Alþýðublaðið - 15.03.1967, Blaðsíða 2
,VWW»»WWVWMWW»mWiHW.WHW4HHVW.
Spilakvöld — Dregið íhappdrætti
jj Egffert G. Þorsteinsson.
ALÞÝÐUILOKKSFÉLAG Reykjavíkur lieldur spilakvöld í Lídó
annað kvöld 16. marz kl. 8,30. Úthlutað verður verðlaunum cít-
ir 3ja kvölda keppni, auk venjulegra kvöldverðlauna. Ennfrem-
ur verður dregið í happdrættinu um flugferð til Kaupmanna-
hafnar með Boeingþotu Flugfélags íslands, og eru þeir sem
eiga miða í happdrættinu hvattir til að mæta.
— Eggert G. Þorsteinsson félagsmálaráðherra flytur ávarp.
— Dorellos sisters syngja. Dansað til kl. 1. Hljómsveit Óla
Gauks leikur ásamt söngvurunum Svanhildi Jakohsdóttur og
Birni R. Einarssyni. Athygli skal vakin á því, að þeir sem koma
fyrir kl. 8.30 þurfa ekki að borga rúllugjald.
Maosinnar
enn á ferli
v.Yv' ;; ,• • ■ ■■-;;
■YYiYYí;;,-.
Peking 14. 3. (NTB-Reuter). —
Um 100.000 stúðningsmenn Mao
Tse-tungs fóru í dag í mestu hóp
göngur um götur Peking sem efnt
hefur verið til í borginni síðan
rauðu varðliðarnir settust um sov-
ézka sendiráðiið í síðasta mánuði
Mótmælaaðgerðir þessar, sem
beindust fyrst og fremst gegn Liu
Shao-chi forseta, Teng Hsiao-ping
aðalritara flokksins og Tao Chu að
stoðarforsætisráðherra komu flatt
upp á erlenda fréttaritara, enda
hefur verið tiitölulega rólegt í Pek
ing að undanförnu og blöðin, sem
eru á valdi Maosinna, hafa lagt
áherzlu á nauðsyn einingu og aga.
Hins vegar voru mótmælaaðgerð
irnar í dag friðsamlegar og ekkert
í líkingu við hinar hávaðasömu mót
mælaaðgerðir þegar menningar-
byltigin stöð sem liæst.
★R-ússar fordæmdir
Meðal leiðtoga þeirra sem gagn
rýndir voru, voru aðstoðarforsætis
ráðherrarnir Tan Chen-lin og Chen
sér, troðast og smjúga
j
EKKI verður sagt um
Austra Þjóðviljans, að hann
haldi hvíldardaginn heilagan,
en iðja hans þá er raunar at-
hyglisverð. Hann birtir í blaði
sínu á sunnudögum stækkaða
útgáfu af hugleiðingum sínum
virka daga um menn og við-
horf íslenzkra stjórnmála og
kemur víða við. Ritsmíð hans
á sunnudaginn var fjallaði um
„liina nýju stétt,” atvinnu-
stjórnmálamennina. Þar kenn-
ir margra grasa.
Austri gerir einkum að um-
ræðuefni framagosa Sjálf-
stæðisflokksins og Framsókn-
arflokksins, og er tilefnið sér
í lagi framboð borgara-
flokkanna á Vestfjörðum við
alþingiskosningarnar á sumri
komanda. Auðvitað verða
skiptar skoðanir um ályktan-
ir Austra. fþróttin lætur hon-
um betur en rökhyggjan, þó
að málflutningur hans sé að
ýmsu leyti tímabært umliugs-
unarefni. Hann reynir naúm-
ast að kryfja verkefnið til
mergjar, en fer á kostum eins
og leikfimisgarpur í stórmann-
legri keppni eða á tilkomu-
mikilli sýningu. Vel kemst
hann til dæmis að orði í
þessari niðurstöðu: „Ungir
menn af þessu tagi hafa mjög
látið að sér kveða innan Sjálf-
stæðisflokksins og Framsókn-
arflokksins um skeið; þeir eru
eins og verksmiðjuframleiðsla
og verða naumast aðgreindir,
sléttir og felldir og háttvísir
í umgengni, forðast að segja
frumlega hugsun eða valda á-
greiningi enda skoðanalausir,
þægir og hlýðnir við leiðtoga
sína, sérfræðingar í að ýta
sér, troðast og smjúga. Og
leiðtogar þessara flokka láta
sér þessa þróun vel líka; þeir
vilja reka flokka sína eins og
vel smurð tæki og taka þæga
framagosa fram yfir menn með
sjálfstæðar skoðanir og vilja.”
Könnim í táknum
Sennilega er þessi Iýsing á
uppeldissonum Bjarna Bene-
diktssonar og Eysteins Jóns-
sonar nærri lagi. Samt gæti
tilefni Austra verið nærtæk-
ara og persónulegra sam-
kvæmt kenningum Freuds
heitins og annarra vísinda-
manna, er kannað hafa völund-
arhús sálarlífsins. Mér koma
í hug í því sambandi fram-
boðsraunir Alþýðubandalags-
ins í höfuðborginni. Talið er,
að Einar Olgeirsson og Al-
freð Gíslason láti af þing-
mennsku í sumar og jafnvel Eð-
varð Sigurðsson einnig. Þann-
ig er um að keppa tvö eða
þrjú þingsæti Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík. Og sam-
búðin í Alþýðubandalaginu
mun harla svipuð ástandi
borgaraflokkanna á Vestfjörð-
um, sem Austri lýsir svo
fjálglega í sunnudagsgrein
Þjóðviljans. Framagosar eru
sem sér líka þar í sveit.
