Alþýðublaðið - 15.03.1967, Page 4

Alþýðublaðið - 15.03.1967, Page 4
mmm Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Simar 14000—14903. — Auglýsingasfml: 14906. — Aðsetur: Aiþýðutn'isið við Ilverfisgötu, Rvík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Simi 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausa* sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Dönsk stjórnmál MESTA DEILUMÁL danskra stjórnmála um tæp- }Iega áratugs skeið eru skattamál. Má af þessu marka, 'hve þýðingarmikið það er fyrir velferðarríki nútím- ans að koma skattheimtu fyrir á sanngjarnan hátt, svo að meiri hluti landsfólksins — að minnsta kosti — telji skattakerfið viðunandi. Stórfelld skattsvik verð Hur einnig að losna við — þau eru óþolandi meinsemd, setn grefur undan tiltrú almennings til alls ríkisvalds vins. Astæða þess, að skattamálin verða nú meira vanda- 'mal en nokkru sinni fyrr, er hinn mikli og vaxandi hlutur ríkisins í þjóðarbúskapnum. Nú þarf miklar ujiphæðir til tryggingamála og almennrar tekjujöfnun ar, sem áður voru óþekktar. Nú er krafizt-stórfelldrar, opinberrar þjónustu á sviði vegagerðar, hafnargerðar, flúgvalla, gatna og íbúðarhverfa, sjónvarps og hljóð- varps, svo að nokkuð sé nefnt. Undantekningalítið eru þetta aðgerðir, sem fáir eða engir leggja til, að aðrir taki að sér en hið opinbera. Má því segja að þetta volduga ríkisframtak snerti varla hinar gömlu deilur um þjóðnýtingu atvinnutækja. Danir leysa nú skattamál sín með samkomulagi vinstriflokkanna, jafnaðarmanna og flokks Aksels Lar sen. Aðrir flokkar eru ekki óánægðir með samkomu- lagið, enda búið að vinna lengi að því með þátttöku þeirra allra meira eða minna. Um leið og samkomulag náðist um skattamál var upplýst, að jafnaðarmenn hefðu gert samkomulag um samvinnu við Larsen. Jens Otto Krag forsætisráð- herra bauð flokki Larsens stjórnarsamvinnu eftir kosningar, en það boð var ekki þegið - aðallega vegna reynsluleysis margra hinna nýju þingmanna í liði Lar sens. Nú ætla þessir flokkar að koma upp samstarfs- nefnd sín á milli og vinna að lausn ýmissa aðkallandi mála auk skattanna. Meðal annars ætla þeir að styrkja jarðalögin til að fyrirbyggja lóðabrask, sem er að verða útbreitt og erfitt í Danmörku. Þá ætla þeir að herða lögin um skattgreiðslur af fasteignasölu — einnig til að hindra brask og óeðlilegan gróða. Loks ætla þeir að- auka verulega íbúðabyggingasjóð lands ins. Samkomulagið milli jafnaðarmanna og SF mun án efa reynast sögulegur atburður í danskri pólitík. Þv’ erjætlað að hindra djúpstæðan klofning í vinstra armi stjórnmálanna, eins og gerzt hefur í ýmsum öðrum löhdum. Slíkur klofningur í Danmörku mundi gera myndun ríkisstjórnar enn erfiðari en verið hefur — ef til vill færa hægriöflum meirihluta fyrr eða síðar eins og í Noregi. 4 15. marz 1967 - Tvöfalt gler - Tvöfalt gler Þið fáið tvöfalda einangrunarglerið með ótrúlega stuttum fyrirvara. GLUGGAÞJÓNUSTAN Hátúni 27 — Sími 12880. í Gluggaþjónustunni Hátúni 27: Allar þykktir af rúðugleri, litað gler, falleg munstur Sjáum um ísetningu á öllu gleri. Sími 12880. Áskriftasími Alþýðublaðsins er 14900 Aug/ýsið í Alþýðublaðinu Aglýsingasímg Alþýðublaösins er 1400® ★ BANN VIÐ TÓBAKSAUG- LÝSINGUM. Þá er fram komið á Alþingi frum- varp til laga um bann við tóbaksauglýsingum, og er það góðra gjalda vert, en kemur þó vonum seinna. Ber að þakka flutning þessa máls á hinu háa Alþingi, en þar finnst mér á skorta að jafn- íramt hefði verið í frv. þessu kafli um það, að Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins skyldi vera skylt að láta prenta á alla vindlingapakka aðvör- un til allra þeirra, er vöruna kaupa. Bandaríkja- menn eru nú þegar byrjaðir á þessu og sannarlega væri ekki vanþörf á að taka hér upp sömu aðferð. Það mun nú vera almennt álit hinna fróðustu lækna og vísindamanna að hinn svonefndi lungnakrabbi stafi af langmestu leyti af vindlingareykingum. Þegar þetta er svo almennt viðurkennt, þá getum við með fullum rétti kallað vindlingana eitraða vöru, og það er beinlínis skylda að vara kaupandann við skaðsemi hennar og það er ábyggilega mjög sterkt til árangurs að láta prenta á hvern einasta pakka orð, sem minntu á að varan bæri i sér hættulegt eitur. Læknar láta á lyfseðilinn orð, sem gefa til kynna að varúð skuli beita við notkun sumra lyfja og dettur eng- um í hug, að áfellast þá fyrir það, en gerðu þeir það ekki, brygðust þeir þeim trúnaði, sem þeim er sýndur og myndu fá ámæli. Að þessu athuguðu hljóta menn að geta fallizt á að minna alla þá er kaupa vindlinga, á skaðsemi þeirra. Ég vil skora á flutningsmann fyrrnefnds frumvarps eða einhvern annan alþing- ismann að flytja breytingartillögu við frumvarpið, eða fella inn sérstakan kafla í það, ef það skyldi vera þinglegri aðferð, sem gengi í þá átt, sem hér hefur verið stungið upp á. En í öllu falli mega alþingismenn ekki svæfa þetta frumvarp, til dæmis með því að vísa því til ríkisstjórnarinnar, sem jafnan er sama og að kála máli með fyrirferðarlitilli aðferð. Það verða áreiðanlega margir, sem fylgjast tel með framgangi þessa máls á Alþingi og það skyldu núverandi alþingismenn vel muna. Óvinur vindlinganna. ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.