Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1992, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1992, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992. Fréttir við komum að býlinu - börðust fótgangandi í blindhríð að eyðibýlinu frá rökkri fram á nótt aö hafa eitthvaö til aö miða viö. Þessi spotti er ekki langur á sumrin, þetta eru nokkrir kílómetrar en það er seinfarið þegar maöur þarf að fylgja ánni og fara yfir alla skominga og ganga þar sem færiö er verst. Viö vorum komin að eyðibýlinu í Húsa- vík klukkan tvö um nóttina og ákváðum að hafast þar við. Þar er hægt aö hita upp - Sóló-eldavél, lampar og gaslukt. Luktina höfðum við alltaf úti í glugga þegar dimmt var til að það sæist af sjó að við vær- um þama. Maður reiknaði með að það yrði ailavega horft af sjónum.“ Svaf eins og ég hafði orku tii „í birtingu í morgun (gærmorgun) fylgdumst við með varðskipinu. Þeir settu bátinn frá borði og það komu tveir menn til okkar. Við vorum feg- in að sjá þá. Það var leiðinleg spáin og því ákveðið að við færum með þeim. Við höfðum það bara mjög gott. Það amaði ekkert að okkur. Ég er búinn að sofa mikið, alveg eins og ég hef orku til,“ sagði Jón Sveinsson. Hann óskaði eftir að koma á fram- færi þökkum til allra þeirra sem veittu honum og Daniellu Uðsinni í að komast úr þeim hrakningum sem þau lentu í um helgina. „Við vorum vel lifandi þegar við komum að býhnu. Ég hef oft orðið þreyttari. Konan er þó ekki vön svona en það er ekkert ónýtt í henni. Hún er á mjög góðum aldri. En á meðan maður getur ekki látið vita af sér er það slæmt,“ sagði Jón Sveinsson frá Grund í Borgarfirði eystri í samtaU við DV í gær eftir að hann og svissneska konan DanieUa Liöchte voru endurheimt úr hrakn- ingaferð um Loðmundarfjörð og Húsavík (eystri) í gærmorgun. Eins og fram kom í DV í gær komu varðskipsmenn auga á ljóstýru úr glugga eyðibýUs í Húsavík í gær- morgun. Tveir varðskipsmenn á slöngubáti fundu síðan Jón og Daní- eUu heU á húfi. Þau höfðu þá hafst við á býlinu frá því klukkan tvö að- faranótt sunnudagsins. Þau fóru að huga að hrossum í Loðmundarfirði á laugardagsmorgim en um kvöldið skaU á vitlaust veður. Skildu sleðann og hrossin eftir „Við fórum af stað frá Grund á laugardagsmorgun og inn í Stakka- hUð,“ sagði Jón. „Það gekk vel og áfram út efdr. Það voru um tíu hross í Stakkahhð sem við sóttinn og önnur hross úti á nesi í Loðmundarfirði sem við sameinuðum öU. Við ætluö- um að fara með þau með okkur en Daniella Liöchte frá Sviss og Jón Sveinsson, fyrir miðju, koma með varðskipinu Tý til Seyðisfjarðar í gær. Þau héldu heim til kunningjafólks í bænum en síðan fara þau aftur heim að Grund í Borgarfirði eystra. Jón sagðist hafa verið vel hvíldur „hafa sofið eins og hann hafði krafta til“. DV-mynd Pétur Kristjánsson skUdum þau svo eftir þegar veðrið var orðið vitlaust. Síöan ætluðum við heim en strax um kvöldið, eða upp úr rökkrinu, skall veðriö á. Þegar viö vorrnn komin upp í háls- inn sá maður ekkert út úr augunum. Það var ekkert færi til að keyra sleða og við skildum hann eftir norðan í hálsinum og gengum út eftir. Við fórum niður með læk sem rennur niður hálsinn og svo út með ánni og út í Húsavík. Maður sá ekkert nema Varðskipsmenn fundu Jón Sveinsson og Danielu Liöchte á eyðibýli í Húsavík: Vorum vel lifandi er Akærðu í málmngarfötumálinu báðir dæmdir í 4 ára fangelsi í gær: Brot ákærðu þrauthugsuð - metið til refsilækkunar hve langan tíma tók að kveða upp dóm í málinu „Það þykir verka til þyngingar refsinga ákærðu að þeir eru báðir fulltíöa menn og standa saman að því aö flytja inn og koma í sölu mjög miklu magni fíkniefna í von um stór- felldan hagnað. Þá er aðferð sú sem ákærðu beittu við brot sín ekki tekin með skyndiákvörðun heldur þraut- hugsuð. Þykir hlutm- ákærðu að brotunum jafn, þótt ástæða sé til aö ætla að hugmyndin að framkvæmd þeirra sé til komin frá ákærða Ste- fáni.