Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1992, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1992, Blaðsíða 12
12 Spumingin ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992. Gerir þú eitthvað til að halda líkamanum í formi? Róbert Spano nemi: Já, ég er á föstu. Júlía Þorvaldsdóttir nemi: Nei, ég geri ekki neitt til þess. Snorri Garðarsson nemi: Já, aö sjálf- sögðu. Þaö er mikil hreyfmg í því að fara á ijúpnaveiðar. Víðir Þór Magnússon pemi: Já, ég syndi og stunda leikfimi reglulega. Halldóra Guðrún Jónsdóttir nemi: Mér finnst gaman að synda og spila fótbolta. Sunneva Árnadóttir nemi: Já, ég syndi og lyfti. Lesendur Mikil þörf fyrir hjálp í Síberíu og Afríku Frá Kabale í Uganda. Séra Tirwomwe við fatadreifingu. Séra F. van Hooff skrifar: Grimt stríð geisar ekki aðeins 1 Bosniu, heldur einnig í Rúanda og Mósambík. Friðarviðræöur eru nú hafnar í báðum löndunum, en þar með er ekki öllum hörmungum lok- ið. - Enn dveljast tugþúsundir flótta- manna við landamærin. Nú þegar hefur verið sent þangað töluvert af fatnaði frá íslandi. Þörfin er samt enn gífurleg og því verður sendingum haldið áfram eftir megni. Þar sem þetta fólk er alveg tómhent, kemur aÚt að notum. - Fatasending- ar bæta úr brýnustu neyð en til þess að veita hjálp til frambúðar, sendum við einnig skólatöskur, skó, ritföng, reiðhjól, saumavélar, ritvélar, eld- húsáhöld, o.s.frv. Allar sendingar fara beint til presta, sem við þekkjum vel, og þeir dreifa hjálpinni millihðalaust til hinna bágstöddu. - Séra Tirwomwe er nýlega orðinn yfirmaður hjálpar- starfsins á Kabale-svæði í Úganda. Þar kæmu t.d. saumavélar sérstak- lega að miklu gagni til þess að kenna saumaskap. Með því gætu heilar fiöl- skyldur skapað sér störf og lífsviður- væri. Ritvélar má nota til að búa nokkra undir vinnu á skrifstofu. Starfsbræður úr öllu landinu koma til séra Tim Peacock, og hann lætur enga tómhenta frá sér fara. - Á því svæði, sem hann starfar er aðeins til ein gömul rúta, sem oft er í lama- sessi. Þá er reiðhjól eina hjálpin. Hver þekkir ekki séra Róbert Bradshaw, sem lengi starfaði hér í Breiðholti og á Akureyri? Með hjálp Rauða krossins dreifir hann kulda- fatnaöi í Krasnojarsk í Síberíu, þar sem hann nú starfar. Af 10 gámum, sem sendir hafa ver- ið til þessa til Afríku og Síberíu, hef- ur aðeins veriö stohð úr einum þeirra og verður það að teljast mikil heppni. Það sem við gefum fátækum, gefum við Jesúm sjálfum, kannski mun Jesbúbarnið í jötunni brosa yfir því að reiöhjól sem gefið er fátækum sé gefið honum sjálfum. - Hvenær sem er má afhenda gjafir í Karmel- klaustrinu við Ölduslóð í Hafnar- firði. Kæru dagmæður! Halla Hjálmarsdóttir og Halldóra Baldursdóttir skrifa: í tilefni þess að fram hefm- komið mikil óánægja með formann Sam- taka dagmæðra, Selmu Júhusdóttur, og stjóm hennar, höfum við ákveðið að gefa kost á okkur th stjómar- starfa á næsta aðalfundi. Á stefnuskrá okkar verður í fyrsta lagi: að 2. grein félagslaga verði í heiöri höfö, þar sem segir: „Tilgang- ur samtakanna er aö vinna að aukn- um kynnum innbyrðis, samtökin skulu vinna að hagsmunum félags- manna og bama í umsjá þeirra.“ - í öðm lagi: viö viljum eindregið koma að í lögum samtakanna: að formaður og aðrar stjómarkonur verði að vera starfandi dagmæöur. - í þriðja lagi: við viljum breytingu á 5. grein félag- slaga þannig að kosning um formann og varaformann verði til eins árs í senn. - í fiórða lagi: aö sett veröi í lög að aðalfundur verði í október ár hvert. Það kemur okkur mjög á óvart aö Súsanna Haraldsdóttir varaformað- ur gefi kost á sér til formannskjörs þar sem hún neitaði því á fundi sem dagmæður héldu í október sl. Okkur er einnig kunnugt um að ekki hafi ahar nefndarkonur skrifað undir stuðningsyfirlýsingu viö formann- inn eins og haft hefur veriö eftir Súsönnu. Einnig mótmælum við því aö geng- iö hafi verið fram hjá okkur í frétta- bréfi því sem stjóm samtakanna sendi. Þar er auglýstur aöalfundur samtakanna og tilkynnt um framboð Súsönnu th formanns. Við höfðum áður sent í ábyrgðarpósti th samtaka dagmæðra, (b/t Selmu Júhusdóttur), vantraustsyfirlýsingahsta sem á rit- uöu 203 dagmæður. Einnig tilkynnt- um viö framboð okkar á næsta aðal- fundi samtakanna. Stjómin hefur og leyft sér að auglýsa ekki eftir fram- boöum th formanns eins og lög gera ráö fyrir og finnst okkur að sfiómin mismuni félagskonum þar gróflega. - Að lokum vhjum við þakka dag- mæðrum veittan stuðning og biðja þær dagmæður sem við gátum ekki nálgast