Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1992, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1992, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NUMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. — Helgarblað 150 kr. Gegn þjóðarvilja Meirihluti alþingis gengur gegn skýrum þjóðarvilja, þegar hann hafnar tilmælum um að bera aðildina að EES undir þjóðaratkvæði. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið er ein- hver mikilvægasti milhríkjasamningur, sem ísland hef- ur gert. Spumingin um aðild eða ekki aðild að EES mun hafa geysimikil áhrif á framvindu mála hér á landi. Þeir stjómarherrar, sem hafna kröfunni um þjóðarat- kvæði, þora ekki að leggja máhð undir úrskurð þjóðar- innar. Þeir vilja stjórna þar að hætti hinna „menntuðu einvalda“. Þessir menn telja af einlægni, að það verði hagur þjóðarinnar um framtíð, að íslendingar verði í EES. En það er rangt að láta meirihlutann ekki ráða eins og verið hefði í almennri atkvæðagreiðslu, þegar svo stórt mál er á ferðinni. Staðan hefur breyzt frá síð- ustu kosningum, og því hafa núverandi þingmenn ekki verið kosnir á grundvehi afstöðu sinnar til EES. Skoðanakönnun DV nú í vikunni segir þá sögu, hversu greinilegur vilji þjóðarinnar um þjóðaratkvæða- greiðslu er. Af öhu úrtakinu í skoðanakönnuninni sögð- ust 65 prósent vera fylgjandi því, að máhð yrði borið undir þjóðaratkvæði. Ríflega 20 prósent vom andvíg þjóðaratkvæði. Þrír af hverjum úórum þeirra, sem af- stöðu tóku, var því hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu. Andstæðingar EES hafa lagt þunga áherzlu á þjóðar- atkvæði, af því að þeir hafa tahð, að þeir verði undir á alþingi, þegar kosið verður um aðhd. Fylgismenn EES hafa sumir hveijir andmælt þjóðaratkvæðagreiðslu um máhð, en mestmegnis á lítilvægum forsendum. í skoð- anakönnuninni reyndust yfir 80 prósent andstæðinga EES vera fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu, að sjálf- sögðu, en jafnvel meðal stuðningsmanna EES vom flest- ir fylgjandi þjóðaratkvæði. Þetta segir þá sögu, að krafan um þjóðaratkvæði mætir skilningi, einnig hjá flestum þeim, sem vilja aðhd okkar að EES. í skoðanakönnun DV var einnig spurt, hvort menn væm fylgjandi eða andvígir samningnum um aðhd ís- lands að EES. Þá reyndust landsmenn skiptast í þrjá nær jafna hluta, fylgjandi, andviga og óákveðna gagn- vart EES. Fylgismönnum EES hafði þó vaxið fiskur um hrygg frá skoðanakönnunum DV fyrr á árinu. Þriöjungur landsmanna reyndist óákveðinn. Hefði þjóðaratkvæði orðið ofan á, heföi því fylgt umræða, þar sem óljós atriði hefðu skýrzt. í umræðunum um EES er ofarlega á baugi, hvort samningurinn standist stjómarskrá. Þegar svo er kom- ið, var greinilega fuU þörf á, að þjóðin sjálf réði ákvörð- un. Við eigum að stefna að því, að sá háttur verði hafður á, að mikilvæg mál verði gjaman útkljáð með því, að málin verði borin undir þjóðaratkvæði. Kerfið gerir ráð fyrir þeim möguleika, og hann ætti að nýta. Ekki verður fallizt á þær kenningar utanríkisráð- herra, aö betra sé, að aðild að EES verði borin undir þjóðaratkvæði, efdr að reynsla hefur fengizt af aðhd- inni. En