Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1992, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1992, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1992. Merming i>v Ný kvikmynd, Lúkas, er samstarf íslands, Eistlands og Danmerkur: Nýtt fyrir mig að fylgjast með eigin leikriti verða að kvikmynd - segir Guömundur Steinsson en Lúkas er gerð eftir samnefndu leikriti Juri Jarvet í hlutverk Alberts. Jarvet var meðal þekktustu leikara I fyrrum Sovétrikjunum og hefur leikið í mörgum kvikmyndum. Ekkert lát hefur verið á frumsýn- ingum íslenskra kvikmynda að und- anfórnu og þótt Lúkas, sem frum- sýnd verður á föstudaginn, sé að mestu framleidd af Eistlendingum þá er hér um að ræða kvikmynd gerða eftir íslensku leikriti og í sam- vinnu við íslendinga. Leikritiö Lúkas var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á sínum tíma og þá lék Erlingur Gíslason Lúkas en Arni Tryggvason og Guðrún Stephensen léku hjónin Elisabetu og Albert. Leikstjóri var Stefán Baldursson. Leikritið greinir frá samskiptum Lúkasar og eldri hjóna. Þau eiga von á Lúkasi til kvöldverðar. Hinn fjar- stæðukenndi söguþráður endur- speglar heimkomu glataða sonarins en sýnir jafnframt baráttuna milh hins undirokaða og harðstjórans. Tilurð kvikmyndarinnar var að sögn Guðmundar Steinssonar á þann veg að leikritið komst í enskri þýð- ingu í hendur þýðandans Arvos Alas sem lærður er í norrænum málum, meðal annars íslensku. Arvos útveg- aði sér íslenska textann og þýddi verkið. Hann hafði samband við leik- hús í Eistlandi sem haföi áhuga á að sýna verkið en þar sem mikiU mat- arskortur er í Eistlandi og þaö þarf mat í leikritið varð það látið til hUð- ar. Arvo Alas hitti síðar kvikmynda- leikstjórann Tonu Vivre og sagði honum að Lúkas væri upplagt efni í kvikmynd. Þegar þama var komið var hið stóra Tallin kvikmyndaver að syngja sitt síðasta og Vivre ný- kominn í samstarf við kvikmynda- framleiðandann Raimond Feld og höföu þeir stofnað Freyja FUm. Vivre sýndi áhuga á að kvikmynda leikrit- ið. þaö var ákveðið að Lúkas yrði gerð á vegiun fyrirtækis þeirra. Guö- mundur fór síðan í þrjár ferðir til Eistlands tU að fylgjast með og að- stoða við textann. Þijú hlutverk eru í Lúkas og em þekktir leikarar í öllum hlutverkum. Þekktastur er Juri Jarvet sem leikur gamla manninn Albert. Hann hefur leikið í mörgum frægum sovéskum kvikmyndum, má þar nefna titilhlut- verkið í Lé konungi sem leikstýrð var af Grigory Kozintsev, Hamiet eft- ir sama leikstjóra og Solaris eftir Andrei Tarkovsky. Nýlega er búið að gera heimUdarmynd um Juri Jar- vet og var sú mynd að hluta tekin við upptökur á Lúkasi. Ita Ever leik- ur eiginkonu hans, Elísabetu. Hún á langan feril að baki í leikhúsum og kvikmyndum. Nýlega kom út bók um ævi Ita Ever. Lúkas er leikinn af Ain Lutsepp sem er mun yngri leikari en er þekktur í Eistlandi. Auk Freyja FUm stendur Frigg FUm að framleiðslu myndarinnar. Upptökur fóru fram í Tallin í Eist- landi. Um er að ræða heimsfrumsýn- ingu á myndinni á föstudaginn en hún verður síðan frumsýnd í Eist- landi í nóvember. í tílefni frumsýningarinnar koma 111 landsins fimm gestir frá Eistlandi, leikstjórinn Tönu Vivre, kvikmynda- tökumaðurinn Mait Máikivi, fram- leiðandi myndarinnar, Raimond Felt, Lepo Sumera, höfundur tónhst- arinnar, og þýðandinn, Arvo Alas, sem nú er sendiherra Eistlands á ís- landi, í Noregi og Danmörku með aðsetur í Kaupmannahöfn. -HK