Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1993, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1993
Fréttir
Könnun á hagsmunatengslum Hrafns Gunnlaugssonar við Sjónvarpið:
Ríkisendurskoðun mun
haf na beiðni Hraf ns
- málið er ekkert á vegum Alþingis, segir Salóme Þorkelsdóttir þingforseti
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV ‘mun Ríkisendurskoðun
hafna beiðni Hrafns Gunnlaugsson-
ar um að „tafarlaus athugun" verði
gerð á því hvort hann hafi brotiö af
sér í starfi eða notfært sér stöðu sína
sem dagskrárstjóri hjá Sjónvarpinu
í þágu persónulegra hagsmuna.
Hrafni verður sent bréf þessa efnis í
vikunni. Forseti Alþingis sagði.við
DV í gærkvöldi að málið væri ekki á
vegum þingsins. Því er ljóst að engin
opinber könnun eða rannsókn verð-
ur gerð á málefnum Hrafns og Sjón-
varpsins að svo stöddu.
í hefðbundnum könnunum Ríkis-
endurskoðunar á málefnum Sjón-
varpsins, sem þegar hafa verið gerð-
ar, kom ekkert fram sem gaf tilefni
til að gera athugasemdir við „við-
skipti" Hrafns við stofnunina. Það
er hins vegar ekki þaö sem ræður
afstöðu Rikisendurskoðunar til höfn-
unar á beiöni Hrafns heldur það að
stofnunin telur einstaklinga ekki
geta farið fram á að Ríkisendurskoð-
un hvítþvoi einn eða neinn með því
að setjast í „dómarahlutverk" - það
sé ekki hlutverk Ríkisendurskoðun-
ar.
„Ef menn bera fram einhver svona
erindi verða þeir að gera það með
formlegum hætti - slíkt hefur ekki
borist,“ sagði Salóme Þorkelsdóttir,
forseti Alþingis, aðspurð hvort þing-
ið mundi hlutast til um að rannsókn
eða könnun verði gerð á málefnum
Hrafns Gunnlaugssonar og Sjón-
varpsins. Páll Pétursson, Framsókn-
arflokki, skoraði á þingforseta úr
ræðustóli í utandagskrárumræðum
í síðustu viku að láta rannsókn fara
á vegum þingsins. Um það sagði
Salóme í gærkvöldi:
„Páll gerir það þá formlega ef hann
óskar eftir því að Ríkisendurskoðun
fari ofan í svona mál. Það hefur eng-
in slík beiöni borist. Hins vegar hefur
þingmönnum borist ljósrit af bréfi
þar sem Hrafn sjálfur óskar eftir
rannsókn á samskiptum sínum við
Sjónvarpið. Að öðru leyti er þetta
ekki neitt á vegum Alþingis. Þaö hef-
ur ekki komið neitt frekara erindi frá
Páli Péturssyni. Hann nefndi þetta í
hita umræðunnar um daginn en ef
hann ætlar að fylgja því eftir verður
hann að gera það formlega,“ sagði
Salóme Þorkelsdóttir.
-ÓTT
Flateyri:
Ungur maður
tvíkjálkabrotinn
- varflutturásjúkrahúsíReykjavik
„Ég var að tala við vini mína á sal-
erninu á Vagninum á Flateyri og við
vorum eitthvað að fíflast. Áður en
ég vissi af fékk ég högg í andlitið.
Ég spurði náungann hvers vegna
hann hefði gert þetta en hann muldr-
aði eitthvað óskiljanlegt. Það var
engin sýnileg ástæða fyrir því aö
hann lemdi mig. Ég þekki árásar-
manninn en hef aldrei lent í neinum
vandræðum með hann áður. Ég
þekki t.d. bróður hans mjög vel,“
segir John Dewitt, ungur maöur frá
Suður-Afríku, sem var sleginn illa í
andlitiö aðfaranótt laugardags í
Vagninum á Flateyri.
John var fluttur á Borgarspítalann
en var á leið til Flateyrar aftur í gær
þegar blaðamaður DV náði tah af
honum. John hefur verið búsettur á
íslandi í tvö og hálft ár og líkað vel
hingað til. Hann vinnur við beitn-
ingu á Flateyri.
Lögreglan hefur áður þurft að hafa
afskipti af árásarmanninum og veit
að honum hefur verið laus höndin.
Hann er búsettur í Önundarfirði.
„Ég ætla að kæra þetta. Þetta breyt-
ir ekki því að mér likar vel á íslandi
og ég fer aftur að vinna eftir viku.
Kjálkinn á mér er tvíbrotinn og aug-
Eins og sjá má var heidur illa farið
með John sem var að skemmta sér
i Vagninum á Flateyri þegar hann
fékk hnefahögg i andlitið.
DV-mynd ÞÖK
að illa farið en læknarnir vita ekki
nákvæmlega hversu langur tími líð-
ur þangað til ég verð orðinn alveg
góður. Þetta var að sjálfsögðu mjög
sársaukafullt en ég hef alls enga tii-
finningu í þessu núna vegna lyfj-
anna.“ -em
o
í w&ú
Slökkviliö Grindavíkur að störfum við söluturninn. DV-mynd Ægir Már
Milljóna tjón í Grindavík
Ægir Már Kárason, DV, Suðumfisjum
Allt tiltækt slökkvilið Grindavíkur
var kallað út þegar eldur kom upp í
húsi að Víkurbraut 27 í Grindavík á
fimmta tímanum aðfaranótt mánu-
dags. Mikill eldur var í húsinu og
þurftu slökkviliðsmennimir að nota
vélsög til þess að komast að eldinum.