þá munum við hafa undirgengizt margs konar skuldbindingar og bundið atvinnulíf okkar EES svo, að erfitt yrði að losna. Viö atkvæðagreiðsluna á Alþingi í gær greiddu tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins atkvæði með þjóðarat- kvæðagreiðslu og einn greiddi ekki atkvæði. En þetta dugði skammt. Þannig hundsaði meirihluti Alþingis vilja þjóðarinnar. Haukur Helgason Bill Clinton, næsti forseti Bandaríkjanna. - Enginn Roosevelt og veit hvað hann getur gengið langt, segir Gunnar m.a. í greininni. Simamynd Reuter Osigur frjals- hyggjunnar Upp er runninn alveg nýr tími í bandarískum stjómmálum með kjöri Bills Clinton í forsetaemb- ætti. Úrslitin verða ekki túlkuð öðruvísi en sem algjört vantraust á þá efnahagsstefnu sem Reagan upphóf 1980 og byggðist á því að ríkið ætti hvergi nærri að koma. Markaösöflin myndu algerlega sjá um að halda efnahagslífinu gang- andi. Afleiðingar af þessari stefnu hafa á síðustu tólf árum verið að koma í ljós. Stjómartíð Reagans hófst meö keppu en síðan tók viö lengsta upp- gangstímabil sem um getur í Bandaríkjunum allt til 1988 þegar Bush var kjörinn með það í fartesk- inu að hann væri arfíaki Reagans og ætti að halda áfram á sömu braut. Uppgangur og eyðsla En uppgangur Reagans um miðj- an níunda áratuginn var byggður á ótrúlegum fjárhæöum til hermála sem leiddu til stóraukinnar at- vinnu meðal iðnverkamanna og samsvarandi eyðslu sem aftur leiddi til meiri skatttekna ríkisins. En galhnn við þetta var sá að auka- útgjöldin vom fjármögnuð með lántökum og útgáfu skuldabréfa ríkissjóðs sem leitt hefur til þess að uppsafnaður flárlagahalli Bandaríkjanna nemur nú fjórum billjónum, þ.e.a.s. fjögur þúsund milijörðum dollara, og hefur aukist á þessu ári um 400 milljarða þrátt fyrir loforð Bush um að skila halla- lausu fj árlagafrumvarpi 1990. Á þeim tíma sem þeir Reagan og Bush hafa veriö við völd hefur þjóðarskuld Bandaríkjanna fjór- faldast með tilheyrandi þrýstingi á vaxtakerfið og ekki síst minnkandi fjármagnsframboði sem er undir- staða þess kerfis sem Reagan boö- aði. Bandaríkin eru nú skuldugasta ríki heims. í stað þess aö vera nettó lánveitandi er nú Bandaríkjastjóm skuldari gagnvart alþjóðapeninga- markaöi. Stefna Reagans, sem Bush kallaði einu sinni árið 1980, þegar hann sjálfur reyndi að ná útnefningunni af Reagan, „Voodoo Economics" eða írafells-Móra-hagfræði, hefur orðiö stefna hans sjálfs. Þessi stefna hefur ríkt síðustu 12 ár og afleiðingamar hafa ekki látiö á sér standa. Bihð milh ríkra og fátækra hefur breikkaö stöðugt, miöstéttin, sem er meginþorri Bandaríkja- manna, hefur sífeht orðið fyrir áfóhum, atvinnuleysi eykst, efna- hagskerfið stendur í stað. Vantraust Sigur Clintons var í því fólginn að hann benti á þessar staðreyndir og fékk fólk th að trúa sér. Mismun- urinn á kreppu og samdrætti hefur Kjallariim Gunnar Eyþórsson fréttamaöur verið skilgreindur sem svo: Þegar nágranni minn missir vinnuna er samdráttur; þegar ég missi vinn- una þá er kreppa. Þetta komst til skila og þaö er þess vegna sem Bandaríkjamenn eru núna fyrst að fella Reagan og það var ólán Bush aö hann var arftaki Reagans