Gunnarsdóttir, Margrét Grétarsdóttir, Bryndís Einarsdóttir, Guðlaug Jóns-
dóttir, Ásta Sóley Haraldsdóttir, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, Bima Björns-
dóttir, íris Eysteinsdóttir, Helga Sigríður Eiríksdóttir og Björg Sighvatsdótt-
ir. Þjálfari var Magnús Björgvinsson og liðsstjóri Jóhann Gunnarsson.
Tækniskólinn vann Verslunarskóla íslands, 2-1, i úrslitaleik karlaliða á
skólamóti framhaldsskóla í fyrra. Leikið var á gervigrasvellinum I Kópa-
vogi. Liðið var skipað eftirtöldum leikmönnum: Mikael Traustason, Arnar
Már Snorrason, Björn Rafnsson, Atli Einarsson, Ingi Sigurðsson, Grétar
Steindórsson, Halldór Reykdal Baldursson, Friðrik Einarsson, Jón Atli Gunn-
arsson, Jens Bjarnason, Helgi Waage, Guðni Þór Gunnarsson, Skúli Hali-
grímsson og Magnús Gylfason. Liðsstjóri er Bogi Bjarnason.
DV-myndir Hson
á Reykjavíkursvæðinu
hafa lokað grasvöUum sínum fyrir
drengjalandsliðinu í knattspymu.
Þaö er staðreynd. Strákamir halda
til Danmerkur nk. mánudag og
mæta Dönum í síðari leiknum í
Evrópukeppni landstiða og þurfa
að ná góðum úrslitum til að kom-
ast í úrslitakeppnina á næsta ári.
Síðastliðinn mánudag var fjallaö
ura þetta vandamál á unglingasíðu
DV, sérstaklega vegna meiðsla
tveggja leikmanna liösins á gervi-
grasinu í Laugardal sem er vel
þekkt slysagildra. í greininni var
meðal annars bent á að þrátt fyrir
lokunina væri ástand grasvalla
gott hjá Reykjavikurfélðgunum og
á Tungubökkura í Mosfelisþæ.
Við höfum gert okkar besta
Daviö Sigurðsson, forstöðumaður
íþróttamannvirkja i Mosfelisbæ,
hafði samband við DV og var
óhress með ffammistöðu Reykja-
víkurfélaganna hvað þetta varðar:
„TungubakkaveUirnir hafa ávaUt
veriö opnir fýrir drengjalandsUðið
i haust og síðasti æfingaleikur
drengjalandsliðsins þar var 6. okt-
óber. Vellirnir á bökkunum eru að
og fmnst mér að komiö
Reykjavíkurfélögunum að
eitthvað af mörkum. Þau hafa
tælúfæri til þess út vikuna,“ sagöi
Davíö.
Davíð kvaðst ekki haía fengið
beíðni frá KSÍ um fleiri æiingar eða
æfingaleiki U-16 ára liðsins á
Tungubakkavöllum.
Tveir ungir Selfyssingar með þjálfara sínum, Pólverjanum Kryzman. Til hægri er sigurvegarinn í 60 kílóa
flokki 15-17 ára, Gils Matthfasson, og til vinstri er Björn Grétarsson sem varð í 3. sæti í sama aldursflokki.
DV-myndir Hson
Haustmót Júdósambandsins:
Hvar er bikarinn
sem ég átli að fá?
- spyr Gígja Gunnarsdóttir, 18 ára Armenningur
Haustmót Júdósambands íslands
fór fram sl. laugardag í íþróttahúsi
Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Keppt var í karlaflokki og undir 21
árs, einnig karlaflokki, en sagt var
frá úrslitum í þeim flokkum á
íþróttasíðu DV sl. mánudag. Einnig
var keppt í ungUngaflokki 15-17 ára
og urðu úrsUt í þeim aldursflokki
sem hér segir.
