Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1993, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1993
5
Fréttir
Þrátt fyrir áföll heldur Landsbankinn áfram að bjóða bankastjórum 1 laxveiði:
Veiðitúrinn kostar lík-
lega um tvær milljónir
- ekki umræðuhæft þótt menn fari í lax, segir Sverrir Hermannsson
„Þú verður að spyrja einhvem
annan en mig, ég stjórna ekki þess-
um málum," sagði Sverrir Her-
mannsson, bankastjóri Landsbank-
ans, þegar DV spurði hann hvort
forráðamenn bankans færu í lax-
veiðitúr í sumar og hve háum upp-
hæðum yrði eytt í veiðileyfi.
- Hver stjómar þá þessum málum
hjá Landsbankanum?
„Ég held það sé ekki umræðuhæft
þótt menn fari einhverja daga og
veiði lax. Ég nenni ekki að svara
þessu,“ sagði Sverrir.
DV hefur heimildir fyrir því að
forráðamenn Landsbankans og gest-
ir þeirra muni fara í laxveiðitúr í
sumar, eins þeir hafa gert undanfar-
in 10 ár.
„Þeir halda væntaniega áfram að
renna fyrir lax i Þverá í Borgarfirði
eins og þeir hafa gert síöustu árin. í
íyrra veiddu þeir ágætlega," sögðu
tveir heimildarmenn við DV.
Tveggja milljóna túr
Þeir sögðu ennfremur: „Þeir fara
venjulega í veiðitúrinn á besta tíma.
í sumar kostar dagurinn 55 þúsund
stöngin sem þýðir um 400 þúsund
dagurinn, en í Þverá er veitt á sjö
stangir. Síðan era tveir á hveija
stöng sem þýðir yfir 100 þúsund
krónur í fæði á dag fyrir hópinn. Mér
sýnist að þessi veiðiferð útleggist á
næstum tvær milljónir króna.“
Landsbankamenn hafa oftast farið
til veiða í Þverá í Borgarfirði en þó
hafa þeir líka veitt í Laxá í Aöaldal.
Forráðamenn Landsbankans hafa
farið til veiða í þessar veiðiár síðustu
tíu árin, einu sinni á ári. Má ætla að
Bæjarstjórinn í Hveragerði, Hall-
grimur Guðmundsson.
DV-mynd Óli Jóhann
Hveragerði:
Sóttumstyrk
ÓIi Jóhairn, DV, Hverageröi:
Bæjarstjórinn í Hveragerði, Hall-
grímur Guðmundsson, hélt fund með
atvinnulausu fólki hér 5. apríl að
Hótel Örk og var rætt um hið alvar-
lega ástand sem ríkir í atvinnumál-
um byggðarlagsins.
Þar kom fram að bæjarfélagið hef-
ur sótt um styrk til Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs til eflingar atvinnulíf-
inu. Fyrst og fremst þó til nýsköpun-
ar á atvinnutækifæram.
Um er að ræða ýmiss konar sam-
starfsverkefni með fyrirtækjum í
einkaeign svo og opinberum fyrir-
tækjum.
Fram kom í máli bæjarstjóra að í
sumum tilfellum væri um tilrauna-
verkefni að ræða en þó aö sjálfsögðu
horft fram á veginn.
kostnaður vegna veiðitúranna sé
kominn hátt á annan tug milljóna
króna.
I bankastjórahópnum má finna
mikla veiðidellukalla eins og Sverri
Hermannsson og Björgvin Vilmund-
arson. Menn með veiðidellu er líka
að finna í bankaráðinu eins og Stein-
grím Hermannsson, Friðrik Sophus-
son og Lúðvík Jósepsson.
-hlh/G.Bender
/
OSKAmiFEYRIR
að þínu vali!
SVEIGJANLEGUR
LÍFEYRIR
meignar- eba séreignarfyrirkomulagi
Óskalífeyrir leggur áherslu á sveigjanlegt lífeyrisfyrirkomulag. Hann hjálpar
þér með einföldum en markvissum sparnaöi að styrkja lífeyrisrétt þinn og
leggur þannig grunn að öruggri afkomu á efri árum. í Óskalífeyri getur þú
hafið lífeyristöku 60 ára og þú átt val um á hve löngum tíma þú tekur út
þinn lífeyri.
ÓSKALÍFEYRIR
býður upp á eftirtalda lífeyrismöguleika sem velja má úr einn eða fleiri.
Ævilífeyrir
er greiddur mánaðarlega frá lífeyrisaldri til dánardags.
Tímabilslífeyrir
er greiddur mánaðarlega í ákveðinn tíma. Lágmarkstími er 5 ár en
hámark 20 ár.
Eingreiðslulífeyrir
greiðist í einu lagi á lífeyrisaldri.
Eingreiðslusöfnun
er séreignarfyrirkomulag og greiðist í einu lagi á lífeyrisaldri.
ÓSKALÍFEYRIR - NÝJUNG í LÍFEYRISMÁLUM!
Þú færð nánari upplýsingar hjá tryggingarráðgjöfum Sameinaða líftryggingarfélagsins hf. Hafbu samband!
Sameinaða líftryggingarfélagið hf. Kringlunni 5, 103 Reykjavík. Sími 91- 692500
í eigu Sjóvá-Almennra trygginga hf. og Tryggingamiðstöbvarinnar hf.