Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1993, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1993
Fréttir
i>v
Bjöm Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, um væntanlegar aðgerðir ríkisstjómarinnar:
Hóf lega bjartsýnn á
viðunandi útspil
- segir erfiða sólarhringa framundan við gerð kjarasamninga
„Miöað við það sem á undan er
gengiö er ég hóflega bjartsýnn á að
útspil ríkisstjórnarinnar verði þess
eðlis að við getum sætt okkur við
það. Við munum hins vegar líta á
þessar síðbúnu yfirlýsingar þegar
þær berast okkur og kalla síðan sam-
an samninganefndina. Þaö er að
mörgu að gæta, til dæmis varðandi
vextina. Þá munum við ekki sætta
okkur við aukna skatta á umbjóð-
endur okkar til að fjármagna vænt-
anlegar aðgeröirr“ segir Björn Grétar
Sveinsson, formaður Verkamanna-
sambandsins.
Bjöm Grétar segir fulltrúa ASÍ
vænta þess að ríkisstjómin skýri
aðilum vinnumarkaðarins frá því í
dag til hvaöa aðgerða hún sé reiðu-
búin að grípa til að liðka fyrir gerð
nýrra kjarasamninga. Samkomulag
hefur hins vegar náðst í meginatrið-
um milh ASÍ og VSÍ um framleng-
ingu á síðustu samningum, að því
tilskildu að ríkisstjórnin sé reiðubú-
in til aðgerða sem auka kaupmátt og
atvinnu. Samninganefnd ASÍ beið
eftir útspili ríkisstjómarinnar fram
á kvöld síðastliðinn miðvikudag án
þess að það bærist.
Nokkurrar gremju varð vart fyrir
páska hjá samninganefndarmönnum
vegna seinagangs ríkisstjórnarinnar.
í viðræðum við aðila vinnumarkað-
arins hefur hún meðal annars viðrað
þá hugmynd að lækka virðisauka-
skatt af matvælum niður í 14 prósent
um næstu áramót og setja einn mihj-
arð í auknar verklegar framkvæmdir
í ár og annan á því næsta. Þá hefur
hún lýst yfir vilja sínum til að beita
sér fyrir vaxtalækkunum.
„Það er margt loðið í þessu og í
Straumsvíkurdeilunni er aht í hnút.
Yfirlýsing ríkisstjómarinnar þarf að
vera skýr og afdráttarlaus ef við eig-
um að geta sætt okkur við hana.
Framundan em erfiðir sólarhring-
ar,“ segir Björn Grétar.
-kaa
Flugfélag Noröurlands:
Þrjár gæsir lentu
á hreyf li skrúf u-
þotu í lendingu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Vélin var komin yfir brautar-
endann en ekki lent þegar þetta gerð-
ist en lendingin tókst vel og engan
sakaði," segir Sigurður Aðalsteins-
son, framkvæmdastjóri Flugfélags
Norðurlands, en Metro Fairchild
skrúfuþota félagsins fékk fugla í ann-
an hreyfilinn er hún var að koma inn
th lendingar á Akureyrarflugvelli á
laugardagskvöld. 18 farþegar vom í
véhnni sem var að koma frá Reykja-
vík.
Að sögn Sigurðar lentu 3 gæsir á
hreyfli vélarinnar og ein þeirra
a.m.k. sogaðist inn í hreyfilinn og
brotnuðu í honum margir hlutir. Sig-
urður segir ekki ljóst á þessari
stundu hvort hreyfillinn sé ónýtur
en ef svo er þá er tjónið um 20 millj-
ónir króna.
Fuglalíf við flugbrautina á Akur-
eyri er mikið vandamál og segir Sig-
urður að frekar sé hlúð að fuglalífi
þar en reynt að hindra það og afstýra
þannig mikilli slysahættu. „Þaö hef-
ur nánast ekkert verið gert til að
bæta úr þessu ástandi en það em
ýmsar leiðir færar í því eins og t.d.
að koma upp svoköhuðum „hátíðni-
högnum" og það að láta fuglana aldr-
ei í friði og hrekja þá burtu. Slysa-
hættan er mikh vegna þeirra og við
munum þrýsta verulega á um að eitt-
hvað verði gert til úrbóta th að koma
í veg fyrir stórslys," sagði Sigurður.
Utanríkisráöuneytið:
Miðstöð sjái um EES-þýðingar
- kostnaðurviðþýðingarorðmnllOmílljómr
Ríkisstjómin hefur ákveðið að
koma á fót miðstöð th að hafa yfir-
stjórn á textaþýðingu í tengslum
við EES. í framtíðinni munu tveir
starfsmenn vinna á miðstöðinni en
einstakar þýðingar verða boðnar
út. Samkvæmt heimhdum DV
gerði utanríkisráðuneytið tillögur
um tvo aðra kosti, annars vegar að
koma á fót ríkisstofnun með
minnst átta manna sveit fastráð-
inna þýðenda og hins vegar að
bjóða alla vinnuna út.
