Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1993, Síða 18
18
MÁNUDAGUR 8. MARS 1993
Svæðameðferðog létt rafmagnsnudd
ásamt acupunchturmeðferð með lacer
Sérhæfing við bólgu í herðum, baki og höf-
uðverk.
ELSA HALL,
Langhoitsvegi 160, sími 68-77-02.
Aðalfundur
Aðalfundur Skeljungs hf.
verður haldinn föstudaginn
12. mars 1993 í Átthagasal
Hótel Sögu, Reykjavík, og
hefst fundurinn kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv.
16. grein samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur
og reikningar félagsins munu
liggja frammi á aðalskrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn
verða afhent á aðalskrifstofu
félagsins Suðurlandsbraut 4,
6. hæð, frá og með 5. mars til
hádegis á fundardag, en eftir
það á fundarstað.
AUGLÝSING
um rannsóknastyrki
frá J.E. Fogarty
International Research
Foundation
J.E. Fogarty-stofnunin í Bandaríkjunum býöur fram
styrki handa erlendum visindamönnum til rann-
sóknastarfa við vísindastofnanir í Bandaríkjunum.
Styrkir þessir eru boðnir fram á alþjóðavettvangi til
rannsókna á sviði læknisfræði eða skyldra greina
(þiomedical or behavioral sciences), þar með talin
hjúkrunarfræði. Hver styrkur er veittur til 12 eða 24
mánaða frá miðju ári 1994 og á að standa straum
af dvalarkostnaði styrkþega (19.000 til 23.000
Bandaríkjadalir), aukferðakostnaðartil og frá Banda-
ríkjunum. Einnig er greiddur ferðakostnaður innan
Bandaríkjanna.
Til þess að eiga möguleika á styrkveitingu þurfa
umsækjendur að leggja fram rannsóknaáætlun í sam-
ráði við stofnun þá í Bandaríkjunum sem þeir hyggj-
ast starfa við.
Umsóknargögn og nánari upplýsingar um styrki
þessa veitir Atli Dagþjartsson læknir, þarnadeild
Landspítalans (s. 91 -601000). - Umsóknir þurfa að
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu
4,150 Reykjavík, eða Atla Dagbjartssyni, barnadeild
Landspítalans, 101 Reykjavík, fyrir 15. júlí eða 1.
nóvember á þessu ári. Umsækjendur, sem skila um-
sóknum fyrir 15. júlí, fá vitneskju um styrkveitingu í
lok febrúar 1994 en umsóknir, sem skilað er frá 15.
júlí til 1. nóvember, verða afgreiddar fyrir 15. júní
1 994
Menntamálaráðuneytið
4. mars 1993
Merming
Guörún Þ. Stephensen, Lilja Þórisdóttir og Ingvar E. Sigurðsson í hlutverkum sínum í leikritinu Stund gaup-
unnar.
Ein ogurstund
Ungur piltur situr innilokaður fyrir tvöfalt morð og
íkveikju. Klefinn er svartur, rammlega læstur og
málmgrindur fyrir gluggum. Ekkert lauslegt lífgar upp
á þessa dapurlegu vistarveru.
En piiturinn hafði þó um tíma átt sér félaga í klefan-
um, rauðbröndóttan kött sem hann nefndi Valla. í ein-
semdinni hafði hann talað við kisa, trúað honum fyrir
sínum leyndustu hugrenningum og sagt honum frá
húsinu hans afa, reynitrénu og rósarunnanum, brunn-
inum, þar sem froskamir bjuggu og himnahörpunni
sem ómaði við húsgaflinn.
Per Olov Enquist dregur í leikritinu Stund gaupunn-
ar upp margræða mynd af mannlegum samskiptum
og spyr stórra spuminga um sekt og sakleysi. Spum-
inga sem engin einhlít svör eru til við.
En viö getum altént reynt að skilja, og myndin, sem
höfundur dregur upp, felur í sér alvarlega aðvömn
og margvísleg umhugsunarefni fyrir alla þá sem fjalia
um málefni manneskjunnar, hvort sem hún á að telj-
ast heiibrigð eða sjúk.
Merkileg tilraun með mannssálina
í verkinu era þijár persónur leiddar á svið. Piltur-
inn, Lisbet (ung kona), og prestur (eldri kona).
