Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1992, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1992, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992. Útlönd ........ Sómalska ástandskonan reyndi aö verja sig með hnífi sem hún náöi frá grænmetissala. Það kom þó fyrir lítið því að hún var afvopnuð og siðan dregin nakin inn á lögreglustöð. Hún hélt lífi þótt um tima væri óttast að múgurinn hefði myrt hana. Hermenn fjölþjóðaliðsins í Mogadishu horfðu aðgerðalausir á og sögðu að málið kæmi þeim ekki víð. Símamynd Reuter Sómalska ástandskonan hélt lífi eftir barsmíðar og niðurlægingu múgsins: Frakkarnir horfðu á lagskonu sína barða -flölþjóðaherinn sakaður um að láta ofbeldi viðgangast athugasemdalaust Sómölsk ástandskona hélt naum- lega llfl þegar æstur múgur mis- þyrmdi henni eftir aö hún varð upp- vís að að bjóða mönnum úr frönsku útlendingaherdeiidinni blíðu sína í Mogadishu í gær. Fólkiö greip konuna um leið og hún steig út úr jeppa hermannanna, reif utan af henni fótin og dröslaði henni nauðugri inn á lögreglustöð þar sem byssumenn ráða ríkjum. í fyrstu var talið aö konan hefði verið skotin en síðar um daginn kom í ljós aö lífi hennar var þyrmt. Atburður þessi hefur vakið heims- athygli og beint sjónum manna að störfum fjölþjóðahersins í Sómalíu. Frönsku hermennimir horfðu að- gerðalausir á þegar lagskona þeirra var barin og niðurlægð. í nágrenninu mátti einnig sjá bandaríska hermenn en þeir létu sem ekkert væri. Hermennirnir réttlættu aðgerða- leysi sitt með því að benda á að þeir ættu aðeins að gæta þess að hjálpar- gögn lentu ekki í höndum þjófa og ræningja. Hins vegar mættu þeir ekki skipta sér af eijum heimamanna enda yrðu þeir að forðast átök eins og framast væri unnt. „Þetta var verkefni fyrir lögregl- una,“ sagði Michel Touron, ofursti í liði Frakka. „Við höfum öðrum hnöppum að hneppa." Engin lögregla er í Mogadishu og borgin á valdi stríðsherra sem hafa skipt henni upp í áhrifasvæði. Næstu daga er ætlunin að ganga harðar fram í að afvopna landsmenn. Þá gæti komið til vopnaðra átaka, sérstaklega þegar kemur út fyrir höfuðborgina. Til þessa hefur fjöl- þjóðaliðið ekki mætt andspymu. Inn- an tveggja sólarhringa er von á frönsku útlendingaherdeildinni til bæjarins Baidoa þar sem hungur rík- ir enn. Stríðsherramir alræmdu hafa staðinn á valdi sínu og gætu veitt mótspymu ef herliðinu verður fyrirskipað að afvopna þá. Ástandið í Mogadishu hefur batnað að miklum mun eftir að herinn gekk þar á land. Búið er að endurskipu- leggja dreifmgu á mat og lyfjum í borginni en úti á landsbyggðinni er allt í sömu skorðum og var áður en ríki Sameinuðu þjóðanna ákváðu að grípa til aögerða og standa að sam- eiginlegri herfór til landsins. Reuter Tilvalin jólagjöf fyrir - skólafólk - mömmu og pabba og alla hina. 100.000 660.000 orða samheitaorðasafni Handhæg, lítil og frábær tölva sem athugar stafsetningu á 100.000 orðum. Orð má slá inn eftir framburöi (t.d. laf = laugh). 660.000 orða samheitaorðasafn. Orðaleikir. Jólatilboð kr. 5.930,- EMM / Nóatúni 17 / sími 68 88 18 VISA - EURO Póstsendum WordFinder™ Orðaleitari og réttritari fyrir enskuna. SelecTronics WordFinder 220 SPHUNG CHtWFR'IHfSAURUS heim effar drykkju Lögreglan i Bretlandi ræöur fólki frá að ganga heim eftir að það hefur fengið sér svo mikið neðan í því að þaö er ófært um að aka. Ástæðan er að fjórir af hverjum fimm sem látast af slys- fórum að næturlagi eru drukknir menn á heimleiö eftir samkvæmi. Lögreglan vill þó ekki ráðleggja mönnum að aka heim þvi það er enn hættulegra. Eina örugga ráö- ið er að drekka ekki. Nýjar kann- anir í Bretlandi sýna að æ fleiri taka þann kost aniu enda með lögregluna á hælunum. Simamynd Reuter Franska lögreglan hefur gefið út handtökuskipan á hendur fisk- kaupmanninum Daniel Ducruet. Sá er frægastur fynr að hafa ; bamað Stefaníu Mónakóprins- essu.: Sonur þeirra fæddist í síö- asta mánuði. Ðueruet á að hafa barið mann : sem varð á vegi hans í Marseille. Hann flúöi þegar yfir landamær- in til Mónakó og þorir ekki heim. Lögreglan hefur í hyggju að stinga kauða í steininn við fyrsta tækifæri. Hann á yftr höfðí sér 15 daga vist innan múranna. MiaFarrow skrifarbókunt sambandiðvið Woody Allen Woody Allen hefur ástæðu tii aö óttast ura æru sína þessa dag- ana. Upplýst er að Mia Farrow, fyrrum ástkona hans, sé aö skrifa bersöglisbók þar sem ekkert veröur dregið undan af samskipt- um þeirra á liönum árum. Mia sakar Allen, sem kunnugt er, um að hafa leitað á fósturbörn þeirra mörg og ung. Bókin kemur væntanlega ekki út fyrr en eför meira en ár. Sagt er að Mia fái 3 milljómr Banda- ríkjadala fyTirfram frá Bantam útgáfunni. Það em ríflega 180 milljónir íslenskra króna. Tals- maður úttgáfunnar vill ekki staö- festa að rétt sé frá greiðslumfi greint. Bróðir Clintons umplötuútgáfu Roger Clinton, bróðir verðandi Bandarikjaforseta, hefur gert samning við Tirne Warner útgáf- una um aö syngja inn á hljóm- plötur. Roger hefur átt í mesta basli undanfarin ár og m.a. gerst sekur um eiturlyfjaneyslu. Nú er haim komtnn á beinu hrautina eftir að bróðirinn hófst til æöstu metorða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.