Húsiö er 300 fermetrar að stærð og
er þaö talið ónýtt eftir bnmann. Ljóst
er aö þama varð margra miiljóna
króna tjón. Talið er að eldurinn hafi
komiö upp baka til í húsinu en síðan
breiðst fijótt út. í húsinu hefur verið
rekinn sölutum og billjarðstofa. Inni
í húsinu vom m.a. fjögur billjarðborð
ásamt mörgum spúakössum. í sept-
ember í fyrra kom einnig upp eldur
í húsinu og er talið að kviknað hafi
þá í út frá ruslapoka. Lögreglan í
Grindavík og sérfræðingar RLR ann-
ast rannsókn málsins.
Siglfirðingar voru að vonum kampakátir í mótslok. Frá vinstri eru Steinar
Jónsson, Ólafur Jónsson, Jón Sigurbjörnsson og Ásgrímur Sigurbjörnsson.
DV-mynd Sveinn
íslandsbankamótiö í bridge:
í f yrsta sinn sem
sveit utan Reykja-
víkur sigrar
Sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar
frá Siglufirði vann óvæntan en sann-
gjaman sigur á íslandsbankamótinu
í bridge sem spilaö var 7.-10. aprO á
Hótel Loftleiðum. Það er í fyrsta sinn
í sögunni, frá því farið var að halda
íslandsmót í bridge árið 1949, sem
sveit skipuð spilurum utan höfuö-
borgarsvæöisins hefur sigur á mót-
inu.
Nýbakaöir íslandsmeistarar í
bridge em Ásgrímur og Jón Sigur-
björnssynir og Steinar og Ólafur
Jónssynir. Þeir spilafélagarnir eru
af mikilli spilaíjölskyldu, því þeir
Ásgrímur og Jón era bræður og Ólaf-
ur og Steinar em syiúr Jóns.
Keppni um íslandsmeistaratitilinn
var jöfn og spennandi fram að lokum
síðasta leiks. Svo skemmtilega vildi
til að tvær efstu sveitirnar, sveitir
Ásgríms og Landsbréfa, mættust í
Ullarvörufyrirtækiö ístex skilaði 3
milljóna króná hagnaði á síðasta ári.
Fyrirtækiö hóf rekstur haustið 1991
á rústum Álafoss í Mosfellsbæ.
lolíaleiknum og mátti sveit Ásgríms
tapa leiknum 13-17, en samt hafa sig-
ur á mótinu. Sveit Siglfirðinga gerði
sér hins vegar líti^ fyrir og vann 18-12
sigur í leiknum og þar með mótið
með 11 stigum fram yfir næstu sveit.
Lokastaðan í úrslitum varð þannig:
1. Ásgrímur Sigurbjömsson 134
2. Landsbréf 123
3. Verðbréfam. íslandsbanka 109
4. Hjólbarðahöllin 106
5. Tryggingamiðstöðin 100
6. Ghtnir 95
7. DV 82
8. Roche 80
Keppnisstjóri í úrslitum var Kristj-
án Hauksson, sem jafnframt sá um
að reikna út árangur einstakra para.
Bestum árangri náðu Ásgrímur Sig-
urbjörnsson og Ólafur Jónsson sem
fengu að meðaltali 18,14 stig í leik.
A nýafstöðnum aðalfundi var
ákveðið að greiða 15% arð í hluta-
bréfum.
-kaa
Stuttar fréttir
Togarinn Skutull frá ísafiröi
fékk nýverið rækju fyrir tæpar
10 milljónir króna á einum sólar-
hring. Samkvæmt RÚV telja
kunnugir þetta nánast einsdæmi.
Aflaverðmæti eftir yfirstandandi
túr stefnir í 45 milljónir.
Tekjurafhernum
íslendingar fengu tæplega 10,3
milljarða í beinar tekjur frá
bandaríska hemum á Keflavík-
urvelli á síðasta ári.
Unglingar á giapstigum
i ársskýrslu RLR 1992 er gagn-
rýnt að ekki sé nóg gert til að
aðstoða unglinga sem lent hafa á
glapstigum. Spurt er hvort ekki
sé rétt að lögregla og félagsmála-
yfirvöld taki höndum saman í
samræmdu forvamarstarfi.
DjáknanámíHÍ
Háskóli íslands og þjóökirkjan
hafa ákveðiö að taka upp djákna-
nám í guðfræöideildinni næsta
haust. Verksvið djákna verður að
aðstoða presta, einkum við líkn-
ar- og fræðslustörf.
íslenskirhemtenn?
Formaður utanríkismálanefnd-
ar Alþingis telur að svo geti fariö
aö íslendingar leggi til mannafla
í friöargæslusveitir á vegum
NATO. RÓV hatði þetta eftir
Birni Bjamasyni í gær.
Breytt vegaáætlun
Uppbyggingu þjóðvegarins yfir
hálendið milli Norður- og Austur-
lands verður flýtt, samkvæmt
nýrri vegaáætlun. Skv. Stöð tvö
verður liklega byrjaö að leggja
bundið slitlag á veginn um Mý-
vatnsöræfi þegar í sumar.
Faisaöirtékkar
Tæplega 3.200 falsaöir tékkar
bárust til RLR i fyrra eða um eitt
þúsund fleiri en árið á undan.
Hrafnúrstjórn
Hrafn Gunnlaugsson hefur vik-
ið úr stjórn Samtaka kvikmynda-
leikstjóra vegna stöðu sinnar sem
framkvæmdastjóri Sjónvarpsins.
Sigursæl módel
íslensk módel unnu til níu verð-
launa í alþjóðlegri fyrirsætu-
keppni í New York um helgina.
Alls tóku um 600 ungmenni þátt
í keppninni, þar af 21 frá islandi.
Stöðtvöskýrðifráþessu. -kaa
-IS
ístex skilar hagnaði