Lisbet er háskólanemi og hefur ásamt deildarfélög-
um sínum staðið að tilraun á hælinu sem byggðist á
þvi að láta hluta vistmanna fá að hafa gæludýr. Síðan
var annar hópur, sem engin dýr fékk, hafður til saman-
burðar en tilraunin hafði ófyrirséðar afleiðingar. Lis-
bet leitar til prestsins og biður hann að tala við pilt-
inn. Sjálf er hún ráðþrota.
Sviðsmynd Elínar Eddu Ámadóttur er einfold, sterk
og stílhrein og lýsingin vel unnin. Engu er ofaukið.
Umhverfið er kalt og ómannúðlegt. Leikstjóm Bríetar
Héöinsdóttur er vönduð og framvindan í sýningunni
öragg, þó að mér fyndist gæta ákveðins misvægis í
mótun sjálfra persónanna.
Guðrún Þ. Stephensen leikur prestinn. Hún er um-
buröarlynd, þolinmóð, lífsreynd, hefur kímnigáfu og
umfram aUt: Kann að bíöa. Hún leyfir piitinum aö hafa
sinn hátt á frásögninni en er sífellt trufluð af Lisbet sem
er óþolinmóð og pirrað auk þess sem flókin tilfinninga-
tengsl hennar við piitinn valda henni óróa.
Guðrún leikur persónuna af næmleika og fer sér að
engu óðslega í túlkuninni sem byggist á hiýrri og skiln-
ingsríkri innlifim. Blæbrigðin era fíngerð, persónan
heilsteypt.
Leiklist
Auður Eydal
Lilja Þórisdóttir leikur Lisbet, sem mér fannst ekki
veröa eins sannfærandi persóna. Upphlaup hennar
vora of ýkt og æsingsleg og í stað þess að sveiflast á
miili þess aö vera örvæntíngarfuU, reiö og ráðviUt var
Lisbet aUt að því hrottaleg eða þá sjúklega æst á miUi
þess sem hún datt úr sambandi við framvinduna.
Þama fannst mér um afdrifaríkan blæbrigðamun að
ræða sem skekkti samspfi þeirra.
Sú rödd, sem hljómar sterkast í verkinu og veldur
áhorfandanum mestum heUabrotum löngu eftir að
sýningin er á enda, er rödd pUtsins unga sem Ingvar
E. Sigurðsson leikur. Ingvar spUar hér á nokkuð aðra
strengi en oft áður og sýnir nýjar víddir í næmlegri
og vel unninni persónusköpun. Trúarlegum og sið-
ferðUegum spurningum verksins er mörgum ósvarað
en við sjáum inn í kviku persónunnar og skynjum
brot af þjáningu hennar.
Margar þeirra spuminga, sem Stund gaupunnar
hlýtur að vekja, koma beint inn í umræðu dagsins um
orsakir ofbeldisverka, eðh og tilgang refsivistar, úr-
ræði og fyrirbyggjandi aðgerðir, ábyrgð og mannkær-
leika. Þess vegna er vel tU fundið að bjóða upp á um-
ræður að lokinni sýningu, eins og fram áttu að fara á
annarri sýningu verksins í gærkvöld, og það verður
fróðlegt að heyra hvað þar bar á góma.
Þjóðleikhúsið sýnir á Litla sviðlnu: Stund gaupunnar
Höfundur: Per Olov Enquist.
Þýðandi: Þórarinn Eldjárn.
Lýsing: Ásmundur Karlsson.
Leikmynd og búningar: Elin Edda Árnadóttir.
Leikstjórn: Bríet Héðinsdóttir.
Sviðsljós
Vinsælir
Herramenn
Félagar í hijómsveitinni Herra-
menn þurfa ekki að kvarta tmdan
verkefnaleysi. Á dögunum voru þeir
fengnir til aö spUa á þorrablóti í
Stuttgart í Þýskalandi en ferðina
notuðu þeir jafnframt til að kíkja á
knattspymuhð borgarinnar og sjá
Eyjólf Sverrisson í eldhnunni. Hér
heima era Herramenn bókaðir fram
á haust og því fjóst að landsmenn era
síöur en svo hættir að skemmta sér.
Herramertn.
DV-mynd Þórhallur Ásmundsson, Sauðárkróki