Heima hjá ömmu frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur: Pilsvargurinn sem allir eru hræddir við NeU Simon er sjálfsagt vinsælasti gamanleikjahöfundur í Bandaríkj- unum í dag. Langflest leikrita hans hafa slegið í gegn á Broadway og síð- an verið sýnd við miklar vinsældir um allan heim. í vetur munu bæði Þjóöleikhúsið og Leikfélag Reykja- víkur taka til sýninga leikrit eftir NeU Simon. Leikfélag Reykjavíkur ríöur fyrst á vaðið með uppfærslu sína á Heima hjá ömmu sem frumsýnt verður á Stóra sviði Borgarleikhússins á * sunnudaginn. Sjö leikarar koma fram í sýningunni: Margrét Ólafs- dóttir leikur ömmu Kurvits en böm hennar fjögur em leikin af Sigurði Karlssyni, Harald G. Haraldssyni, Elvu Ósk Ólafsdóttur og Hönnu Mar- íu Karlsdóttur. Sonarsynir hennar eru leiknir af Gunnari Helgasyni og ívari Emi Sverrissyni. Heima hjá ömmu gerist í smábæn- um Yonkers árið 1992 á heinúli ömmu. Hún er þýskur gyðingur sem hefur aUð sinn aldur við rekstur á sælgætisverslun í bænum. Þegar leikurinn hefst er eldri sonur henn- ar, Eddi, kominn í heimsókn með tvo stálpaða syni sína. Hann hefur ný- lega misst konu sína og steypt sér í miklar skuldir vegna hjúkrunar á henni. Hefur hann nú lent í höndum Heima hjá ömmu gerist á heimili ömmu þar sem ailt verður að vera eins og hún vill hala þaö. DV-mynd BG okrara og sér aðeins eina leið út úr ógöngum sínum: að taka starfi sem felst í löngum og ströngum ferðalög- um við kaup á brotajámi. Hann á engan kost annan en að koma drengj- unum fyrir í fóstur hjá ömmu. Heimilishald gömlu konunnar er í föstum skorðum. Yngsta dóttir henn- ar, Bella, kemur ekki róti á þær skorður þótt hún sé þroskaheft og lendi í ýmsu. Ekki heldur yngri son- urinn Louie, sem vinnur hjá maf- íunrn. Þaðan af síður Gerda, dóttir hennar. Allir eru skíthræddir við þennan pilsvarg sem öllu stjómar með harðri hendi og staf á lofti. Leik- urinn lýsir síðan hvemig til tekst með fóstur pilfanna tveggja, hvemig vera þeirra á heimilinu breytir í raun þeim skorðum sem ekkert virtist geta breytt. Neil Simon hefur verið sískrifandi í þijátíu ár og hefur fjöldi leikrita hans verið kvikmyndaður. Vinsæld- ir hans má ekki síst rekja til innsæis í mannlegan breyskleika, vonir fólks og þrár. Hann er snjall í samningu samtala og fléttu og aðgengilegur öll- um aldurshópum. Fyrir leikriti sitt Heima hjá ömmu hlaut hann virt- ustu viðurkenningar sem rithöfund- ar fá í Bandaríkjunum, bæði Puhtz- er- og Tony-verðlaunin. Hreyfimyndafélagið, nýr kvikmyndaklúbbur, tekur til starfa: Klassísk meistaraverk og nýjar myndir sem vakið hafa athygli Hreyfimyndafélagið er nýr kvik- myndaklúbbur sem stúdentar við Háskóla íslands hafa haft forgöngu um aö stofna í samvinnu við Há- skólabíó og verður fyrsta kvik- myndin á vegum klúbbsins, Ju Dou eftir kínverska leiksfjórann Zhang Yimou, sýnd í Háskólabíói. Mark- mið klúbbsins er að standa fyrir reglulegum sýningum á gömlum meistaraverkum kvikmyndasög- unnar og nýrri kvikmyndum sem hafa vakið athygh á kvikmyndahá- tíðum erlendis. Zhang Ymiou, leikstjóri Ju Dou, er í dag merkasti leikstjóri Kín- veija og er skemmst að minnast þess að kvikmynd hans atti kappi við Böm náttúrunnar um óskars- verðlaunin í vor. Fáar vikur em síðan nýjasta kvikmynd hans hlaut guhverðlaunin á kvikmyndahátíö- inni í Feneyjum. Það er margt í bígerð hjá Hreyfi- myndafélaginu. Næsta mynd, sem tekin verður til sýningar, er tónhst- armyndin