Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1993, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993.
37
Arnar Jónsson og Tinna Gunn-
laugsdóttir.
Ríta gengur
menntaveginn
Ríta gengur menntaveginn er á
vissan hátt þroskasaga höfundar-
ins, Willys Russell. Hann er fædd-
ur og uppalinn í Liverpool og
hlaut litla og lélega menntun.
Sem ungur maður var hann afar
óráðinn í því hvað hann vildi taka
sér fyrir hendur í lífinu og þegar
mamma hans stakk upp á þvi við
hann að hann lærði hárgreiðslu
fannst honum hugmyndin svo
fáránleg að hann ákvað að slá tíl.
Leikhús
Russell lærði hárgreiðslu og
starfaði við það í sex ár. En hug-
urinn stóð jafnan til skrifta.
í leikritinu fjallar Russell um
hárgreiðslukonuna Rítu sem er
ekki fyllilega sátt við hlutskipti
sitt í lífinu. Hún fer að sækja bók-
menntatíma í öldungadeild há-
skólans. Kennarinn hennar er
miðaldra karlmaður, drykkfelld-
ur, áhugalaus og misheppnað
ljóðskáld. Honum er sárlega mis-
boðið að þurfa að eyða tíma í
þessa menningarsnauðu snyrti-
dömu. Ríta reynist' hins vegar
ekki öll þar sem hún er-séð og
þegar upp er staðið má spyrja
hver hafi kennt hverjum.
Leikarar eru Arnar Jónsson og
Tinna Gunnlaugsdóttir. Verkin
Blóðbræður og Sigrún Ástrós eru
einnig eftir Willy Russell. Yfir 50
sýningar hafa veriö á verkinu.
Sýningar í kvöld
My Fair Lady. Þjóðleikhúsið.
Stræti. Þjóðleikhúsið.
Ríta gengur menntaveginn. Þjóð-
leikhúsið.
Bensínstöðin. Lindabær.
Blóðbræður. Borgarleikhúsið.
yanja frændi. Borgarleikhúsið.
Útlendingurinn. Akureyri.
Abraham Lincoln.
Fílar
kommgs
Abraham Lincoln fæddist
þennan dag árið 1809. í þræla-
stríðinu bauð konungurinn í
Síam honum afnot af herfilum
Blessuð veröldin
sínum. Lincoln afþakkaði boðið.
Myglaður Kanakúltúr?
Margir telja að menn tárist ekki
þegar þeir skeri hvítlauk ef þeir
tyggja tyggigúmmí á meðan.
Gúlíver í Putalandi
Jonathan Swift, sá er samdi
bókina Gúlíver í Putalandi, tók
sig til og mælti ekki stakt orð 1
heilt ár.
Skattadrottning
í tíð Elísarbetar I var lagður
skattur á skegg manna!
Færð á
vegum
Víða er mikil hálka. í morgun var
ófært á nokkrum leiðum og má þar
nefna Eyrarfjall, Breiðdalsheiði,
Umferðin
Mývatnsöræfi, Vopnafjarðarheiði,
Gjábakkaveg, frá Kollafirði í Flóka-
lund, Dynjandisheiði, Hrafnseyrar-
heiði, Lágheiði, Öxarfjarðarheiði og
Mjóaíjarðarheiði.
Ofært
[|] Hálka og snjórfT] Þungfært
án fyrírstöðu
[X] Hálka og [/] Ófært
skafrenningur
Sálin hans Jóns míns er víst að
Jeggja upp laupana eða að minnsta
kosti að fara í gott frí. Þvi eru að
verða síðustu forvöð að sjá þessa
merku hljómsveit en hún mætir á
Hressó i kvöld. Búast mó við miklu
flöri á þessum skemmtilega stað
með þessari eldfjörugu hJjómsveit.
Eins og D V greindí frá fyrir rúmri
viku er Sáiin að hætta um nokkurt
skeiö að minnsta kosti og Stefán
Hilmarsson að mynda hljómsveit-
ina Pláhnetuna. Meira er reyndar
á döfinni hjá honum því hann ætlar
að senda frá sér sína fyrstu sóló-
plötu i haust. Pláhnetan ætlar að
senda frá sér plötu í vor en í þeirri
hJjómsveit verða Stefán, Ingólfur
Guðjónsson, Iiijómborðsleikari úr í kvöld er.sem sé tækifæri til að
Rottunni og Rickshaw, Sigui'ðm- berja þessa eldhressu hijómsveit
Gröndal gitarleikari og Ingólfur augum.
Sigurðsson, trommuleikari Orgils.
Björk Guðmundsdóttir leikur eitt
aðalhlutverkið.