með undirskriftahstana vel- virðingar á því. Eiga hugmyndir Sjásekús við á Islandi? unar og öryggis á kostnaö ríkisins er slík að núkið vantar á aö jafnaðar sé gætt gagnvart öðrum sveitarfélög- um. - Spumingin er ef th vih frekar sú hvort landið skuh byggt. Eða gæti skipulagsfræðingnum ekki komið í hug að Reykjavík væri óþörf og nýta mætti auðlindir landsins af íbúum Hamborgar í Þýskalandi eða Grimsby á Englandi, frekar en nú er áformað með EES-samningnum? Hugmyndir Trausta leiöa hugann að því virðingarleysi sem Sjásekú hinn rúmenski sýndi samborgurum sínum. Sama hugsun virðist hggja að baki hjá báöum, órar ofsfiórnunar eins og hjá Rúmenum. Þar var virð- ingarleysið gagnvart dreifbýh tak- markalaust, mannslíf hths metin og þorpum eytt. Mennta- og valdahrok- inn á sér engin takmörk. - En hvað æth menntun skipulagsfræðinga kosti þjóðina? Eru sambýlingarnir þarfari þjónar samfélagsins en t.d. Grímseyingar? Einar Vilhjólmsson skrifar: Skipulagsfræðingurinn Trausti Valsson hefur haldið því fram að byggðin í Grímsey mætti leggjast af ásamt (36) öðrum sjávarplássum. - Á sama hátt mætti hugsa sér að byggð- arlögin gætu veriö án Reykjavíkur. Hann tíundar þá framlegð sem þjóðfélagið veitir Grímseyingum í formi flugvallar, skóla, hafnar, raf- magns, pósts- og símaþjónustu, og ber það saman við 100 manna sam- býlishús í Reykjavik, hvað hag- kvæmni varðar, en án haldbærra raka. - Ég efast þó um að sambýling- amir séu þarfari þjónar samfélags- ins en Grímseyingar. Öh sú samfélagsþjónusta sem Reykvíkingar njóta á sviöi atvinnu, hehsugæslu, menntunar, skemmt- DV áskilur sérrétttilað stytta aðsend lesendabréf Sinn er siður í landi hvetju (eða ósiður). í Svíþjóö er t.d. fyrsti veikindadagur launamanna ekki greiddur. - Mér finnst að yfir- menn stofhana og fyrirækja ættu að sína þá tílhtssemi viö starfs- mexm, sem eru oft fiarverandi vegna veikinda, aö þeir yrðu ekki látnir viiuia aukavinnu tvo fyrstu dagana eftir veikindin. Vissulega má æOa aö sá sem hefur verið frá vinnu vegna veikinda nái sér þá fyrr og einnig er hugsanlegt að veikindadögum fækkaði aö mun. Þar sem þetta er öðrum þræði mannúðarmál ætti þessi regla að vera beggja hagur. Ólafur Ólafsson skrifar: Vegna umræðunnar sem fariö hefur fram um lifeyrissjóðina aö undanförnu, m.a. í lesendabréf- um i DV, má telja víst að launþeg- ar, almennt talað, myndu einskis óska frekar en að þeir gætu gert upp við sína sjóði og ávaxtaö th- skhdar greiðslur af launum sín- um að eigin höföi. Eignir hinna almennu lífeyris- sjóöa eru orðnar gífurlegar eöa rúmir 50 mhljarðar króna eins og fram hefur komið í fréttum. Þetta eru náttúrlega ekki annað en eignir félagsmanna sjálfra og því er rétt og skylt að veröa við kröfu þeirra sem þess óskuöu að fá sinn hluta greiddan út sam- hhöa uppgjöri við úttekt. ÞakkirtilBorg- Krisfián Guðmundsson hringdi: Ég lá á skurðdeild Borgarspít- ala fyrir ekki löngu og þar sem mér vannst ekki tími til að þakka fyrir mig vh ég koma á framfæri innhegu þakklæti th þeirra sem þar aöstoðuðu mig og hjúkruöu. Þama var veitt hin besta þjón- usta á öhum sviðum. Ég sendi öhu því fólki sem þarna vinnur og veitti mér aðhlynningu bestu þakkir og jólakveðjur. Viðhendum ekkifiskinum Ólafur Svansson sjóm. skrifar: Ég er skipverji á togaranum Kaldbaki og vh koma á framfæri mótmælum vegna ummæla Svans Pálssonar, skipverja á Hólmanesinu, er birtust í DV 11. nóv. sl. - Þar sagði hann að togar- amir fengju oft hausaðan stórfisk í trollin og sagði aö þessum fiski heföi verið hent útbyrðis af frysti- togurunum. Hér á Kaldbaki kannast menn ekki viö það að hafa fengið.haus- aðan stórfisk í trolhð. Ég hef ver- ið á fleiri en einum frystitogara og get fuhyrt að á þeim skipum a.m.k. heftir hausuðum flski aldr- ei verið hent í sjóinn. - Það er því fuh ástæða th að mótmæla um- mælum Svans. Betra umhverfi Guðrún Skúladóttir, Fossvogs- skóia, skrifan Mér finnst að íslendingar ættu að ganga, hjóla eða nota almenn- ingsvagna meira en þeir gera f dag. Bílamir spiha umhverfinu svo sem með loftmengun og ann- arri mengun umhverfisins; háv- aða- eða ohumengun. Mér finnst líka að menn ættu að gæta þess að drepa á bhnum þótt menn æth rétt sem snöggvast að skjót- ast inn í hús einhverra erinda. Ef við hugsum ekki öh um umhverfið gæti ísland semi orðið sem einn stór mslahaugur. ís- land er eyja og því auðveldara að halda umhverfinu hreinu. Þann- ig gætum víð verið öðrum þjóðum gott fordæmi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.