“ Svona hljóðaði meðal annars nið- urstaða Sverris Einarssonar, héraðs- dómara í Reykjavík, í dómi yfir tveimur ákærðu í málningarfötu- málinu, Stefáni Einarssyni og Hall- grími Ævari Mássyni. Þeir voru báð- ir dæmdir í 4 ára fangelsi og til að greiða 500 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs. Það var metið mönnunum til refsilækkunar hve langan tíma tók að kveða upp dóm í máhnu. Lög- regla sendi ríkissaksóknara máhð í júh 1988 en ákæra var útgefin í júh 1990. Báðir mennimir ákváðu strax við dómsuppkvaðningu í gær að áfrýja dómimnn til Hæstaréttar. Mennimir vora dæmdir fyrir að hafa staðið saman aö innflutningi á 65,5 kílóum af hassi í níu skipsferð- um á árunmn 1985-1987. Sannað þótti að Hahgrímur Már hefði selt 51-54 kíló af hassi á þessu tímabih sam- kvæmt ákæra. Fyrir dómi drógu sakbomingamir stærstan hluta játninga sinna hjá lögreglu í málinu til baka. Um þetta Stefán Einarsson. atriði sagði m.a. í dóminum: „Dómminn hafnar aifariö skýring- um ákærðu á breyttum framburði og er ósannað með öhu að ákærðu hafi verið beittir þvingimum og hót- unum til aö játa það sem þeim er gefið að sök. Ákærðu höfðu báðir aðgang að réttargæslumönnum sem þeir gátu leitað til ef þeir teldu sig beitta harðræði. Það gerði hvorugur þeirra og ákærði Hahgrímur Ævar staðfesti aht það sem ákærðu er gefið að sök í tveimur dómsyfirheyrslum í desember 1987. Sá framburður ákærða HaUgríms Ævars er í sam- ræmi við framburð ákærða Stefáns í fimm yfirheyrslum hjá lögreglu." Dómurinn taldi það einnig styrkja framburð HaUgríms fyrir dómi og Stefáns hjá lögreglu að sá síðamefndi var jafnan staddur í Belgíu nokkrum Hallgrimur Ævar Másson. dögum áður en framangreindar níu vörusendingar fóru til íslands. Þá taldi dómurinn framburð Stefáns um svoköUuð tölvuborðaviðskipti ótrú- verðugan og mikU fjárráð hans á tímabilinu ekki skýrast af framtöld- um tekjum hans - engin gögn lægju fyrir um að hann hefði með eðhleg- um hætti getað aflað þeirra háu fjár- hæða sem runnið hefðu um hendur hans á árunum 1986 og 1987. 32 daga gæsluvarðhald HaUgríms og 67 dagar hjá Stefáni dragast frá refsingum mannanna. Þeim var gert að sæta upptöku á þeim tæpu 11 kfió- um af hassi sem lögregla lagði hald á í 9. sendingunni auk peninga og ávísana. Þeir skulu einnig greiða aU- an sakarkostiiað. -ÓTT Listi DV yfir söluhæstu bækurnar í síðustu viku Bókartitill: Höfundur: 1. Bakviðbláu sugun Þorgrimur Þráinsson 2. Dansað í háloftunum Þorsteinn E. Jónsson 3. Alltaf til i slaginn Friðrik Erlingsson 4. Lalli Ijósastaur Þorgrímur Þráinsson 5. Llfsganga Lydiu Helga Guðrún Johnson 6. Hjá Báru Ingólfur Margeirsson 7.-8. Ásgeir Asgeirsson GylfiGröndal 7.-8. Heimskra manna ráð Einar Kárason 9. Ó fyrir framan Þórarinn Eldjám 10. Rósumál Jónína Leósdóttir „Þetta gieður auðvitaö litla hjart- að i mér,“ sagði Þorsteinn E. Jóns- son, rithöfundur og flugmaður, við fregninni um aö bók hans, Dansað i háloftunum, skuh vera önnur söluhæsta bók síöustu viku í könn- un DV og nokkurra bóksaia. Vik- una þar á undan var bók Þorsteins i 6.-7. sæti. „í bókinni segi ég frá uppvaxtarárum minum og endur- minningum úr stríöinu." Bak við bláu augun eftir Þorgrím Þráinsson heldur sætinu sem sölu- hæsta bókin en AHtaf til í slaginn eftir Friðrik Erlingsson hefur flust úr níunda sæti i þriðja. Bók Ingólfs Margeirssonar, Hjá Báru, hefur hins vegar falhð úr öðru sæti í gjötta. Þær bækur sem'eru næstar tiu söiuhæstu bókunum eru Stúlkan i skóginum eftir Vigdísi Grímsdótt- ur, Guðni rektor eftír Ómar Valdi- marsson, íslenskir auðmenn eftir Pálma Jónasson og Jónas Sigur- ■ geirsson og Seld eftir Zana Muhsen. Bókaverslanir sem þátt taka í könnuninni með DV eru Bókabúð- in Borg í Reykjavík, Bókabúð Böð- vars í Hafnarfirði, Hagkaup i Skeif- unni í Reykjavík, Mikligarð- ur/Kaupstaður í Rejdtjavík, Bóka- búð Jónasar Jóhannssonar á Akur- eyri, Bókabúð Brynjars á Sauðár- króki, Bókaverslun Jónasar Tóm- assonar á ísafirði, Bókabúð Sig- björns Brynjólfssonar á Egilsstöð- um og Bókabúð Sigurðar Jónas- sonar í Stykkishólmi. í verslununum eru teknar saman sölutölur fyrir síðustu viku og bú- inn thhsti yfirtiu söluhæstu bæk- umar í hverri verslun. Bækurnar fá stig frá einum og upp í tiu eflir roðinni á listanum. -IBS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.