Hehdarkostnaður við EES-þýð-
ingar er orðinn mun hærri en áæti-
að var, eða um 110 mhljónir. Ahs
hefur rikið launað 15,5 stöðugildi
aö undaníornu vegna þessa. Fjár-
veiting þessa árs er nánast uppur-
in.
Að sögn Jóns Baldvins Hannib-
alssonar utanríkisráðherra gefur
seinkun á gildistöku EES mögu-
leika á að draga úr hraðanum við
þýðingar og færa fjármuni yfir í
þýðingar frá öðrum verkefnum. Til
dæmis lækki framlög íslands th
aðalskrifstofu, eftirhtsstofnunar og
dómstóls miðað við fyrri áætlanir.
Tilfærslan þýði því ekki aukin út-
gjöld vegna EES.
-kaa
Akureyri:
Tvö slys í umf erðinni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Tvö slys urðu í umferðinni á Akur-
eyri um páskana en í hvorugt skiptið
var um alvarleg meiðsl að ræða.
Þriggja ára stúlka varð fyrir bifreið
í Aðalstræti. Hún fór í skoðun á
slysadehd og var hrufluð og marin.
Ökumaður bifreiðar, sem lenti í
hörðum árekstri á Spítalavegi, var
einnig fluttur á slysadehd en var
ekki mikið slasaður. Nokkuð var um
hraðakstur á Akureyri þessa daga
eins og venjan er á vorin þegar gott
veður er.
Hjá séra Árna Bergi Sigurbjörnssyni og söfnuði hans í Áskirkju ríkti hátíðar-
stemning við fermingarathöfn í gær, annan dag páska. Há sem lág gengu
börnin til altaris og hlýddu þar á guðsorð. Eftir að hafa staðfest skirnarheit-
ið var þeim haldin veisla þar sem bernskuárin voru kvödd. Vel á sjötta
hundrað ungmenna voru fermd í kirkjum landsins í gær. Alls er gert ráð
fyrir að á fimmta þúsund ungmenni fermist nú á vormánuðunum. Fermingar-
börnin og aðstandendur þeirra eiga eftir að minnast þessarar hátíðar um
ókomin ár enda er fermingin talin mikilvægur áfangi i lífi sérhvers kristins
manns. DV-mynd JAK
Akureyri:
Ráðist á lögregluna
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
Tveir ungir menn, annar þeirra
aðeins 15 ára, réðust á lögreglu-
þjóna sem voru að hafa afskipti af
tveimur öörum mönnum sem voru
í slagsmálum í miðbæ Akureyrar í
fyrrinótt.
Annar mannanna tveggja, sem
voru í slagsmálum, lá meðvitund-
arlaus í götunni er lögreglan kom
að. Þegar lögregluþjónamir tveir
fóru að hafa afskipti af gangi mála
réðust tveir aðrir menn að þeim.
Annar lögreglumannanna var
klóraður og rispaður í andhti eftir
árásina. Annar árásarmannanna
fékk gistingu í fangageymslu en
hinn, sem var 15 ára, var keyrður
heim og báðir eiga væntanlega
kæru yfir höfði sér.
Að sögn varðstjóra var nokkur
ölvun um bænadagana á Akureyri
eins og gengur en aht gekk þó stór-
slysalaust.
Peningamarkaður
INNLÁNISVEXTIR (%) hæst
innlAn óverðtr.
Sparisj.óbundnar 0,75-1 Allirnema isl.b.
Sparireikn.
6 mán. upps. 2 Allir
Tékkareikn., alm. 0,25-0,5 Allir nema ísl.b.
Sértékkareikn. 0,75-1 Allirnema isl.b.
VISITÖIUB. REIKN.
6mán. upps. 2 Allir
15-30 mán. 6,25-6,85 Bún.b.
Húsnæðissparn. 6,5-6,85 Bún.b.
Orlofsreikn. 4,75-5,5 Sparisj.
Gengisb. reikn. iSDR 4,25-6 islandsb.
iECU 6,75-9 Landsb.
ÓBUNDNÍR SÉRKJARAREIKN.
Vísitölub., óhreyföir. 2-2,5 Landsb., Bún.b.
Óverðtr., hreyföir 4-4,75 Sparisj.
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR
(innantimabils)
Vísitölub. reikn. 2,4-3 Landsb., Is-
landsb.
Gengisb. reikn. 2,4-3 Landsb., Is-
landsb.
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKN.
Visitölub. 4,75-5,25 Búnaðarb.
óverðtr. 6-6,75 Búnaðarb.
INNLENDIR GJALDEYRISREIKN.
$ 1,25-1,9 islandsb.
£ 3,5-3,75 Búnaðarb.
DM 5,75-6 Landsb.
DK 7-8 Sparisj.
UTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTLÁN óverðtryggð
Alm.víx. (forv.) 12,5-13,45 Búnaðarb.
Viðskiptav. (forv.)1 . kaupgengi Allir
Alm. skbréf B-fl. 12,75-14,15 Landsb.
Viðskskbréf1 kaupgengi Allir
OTLÁN VERÐTRYGGÐ
Alm.skb. B-flokkur 8,75-9,35 Landsb.
AFURÐALÁN
l.kr. 13-14 Landsb.
SDR 7,75-8,35 Landsb.
$ 6-6,6 Landsb.
£ 8-9 Landsb.
DM 10,5-11 Sparisj.
Dráttarvextir 17%
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf febrúar 14,2%
Verðtryggð lán febrúar 9,5%
ViSITÖLUR
Lánskjaravísitala april 3278 stig
Lánskjaravísitala mars 3263 stig
Byggingarvísitala apríl 190,9 stig
Byggingarvísitala mars 189,8 stig
Framfærsluvísitala mars 165,4 stig
Framfærsluvisitala febrúar 165,3 stig
Launavisitalafebrúar ^ 130,6 stig
Launavisitala mars 130,8 stig
VERÐBREFASJÖÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóða
KAUP SALA
Einingabréf 1 6.613 6.734
Einingabréf 2 3.653 3.671
Einingabréf 3 4.321 4.400
Skammtímabréf 2,257 2,257
Kjarabréf 4,553 4,694
Markbréf 2,438 2,573
Tekjubréf 1,506 1,553
Skyndibréf 1,927 1,927
Sjóðsbréf 1 3,229 3,245
Sjóðsbréf 2 1,965 1,985
Sjóðsbréf 3 2,225
Sjóðsbréf 4 1,530
Sjóðsbréf 5 1,369 1,390
Vaxtarbréf 2,2757
Valbréf 2,1324
Sjóðsbréf 6 895 940
Sjóðsbréf 7 1171 1206
Sjóðsbréf 10 1192
Glitnisbréf
islandsbréf 1,396 1,423
Fjórðungsbréf 1,148 1,165
Þingbréf 1,414 1,434
Öndvegisbréf 1,402 1,421
Sýslubréf 1,333 1,351
Reiðubréf 1,368 1,368
Launabréf 1,022 1,037
Heimsbréf 1,216 1,253
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi á Veröbréfaþingi islands:
Hagst. tilboð
Loka-
verð KAUP SALA
Eimskip 4,00 3,65 4,05
Flugleiðir 1,20 1,00 1,19
Grandi hf. 1,80 1,50 1,95
Islandsbankihf. 1,06 1,01 1,06
Olís 1.75 1,75 1,90
Útgerðarfélag Ak. 3,45 3,20 3,58
Hlutabréfasj. VlB 0,98 0,98 1,04
isl. hlutabréfasj. 1,07 1,05 1,10
Auðlindarbréf 1,02 1,02 1,09
Jarðboranirhf. 1,82
Hampiðjan 1,20 1,15 1,45
Hlutabréfasjóð. 1,20 1,20 1,26
Kaupfélag Eyfirðinga. 2,25 2,20 2,30
Marel hf. 2,60 2,40
Skagstrendingurhf. 3,00 3,30
Sæplast- 2,95 2,88 3,10
Þormóðurrammi hf. 2,30 2,30
Sölu- og kaupgengi á Opna tilboösmarkaöinum:
Aflgjafi hf.
Alm. hlutabréfasjóðurinn hf 0,88 0,91
Ármannsfell hf. 1,20
Árnes hf. 1,85 1,85
Bifreiðaskoðun islands 2,50 2,84
Eignfél. Alþýðub. 1,20 1,15 1,45
Faxamarkaðurinn hf.
Fiskmarkaöurinn hf. Hafn.f. 0,80
Gunnarstindurhf. 1,00
Haförninn 1,00
Haraldur Böðv. 3,10 2,94
Hlutabréfasjóður Norður- 1,10 1,06 1,10
lands
Hraðfrystihús Eskifjarðar 2,50 2,50
isl. útvarpsfél. 2,00
Kögun hf. 2,10
Olíufélagið hf. 4,45 4,30 4,90
Samskiphf. 1,12 0,98
Sameinaðirverktakarhf. 6,90 6,30 7,18
Síldarv., Neskaup. 3,10 3,10
Sjóvá-Almennar hf. 4,35
Skeljungurhf. 4,25 3,51 5,00
Softishf. 24,00 23,00 25,00
Tollvörug. hf. 1,43 1,10 1,36
Tryggingamiöstöðin hf. 4,80
Tæknival hf. 1,00 0,99
Tölvusamskipti hf. 4,00 3,50
Útgerðarfélagiö Eldey hf.
Þróunarfélaglslandshf. 1,30
1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum,
útgefnum af þriðja aöila, er miðað við sérstakt kaup-
gengi.