Unglingaflokkar
-60 kíló:
1. GUsMatthíasson....Umf. Self.
2. Bergur Sigfússon.....Ármanni
3. Bjöm Grétarsson ....Umf. Selfoss
-65 kíló:
1. AtUH. Arnarson...........KA
2. JónasJónasson.............KA
3. Teitur Guðmundss...Umf. Self.
+70 kíló:
1. AriSigfússon.........Ármanni
2. FriðrikPálsson.......... KA
3. AtUGylfason..........Ármanni
Hvar er bikarinn minn?
Gígja Gunnarsdóttir, 18 ára Ár-
menningur, var eina stúlkan sem
keppti á haustmótinu - og varð því
Umsjón:
Halldór Halldórsson
að efja kappi við strákana. Hún sló
aldeihs í gegn því hún varð 1 3.
sæti í karlaflokki:
„Ég byrjaði að æfa júdó í Ár-
manni 1988 og hef varla sleppt æf-
ingu síðan. Ég var eini kvenkepp-
ahdi haustmótsins í þessum ald-
ursflokki og barðist við eintóma
stráka. Reyndar hef ég oftast þurft
að etja kappi gegn strákunum og
er það aUt í lagi í sjálfu sér því
maður leggur sig bara meira fram.
Gegn körlunum hef ég náð best 3.
sæti tvisvar sinnum og 4. sæti á
íslandsmótinu, yngri en 21 ára, í
fyrra. Mér finnst mjög gaman í júdó
sem er ekkert síðm- íþrótt fyrir
kvenfólk en karlmenn og vU ég
gjarnan nota tækifærið til þess að
hvetja stelpumar til aö láta sjá sig.
Ég get ekki látið hjá Uða að minn-
ast á eitt mál sem' brennur svoUtið
á mér. Þannig er að ég sigraöi í
opnum flokki kvenna á íslands-
mótinu í fyrra og voru bikarverð-
laun veitt fyrir tækni í öUum flokk-
um og-átti ég að sjálfsögðu að fá
minn bikar fyrir frammistöðuna -
en verðlaunin hafa látið á sér
standa því það er ekki ennþá búið
að afhenda mér þau. Ég er auðvitað
rosalega svekkt út af þessu óg sýn-
ir þetta atvik okkur hvað áhugi er
í raun UtiU innan Júdósambands
íslands fyrir kvennajúdói," sagði
Gígja.
Mikill júdóáhugi á Selfossi
GUs Matthíasson, Umf. Selfoss,
sigraði í 60 kílóa flokki 15-17 ára:
„Þetta er alveg frábært - því það
er aUtaf gaman að sigra. Jú, júdó-
áhugi er mikiU á Selfossi enda höf-
um viö mjög góöan þjálfara. Þeir
eru ekki mjög margir, Selfyssing-
amir, sem keppa um þessar mund-
ir en mikiU skari ungUnga er ný-
byrjaður að æfa svo fjöldi kepp-
enda á eftir að aukast mikið á næst-
unni,“ sagði Gils.
Stelpurnar koma seinna
Þjálfari Umf. Selfoss er Pólverjinn
Kryzman sem er 34 ára og er þekkt-
ur júdómaður í sínu heimalandi:
„Þetta er annað árið sem ég þjálfa
á Selfossi. Þegar ég kom hingað var
nánast ekkert um að vera í þessari
íþróttagrein - en þessi tvö ár hefur
áhugi unglinganna á júdói aukist
mjög mikið. Stúlkumar hafa ekki
mætt að neinu ráði á æfingar ennþá
- en þær koma bara seinna. - Jú.
Ég kann mjög vel við mig á Sel-
fossi,“ sagði Kryzman.
Tvö unglingamót á næstunni
JúdódeUd Armanns mun halda
júdómót fyrir yngri flokka, 7-10 ára
og 11-14 ára. Fer mótið fram í Ár-
mannssalnum að Einholti 6 nk.
laugardag og hefst keppni klukkan
9.
Á Selfossi verður mót fyrir yngri
flokka 7. nóvember. Gert er ráð
fyrir þátttöku félaga vítt og breitt
af landinu í báðum þessum mótum.
-Hson
Gígja Gunnarsdóttir, 18 ára júdókona í Ármanni, stendur sig frábærlega
I keppninni gegn strákunum.