Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1992, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992.
23--
Popp
Sálin hans Jóns míns - Þessi þungu högg
Þung klámhögg
Þegar vinsælasta popprokk-
sveit landsins vendir sínu kvæði
í kross einn góðan veðurdag og
breytir um stefnu og stíl er ekki
við öðru að búast en að menn
reki upp stór augu. Ekki verða
menn minna undrandi þegar
hljómsveitarmenn lýsa því yfir
að í rauninni hafi þeir aldrei haft
neinn sérstakan áhuga á þeirri
tónlist sem skapaöi þeim frægð-
ina; þetta hafi allt verið hálfgert
neyðarbrauð. Nú séu þeir hins
vegar búnir að finna sína hillu í
tónlistinni og allir geti því unað
glaðir við sitt.
Allt er þetta auðvitað gott og
blessað og ekkert nema sjálfsagt
að hljómsveitir fari þær leiðir
sem þeim sýnist en hræddur er
ég um að fjölmörgum aðdáendum
Sálarinnar þyki þetta vondar
fréttir.
Ekki veit ég hvað gerst hefur
innan þessarar ágætu sveitar en
einhver innanbúðarátök hafa átt
sér stað. Ég er aftur á móti ekki
alveg reiðubúinn að kyngja þeirri
skýringu Sálarmanna á sinna-
skiptimum að þeir hafi skyndi-
lega uppgötvað að þeim hund-
leiddist sú tónlist sem þeir hafa
verið að spila undanfarin ár. Þar
hangir fleira á spýtunni og fyrstu
stafimir í einu þeirra eru Red
Hot Chili Peppers. Það fer ekkert
á milli mála þegar hlustað er á
þessa nýju plötu Sálarinnar aö
liðsmenn hljómsveitarinnar hafa
fallið allir sem einn kylliflatir
fyrir síðustu plötu Red Hot Chili
Peppers, Blood, Suger, Sex, Mag-
ik. Þessi þungu högg eru vægast
sagt undir miklum áhrifum frá
þeim þungu höggum sem þar eru
slegin. Onnur ástæða fyrir
stefnubreytingu Sálarinnar, sem
fram hefur komið, er lýðræðið í
hljómsveitinni. Undanfarin ár
hefur Guðmundur Jónsson gítar-
leikari samið lungann af lögum
sveitarinnar og Stefán Hilmars-
son söngvari séð um textana.
Þetta þótti hinum hundfult og
vilja eiga þátt í þessu líka. Það
er auðvitað sjónarmið út af fyrir
sig en þess ber þá að gæta að inn-
an hverrar hljómsveitar er
ákveðin verkaskipting: einn leik-
ur á gítar, annar á bassa og þriðji
á trommur o.s.frv., hver eftir því
sem hann telur sig hæfastan til.
Nákvæmlega á sama hátt við-
gengst verkaskipting við laga- og
textasmíðar. Það sem einum er
gefið er öðrum ekki endilega gefið
líka og því hafa menn eins og
John Lennon. Paul Mc Cartney,
Mick Jagger, Keith Richard og
Gunnar Þórðarson hér innan-
lands sett svip sinn á tónhstar-
söguna sem lagasmiðir en ekki
Ringo Starr, Bill Wyman eða Eng-
ilbert Jensen. Þess vegna hlýtur
það að valda gömlum Sálaraðdá-
endum vonbrigðiun að Guð-
mundur Jónsson, einn alsnjall-
asti lagasmiður í poppinu und-
anfarin ár, skuh nú hverfa af
sviðinu sem slíkur í nafni hljóm-
sveitarlýðræðis.
Sími:
694100
Annars er það um þessa plötu
Sálarinnar að segja að hún er ekki
alvond þótt hér sé margt afspymu-
leiðinlegra tónsmíða og enn verri
texta. Hljómsveitin er jafn góð eftir
sem áður og skilar af sér fyrsta
flokks vinnu. Hljómurinn er reynd-
ar ahur annar en áður, hrárri og
þyngri eins og nafn plötunnar gef-
ur til kynna.
mjómplötur
Sigurður Þór
Salvarsson
Lögin eru afskaplega misjöfn,
sum venjast vel, eins og Ég þekki
þig og Holdið og andinn, en það
síöamefnda er að mínu mati besta
lag plötunnar og textinn líka sá
besti. Önnur lög em tormeltari og
sum meltast ahs ekki.
Textagerðin hefur líka dreifst á
fleiri hendur en áður og ekki hefur
hún batnað við það. Og það hlýtur
að benda til alvarlegrar sálar-
kreppu hjá mönnum á besta aldri
að geta ekki hnoðað saman texta
um nánast neitt annað en kynlíf
og uppáferðir og geta svo ekki einu
sinni gert það vel. „Tvíræðir text-
ar,“ segja menn, glottandi, í sjón-
varpi. Má ég þá heldur biðja um
Tígulgosann.
Sálin hans Jóns míns fer nýjar og tormeltar leiðir.
Veggsímar 3870,-
Borðsímar 5850,-
Símsvarar
2ja spólu 13.050,-
10%
kynningarafsláttur
frá þessu verði