Einiberja-
tréð
Einiberjatréð gerist á tímum
galdrafárs á síðmiðöldum á ís-
landi og er útfærsla á hinu þekkta
Bíóíkvöld
og samnefnda ævintýri Grimms-
bræðra. Hún fjallar um tvær
systur sem undir lok miðalda
flýja heimkynni sín eftir að móðir
þeirra var brennd á báh fyrir
galdra. Sú eldri giftist ungum
bónda en hin yngri leitar at-
hvarfs í draumum og hinu yfir-
skilvitlega.
Myndin er eftir Nietzchka
Keene en með aöalhlutverk fara
Björk Guðmundsóttir, Bryndís
Petra Bragadóttir, Valdimar Örn
Flygenring og Geirlaug Sunna
Þormar.
Myndin er ekki hefðbundin
ævintýramynd og alls ekki fyrir
börn. Hún er tekin í svarthvítu
og þykir sérstök og drungaleg en
hefur fengið lofsamlega dóma.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Laumuspil
Laugarásbíó: Rauði þráðurinn
Stjörnubíó: Þrumuhjarta
Regnboginn: Síðasti móhíkaninn
Bíóborgin: Háskaleg kynni
Bíóhölhn: Farþegi 57
Saga-bíó: Á lausu
Hetjan Perseifnr
Perseifur var mikhl kappi í goðsög-
um Grikkja en hann kom meðal ann-
ars Andrómedu til bjargar á neyðar-
stundu þegar hana átti að færa
vatnaskrímslinu að fórn til þess að
Stjömumar
forða Eþíópíu frá glötun. Hann
breytti vatnaskrímslinu í stein-
gerving með því að beina að því hinu
illræmda Medúsuauga sem um-
breytti öhu kviku í kaldan stein. Að
launum fékk kappinn svo And-
rómedu að kvonfangi.
Sterkasta stjaman í Perseifi er Alg-
enib en í hendi hans, sem heldur um
sverðshjöltun, má sjá tvístimið Ha-
Chi. Það sendir frá sér breytilegan
ljósstyrk á sjötíu ára fresti. Frá
stjömunni Eta sést loftsteinastraum-
ur koma reglulega.
Sólarlag í Reykjavík: 17.50.
Sólarupprás á morgun: 9.30.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.40.
Árdegisflóð á morgun: 11.05.
Lágfjara er 6-6 'A stundu eftir háflóð.
GIRAFFINN
KASSÍÓPEIA
Breidd+eœ
Ha-Chi
PERSEIFUR
Algenib^y
Fætur
Andrómedu
Höfuð Medúsu
ÞRÍHYRNINGURINN •
Gengiö
Gengisskráning nr. 29. - 12. feb. 1993 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 65,100 65,240 62,940
Pund 92,182 92,380 95,842
Kan. dollar 51,862 51,974 49,655
Dönsk kr. 10,2930 10,3151 10,3286
Norsk kr. 9,2881 9,3080 9,4032
Sænsk kr. 8,7430 8,7618 8,8444
Fi. mark 11,1760 11,2000 11,6312
Fra.franki 11,6688 11,6939 11,8064
Belg. franki 1,9144 1,9185 1,9423
Sviss. franki 42,5908 42,6824 43,4458
Holl. gyllini 35,0991 35,1746 35,5483
Þýskt mark 39,4964 39,5814 40,0127
It. lira 0,04226 0,04235 0,04261
Aust. sch. 5,6078 5,6199 5,6818
Port. escudo 0.4338 0,4348 0,4407
Spá. peseti 0,5536 0,5548 0,5616
Jap. yen 0,54054 0,54170 0,50787
Irskt pund 95,931 96,138 104,990
SDR 89,1382 89,3299 87,5055
ECU 76,7692 76,9343 77,9575
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
7 T~] T~
ð l
I i»
71 7T
Ji f rr TT
Mp "
& J
Lárétt: 1 orðlaus, 8 una, 9 grip, 10 drengi,
11 brennur, 13 geit, 14 blása, 16 kemst,
18 skrína, 20 hreyfBist, 21 innan.
Lóðrétt: 1 stríðni, 2 skrá, 3 planta, 4 tak-
mark, 5 skömm, 6 vaxa, 7 lykkja, 12 þjálfa,
15 gælunafn, 17 leiðsla, 19 mnstang.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 stóls, 6 sá, 8 kóð, 9 opna, 10
ámur, 11 rög, 13 pastur, 15 ótt, 16 ungi,
18 MA, 19 urgur, 20 arða, 21 ami.
Lóðrétt: 1 skáp, 2 tómatar, 3 óöu, 4 lort-
ur, 5 sprunga, 6 snör, 7 áa, 12 Geiri, 14
stuð, 15 óma, 17 gum.