Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1992, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992.
3
Fréttir
xi.LLd lUgl CglUJ.llClXll J111ÍICJ1 Ull 111C1 dUöU.Ullil 1 AUAd 11 11 I l<J I III U 1 gCCl .
Obreyttur ákvað sjálf ur
eftirför á ofsahraða
verjandinn sýndi mynd af undarlegu hjólbarðafari á bíl Steins
Eltingaleikur fíkniefnalögreglunnar hófst við innkeyrsluna að Laugardals-
lauginni. Þegar Björn Halidórsson og aðstoðarmaður fóru út úr bíl sinum
til að handtaka Stein Ármann bakkaði hann sínum bil í snarhasti og ók
yfir gangstétt við pylsuvagninn.
Lögreglumaður úr flkniefhadeild
lögreglunnar, sem ók þeim bíl sem
var næstur á eftir Steini Ármanni
Stefánssyni á 150-160 km hraða í
Mosfellsbæ um miðnættið 17. ágúst,
tók sjálfur þá ákvörðun að auka
hraðann á bílnum umrætt kvöld á
Vesturlandsvegi. Hann var ekki í
sambandi við Bjöm Haildórsson yfir-
mann deildarinnar og fékk ekki fyr-
irmæli um svo stífa eftirför frá aðal-
ídómsalnum
Óttar Sveinsson
stöðvum lögreglunnar. Hins vegar
var starfsbróðir hans í framsæti í
sambandi við stjómstöð. Maðurinn
sagðist ekki hafa haft vissu fyrir því
að fíkniefni væm í bíl Steins.
„Ég tók þessa ákvörðun sjálfur og
vildi fá einhver viðbrögð hjá honum
(Steini) um að stoppa. Ég gerði mér
grein fyrir þeirri hsettu sem skapað-
ist,“ sagði lögreglumaðurinn að-
spurður í dómsyfirheyrslu í kókaín-
málinu í gær. Þar kom jafnframt í
ljós að dómaraúrskurður lá ekki fyr-
ir vegna talstöðvar sem notuð var til
að hlera þaö sem fram fór í bfi Steins.
Hjólfar á bíl Steins
Ragnar Aðalsteinsson, veijandi
Steins, gerði því skóna að hjólbarða-
farið hefði verið eftir framangreind-
an óeinkenndan lögreglubíl sem
hefði verið ekið utan í bfi Steins - en
ekki öfugt eins og lögreglumenn hafa
ávallt sagt í málinu. Þessu tfi stuðn-
ings lagði hann fram ljósmynd af bfi
Steins þar sem núningsfar eftir hjól-
barða kom fram fyrir aftan vinstra
framhjól og mynd af lögreglubfinum
sem sýndi skemmd að framanverðu.
Veijandinn spurði rannsóknarlög-
reglumann, sem myndaði bflinn,
hvort hann treysti sér til að álykta
hvort óeinkennda lögreglubílnum
hefði verið ekið utan í bíl Steins með
hhðsjón af hjólbaröafarinu. Lög-
reglumaðurinn treysti sér ekki til að
svara þessu enda bar honum ekki
skylda tfi að draga síka ályktun fyrir
dóminum.
Ragnar spurði lögreglumenn einn-
ig út í hvers vegna annar hjólbarði
lögreglubflsins hefði verið sprunginn
hægra megin. Lögreglumaðurinn,
sem ók bflnum sem næstur var Steini
í eftirfórinni, bar á hinn bóginn að
eftir að Steinn ók utan í sinn bfi hefði
hann ákveðið aö hægja ferðina og
dragast aftur úr. Hjólbarðinn hefði
sprungið er hann hemlaði og sá
árekstur fram undan þar sem Steinn
ók á einkenndan lögreglubfl með
kunnum afleiðingum.
Átta lögreglumenn voru yfirheyrðir
í gær, þar af fjórir úr fíkniefnadeild,
og sá lögreglumaður sem stjómaði
þeim bfi sem Steinn Ármann ók á
og kviknaði í. Hann fullyrti að ef bfll
hans hefði oltið hefðu hann og félagi
hans báðir brunnið inni. Páll Eiríks-
son, fyrrverandi yfirlögregreglu-
þjónn, kom einnig fyrir dóminn. Tál-
beitumaðurinn setti sig í samband
við hann í sumar tfi að spyija hvort
Birni Halldórssyni væri treystandi.
