Alþýðublaðið - 15.03.1967, Page 7
ÞYRLUFLUININGAR
Á VARAHLUTUM
Reykjavík, Hdan.
Hjá Bílaprýði hf. að Kársnesbraut
1 í Kópavogi er þessa dagana að
hefjast varahlutaþjónusta. Fyrir-
tækið hefur umboð fyrir fyrirtæk-
ið HAMOS í New York, sem útveg-
ar hverskonar varahluti og tæki á
skemmri tíma, en liingað til hefur
verið hægt að bjóða upp á.
Grétar Bergmann eigandi Bíla-
prýði hf. boðaði blaðamenn á sinn
fund fyrir skömmu og skýrði frá
þessari nýjung í starfsemi fyrir-
tækis síns. Kvaðst hann hafa feng-
ið til samstarfs við sig Andra Heið
berg, vélsmíðameistara, flugmann
og kafara, sem mun fara á þyrlu
sinni, er hann keypti. í haust, með
varahluti hvert á land sem er og
jafnvel til skipa á hafi úti, ef þess
er óskað. Auk þess mun Andri
annast aðstoð við ísetningu vara-
hiuta og annarra viðgerða.
Grétar sagðist til að byrja með
SKÓLATÓNLEIKAR
NÆSTKOMANDI miðvikudag,
fimmtudag og föstudag, 15., 16. og
17. þ.m., halda skólatónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands áfram.
Á miðvikudaginn kl. 14 verða tón-
ieikar fýrir framhaldsskólafólk, D-
flokkur, og verða flutt eftirfar-
andi verk: Nótt á nornastóli eftir
Mússorgský, Ský og Hátíð eftir
Debussy og ,,Le Tombeau de Cou-
perin“ eftir Ravel. Verk þessi eiga
fleira sameiginlegt en í fljótu
bragði virðist, þótt þau séu samin
af gerólíkum mönnum á ólíkum
tímum.
Á fimmtudaginn verða svo tón-
leikarnir fyrir skólabörnin tólf ára
og yngri, E-flokkur, fyrir hádegi
kl. 10.30 og eftir hádegi kl. 2.30
og aftur á föstudaginn kl. 2.30. Þá
verða fluttar nokkrar ævintýra-
legar tónsmíðar. Fyrst heyra börn-
in um furðuverumar Baba-Jaga og
Kikimora og síðan um Hnotubrjót-
inn eftir Tsjækovský.
Stjórnandi allra tónleikanna
verður Páll P. Pálsson, en kynnir
Þorkell Sigurbjörnsson.
panta hlutina, annað hvort með
símtali eða símskeyti til hins
bandaríska fyrirtækis, sem síðan
afgreiðir þá á 24—48 klst. frá því
að pöntun berst til þess. Síðar
kvaðst hann nota Telex til pönt-
unar á varahlutum, en Telex er
mikið notaður af fyrirtækjum er-
lendis og er hér um að ræða síma
sem ekki er talað í, heldur vélrit-
að.
Oft kemur fyrir, að skip og bát-
ar þurfi að liggja dögum og vikum
saman vegna þess, að varahluti
vantar og má því gera ráð fyrir að
útvegsmenn taki þessári þjónustu
fegins hendi.
Lúðrasveit
Akureyrar
25 ára gömul
Akureyri, — SJ — Hdan.
Lúðrasveit Akureyrar verður 25
ára á þessum vetri. í því tilefni
boðaði stjórnin blaðamenn á sinn
fund í félagsheimili lúðrasveitar-
innar að Laxagötu 5.
Formaður lúðrasveitarinnar, Sig
tryggur Helgason gullsmiður
skýrði þar frá starfi sveitarinnar
á sl. aldarfjórðungi en áður hafði
starfað á Akureyri Lúðrasveitin
Hekla, er stofnuð var árið 1924 og
starfaði til ársins 1934 með mikl
um dugnaði. Lúðrasveit Akureyr
ar sem um aldarfjórðungs skeið
hefur verið styrkur fyrir menning
ar- og skemmtanalíf bæjarbúa,
var stofnuð af gömlum félögum
úr Heklu. Má sérstaklega nefna
þá Ölaf Tr. Ólafsson og Sigtrygg
Helgason, sem gegnt hefur for
mennsku frá uppliafi.
Fyrsti stjórnandi Lúðrasveitar
Akureyrar var Jakob Tryggvason
er gegndi því starfi í 20 ár. Aðr
ir stjórnendur hafa verið, Ársæll
Jónsson, Wilhelm Lansky Otto,
Skotinn Ebeneser Dunipaee, Sig
urður Jóhannesson. Núverandi
Framhald á 15. síðu.
FLVCFÉLAC ÍSLANDS
Vorið
vekur
ferðaþrá
Tlmamót í Islenzkum
flugmálum
Vorið er fegursti tími ársins í Evrópu;
náttúran vaknar af dvala og allt iðar
af lífi og fjöri. Þá hefst tímiferða-
laganna og Flugfélag íslands býður
yður sérstakan afslátt af flugfargjöld-
um til 16 stórbórga í Evrópu. Vorfar-
gjöld Flugfélagsins eru [25% lægri |
en venjuleg fargjöld á sömu
flugleiðúm og gilda á tímabilinu
15. marz til 15. maí, Flugfélagið og
IATA ferðaskrifstofurnar veita allar
upplýsingar og fyrirgreiðslu.
15. marz 1967 - ALÞYÐUBLAÐIÐ J