The Wah, gerð eftir sam- nefndu tónverki Pink Floyd og leik- stýrð af Alan Parker en stutt er síðan önnur tónhstarmynd eftir Parker, The Commitments, var sýnd í Háskólabíói við mikla að- sókn. Hreyfimyndaklúbburinn ætlar um næstu mánaðamót að halda kvikmyndahátíð þar sem meginá- hersla er lögð á óháða ameríska kvikmyndagerð og gerð ódýrra mynda og er þá átt við myndir af sömu stærðargráðu og íslenskar kvikmyndir. Friðrik Þór Friðriks- son og Jim Stark hafa haft veg og vanda af skipulagningu hátíðar- innar og er von á fjölda góðra gesta. Má þar nefna leikstjórana Gregg Araki og Claire Denis. Einnig er von th þess að Jim Jarmusch og AkiKaurismakilátisjásig. -HK eftirThor Raddir í garðinum heitir ný bók eftir Thor Vhhjáhnsson sem mun koma út hjá Máh og menningu íýrír jóhn. Ekki er um að ræða nýja skáldsögu frá honum heldur er Thor að skrifa á persónulegan hátt um það fólk sem aö honum stendur. Er þar um aö ræða tvær ættir, Thors-ættina sem Thor er komínn af i móðurlegg en þar fjallar Thor meðal annars um nafiia sinn, Thor Jensen, og syni hans sem margir hveijir tengjast þjóðinni sterkum böndum. Föð- urætt Thors er rakin th Flateyj- ardals sera er norðan við Húsa- vík. Þar bjó fólk við önnur og erfiðari JifsKjör en Thors-ættin. Japanipantar tónverkaffimm íslenskum tónskáldum Japanskur tónhstaráhugamað- ur, Michio Nakajima, sem fylgst hefur með íslenskri tónsköpun, pantaði á þessu ári verk eftír fimm íslensk tónskáld sem hann valdi eftir að hafa eytt löngum tíma við að hlusta á íslenskar upptökur. Tónskáldin, sem urðu fyrir valinu, eru Atli Ingólfsson, Askeh Másson, Hhmar Þórðar- son, Jónas Tómasson og Karólína Eiríksdóttir. Ýmir, nýstofnaður kammerhópur, er að æfa verkin og mun flytja þau á Myrkum músikdögum sem framundan eru. Nakajima sjálfur undirbýr nú frumflutning á verkunum í Japan á næsta ári en þar munu japanskir hljóöfæraleikarar flytja verkin. Það er einnig ósk hans að verkin veröi gefin út á hljómdiski i flutningj Ymis. Hamrahlíðar- kórinnogEnar Jóhannesson tilnefnd Búið er að tilnefna th tónlistar- verðlauna Norðurlandaráðs en tvær tilnefbingar koma frá hveiju Norðurlandanna. Hamra- hhðarkórinn og Einar Jóhannes- son klarínettuleikari hafa verið thnefnd frá íslandi. Aðrar th- nefningar eru þjóðlagatríó og hljómsveitin Kammerensemblen sem eru tilnefningar Svía. Noreg- ur tilnefhir baritonsöngvarann Knud Skram og djassleikarann Jan Garbarek, Danmörk Kontra- kvartet og Erhng Blöndal Bengts- en sehóleikara og frá Finnlandi koma tilnefningar um Österbott- en kammerorkhestra og klari- nettuleikarann Kari Kriikku. Ungverjaríaðal- hlutverkumá sinfóníutónleikum Fyrstu tónleikarnir i rauðri áskriftarröð Sinfóniuhþómsveit- ar íslands verða annað kvöld í Háskólabíói. Yfir tónleikum þess- um svifur ungverskur andi. Flutt veröa verk eftir Zoltan Kodály, Bela Bartok og Robert Schuman. Einleikari í fiðlukonserti Bartók er György Pauk sem er án efa einn þekktastí fiðluleikari sam- tímans. hefur hann leikið með öhum helstu hijómsveitum heims og komið fram meö hljómsveitar- stjórunum Sir Colin Davis, Lorin Mazel og Simon Rattle, svo að einhveijir séu nefndir. -Stjóra- andi Sinfóníunnar að þessu sinni er Thotnas Vetö sem er ungversk- ur en býr í Danmörku. Hefur hann sfjórnað öhum helstu hljómsveitum Skandinavíu og var aðalhljómsveitarstjóri Sinfó- - níuhljómsveitarinnar í Odense.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.