Úr því kom jákvætt svar en sá síðast-
nefndi verður yfirheyrður í dag.
Það sem einnig kom fram hjá fíkni-
efnalögreglumönnum í gær var að
aðeins einn skrifar skýrslur þegar
jafnvel 2-4 bflar taka þátt í að fylgj-
ast með mönnum, „að skyggja" - án
þess að hinir staðfesti skýrslurnar.
Ný skýrsla af lög-
reglumanni í gær
Skýrsla hefur aldrei verið tekin af
einum fíkniefnalögreglumannanna
sem mættu í gær. Hann var í sinni
fyrstu yfirheyrslu vegna kókaín-
málsins í gær. Hann byijaði að vinna
við kókaínmálið 7-10 dögum fyrir
handtöku Steins og var á vettvangi
í Mosfellssveit nokkru eftir að
áreksturinn varð. Hann bar að hafa
komið aö sundlaugunum í Laugardal
þegar Steinn var aö stinga Björn og
aðstoðarmann hans af á bfiastæði
þar og séð félaga þeirra á bfi fylgja
Steini eftir.
„Ég sá enga ástæðu tfi aö taka þá
upp í og vissi að þeir myndu redda
sér niöur eftir,“ sagði hann aðspurð-
ur um hvers vegna hann hefði haldið
strax á eftir félögum sínum á tveimur
óeinkenndum lögreglubflum sem
fylgdu Steini eftir að Mosfellsbæ.
Þessi maður kom á vettvang í Mos-
fellsbæ talsverðri stund á eftir félög-
um sínum.
- Frumsýning á sjálfskiptum BMW 316ÍA -
BMW bílar eiga langa og merkilega sögu
hér á landi. Þeir sem átt hafa BMW vita aö honum
fylgir sérstök tilfinning sem ekki finnst í öörum
bílum. BMW hefur þá nútímatækni, fágun og
stílbragð í hönnun og útliti, sem þarf til aö gefa
þessatilfinningu.
BMW '5 línan er vinsæll og eftirsóttur
fólksbíll meöal vandlátra kaupenda um allan
heim. Stærsta bílatímarit Evrópu "auto, motor
und sport” tók áriö 1990 tíu tegundir fólksbíla til
árekstrarprófunar. Þar var BMW '5 línan öllum
fremri hvaö snerti öryggi ökumanns og farþega.
BMW '3 línan er sportlegur fjölskyldubíll
sem býöur upp á nýtískulegt útlit, mikið rými og tækni
sem byggir á áratuga reynslu sérfræöinga BMW.
Bæöi '3 og '5 línan hafa hina eftirsóttu 50%
þyngdardreifingu á milli fram- og afturöxla sem tryggir
bestu aksturseiginleika viö allar aöstæöur. í báöar
gerðir er hægt aö fá fjögurra eöa fimm þrepa
sjálfskiptingu meö sérstakri vetrarstiHingu* sem ásamt
50% þyngdardreifingunni tryggir öruggan og
þægilegan akstur í snjó og hálku.
Laugardaginn 7. nóvember kl. 10-17 og
sunnudaginn 8. nóvember kl. 13-17 kynnum viö 1993
árgerðir af BMW. Merkasta nýjungin aö þessu sinni
er sjálfskiptur BMW 316iA sem frumsýndur veröur
um þessa helgi. Til nýjunga má einnig telja
búnaö sem hlotiö hefur nafniö "VANOS", en
þetta er tölvustýrður búnaöur til stillingar á
opnunartíma ventla í 6 strokka vélum, sem meöal
annars eru í BMW 520i.
Viö vonum aö þú sjáir
þér fært að heimsækja okkur
um helgina til aö skoöa og Engum
reynsluaka 1993 árgeröum af líkur
BMW.
Bflaumboöiö hf.
Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633