Meðal keppendanna um
þingsæti Alþýðubandalagslns
í Reykjavík er ritstjóri Þjóð-
viljans, Magnús Kjartansson,
öðru nafni Austri. Sú saga skal
ekki rakin að sinni, en senni-
lega er hún ærið tilefni rit-
smíðar Þjóðviljans um „hina
nýju stétt” á sunnudaginn var.
Magnús Kjartansson fjallar
hér um heimilislíf Alþýðu-
bandalagsins, þó að öll sé su
könnun í táknum. Freud hefði
minnsta kosti verið fljótur að
skilgreina fyrirbærið.
Hæg heúnatökin
Orðlist, sem skáldskapur
kallast, sprettur löngum úr
jarðvegi raunveruleikans, þó
að ímyndunaraflið komi þar
vissulega einnig við sögu. Svö
mun og um hugleiðingar
Austra í Þjóðviljanum. Gagn-
rýni hans á Sjálfstæðisflokk-
inn og Framsóknarflokkinn er
táknmál hans, er hann hefur
Alþýðubandalagið í huga. Víst
dæmist það nokkurs virði.
Austri er ritfær, hugkvæmur
og fundvís, þó að deila megi
um sanngirni hans og hóf-
semi. Margur hefur og
skemmtun af að hlíta leiðsögn
hans um völurtdárhús borgara-
flokkanna. Hins vegar skilja
lesendur Þjóðviljans naumast
allt, sem hann vill gefa í
skyn. Svo er til dæmis um
þessa ályktun síðustu sunnu-
dagsgreinar: „Atvinnupóli-
tíkusar og embættismenn eru
í vaxandi mæli að höggva á
eðlileg lýðræðisleg tengsl við
þjóðfélagið sjálft og breyta
þingræðinu í dautt formlegt
kerfi. Stjórnmálaflí/ckar
þeirra eru ekki lengur eðli-
leg samtök til framdráttar
hagsmunum og stefnum, held-
ur kosningavélar sem sópa
fólki til fylgis við þá fram-
bjóðendur sem örfáir leiðtog-
ar skammta í hverju kjör-
dæmi, líkt og tíðkast í Banda-
ríkjunum.” Satt var orðið. En
hvað finnst Austra um lýð-
ræðið í þeim ríkjum, þar sem
í boði er einn flókkur og einn
listi? Og hvað um fordæm-
ingúna á örfáum leiðtogum,
sem skammta frambjóðendur
í hverju kjördæmi? Ætli það
skeyti sé ekki ætlað Alþýðu-
bandalaginu í Reykjavík?
Kannski gerir Austri þau
viðhorf að úmræðuefni í nýrri
grein á sunnudaginn kemur og
lýsir því, hverjir „ýta sér,
troðast og smjuga” í Alþýðu-
bandalaginu um þessar mund-
ir — og livernig. Þá ætti hon-
um sannarlega að takast upp.
Og hæg verða heimatökin
fyrir hann að myndskVeyta
hugvekjuna.
Herjólfur.
Yun. Tan ,sem sæti á í stjórprnáVa
ráðinu og er sérfræðifigur í land
búnaðarmáíum., á að hafa fylgt
„borgaralegri afturhaldsstefnu i
sveitum og þorpum. Á nokkrum
veggspjöldum segir að heyja verði
baráttu gegn honum unzt yfirijúki
Þess er einnig krafizt að endi verði
bundin á völd Chen Yus.
Aðalmótmælaaðgerðirnar fóru
fram á hinu svokallaða Torgi
himnesks friðar, en þaðan hélt
stór hópur til.sovézka seridiráðsins
Framhald á 15. síðu.
13 hundnir
i leit oð
bankalykli
Hattingen, V-Þýzkalandi 14. 3.
(NTB-Reuter.) — Fjórir banka-
ræningjar höfðu á brott með sér
100.000 mörk úr banka í bænum
Hettingen í Vestur-Þýzkalandi í
dag eftir að hafa neyðzt til að setja
13 manns í bönd.
Bankaræningjarnir reyndu fyrsfc
að krækja sér í lykilinn að pen
ingageymslum bankans heima hjá
aðalgjaldkeranum. Þegar þeir
höfðu bundið hann og konu hans
kom í ljós að aðalgjaldkerinn hafði
aðeins enn þeirra þriggja lykla,
sem nauðsynlegir voru-. Bankaræn
ingjarnir gerðu ítrekaðar tilrauri
ir til að stela hinum lyklunum og
urðu að ráða niðurlögum 11 manns
í viðbót og setja þau í bönd.
Bankaræningjarnir brutust síð
an inn og hurfu á brott skömmu
áður en lögreglan kom á staðinn.
Þjófarnir ganga enn lausir.
Ný leit að
togara við
Grænland
Kaupmannahöfn 14. 3. (NTB-
RB). — Leit hófst að nýju síð-
degis í dag að vestur-þýzka togar
anum „Johannes Kriiss“ undan suð
urströnd Grænlands. Ekkert hefur
spurzt til togarans og 22 manna
sem á honum cru síðan 28. febrúar.
Leitinn var hætt í gærkvöldl
en var hafin að nýju í dag vegna
nýrra upplýsinga frá útgerð tog
arans í Bremerhaven. Útgerðar
fyrirtækið segir, að skipstjórinn
hafi ráðið því sjálfur á hvaða mið
við Grænland hann héldi.
Einn af áhöfninni var settur á
land í Hebridseyjum 28. febrúar
vegna veikinda, en síðan hefur
ekkert heyrzt frá togaranum. Tog
arinn er 650 lestir og sagður sterk
byggður.
2 15. marz 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