og holdgervingur þeirrar einstreng- ingslegu hugmyndafræöi sem Re- agan og hans menn fylgdu gegnum þykkt og þunnt. Þeir strangtrúarmenn í írafehs- Móra-hagfræði, sem imnu fyrir Reagan, unnu fyrir Bush líka og arfleifð Reagans geröi Bush ókleift að móta nokkra stefnu í innanríkis- málum sem vék í nokkru sem máh skipti frá stefnunni sem Reagan mótaöi 1980 og Repúbhkanaflokk- urinn hefur haldið fast við síðan. En nú eru aðrir tímar að renna upp og Clinton hefur þegar boðað breyt- ingar sem munu breyta öhu and- rúmslofti og væntingum almenn- ings. Það er athyghsvert við þessi kosningaúrsht að samanlagt hafa þeir Clinton og Perot, þeir sem boð- uöu breytingar á efnahagskerfinu, fengið nærri tvo þriöju greiddra atkvæða. Þetta er mesta van- traustsyfirlýsing samanlagt sem um getur síðan Herbert Hoover féh fyrir Roosevelt 1932. Clinton er enginn Roosevelt. Hann veit mæta vel hvað hann getur gengiö langt og bandarískur almenningur er upp th hópa íhaldssamur. En hann hefur slegið á rétta strengi. Það sem honum og öðrum þykir óþolandi, eins og ástand heUbrigðis- og al- mannatryggingamála í Bandaríkj- unum, er einmitt það sem brennur á almenningi og í þessum málum hefur Clinton ákveðin og sértæk úrræði sem falla fólki í geð. Perot Perot er í raun og veru sigurveg- arinn í þessum kosningum, rétt eins og hann sigraöi í kappræðun- um á dögunum. Það hefur ekki gerst síðan 1912 að frambjóðandi þriðja aðila fái 15-18 pósent at- kvæða. Enda þótt Perot hafi ekki náð því aö vinna neitt ríki og fá kjörmenn þess er aUt upp í 20% fylgi ótrúleg tala. George WaUace, sem bauð sig fram árið 1968, fékk 14% en vann þó fimm Suðurríki. Wallace var áhrifalaus eftir það og þegar þar að kom höUuðust fylgis- menn hans að Reagan. Þessa fýlgis- menn hefur Clinton unnið aftur fýrir demókrata aö mikiu leyti. Perot átti stóran þátt í þeirri metkjörsókn sem var í Bandaríkj- unum á þriðjudaginn, hann virkj- aði lýöraeðisöflin, eins og Clinton sagði sjálfur efhr aö úrsht urðu ljós. Það er Ijóst að Clinton mun reyna að nýta þau öfl sem Perot hefur leyst úr laeðingi, jafnvel með því að taka einhverja af fylgis- mönnum hans inn í sljórnina. For- seti Bandaríkjanna skipar í um 4000 stöður og sumir fylgismenn Perots eru ekki ýkja tjarlægir stefnu Clintons. Það mun taka aht að fimm mán- uði að mynda nýja Bandaríkja- stjóm og allt veltur á því hvemig Clinton tekst að skipa þessar 4000 stöður sem beinlínis heyra undir forsetann. Clinton hefur sýnt það á ríkisstjóraferh sínum í Árkansas að haim kann að velja sér sam- starfsmenn. Perot er óumdeilan- legur áhrifavaldur í þessum kosn- ingum og þaö er ekki síður hans verk en Clintons að svoköhuð frjálshyggja í Bandaríkjunum er nú um þaö bil að höa undir lok. í hönd fer tímabh þar sem Bandarík- in hugsa fyrst og fremst um sig sjálf en út úr því tímabih geta þau kom- ið sterkari en nokkm sinni fyrr. Gunnar Eyþórsson ,,Það er athyglisvert við þessi kosn- ingaúrslit að samanlagt hafa þeir Clin- ton og Perot, þeir sem boðuðu breyting- ar á efnahagskerfmu, fengið nærri tvo þriðju greiddra atkvæða.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.